Morgunblaðið - 11.10.1973, Page 16

Morgunblaðið - 11.10.1973, Page 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTOBER 1973. Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthias Johannessen, Eyjólfur KonráS Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn JóKannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80. Áskriftargjald 360,00 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 22,00 kr. eintakið. Að undanfömu hafa stjórnarblöðin í pólitískum skrifum sínum naumast rætt um annað en Morgunblaðið og ritstjóra þess. Og á stúdentafund- inum um landhelgismálið kvað við sama tón. Fyrir þetta er skylt að þakka, en jafnframt er rétt að athuga örlítið, hvað það er, sem fyrst og fremst er um Morgunblaðið sagt. í fyrsta lagi er því haldið fram, að Morgunbl. hafi ekki staðið nógu vel á verð- inum í landhelgismálinu. En þegar auglýst er eftir dæmum um þetta, verða stjórnarsinnar að vonum klumsa. Þannig var Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra beðinn að nefna dæmi um það í sjónvarps- þætti ekki alls fyrir löngu, hvað hann ætti við, þegar hann dylgjaði um það, að Morgunblaðið stæði ekki nógu vel í ístaðinu í land- helgismálinu. Eftir langa mæðu nefndi hann dæmi þess, að Morgunblaðið hefði skýrt frá ummælum eins andstæðings okkar í Bretlandi, og var engu lík- ara en hann teldi það land- ráð, að íslenzkir blaðales- endur fengju að vita, hvað andstæðingar okkar segja. Auðvitað er það skylda íslenzkra blaða að skýra frá sjónarmiðum andstæðing- anna í landhelgisdeilunni. Og íslenzk alþýða á heimt- ingu á því að fá að vita, hvað um okkur er sagt á erlendri grund, bæði hið góða og það, sem miður líkar. í raun réttri er það fasistískur hugsunarháttur að ætla að dylja staðreyndir f pólitískum tilgangi, en kannski er ekkert undarlegt, að hann skjóti upp kollinum hjá stjórnvöldum, sem eru undir sterkum áhrifum kommúnista. Þá er því í annan stað haldið fram, að Morgun- blaðið hafi verið of harð- snúið í ádeilu á ríkisstjórn- ina, ekki sízt ráðherra Framsóknarflokksins. Þetta er kærkominn vitnis- burður um það, að blaðið hafi veitt stjórninni það að- hald, sem því ber, og sýnt rækilega fram á, hve hart kommúnistar leika fram- sóknarráðherrana, sem gefast upp í hverju málinu af öðru, þegar samstarfs- menn þeirra, kommún- istar, byrsta sig. í þriðja lagi er á það deilt, að Morgunblaðið birti hvaða vitleysu, sem þvi er send. Auðvitað verða stjórnendur frétta- stofnana, hvort heldur er blaða, sjónvarps eða út- varps að vega og meta, hvað birtingarhæft sé. Það er einmitt starf þeirra í öllum lýðfrjálsum löndum, og ekkert blað er finnan- legt, sem birtir gagnrýnis- laust allt það, sem hinum eða þessum kann að detta í hug að senda því. Loks er Morgunblaðið svo harðlega gagnrýnt fyrir það að halda uppi öflugum stuðningi við 200 sjómflna fiskveiðitakmörk, enda þótt fyrir liggi, að meirihluti þjóðanna aðhyll- ist þessa stefnu og ljóst sé nú, að hún muni sigra á hafréttarráðstefnunni, enda heyrast 50 mílur aldrei nefndar, þegar fjallað er um efnahagslög- sögu á fundum undir- búningsnefndar hafréttar- ráðstefnunnar. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur markað afdráttarlausa stefnu í landhelgismálinu og mun berjast fyrir framgangi 200 mflnanna með löggjöf þegar á því þingi, sem saman kom í gær. Þessa stefnu styður Morgun- blaðið eindregið, og von- andi verða þeir fleiri og fleiri með hverri vikunni sem líður, sem gera sér grein fyrir nauðsyn þess, að íslendingar sameinist um að fylgja þessari stefnu fram. En mergurinn málsins er sá, að Morgunblaðið má mjög vel við það una, að kommúnistar beini spjót- um sínum gegn því á þann hátt, sem raun ber vitni. Það er bezti vitnisburður- inn um það, að blaðið sé á réttri braut. Hitt er líka ánægjulegt, að framsóknarráðherr- arnir skuli kveinka sér. undan því, þegar á það er bent, hve undanlátssamir þeir hafa verið við komm- únista, og raunar er athygl- isvert, að Tíminn hefur ekki treyst sér til að taka upp hanzkann fyrir utan- ríkisráðherra vegna hinnar fáránlegu fram- komu hans í vamarmál- unum að undanförnu, þar sem öryggi og sjálfstæðis- mál íslendinga gleymast í orðaflóði og yfirlýsingum út og suður. Morgunblaðið getur full- vissað lesendur sína, lands- menn alla um það, að það mun halda áfram á sömu braut og gera allt, sem í þess valdi stendur, til að veita ríkisstjórninni verð- ugt aðhald, einmitt til að forðastþað, aðframsóknar- ráðherramir láti flækja sig lengra út í óhæfuna en orðið er. Um það ættu raunar lýðræðissinnar, hvar í flokki sem þeir standa, að sameinast. KÆRAR ÞAKKIR forum world featnres Tímamóta- kosningar í Tyrklandi Nú er I fullum gangi f Tyrk- landiein afdrifaríkastakosninga- barátta í sögu landsins. Tyrkland er landfræðilega og frá herfræði- legum sjónarhóli tengiliður milli Evrópu og Asfu og áhugamenn á Vesturlöndum fylgjast þar gaum- gæfilega með þróun mála. Það er í hæsta máta vafasamt, að kosningadagurinn, 14. október næstkomandi beri f skauti sér umtalsverðar breytingar, en það merkilega er, að kosningar skuli yfirleitt vera haldnar f Tyrklandi eftir alla þá ringulreið, sem verið hefur sfðan hershöfðingjar frömdu þar hálfgildings valdarán 12. marz 1971. Fyrir um það bil ári var al- mennt taiið, að ef efnt yrði til kosninga myndi Réttlætisflokkur- inn, (JP) sem er hægri sinnaður og nýtur forystu Suleyman Demirel, fara með sigur af hólmi eins og í kosningunum 1965 og 1969. Enda þótt JP njóti ennþá mests fylgis, og muni að öllum líkindum fá atkvæðamagn langt umfram aðalkeppinaut sinn lýð- veldissinnaða þjóðarflokkinn (RPP), mun hann sennilega ekki fá kjörna til neðri deildar 226 menn, sem er nauðsynlegt til að tryggja algeran meirihluta. Fari svo verður enn á ný stjórnmála- legt öngþveiti i landinu, þar til nýrri samsteypustjórn hefur ver- ið komið saman.. Tyrkir eru orðnir leiknir í að leysa stjórnmálakreppur sínar, en það væri óheppileg tilviljun, svo að ekki sé dýpra i árinni tekið, ef þeir væru mitt í hringiðu stjórn- málalega öngþveitis, 29. október, er halda á hátíðlegt með pompi og prakt hálfrar aldar afmæli Lýð- veldisins Tyrklands. Vafalaust munu þeir kosta kapps um, að koma lagi á innanlandsmál sín fyrir þann tíma, því að þeir eru áfram um að koma sem allra bezt fyrir sjónir, er tignir gestir sækja þá heim í tilefni hátíðahaldanna. Hvers vegna hefur fylgi JP rýrnað undanfarna mánuði? Einkum er það vegna tveggja til- tölulega nýrra flokka, Demókrata- flokksins og hins furðulega Hjálp- ræðisflokks, — en tilkoma þeirra getur komið upp djúpstæðum klofningi meðal hægri manna. Til skamms tíma var mikil sundur- þykkja innan RPP, en nú hefur náðst þar góð samstaða, enda hef- ur flokkurinn fengið nýjan og staðfastan formann,- Bulent Ecevit að nafni. Ennfremur mun RPP, sem nýt ur stuðnings fjársterkra aðila, skerða fylgi JP, enda þótt flokk- urinn kunni að hljóta færri þing- sæti en árið 1969. Demókratar klofnuðu út úr JP árið 1970 og hugmyndafræðilegur ágreiningur þessara flokka er næsta lítill. Sá síðarnefndi telur sig hins vegar réttan arftaka hins gamla Demókrataflokks, sem Adnan Menderes stýrði, en hon- um var steypt af stóli árið 1960 og ári síðar var hann tekinn af lífi. Nafnið Menderes hefur ennþá allt að því yfirnáttúrulegan hljómgrunn í sveitahéruðum, og það hefur sitt að segja, að sonur hins látna forsætisráðherra er meðal frambjóðenda flokksins. Bayar, sem nú er aldinn að árum, en var þjóðhöfðingi í stjórnartíð Menders, hefur jafnvel veitt vatni á myllu flokksins með þvi að lýsa yfir stuðningi við hann. En það er stofnun Hjálpræðis- flokksins, sem fremur kemur við kaunin á Demirel, og er meira áhugaefni þeim, sem fylgjast með þróun mála i Tyrklandi. Flokk- urinn er furðulegt fyrirbæri og kafnar þar ekki undir nafni. Hinn raunverulegi leiðtogi flokksins er Necmettin Erbakan, fyrrum prófessor í Ankara. Flokkurinn höfðar til hefða og afturhalds í Tyrklandi. Umfram allt leggur hann áherzlu á, að hefðir Múhameðstrúar séu í heiðri hafð- ar og boðorð Kóransins haldin, og er sem sé hlyntur öllu því, sem Mústafa Kemal var andvígur, enda þótt leiðtogar hans þræti statt og stöðugt fyrir, að þeir séu and-Kemalistar. t vissum skilningi er hann svo hægri sinn- aður, að hann fer heilan hring. Til að mynda boðar hann sósfaliska stefnu í félags- og efnahags mál- um. Margir sérfræðingar»hafa bent á, að hér sé um að ræða hliðstæðu við stefnu Kadaffís í Líbýu. í Ankara er sá orðasveimur á kreiki, að Hjálpræðisflokkurinn njóti fjárstyrks frá Libyu og Saudi Arabiu, en erfitt er að færa á það sönnur. Fáir reyndir sér- fræðingar taka mikið mark á Hjálpræðisflokknum, en hann er þó athyglisvert fyrirbæri í tvenns konar skilningi. I fyrsta lagi getur hann reytt talsvert fylgi af JP í sveitahéruðum, og í annan stað, fái hann háan hundraðshluta af heildaratkvæðamagninu, hvað svo sem þingsætum líður, gefur það til kynna, að talsverður hluti tyrknesku þjóðarinnar, er enn andvigur umbótastefnu, og öllum vestrænum nýjungum, sem Mústafa Tyrkjafaðir leiddi til öndvegis fyrir nærfellt hálfri öld. Tilkoma Hjálpræðisflokksins er hagstæð fyrir RPP, elzta stjórn- málaflokk landsins, í komandi kosningum, þvi að hann mun engu umtalsverðu tapa til hins nýja flokks. Ef til vill gerir fjárskortur RPP erfitt um vik, því að fjársterkustu aðilarnir styðja JP svo til eingöngu, — en á sl. ári hefur skipulag flokksins og sam- staða innan hans batnað. Flokk- urinn er nú eini vinstri flokkur landsins og mun næstum áreiðan- lega fá atkvæði þau, sem áður féllu til hins marxistiska Verka- mannaflokks, sem var bannaður árið 1971. Þessi atkvæði verða ef til vill ekki fleiri en 500.000 og margir leiðtogar vinstri manna eru vitaskuld í fangelsum. Ecevit, leiðtogi flokksins, heldur því samt ákveðið fram, að flokkúr hans sé að verða sannkölluð sósíaldemókratatisk hreyfing I ætt við sósíaldemókrata á Vestur- löndum. Þessi yfirlýsing er trúleg og stefnuskrá flokksins endur- speglar í stórum dráttum venju- leg sósíaldemókratatísk fræði, en miðuð við hinar sérkennilegu að- stæður, sem fyrir hendi eru I Tyrklandi. Það væri JP að skapi, ef Ecevit tæki upp öfgafyllri vinstristefnu, en það myndi skjóta hægfara stuðningamönn- um hans skelk í bringu. Áróðurs- meistarar JP saka hann og suma helztu fylgimenn hans statt og stöðugt um að vera handbendi kommúnista. Elcevit kallar þessar yfirlýsingar ógeðfelldan kosningaáróður, og þær kunna að hafa öfug áhrif gagnvart þeim, sem hnútum eru kunnugir. A hinn bóginn væri barnalegt að horfa fram hjá því, að kommúnistar gætu látið til sín taka í flokknum, og ef Verka- mannaflokkurinn verður bannað- ur áfram, verður á þessu vaxandi hætta. Margir sérfræðingar telja, að Ecevit, sé þegar farinn að gera áætlanir um kosningarnar 1977, og það er mikilvægt fyrir Vestur- Evrópurfki að fylgjast með i hvaða átt flokkur hans þróast næstu f jögur árin. En stóra spurningin er, og yfir- skyggir allar refskákir stjórn- málamannanna, eins og ávallt, þegar um stjórnmál i Tyrklandi er að ræða: hvert verður hlutverk hersins? Ósigur fulltrúa hans, Gurler hershöfðingja, í siðustu kosningum var verulegt áfall fyrir hershöfðingjana, sem telja það skyldu sína við föðurlandið að ráða ferðinni i tyrkneskum stjórnmálum. Nýlega hafa 35 hershöfðingjar verið settir af og Batur hershöfðingi, yfirmaður flugflotans og sá siðasti af þeim fjórum, sem lögðu á ráðin um íhlutun hersins árið 1971, hefur sagt af sér. Þetta eru merki þess, að hershöfðingjarnir séu alger- lega að snúa baki við stjórnmál- um. En verður það til frambúðar? Margir sérfræðingar eru efins um það. Það virðist nokkurn veginn öruggt, að hershöfðingjarnir muni ekki skipta sér af kosningunum og séu reiðubúnir til þess að veita stjórnmála- mönnunum annað tækifæri til að stjórna landinu. Furðulegt er í hæsta máta, að herinn skuli sam- þykkja, að Demirel verði forsætis- ráðherra, en hann var hataður af mörgum þeim hershöfðingjum, sem nú eru ekki lengur við störf. Að venju þokast Tyrkir tvö skref áfram og eitt aftur á bak, en stjórnmálin bera æ meir svip af því, sem gerist í vestrænum lýð- ræðisríkjum. En ef stjórnmála- mennirnir klúðra málunum á nýjan leik, kann svo að fara, að nauðsynlegt verði að hers- höfðingjarnir skerist i leikinn enn á ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.