Morgunblaðið - 06.10.1973, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÖBER 1973.
11
Fáein orð um
hjúkrunarnám
á háskólastigi
Rétt fyrir síðustu helgi komu
fréttir í fjölmiðlum um nýja
námsbraut við Háskóla Islands,
þ.e. í hjúkrunarfræðum. Við
nánari athugun kemur í ljós, að
hér er ekki um framhalds-
menntun fyrir húkrunarfólk að
ræða, heldur 4 ára grunnmenntun
í hjúkrun til BA prófs og ein-
göngu ætlaða stúdentum. Leitað
hefur verið til beggja hjúkrunar-
skólanna og þeir beðnir um að
taka að sér verklega kennslu.
Veldur þetta því meiri undrun
og vonbrigðum hjúkrunarfólks,
sem þörfin á framhaldsmenntun í
ýmsum greinum hjúkrunar er svo
brýn, að til algjörra vandræða
horfir í stéttinni.
Hjúkrunarfólk hefur sýnt alltof
mikla biðlund og undanfarið
fengið þau svör, að framhalds-
menntun væri í undirbúningi og á
næsta leyti. Það er því hrein lítils-
virðing við hjúkrunarstéttina, að
hún skuli svikin á þennan hátt
um það framhaldsnám, er kemur
fram í bréfi menntamálaráðherra
til háskólarektors dags. 29/6 '73,
að hafi verið ætlunin að setja inn
i háskólann.
í bréfinu segir svo: „Eins og
yður, herra háskólarektor, er
kunnugt, hefur ráðuneytið bréf-
lega og munnlega lýst áhuga sín-
um á þvi, að hafið verði fram-
haldsnám á háskólastigi fyrir
hjúkrunarkonur þ.e. þær sem
lokið hafa hjúkrunarnámi við
Hjúkrunarskóla Islands og Nýja
hjúkrunarskólann. Ennfremur,
að athugaðir verði möguleikar á
því, að stúdentar eða aðrir með
sambærilega menntun eigi kost á
hjúkrunarnámi á háskólastigi i
samstarfi við hjúkrunarskólana
báða. Vill ráðuneytið enn minna á
þetta mál og væntir þess, að
háskólinn taki það til athugunar
hið fyrsta í samstarfi við ráðu-
neytið."
I bréfi ráðherra er lögð
aðaláherzla á framhaldsmenntun
á háskólastigi, en hér hafa verið
höfð endaskipti á hlutunum og
flanað út í að stofna 3. hjúkrunar-
skólann án minnstu vitundar
þorra íslenzku hjúkrunarstéttar-
innar. Við erum því enn í sömu
sporum og verðum áfram að
sækja allt framhaldsnám út fyrir
landsteinana. Þetta eru harðir
kostir í svokölluðu háþróuðu
þjóðfélagi, sem samtímis líður
vegna skorts á sérhæfðu
hjúkrunarfólki. Vekja má athygli
á, að í Noregi er unnið að þvf að
koma framhaldsnámi fyrst inn í
háskólana. Norðmenn telja sig
ekki hafa efni á að vanrækja svo
menntun hjúkrunarfólks síns,
sem íslendingar leyfa sér. En það
kitlar e.t.v. hégómagirnd sumra,
að ísland skuli vera fimmta
Evrópulandið, sem tekur upp
slíka hjúkrunarbraut við háskóla,
og hverju skiptir þá, þótt annað
sitji á hakanum?
Það er auðfundið, að félags-
mönnum innan Hjúkrunarfélags
Islands eiga ekki að koma þessi
mál neitt við. Það virðist álit
hjúkrunarforustu okkar, að eðli-
legra sé að kynna þessi mál á
hjúkrunarþingum erlendis.
Hvað veldur, að yfirlýsing um
hina nýju námsbraut er fyrst birt
opinberlega þ. 27. sept. ’73, þrátt
fyrir, að ráðamönnum er vel
kunnugt um, að 1. okt. hefja 100
nemendur hjúkrunarnám í
Hjúkrunarskóla islands, þar af 20
stúdentar. Eiga þeir stúdentar að
taka afstöðu á einum til tveimur
dögum til svo mikilvægs máls, er
varðar framtíð þeirra?
Um leið og við lýsum vanþókn-
un okkar á slfkum vinnubrögðum,
er furða okkar blandin beiskum
keim aðdáunar yfir hinum snögga
og óvænta framgangi þessa máls.
Við höfum þvf miður ekki kynnst
slíkum röskleika af hálfu hins
opinbera, hvað hagsmunamálum
stéttar okkar viðkemur.
Við megum vonandi búast við,
að framvegis verði þessum rösk-
leika beitt i þágu hjúkrunar-
stéttarinnar og að nú þegar verði
lagður grundvöllur að framhalds-
menntun hér á landi.
Reykjavík, 1. okt. 73.
Með þökk f yrir birtinguna.
Arndís Finnsson.
Inga Teitsdóttir.
TimUGU VESTMANNAEY-
INGAR SENDA KVEÐJUR
Nú með byrjun október hafa
allir skólar landsins hafið göngu
sina að fullu. Nýtt skólaár hefst,
þessi árvissi atburður og svo sjálf-
sagður sem hann er, fer hann þó
ekki alveg þögull um garða hjá
neinum eins og oft er raunin á um
hið venjubundna og sjálfsagða.
Þessi atburður snertir enda unga
sem gamla. Og svo mjög eru
áhrifin djúpstæð, að enn á gamals
aldri er margan að dreyma sínar
löngu liðnu vítiskvalir, þegar
hann eða hún gengu kvfðin og
næstum örvæntandi í skólann, af
því að þau höfðu trassað námið
meir en góðu hófi gegndi. Og
hvaða hugsandi fólki verður ekki
hugsað til sinnar eigin skóla-
göngu, síns eigin skóla?
Við, sem stöndum að línum
þessum, erum tuttugu manna
hópur Vestmannaeyinga, sem
löngu er kominn af skólaaldri. En
við fullyrðum, að við metum engu
að sfður mikils þýðingu skóla-
lífsins. Við þekkjum af
reynslunni, að til þess þarf mjög
að vanda, sem vel og lengi á að
standa. En allt skólastarf er
vandasamt og krefst vandvirkni.
Megi því samhugur, skilningur
og samvinna dafna og fara dag-
vaxandi með foreldrum, kennur-
um og nemendum, svo að þjóðin
öll vakni til dagsins, sem aldrei
lfður að kvöldi, hvað snertir þegn-
skap og andlegan þroska.
Að við tjáum hug okkar til
skólaæskunnar og skólalífsins, er
vegna þess, að við, eða þessi um-
getni tuttugu manna hópur Vest-
manneyinga, eigum heillandi
minningar frá því í sumar, sem
eru tengdar .einum af skólum
þessa lands, Kvennaskólanum að
Löngumýri í Skagafirði.
Svo er nefnilega mál með vexti,
að dagana frá 20. ágúst til 1. sept.
í sumar dvöldum við þarna í boði
Hjálparstofnunar Þjóðkirkju
Islands. Þarna fundum við þann
yl og þann anda, sem hlýtur að
vera eitt með sál þessara húsa-
kynna, sumar og vetur.
Kvennaskólinn að Löngumýri
hefur verið rekinn nokkra undan-
fama áratugi af miklum dugnaði
og myndarbrag, en síðustu árin
hefur hann verið á vegum
kirkjunnar. Núverandi skóla-
stjóri er ungfrú Margrét
Jónsdóttir.
Þessi tfu daga dvöl var mjög vel
heppnuð, sannkölluð sæluvika,
hjálpuðust enda að bæði Guð og
menn til þess að gjöra samveru-
stundirnar ógleymanlegar.
Með línum þessum var ætlunin
að þakka Hjálparstofnun Þjóð-
kirkjunnar fyrir þá rausn að
bjóða okkur í þetta einstæða
ferðalag og eftirminnilegu dvöl.
Jafnframt þökkum við forstöðu-
konunni innilega fyrir það
Framhald á bls. 25.
^^..bílar
ALLT
UM BÍLA
eðaþví
sem næst
1974 árgerðir hinna ýmsu bfl-
gerða streyma nú til lansins —
Bandarfkjamenn sjálfir, sem
hafa verið allra manna
hrifnastir af stórum vélum,
framleiða nú smærri bfla og
vélar en áður til að minnka
bensfneyðslu og mengun. —
Það kostar 350 kr að aka Land-
Rover 100 km vegalengd, ef
ekið er á 60 km/klst hraða og
ingöngu tekið tillit til bensfn-
eyðslu, krónutalan er sfzt lægri
fyrir aðra jeppa. — Mazda RX
500 heitir nýr sportbfll, sem er
Wankel-knúinn og ætlað að
keuoa við Datsun 240Z.
Bílaframleiðendur og raunar
margir aðrir framleiðendur
velta nú fyrir sér, hvernig
gera megi verksmiðjuvinnu
skemmtilegri. Færi-
bandavinnan er það, sem hér
um ræðir, og er svo til-
breytingarlaus og einföld og
krefst svo lítillar hugsunar, að
sumir hafa haldið því fram að
kenna mætti öpum störfin. Við-
leitni framleiðenda til að reyna
að auka fjölbreytnina er hins
vegar litin tortryggnisaugum af
verkalýðsforystunni, sem telur,
að einungis sé verið að auka
vinnuálagið.
Ford Cortina hefur nú verið
framleidd í næstum 3 millj. ein-
taka. Cortinan er mest seldi bíll
Bretlands. A 1974 árgerðunum
hafa litlar breytingar verið
gerðar, nema þær sem
óhjákvæmilegar mega teljast á
nýrri árgerð. Þess má geta að
1600 rúmsm vélin sem nú er völ
á, er ný með yfirliggjandi
knastás.
— Fyrsta bílútvarpið kom á
markaðinn 1929. Það var í bíl,
er nefndist Stutz, og tækið
kallaðist Transitone. — Reo
bílaverksmið.iurnar konju
Firestone framleiðendurnir
hafa átt f f járhagsorðugleikum.
— Neðsta myndin er af einum
af beztu bflum heims Porsche,
en á efstu myndinni sést inn i
nýja lúxusútgáfu af Ford
Cortinu.
fyrstar bílaframleiðenda með
sjálfskiptingu. Það gerðist árið
1934. — Fyrsti framdrifni bíll
sögunnar var svonefndur Cord
L-29 árgerð 1929. — Snúnings-
vélin (rótary) var uppgötvuð
af Þjóðerjanum Dr. Felix
Wankel árið 1954.
Tími bílasýninganna er
hafinn. Hin árlega bflasýning f
London verður að venju í
október, dagana 17. til 27.
(Jt í heimi velta menn þvf
fyrir sér, hver verði nú bezti
bíll ársins og hver lakastur.
Samtímis láta menn hér sér
nægja að spyrja um ryðið og
púströrið, hvort til séu varahlut
ir og hvað bíllinn kosti.
Skotinn Jackie Stewart er
nýbakaður heimsmeistari i
kappakstri í ár og er það í
þriðja sinn, sem hann vinnur
titilinn. Heimsmeistarakeppnin
f kappakstri fer fram f Formúlu
I bílum (Grand Prix), sem eru
háþróuðustu bílar heims.
Jackie Stewart hefur einnig
náð því marki að sigra oftar i
Grand Prix keppnum en nokk-
ur maður annar, 27 sinnum, og
hann er ekki enn hættur að
keyra.
— Nú er rétti tíminn til að
láta mæla frostlagarstyrkinn á
bilum ykkar. Gætið þess einnig
að ekki frjósi á rúðusprautun-
um. Búið bilana vel undir
veturinn.
Br. H.