Morgunblaðið - 11.10.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.10.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÖBER 1973 Jtfl4l,FiCA\ IAJH” 22-0-22- RAUDARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 B44 • 25555 im\ A CAR RENTALl Æ BÍLALEIGAN VfelEYSIR «“24460 I HVERJUM BIL PIONEEH ÚTVARP OG STEREO CASETTUTÆKI CAR RENTAL SKODA EYÐIR MINNA. Shodh laOAM AUÐBREKKU 44-46. SIMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga. - Sími 81 260. Tveggja manna Citroen Mehari. Fimm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hóp- ferðabílar (m bílstjórum). HOPFERDIR Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8—50 far- þega bilar. KJARTAN INGIMARSSON, sími 86155 og 32716. HVER ER SINNAR ÆRJ SMIÐUR ^ SAMVINNUBANKINN Gömul við- horf og ný Fyrir nokkrum áratugum einkenndust stjórnmálaskrif dagblaóanna mjög af því að hrósa fræknum sigrum yfir andstæðingunum, þannig að lfkast þvf var, að um fþrótta- kappleiki væri að ræða. Aðal- atriðið þeirra skrifa var að finna út, hver væri sigurvegari kappleiksins og hefði þvf farið heim „með bæði stigin“. Ekkert var lagt upp úr auka- atriðum, eins og að fjalla mál- efnalega um viðkomandi mál- efni og skýra lesendunum frá þvf hvað raunverulega hefði farið fram, svo að þeir gætu sjálfir metið, hvaða ályktanir bæri að draga. Slíkt mat töldu þessir höfundar, að bezt væri komið í höndum þeirra sjálfra, og litu þeir þess vegna á það sem sitt eina hlutverk að skýra hinum sauðsvarta almúga frá þvf, að hvaða niðurstöðu þeir hefðu komizt, en sú niðurstaða var að sjálfsögðu alltaf ákveðin fyrirfram. A þessu skeiði íslenzkrar blaðamennsku var heldur ekkert lagt upp úr þvf að gera greinarmun á þvf, hvað væru fréttir og hvað stjórnmálaskrif af hálfu blaðsins. Fréttirnar voru oftast stuttar hugleiðingar blaðamannsins, skrifaðar af mismunandi tilefnum. Langt er síðan þau blöð, sem einhverja sómatilfinningu hafa, Iétu af þeim vinnubrögð- um. sem að ofan er lýst.. Slík breyting á starfsháttum blað- anna var eðlileg afleiðing af auknum lýðræðislegum þroska, þar sem ráð er fyrir þvf gert, að fólk móti sfnar skoðanir á stjórnmálum sjálft. Hlutverk dagblaða varð þannig að flytja fólkinu fréttir af því eftirtekta- verðasta, sem er að gerast f þjóðlífinu, og reyna að gera þetta á sem hlutlausastan hátt. Sfðan er ekkert þvf til fyrri- stöðu, að blaðið taki viðkom- andi málefni fyrir og geri þvf s'kil út frá sfnum eigin sjónar- hóli, enda sé slík túlkun ræki- lega aðgreind frá fréttinni um málið. Vinnubrögð gamla tímans Nú finnst sjálfsagt flestum. að það, sem hér er sagt sé augljós sannleiki, sem ekki ætti að þurfa að vera að tfunda svo mjög. Það er nú samt svo, að hin gömlu vinnubrögð blaðanna þekkjast hjá nokkrum blöðum, sem ennþá koma út. Skýrasta dæmið um þetta er dagblaðið Þjóðviljinn, en þeir, sem skrifa það blað, virðast fremur öllum öðrum eiga erfitt með að fylgjast með þróuninni í starfsháttum blaðanna. Mjög gott dæmi um þetta er „frétt“, sem birtist f Þjóðviljanum s.l. þriðjudag, þar sem verið var að skýra frá fundi, sem Stúdentafélag Háskólans hélt um landhelgis- málið. Þar höfðu Lúðvfk Jósepsson og Gunnar Thoroddsen flutt framsögu- ræður. Ekki höfðu þeir Þjóðviljamenn svo góða trú á málflutningi Lúðvfks, að þeir treystu lesendum sfnum til að meta það, sem fram fór á þessum fundi sjálfstætt. Fyrir- sögn blaðsins á „frétt“ þessari var: „Lúðvfk var sigurvegari fundarins"!! Vifji menn velta þvf mikið fyrir sér, hvor „sigrað“ hafi á fundinum geta þeir dundað við það í róleg- heitum, en fréttamennska sem þessi dæmir sig sjálf. Það eru augljós vonbrigði þeirra Þjóð- viljamanna með frammistöðu Liíðvfks á þessum fundi. Þeir hafa ekki fundið neitt bitastætt úr ræðunni til að skreyta for- sfðu „frétt“ sfna með, og þá er gripið til gamalkunnugra ráða blaðamennskunnar. Starfsað- ferðir Þjóðviljans eru sem ómur löngu liðinna daga, sem allir heiðarlegir blaðamenn fagna heils hugar, að skuli vera liðnir. En það er sjálfsagt von- laust verk að ætla að kenna þeim Þjóðviljamönnum, hvaða vinnubrögð ber að viðhafa við að skrifa dagblað f lýðræðis- þjóðfélagi. Enda mun nú önnur þjóðfélagsskipan vera þeim hugstæðari. spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið f sfma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. KRÓKUR FYRIR IBÚA STARHAGA Hermann Rangarsson, Brúarenda við Starhaga, spyr: Hvernig stendur á því, að íbú- ar við Starhaga þurfa að aka suður í Skerjafjörð til að kom- ast niður í Miðbæ? Hvenær verður jafnað úr Moldarhaugunum á nýju eyj- unni í Suðurgötu fyrir sunnan Fálkagötuna? Guttormur Þormar, yfirverk- fræðingur hjá gatnamálastjóra, svarar: Það hefur verið stefna okkar að fækka gatnamótum eftir megni. Við höfum ekki orðið varir við neina óánægju meðal fbúa Starhaga með þetta fyrir- komulag, en ef hún er hins veg- ar almenn, er sáraeinfalt að gera skarð í eyjuna við Star- haga. En hitt er svo spurning, hvort þetta sé svo mjög til baga fyrir íbúa Starhaga. Krókurinn er ekki mjög mikill, en hins vegar gæti þetta orðið til að draga úr umferð frá Ægissíð- unni um Starhagann út á Suðurgötu. Hvað haugana snertir er því til að svara, að tíðarfarið ræður þvf, hvort þeir verða jafnaðir í haust eða næsta vor! Starfs- menn garðyrkjustjóra eru enn að vinna við að jafna hauga og tyrfa, en tíðarfarið ræður því, hvort þeim tekst að ljúka þessu ákveðna verki fyrir veturinn eða ekki. SVÆÐI VIÐ HÆÐARGARÐ Guðný Sæmundsdóttir, Hæðargarði 4, spyr: Hefur verið ákveðið, hvað gert verður við svæðið á horni Hæðargerðis og Grensásvegar? Már Gunnarsson, skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings, sv irar. I aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir, að þetta svæði sé opið svæði. Nú, við endur- skoðun aðalskipulagsins, verður sjálfsagt litið á ófrágengin, opin svæði i borginni og ákvarðað, hvort ástæða sé til að breyta nýtingu þeirra. Uthlutun lóða við LAUGARASVEG Ólafur Sölvason, Gautlandi 5, spyr: Hvernig stendur á þvi, að þær Ióðir við Laugarásveginn, sem nýbýrjað er að byggja á, voru ekki auglýstar til út- hlutunar, svo sem gildir um aðrar lóðir í Reykjavík? Már Gunnarsson, skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings, svarar: Borgaryfirvöld gerðu um það samþykkt, að lóðir fyrir neðan Laugarásveg skyldu koma til úthlutunar sem bótalóðir til handa erfðafestuhöfum í Laugardal. Þetta eru þvi lóðir, sem borgaryfirvöld hafa út- hlutað í staðinn fyrir landmissi viðkomandi aðila. HVERS vegna er Poppkorn að birta úrslit úr kosningum brezks blaðs um beztu hljóm- sveitir o.s.frv? Hvað er á því að græða fyrir íslenzka lesendur? Er von, að maðurinn spyrji. En Poppkorn á svar við þessu: Niðurstöður kosninganna hafa ótvírætt upplýsingagildi fyrir islenzka poppáhugamenn. Þær hljómsveitir og þeir listamenn, sem komast á blað, eru áreiðan- lega þess virði, að þeim sé einhver gaumur gefinn. Tökum t.d. kosninguna um tíu beztu stóru plöturnar: Af þeim lista geta menn séð, hvaða plötur eru athyglisverðar, af hvaða plötum menn mega ekki missa og hvaða hljómsveitir og lista- menn eru líklegir til að senda frá sér góðar plötur næst. . Við höldum því ótrauðir áfram og birtum í dag slatta af úrslitum úr títtnefndum kosn- ingúm Melody Makers, annars vegar um brezkar plötur og hins vegar um plötur hvaðan- æva að úr heiminum. LITLAR PLÖTUR: BRETLAND 1. JEAN GENIE— DAVID BOWIE 2. Drive In Saturday — Davíd Bowie 3. Viiginia Plain — Roxy Music 4. Giving It All Away — Roger Daltrey 5. Pyjamerama — Roxy Music 6. Layla — Derek and the Dominoes 7. Wishing Well — Free 8. Silver Machine — Hawkwind 9. Paper Plane—Status Quo See My Baby Jive — Wizzard STÓRAR PLÖTUR: BRETLAND 1. DARKSIDEOFTHE MOON — PINK FLOYD 2. Aladdin Sane Bowie David 3. For Your Pleasure — Roxy Muric 4. Close To The Edge—Yes 5. Foxtrot — Genesis 6. Yessongs — Yes 7. Houses Of The Holy — Led Zeppelin 8. The Six Wives Of Henry VIII — Rick Wakeman 9. Made In Japan — Deep Purple Trilogy — ELP LITLAR PLÖTUR: HEIMURINN 1 WALKONTHE WILD SIDE — LOU REED 2. Sylvia — Focus 3. Hocus Pocus — Focus 4. School’s Out — Alice Cooper 5. You're So Vain — Carly Simon 6. Layla — Derek and the Dominoes 7. Superstition — Stevie Wonder 8. Jean Genie — David Bowie 9. Virginia Plain — Roxy Music 10. Frankenstein — Edgar Winter STÓRARPLÖTUR: HEIMURINN 1. DARK SIDEOFTHE MOON — PINK FLOYD 2. Aladdin Sane — David Bowie 3. Focus III — Focus 4. Billion Dollar Babies— Alice Cooper 5. Caravanserai — Santana 6. Yessongs — Yes 7. Transformer —. Lou Reed 8. Birds Of Fire — Mahavishnu Orchestra 9. Houses Of The Holy — Led Zeppelin Close To The Edge—Yes

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.