Morgunblaðið - 11.10.1973, Blaðsíða 32
LE5IÐ
|Wí>?0iiiElbWíll»
DHGLEGn
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1973.
Handrit Sigurðar
málara að Smala-
stúlkunni fundið?
KOMIÐ hefur fram á Akureyri
handrit að leikriti Sigurðar
Guðmundssonar, málara, „Smala-
stúlkunni", sem taiið er, að kunni
að vera eiginhandarhandrit Sig-
urðar.
Eigandi handritsins er frú Elín
Halldórsdóttir, ekkja Jóns P.
Hallgrímssonar, sem látinn er
fyrir nokkrum árum, en hann var
sonarsonur séra Péturs
Guðmundssonar í Grímsey,
bróður Sigurðar málara. Sagði
Elfn í viðtali við Mbl. í gær, að
handritið hefði vafalaust gengið
frá séra Pétri til Hallgríms og
siðan til Jóns.
Ámi Kiítstjánsson. menntaskóla
kennari á Akureyri, sagði í viðtali
við Mbl. í gær. að sagnir hermdu,
að kista Sigurðar málara hefði
lent til Grímseyjar og handritið
væri úr henni komið. Árni fékk
að taka ljósrit af handritinu fyrir
skjalasafn Amtsbókasafnsins á
Akureyri. Hann sagðist ekki vita
til þess, að Landsbókasafnið ætti
handrit að leikritinu, en eitt afrit
væri til á þjóðskjalasafninu,
sennilega eftir handriti, sem
Lárus Sigurbjörnsson ætti. Ami
taldi, að leikritið hefði á sínum
tfma verið leikið bæði sunnan-
lands og norðan. Hann sagði
handrit þetta nokkuð vel með
farið. Það væri ritað á tvenns
konar pappír, hvítan og bláan, og
rithöndin væri vel læsileg, þótt
ekki væri hún neitt stórglæsileg.
Frú Elín kvaðst hafa fundið
handritið fyrir nokkru, er hún
var að flytja. Hún hefur hugsað
sér að nota handritið á einhvern
hátt til að minnast þjóðhátíðar
1974, enda vann Sigurður málari
á sínum tíma mikið að þjóðhátið
1874.
Þeir sögðu Heath í Fleetwood í gær:
Fleetwood lamast
r
ef Island sigrar
Blackpool, 10. október — frá
Davíð Oddssyni —
EDWARD Heath sat í gær fund
með togaraeigendum og skip-
stjórum í Fleetwood, að sögn dag-
blaðsins Evening Gazette, sem
gefið er út f Blackpool. Segir f
greininni, að frammámenn f fisk
iðnaðarbæjunum hafi gert Heath,
forsætisráðherra Ijóst, að það yrði
rothögg fyrir Fleetwood, ef
Islendingar ynnu fullnaðarsigur f
deilunni við Breta. Richard
Ward, sem er forseti Sambands
togaraeigenda, sagði eftir
fundinn, að hann hefði verið
mjög gagnlegur og hefði brezki
forsætisráðherrann sýnt málinu
mikinn áhuga og haft vfðtæka
Faðir
Ashkenazys
bíður enn
fararleyfis
„ÉG ER alls ekki búinn að
gefa upp alla von um að faðir
minn fái að koma hingað f
heimsókn," sagði Vladimir
Ashkenazy, þegar Morgunblað-
ið hafði samband við hann og
spurðist fyrir um, hvað liði
fararleyfi föður hans frá
Sovétrfkjunum.
„Eg var að tala vid hann f
sfma — hafði þá ekki heyrt frá
honum f heiian mánuð — og
hann sagði mér, að hann hefði
veikzt í sumar, verið þrjár vik-
ur á sjúkrahúsi og þvf ekki
getað ftrekað umsókn sfna um
fararleyfi. Hann kvaðst ætla
að fara fljótlega á skrifstof-
una, sem leyfið veitir — og ég
vona að þeir leyfi honum að
koma.“
þekkingu á deilunni. Sagði Ward,
að umræðurnar væru trúnaðar-
mál og vildi ekki skýra nánar frá
þeim.
Richard Ward fékk Heath til
þess að breyta dagskrá sinni f
Fleetwood og fara um borð í skut-
togarann Fyldea, sem nýkominn
var af íslandsmiðum. Var skip-
stjóri togarans fylgdarmaður
Heaths um borð f skipinu. Sagði
skipstjórinn á eftir, að Heath
hefði viljað fá upplýsingar um,
hvers konar erfiðleika brezkir
togarar ættu við að etja á íslands-
miðum. Umræðurnar hefðu verið
mjög opinskáar, og er Heath hélt
frá Fleetwood, var hann ekki í
neinum vafa um, hve lamandi
áhrif fullnaðarsigur Islendinga
myndi hafa í bænum.
Engin sérstök tillaga um
landhelgismálið er á dagskrá
flokksþings brezka Ihaldsflokks-
ins hér í Blackpool. Tillögur
höfðu borizt frá nokkrum kjör-
dæmum, en þær voru ekki valdar
til flutnings, þar sem aðeins
örfáar af þeim tillögum, sem
berast eru teknar til umræðu. Frá
Hull-East kom eftirfarandi til-
laga: „Um leið og flokksþingið
harmar, að upp er komin deila við
Island um fiskveiðimörk landsins,
lýsir það yfir stuðningi við tilraun
stjórnar hennar hátignar til að
finna lausn, sem er sanngjörn
gagnvart fiskiðnaði okkar.“ Frá
Ardwick kom eftirfarandi tillaga:
„Flokksþingið er samþykkt
stefnu ríkisstjórnar hennar
hátignar viðvíkjandi fiskveiði-
deilunni við Islendinga og hvetur
stjórn hennar hátignar til þess að
gera allt, sem í hennar valdi
stendur, til að vernda fískveiði-
hagsmuni Breta.“ Frá Hallem
Price, Beverley var lögð fram
eftirfarandi tillaga: „Flokks-
þingið vottar stjórn hennar
hátignar þökk fyrir að sjá brezk-
um togurum fyrir herskipavernd
á úthafinu við tsland og neitar að
Framhald á bls. 18
Frá setningu Alþingis í gær. Forseti Islands og biskup ganga fremstir úr Dómkirkj-
unni í Alþingishúsið. Á eftir þeim koma forsetafrú, forseti sameinaðs þings,
ráðherrar og alþingismenn. Sjá frétt á bls. 3. (Ljósm. Ól. K. M.)
Enginn iðnaðarmanna Við
lagasjóðs við vinnu í Eyjum
FJÖRUTÍU iðnaðarmenn, sem
unnið hafa að viðhaldi á fbúðar-
húsum f Vestmannaeyjum á
vegum Viðlagasjóðs, mættu ekki
til vinnu í gærmorgun, en 15
þeirra eru ekki búsettir f Eyjum
og njóta þar af leiðandi ekki svo-
kallaðrar staðaruppbótar. Hinir
25, sem búsettir eru f Eyjum og
njóta staðaruppbótar, fylgdu hin-
um að málum, vegna félagslegra
ástæðna — sagði Helgi Bergs, for-
maður Viðlagasjóðs, er hann
skýrði frá deilumáli iðnaðar-
mannanna og sjóðsstjórnar í gær
á blaðamannafundi.
Helgi Bergs sagði, að deilan við
iðnaðarmennina ætti rót sína að
rekja til þess, er vinnu var hætt á
vegum sjóðsins, er þvf markmiði
var náð að hreinsa bæinn. Var þá
vinnutíma manna breytt úr 13
stundum á dag í 10 stundir, hætt
var að greiða fæðiskostnað og
ferðapeningar til og frá Reykja-
vfk voru felldir niður. Margir
iðnaðarmannanna voru búsettir f
Eyjum og fá nú bætur sem staðar-
uppbót, en þar sem hvergi á
landinu tíðkast að greiða ferða-
kostnað til og frá vinnustað eða
fæði, taldi sjóðurinn sér ekki fært
að gera það lengur í Vestmanna-
eyjum.
Viðræður við talsmenn iðnaðar-
mannanna fóru fram í fyrradag,
en þar hélt sjóðsstjórnin því til
streitu, að hvorki yrði greitt fæði
né ferðapeningar. Hins vegar fór
sjóðsstjórnin þess á leit við
iðnaðarmennina, að þeir stofnuðu
sinn sérstaka atvinnurekstur f
Vestmannaeyjum og byðu
hverjum, sem á þyrfti að halda,
vinnu sína, enda sagði Helgi, að
sjóðurinn væri ekki fram-
kvæmdasjóður og gæti þvf ekki
Framhafd á bls. 18
Soðningin dýrari 1 dag en í gær
VERÐLAGSNEFND samþykkti
á fundi sfnum f gærmorgun
nokkrar verðhækkanir á nýjum
fiski, í framhaldi af ákvörðun
Verðlagsráðs sjávarútvegsins um
nýtt fiskverð, og á franskbrauð-
um og tvfbökum vegna hækkana á
heimsmarkaðsverði hveitis.
Franskbrauð hækka úr 30 kr. f
32 kr., eða um 6,7% og tvíbökur
úr 118 kr. í 125 kr. kg, eða um
5,9%.
Tvenns konar verð er á nýjum
fiski, annars vegar fyrir Reykja-
vík og nágrenni, og hins vegar
fyrir aðra landshluta. Reykja-
vfkurverðið er nú þetta:
Þorskur hækkar i 56 kr. kg úr 49
kr., eðaum 14,3%.
Ýsa hækkar í 61 kr. úr 58 kr., eða
um 5,2%.
Þorskflök hækka í 98 kr. úr 86 kr.,
eða um 14%.
Ýsuflök hækka í 106 kr. úr 100
kr., eða um 6%.
Nætursöltuð þorskflök hækka í
103 kr. úr 91 kr., eðaum 13,2%.
Nætursöltuð ýsuflök hækka í 111
kr. úr 105 kr., eða um 5,7%.
Verðið úti á landsbyggðinni:
Þorskur hækkar í 52 kr. kg úr 45
kr., eða um 15,6%.
Ýsa hækkar í 57 kr. úr 54 kr., eða
um5,6%.
Þorskflök hækka í 91 kr. úr 80 kr.,
eðaum 13,8%.
Ýsuflök hækka í 99 kr. úr 93 kr.,
eða um 6,5%.
Nætursöltuð þorskflök hækka í 91
kr. úr 85 kr., eða um 12,9%.
Nætursöltuð ýsuflök hækka í 104
kr. úr 98 kr., eða um 6,1%.