Morgunblaðið - 11.10.1973, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.10.1973, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1973. 5 Eltn E. Stefánsson Hjúkrunar- námiá háskólastigi ÞAÐ gladdi mig að sjá á síðum Tfmans og Morgunblaðsins þann 6. okt. sl. grein um hjúkrunar- nám, undirritaða af tveimur ung- um hjúkrunarkonum. Áhugi ein- staklinga á þessu málefni finnst mér ávallt gleðiefni. Ef slíkur áhugi dugir til blaðaskrifa af hálfu viðkomandi aðila, þá er það vissulega góðs viti, jafnvel þótt einhvers misskilnings kunni að gæta I fálflutningi. Rökstudd blaðaskrif um þjóðfélagsmál eru mikilvægur þáttur í framfaravið- leitni lýðræðiselskandi manna og í þeirri trú, að eftirfarandi orð mín geti að nokkru gagni komið, leyfi ég mér að láta þau frá mér fara. „Helztu vandamál heilbrigðis- þjónustunnar — Stefna hjúkr- unarmenntunar á Isiandi" nefnd- ist grein, er birtist i dagblaði Tfm- ans 27. júnl sl. (Greinin var end- urprentuð í Tfmariti Hjúkrunar- félags Islan'ds, 3. tölubl. 1973). Þar stendur m.a.: „Vonir um að einhvern tíma verði unnt að stunda framhaldsnám I hjúkrun hérlendis, byggist ótvírætt á þvl, að allfjölmennur hópur einstakl- inga innan hjúkrunarstéttarinnar hafi svo góða undirstöðumennt- un, að þeir eigi greiða leið inn I erlenda háskóla að afloknu hjúkr- unarnámi hér heima.“ Þessi fullyrðing byggist á þeirri vissu, að nauðsynlegt sé, að gera töluvert hærri kröfur til bæði sér- fræðilegrar og alhliða menntunar kennara við framhaldsmenntun I hjúkrunarfræðum en kennara I skólum hjúkrunargrunnnáms, hvort heldur slíkt grunnnám er veitt sem námsbraut innan Há- skóla íslands eða á vegum Hjúkr- unarskóla Islands og annarra hliðstæðra stofnana. Auðvitað er maður samt þakklátur fyrir sem bezta menntun allra kennara, hvar og hvenær sem er. Óhjákvæmilega hlýtur undir- búningsmenntun fullhæfra kenn- ara við framhaldsmenntastofn- anir að taka mörg ár innan hins æðra menntunarkerfis, og nám þeirra færist stöðugt meir inn I háskólana víðsvegar um heim. Með allskonar endurskoðun að- ferða og skipulags reyna flestar þjóðir að stytta hvers konar lang- skólanám eftir megni, án þess þó að rýra gæðin um of, I þvi skyni að mannafli og fjámunir nýtist viturlega. Kennarar undirbúnir til kennslu I framhaldshjúkrunar- f ræðum eru alls ekki til hérlendis sem stendur, en við I hjúkrunar- stétt Islands skulum með átaki heilshugar samvinnu stuðla að því, að þeir verði hér sem allra fyrst. Takmarki þessu náum við öðru fremur með þvf móti, að efla aðstöðu Háskóla tslands til að annast hjúkrunarmenntun, sem m.a. nægir sem undirstaða fram- haldsnáms f mismunandi sér- greinum hjúkrunarfræða við hvaða háskóla, sem býður upp á slfkt nám. Hlutverk Háskóla ls- lands á þessum vettvangi þarf að vera tvíþætt. Annars vegar er menntun byrjenda f hjúkrun, unz þeir hafa náð B.S. gráðu í hjúkr- unarfræðum, og slfk námsbraut hefur nú þegar hafið göngusfna á þessu hausti. Hins vegar er það, sem oss enn vantar, þ.e. menntun hjúkrunarkvenna, sem þegar hafa lokið prófi frá Hjúkrunar- skóla Islands, eða hliðstæðri stofnun, og vilja bæta við sig námi upp að B.S. gráðu. Báðir þessir hópar verða vitaskuld að fullnægja inntökuskilyrðum til háskólasetu, en hinn sfðarnefndi hópur hefur þegar öðlazt mikil- vægt brautargengi með þvf, að tekizt hefur, með óþreytandi elju margra aðila að hleypa hinni nýju hjúkrunarnámsbraut af stokkunum. Fögnum þvf stignu skrefi. Sfðara takmark hlýtur svo að verða það að eignast vel mennt- aða sérfræðinga I hjúkr.fræðum til að annast kennslu I framhalds- greinum og þá vonandi beinlínis sem æðri námsbraut innan Há- skóla Islands eða I nánum tengsl- um við þá stofnun. Ýmis konar námskeið og fræðsla tengd vinnu- stöðum heilbrigðisþjónustunnar geta engu síður orðið góðra gjalda verð, en ekki má ofmeta slíkt. Árið 1959 fór undirrituð til náms við erlendan háskóla I þeirri trú, að þar fengist innritun til framhaldsnáms I heilsu- verndarhjúkrun. Þegar á staðinn kom, þá fyrst kom I Ijós að þrátt fyrir hjúkrunarkennarapróf frá Svíþjóð upp á vasann var fyrst krafizt viðbótamáms til að ná B.S. gráðu i hjúkrun, áður en um framhaldsnám yrði að ræða í nokkurri mynd. Að visu var heilsuvernd innifalin f þessu námi til B.S. gráðu i all rfkum mæli og er það látið duga sem einskonar sérnám hér á Islandi, sem er raunar óæskilegt til nokk- urrar frambúðar. Sjálfsagt hefði það eitt þótt „rauðsokku" sæmandi, að fara aftur utan og ljúka settu marki og ná meistaragráðu í einni eða ann- arri sérgrein hjúkrunar. Ég er bara of íhaldssöm hvað móður og húsmóðurskyldur snertir, til að hafa drifið mig í slfkt, en þætti samt vænt um að geta greitt götu annarra, sem yngri eru og störfin bíða eftir. Hafnarfirði. 8. okt. 1973. Elfn Eggerz Stefánsson. Innbrot í pylsubar BROTIZT var inn I Primapylsu- barinn við Austurstræti aðfarar- nótt sl. sunnudags. Litlu var stolið, aðeins skiptimynt, en hins vegar var heldur betur tekið til hendi við að skreyta húsakynnin. Var öllum sósum og hráefnum, sem fundust á staðnum, slett um gólf og veggi og ekkert til sparað, að gera staðinn sem litskrúðugast- t Vér viljum vekja athygli viðskiptamanna vorra á því, að vér tökum ekki ábyrgð á vörum, sem liggja í vöruaf- greiðslu vorri, sem kynnu að skemmast f frosti. Skipaútgerð ríkisins INGIMARSSKOLI Gagnfræðingar útskrifaðir 1948: Skemmtikvöld verður haldið föstudag 12. okt. í kaffiteríunni Glæsibæ og hefst kl. 8.30. Mætum öll! Upplýsingar í simum 30193 — 36481 _ 20064. NYKOMNAR Telpnakápurá 2—14ára. Úrval af kuldaúlpum, jökkum, sið buxum og peysum á telpur og drengi. 2—16 ára. Tvískiptir útigallar á 1—4ára. Verzlunin sísí Laugavegi 53 og 58. Wagoneer'74 er kominn verð frá kr. 74-0 þús. (vökvastýrí innifalid) . , !S V ■ s - ir . ..v •y&fivék- Allt á sama staö Miklar breytingar á innréttingum og.undirvagni þará meðal framfjöórum. IMýtt grill. Laugavegi 118 - Sími 22240 EGILL VILHJALMSSON HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.