Morgunblaðið - 06.10.1973, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
31
HELMINGSMUNUR
hiá Val í Dortmund
Gummersbach vann 16:8
Frá Steinari J.,Lúðvfkssyni
í Dortmund.
Það vantaði ekki að Valsmenn léku vel f fyrri hálfleiknum á móti
Gummersbach f Dortmund f gærkvöldi. Að fyrri háifleiknum loknum
var staðan 8:6, en seinni hálfleikurinn var svo algjör martröð fyrir
Valsmennina, þeir voru hreinlega kaffærðir af Þjóðverjunum sem
unnu seinni hálfleikinn 8:2 og leikinn þar með 16:8.
Að leika við Gummersbach f
Vestfalen-höllinni í Dortmund er
ekkert grín og mörg liða hafa
farið illa út úr leikjum sfnum f
þessu óvinnandi vígi Hansa
Schmidt og félaga. Þó höfðu Vals-
menn og þeirra fylgismenn gert
sér vonir um góðan árangur í
leiknum þar áður en hann hófst, í
leikhléi var enn von meðal Vals-
mannanna, en þær voru fljótlega
svæfðar svefninum langa í síðari
Körfubolti
í byrjun september var stofn-
uð Körfuknattleiksdeild innan
FH. Stofnfundur deildarinnar
var fjölmennur og þá var kosið
í stjórn, formaður var kosinn
Björn Eysteinsson. Deildin hef-
ur ákveðið að fara af stað með
þrjá keppnisflokka, 2. og
meistaraflokk kvenna, 4. og
meistaraflokk karla. Þjálfarar
flokkanna verða Ingimundur
Árnason og Albert Eymunds-
son. Þá hefur deildin ákveðið
að fara fljótlega af stað með
námskeið fyrir 4. flokk og
verða leiðbeinendur valinkunn-
ir landsliðsmenn úr KR. Æfing-
ar hef jast 8. október.
hálfleiknum. Það var sama hvað
Valsmennirnir reyndu, hin frá-
bæra vörn Gummersbach stöðvaði
allar tilraunir Valsmanna. Lands-
liðsmarkvörðurinn Klaus Kater
var Val erfiður ljár f þúfu i gær-
kvöldi eins og í fyrri leik Iiðanna,
hann varði öll skot Valsmanna í
seinni hálfleiknum, nema tvö og
þau hafa án efa verið óverjandi.
Það var ekki aðeins langskotin
sem þessi frábæri markvörður
varði, heldur einnig línuskot og
tvö vítaskot.
I fyrri hálfleik var leikurinn
mjög jafn framan af. Valsmenn
voru fyrri til að skora, Gunn-
steinn skoraði strax á 2. mín.
Gummersbach jafnaði og jafnt
yar þar á öllum tölum upp í 5:5,
en þá komust Gummersbach-
menn tveimur mörkum yfir og
eftir það misstu þeir ekki foryst-
una í leiknum. I hálfleik var stað-
an 8:6, en Gummersbach komst í
10:6 áður en Jón Karlsson skoraði
fyrir Val. Valsmennirnir voru
mjög óheppnir fyrstu mínútur
síðari hálfleiksins og virtust
brotna við mótlætið. Leikmenn
Gummersbach tvíefldust hins
vegar og voru þeir þó nógu ramm-
ir fyrir.
Staðan breyttist í 14:7, Kater
varði vftakast Gísla Blöndal og nú
voru Valsmennirnir hreinlega
hættir, og dæmd var leiktöf á þá
fyrir að gera ekki tilraun til
markskots í sókninni. Gfsli skor-
aði loks áttunda mark Valsmanna,
en tvö síðustu mörk leiksins átti
Gummersbach og leiknum lauk
16:8.
Þó svo að Gummersbach hafi
unnið þennan leik með miklum
mun var það þó ekki að þakka
handknattleiksrisanum Hansa
Schmidt. Valsmenn gættu hans
mjög vel og eins og svo oft áður
fór Hansi í fýlu og gerði liði sínu
ekki svo mikið gagn. Hann skor-
aði aðeins þrjú mörk í leiknum.
Valsmenn fundu aldrei í seinni
hálfleiknum leið framhjá Kater í
markinu, en hann var langbezti
maður Þjóðverjanna f leiknum.
Hraðinn var sterkasta vopn
Gummersbach í þessum leik og
þeir skoruðu fjölmörg marka
sinna úr hraðaupphlaupum.
Ölafur Benediktsson varði
mark Valsmanna allan leikinn og
Stóð hann sig frábærlega vel f
fyrri hlutanum, en í seinni hálf-
leiknum fékk hann ekki við neitt
ráðið. I vörninni stóðu Valsmenn
sig mjög vel framan af, en í seinni
hálfleik réðu þeir ekki viö hraða
andstæðinga sinna. Jón Karlsson
var líflegur i sókninni og sá eini
sem reyndi eitthvað í seinni hálf-
leiknum, en hann hafði þó ekki
árangur sem erfiði.
Fyrri leik Vals og Gummers-
bach lauk með 11-10 sigri
Gummersbach og heldur liðið því
áfram i Evrópukeppninni með
samanlagða markatölu 27:18.
Leikurinn í gærkvöldi fór fram í
Vestfalen-höllinni i Dortmund að
Gunnsteinn Skúlason skoraði fyrsta mark leiksins.
viðstöddum rúmlega 6000 áhorf-
endum.
Mjög mikil harka var f leiknum
og gerðu leikmenn Gummersbach
það sem þeir gátu til að æsa Vals-
mennina upp. Tókst þeim það
eins og annað í þessum leik og í
sfðari hálfleiknum voru leikmenn
Vals orðnir það skapheitir að
handknattleikurinn varð nr2.
Mörk Vals: Bergur Guðnason 3,
Jón Karlsson 2, Gísli Blöndal 2,
Gunnsteinn Skúlason 1.
Evrópuknattspyrnan
Hauks-
söfnunin
Norsku Víkingarnir hafa þegar
tryggt sér Noregsmeistaratitilinn
f knattspyrnu, þó að enn sé
nokkrum leikjum ólokið. Höfðu
Víkingarnir forystu frá upphafi
mótsins og liðið tapaði ekki sínum
fyrsta leik fyrr en um miðja
seinni umferðina. Viking hefur
hlotið 30 stig úr 20 leikjum, en um
annað sætið berjast Rosenborg,
Start og HamKam. Niður f aðra
deild falla Lyn og Fredrikstad.
í Danmörku er keppninn enn
þá mjög jöfn og í rauninni opin
Badminton
hjá KR
Æfingar eru hafnar í badminton
hjá KR i KR-húsinu. Unglinga-
tímar verða f vetur á laugar-
dögum frá 13.20 — 15.00,
meistaraflokkur frá 15-17 og
byrjendatímar frá 17-19. Enn eru
nokkrir tímar lausir, og ættu þeir,
sem vilja fá tfma, að hafa sam-
band við Öskar Guðmundsson í
KR-húsinu í dag frá kl. 16-18.
Glímuæfingar
Víkverja
Glímuæfingar Ungmenna-
félagsins Vfkverja hófust í gær-
kvöldi. 1 vetur verða þær á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögum á milli klukkan 19 og 20, i
minni salnum i húsi Jóns Þor-
steinssonar, Lindargötu 7.
Áherzla verður lögð á alhliða
líkamsþjálfun, og mun Kjartan
Bergmann Guðjónsson annast
kennsluna.
f báða enda. Hvidovre hefur for-
ystuna sem stendur með 20 stig,
en markatala liðsins er heldur
skárri en KB, sem hefur hlotið
jafn mörg stig. Meistararnir 1972,
Vejle, eru svo í þriðja sæti ásamt
Köge og Randers Freja. AGF og
Frem standa verst að vígi í 1.
deildinni dönsku.
Þrátt fyrir að Atvidaberg hafi
tapað leik sínum í 1. deildinni í
Svíþjóð i síðustu umferð, hefur
liðið þó enn örugga forystu, og
virðist fátt geta komið í veg fyrir
sigur þess í deildinni úr þessu.
Atvidaberg varð sænskur meist-
ari í fyrra.
Staðan í Bundesligunni þýzku
breyttist ekki um síðustu helgi,
öll toppliðin töpuðu stigi.
Borussia gerði jafntefli við FC
Köln á heimavelli, 1-1. Bayern
Munchen og Eintracht frá Frank-
furt deildu stigunum í leik sínum.
Borussia Mönchengladbach hefur
nú forystu með 14 stig, Frankfurt
hefur 13, Bayern og Bochum 12.
Bændaglíma
í Grafarholti
I íþróttafréttum Morgun-
blaðsins á fimmtudaginn sögðum
við frá bændaglimu hjá hinum
ýmsu golfklúbbum. Einhverra or-
saka vegna var ekki sagt frá
bændaglímu GR, sem hefst á
Grafarholtsvellinum klukkan 13 í
dag. Þar verða bændur þeir
Guðjón Einarsson og Halldór Sig-
mundsson. Þá verða einnig
bændaglima unglinga og drengja,
og þar verða bændur þeir
Sigurður Pétursson og Kristinn
Ölafsson.
Duisburg, Hamburg og Schalke
eru í neðstu sætunum með sex
stig.
í Belgíu sigraði lið Asgeirs
Sigurvinssonar, Standard Liege,
hið sterka lið Anderlecht, 1-0, og
er Standard nú í efsta sæti í 1.
deildinni belgísku. í Hollandi
urðu úrslit í síðustu umferð
meðal annars þau, að Ajax gerði
jafntefli við AZ 67 á útivelli, og
virðist Ajax-liðið hafa dalað tals-
vert eftir að það missti hinn
snjalla Johann Cryuff.
Þó að Haukssöfnuninni sé í
rauninni lokið berast henni enn
gjafir. Nýlega var efnt til leiks á
Eskifirði milli Austra og Þróttar,
Neskaupstað, ágóðinn af þeim
leik, krónur 10.000, rann til
Haukssöfnunar. Þá hefur Knatt-
spyrnufélagið Valur gefið rausn-
arlega til söfnunarinnar, eða
krónur 50 þúsund. í dag fer svo
fram á Melavellinum afmælisleik-
ur Faxaflóaliðs og unglingalands-
liðs, og rennur ágóðinn af þeim
leik í Haukssöfnunina.
IBK rær
aftur á
brezk mið
Eftir að Joe Hooley hvarf
svo skyndilega frá störfum
sfnum hjá IBK fóru Kefl-
vfkingar strax að athuga með
annan þjálfara. Hafa Kefl-
vfkingar sérstaklega einn
mann ( huga, enskan þjálfara,
sem f fyrravor var reiðubúinn
að gerast þjálfari hjá iBK, en
þá höfðu Keflvfkingar ráðrð
Joe Hooley. Var það í gegnum
enska knattspyrnusambandið,
sem Keflvfkingar komust í
samband við þennan þjálfara.
Auk þess er svo fram-
kvæmdastjóri skozka liðsins
Hibernian, Turnball, að
athuga með skozkan þjálfara
fyrir Keflvfkingana, og kvaðst
hann vera viss um að geta
fundið góðan þjálfara fyrir
tBK f Skotlandi.
Breytingar gerðar á
Ólympíuleikunum
Þessa dagana stendur yfir f
Varna f Búlgarfu fundur Al-
þjóða Ölympfunefndarinnar,
IOC. Eru þar mörg mál og
merkileg til meðferðar, og í
gær var þar gerð samþykkt,
sem miðar að þvf að Olympfu-
Ieikar framtfðarinnar verði
ekki eins umfangsmiklir og
risavaxnir og þeir hafa verið.
Á fundi nefndarinnar f gær
var ákveðið að fella niður 10
keppnisgreinar. Eitt fórnar-
lamba niðurskurðarins var 40
ára gömul keppnisgrein, 50 km
ganga. Aðrar greinar, sem
felldar voru niður, voru 200
metra fjórsund karla og
kvenna, 4x400 metra boðsund
karla, tveggja manna hjólreið-
ar, skotfimi af 300 metra færi
og allar fjórar greinar svigs á
húðkeipum. Þá var einnig
ákveðið að fækka greinum í
fimleikum, þannig að
keppendur og verðlaun í fram-
tíðinni verði færri. Talsmaður
IOC sagði, að fimleikakeppni
ÖL minnkaði nú um 10%, en
þessi breyting á eftir að fá sam-
þykki Alþjóða fimleikasam-
bandsins.
Dr. Harold Henning, for-
maður Alþjóða sundsambands-
ins, tókst að hindra fleiri breyt-
ingar, sem fyrirhugaðar voru á
sundkeppni Ólympíuleikanna.
Dr. Henning var kallaður fyrir
IOC, og kom hann í veg f yrir, að
keppendum frá hverri þjóðyrði
fækkað úr þremur í tvo í hverri
grein sundkeppninnar, en á það
höfðu rússnesku fulltrúarnir
lagt mikla áherzlu.
Þá voru ýmsar aðrar breyt-
ingar gerðar á fundi IOC I gær.
Ákveðið var, að í Montreal 1976
skuli 12 þjóðir keppa í hockey í
stað sex. I skylmingum á
Ölympíuleikum framtíðarinnar
verða keppendur í hverri sveit
20 í stað 18 og í bogfimi verða
aðeins tveir keppendur frá
hverri þjóð, en voru áður þrír.
Þá má loks geta þess, að í
Montreal munu 16 lið keppa til
úrslita i knattspyrnu, en ekki
12 eins og í MUnchen.