Morgunblaðið - 06.10.1973, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.10.1973, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973. IÞROTTAFRETTIR MORGUIIIRLAÐSINS Keppnin um Eyrópubikarinn: Meðfylgjandi mynd sýnir tvo fræga kappa, þá Eusebio frá Portúgal og George Best, norður-írska vandræðagems- ann hjá Manchester United. I síðustu viku lék Benfica, lið Eusebios, við Evrópulið og lék Best þá sinn fyrsta leik í langan tima. Leiknum lauk með jafn- tefli 2:2, ekki þótti Best neitt sérstakur í leiknum, aukakílóin voru greinilega orðin of mörg. Hann er þó óðum að komast í sitt gamla form og þess verður ef til vill ekki langt að bíða að Best fari að nýju að leika með Manchester United, en félagið hefur tekið hann í sátt að nýju, eftir allt uppistandið sem varð í fyrra. Ágóði af leik Benfica og Evrópuliðsins rann til Eusebios, en hann er smátt og smátt að draga sig í hlé frá knattspyrnunni. Ef til vill hefur Eusebio sagt við Best þegar þessi mynd var tekin. — Velkominn aftur. 200 ungmenni á námskeiði Tveir körfu- boltaleikir Reykjavfkurmótið í körfu- knattleik hófst með tveimur leikjum í gær og mótinu verður fram haldið á morgun með öðr- um tveimur. Fyrst IR—ÍS og sfðan Valur—KR. Eftir frammi- stöðu liðanna, það sem af er keppnistímabilinu í körfu- Geysilegur áhugi virðist vera fyrir körfuknattleik meðal barna og unglinga á Akureyri. I dag klukkan 10 hefst þar nám- skeið á vegum körfuknattleiks- sambandsins, og hafa 200 börn og unglingar, á aldrinum 10—14 ára, tilkynnt þátttöku í námskeiðinu. Leiðbeinandi verður sá kunni körfuknatt- leiksmaður Einar Bollason. Velkominn aftur! knattleik, ættu báðir þessir leikir að geta orðið skemmtileg- ir og jafnir. Fyrri leikurinn hefst klukkan 14.30 á morgun f Laugardalshöllinni. — Þarna hefðum við átt að vera, frábært lið og fullur völlur áhorfenda. Þetta voru orð eins af forráðamönnum ÍBK, er hann frétti, að skozka liðið Hibernian léki 1 annarri umferð við enska liðið Leeds. Dregið var f keppn- inni um Evrópubikarana þrjá f Sviss 1 gær og eiga leikmenn Leeds heimaleikinn á undan á móti Hibernian. Basel frá Sviss, mótherjar Fram f 1. umferðinni, leika við belgfsku meistarana FC Brugge f 2. umferð og á Brugge fyrri heimaleikinn. Borussia Mönchengladbach — „slátrarar fBV f 1. umferðinni“ — mæta erfiðum andstæðingum f 2. um- ferð, Glasgow Rangers frá Skot- landi. Meðal liðanna sem leika saman í 2. umferð eru eftirtalin: Evrópumeistarakeppnin: Bayern Miinchen — Dynamo Dresden Red Star — Liverpool FC Brugge — Basel Celtic — Vejle Ajax — CSKA Sofia Evrópukeppni bikarmeistara Borussia Mönchengladbach — Glasgow Rangers Sporting — Sunderland FC Ziirich — Malmö FF AC Milan — Rapid Vín UEFA-keppnin: Leeds United — Hibernian Ipswich Town — Lazio Roma Lokomotive Leipzig — Wolves Aberdeen — Tottenham Hotspurs Feyenoord — Gwardia Warsjá Dynamo Kief — B 1903 Standard Liege — Universitatea, Rúmeníu Hib’s mætir Leeds í næstu umferð Atvinnumenn á skautum Afmælisleikur unglinga- landsliðsins og Faxaflóa Eins og frá var skýrt f Morgun- blaðinu í gær átti Albert Guð- mundsson formaður KSl 30 ára afmæli í gær. Af þvf tilefni hefur unglinganefnd KSl ákveðið að efna til afmælisleiks á miili Faxa- flóaúrvalsins fræga og unglinga- landsliðs, sem leika á við Ira f Dublin 16. þ.m. Leikur liðanna fer fram á Melavellinum I dag og hefst klukkan 14.00. Um þessar mundir er Unglinga- nefnd KSl að ganga endanlega frá vali unglingaliðsins, sem leika á í Dublin í undankeppni ungl- ingakeppni UEFA. Verður ungl- ingalandsliðið valið að loknum leiknum í dag. Síðari leikur Is- lands og Irlands fer fram í Reykjavik 25. október og lýkur þar með keppnistímabilinu 1973, en aðalkeppni UEFA-mótsins fer fram í Svíþjóð í maí 1974. Ágóði af leik Unglingalands- liðsins og Faxaflóaúrvalsins rennur í Haukssjóðinn. Faxaflóa- úrvalið er skipað sömu leikmönn- um og gerðu garðinn frægan í Skotlandi 1971. Meðal leikmanna Faxaflóaliðsins má nefna lands- liðsmanninn Gfsla Torfason. Tveir af leikmönnum Faxaflóa- liðsins eru enn á unglingaliðs- aldri, þeir Janus Guðlaugsson og Ólafur Magnússon og leika þeir með unglingalandsliðinu í dag, en það er skipað eftirtöldum leik- mönnum: Ólafi Magnússyni Val, Guðjóni Þórðarsyni lA, Guðjóni Hilmarssyni KR, Janus Guðlaugs- syni FH, Árna Valgeirssyni Þrótti, Gunnlaugi Kristfinnssyni Víkingi, Guðmundi Arasyni Vík- ingi, Hannesi Lárussyni Val, Óskari Tómassyni Víkingi, Kristni Björnssyni Val og Áma Sveinssyni IA. Hollendingurinn fljúgandi, skautakóngurinn Ard Schenk, hefur nú gerzt atvinnumaður I íþrótt sinni. Hann hefur, ásamt löndum sínum Jan Bols og Kees Verkerk, skrifað undir samning við nýtt fyrirtæki atvinnuskauta- manna, WISO. Alls eru nú atvinnuskautamenn hjá WISO orðnir níu, auk Hoolendinganna eru það þeir Roar Grönvold, Björn Tveter og Ivar Ericsen frá Noregi, Finnarnir Seppo Hánninen og Leo Linkovesi, og sá níundi er Bandaríkjamaðurinn Greg Lyman. Samningar þessara manna við WISO eru ekki bindandi, og getur hvor aðilinn sem er, sagt samn- ingunum lausum, takist WISO ekki að skapa skautaköppunum næga keppni eða fé, WISO var stofnað eftir að bandaríska fyrir- tækið ISSL, sem reið á vaðið í fyrra með skautamót atvinnu- manna, hætti starfsemi sinni vegna halla á fyrsta árinu. Forráðamenn Hib’s hrifnir af Þorsteini Eftir leik Hibernian og ÍBK I UEFA-keppninni á miðviku- daginn, komu forráðamenn skozka liðsins til Hafsteins Guðmundssonar og annarra stjórnarmanna f IBK og hrós- uðu óspart Þorsteini Ólafssyni markverði IBK. Við höfðum samband við Hafstein Guðmundsson f eær oe SDurð- um hann, hvort Skotarnir hefðu boðið Þorsteini at- vinnumannasamning. Haf- steinn sagði, að svo hefði ekki verið, Skotarnir hefðu aðeins verið hrifnir af landsliðsmark- verðinum og sagt, að hann væri gjaldgengur f hvaða 1. deildar lið sem væri f Skotlandi. — Þeir létu f jiað skfna, að IBK hefði 1. flokks markmann, sagði Hafsteinn, en það var ekkert rætt um, að þeir hefðu áhuga á að kaupa Þorstein. Þorstein Ólafsson töluðu Skotarnir ekki við og kom hann því af fjöllum, er eitt dagblað- anna hafði samband við hann og spurði, hvort hann væri í þann veginn að gerast atvinnu- maður f knattspyrnu. Sagði Þorsteinn, að í slíkt hefði ekki verið nefnt við sig og hann myndi hugsa sig vel um áður en hann ákvæði að gerast atvinnu- maður. Þorsteinn er kennari við Gagnfræðaskólann f Kefla- vík, en les auk þess efnafræði við Háskólann. Það er undar- legt með Þorstein, sem án efa er okkar snjallasti markvörður, að hann á aldrei betri leiki en i Evrópukeppni, og er í því sam- bandi rétt að minnast á leiki hans á móti Hibernian nú og leiki hans á móti Real Madrid og Everton. I Everton-leiknum varði Þorsteinn frábærlega vel, og átti þulurinn í BBC varla nógu stór orð til að lýsa leik hans, eru ensku þulirnir þó ýmsu vanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.