Morgunblaðið - 11.10.1973, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1973.
SAI BAI N 1 Ed McBain: 1 ó hdjofþföm
9
„Ég er búin að segja þér það.
Þegar Carella kemur hingað ætla
ég að drepa hann. Síðan fer ég
héðan. Og reyni einhver að
hindra mig í því, læt ég töskuna
með nítróinu flakka."
„Setjum sem svo, að ég reyni
einmitt núna að ná byssunni af
þér?“
„Ég myndi ekki reyna það, væri
ég þú.“
„En segjum, að ég reyni það?“
„Ég treysti nefnilega á svolítið,
varðstjóri."
„Hvað er það?“
„Þá staðreynd, að enginn
maður er raunveruleg hetja.
Hvort er þir kærara — líf þitt eða
Carella? Reyndu að ná byssunni
og þá eru ailar líkur á því, að
nítríið springi framan I þlg. Fram-
an I þig, en ekki hann. Nú, allt I
lagi, þú hefur bjargað lífi hans.
En gert út af við sjálfan þig um
leið.“
„Carella gæti verið mér mikils
virði, Virginia. Svo mikils, að ég
væri kannski reiðubúinn að deyja
fyrir hann.“
„Jæja. Og hvað er hann hinum
mönnunum hérna inni mikils vir-
ði? Væru þeir reuðubúnir að dey-
ja fyrir hann líka. Eða fyrir þessi
lúsarlaun, sem borgin skammtar
þeim? Hvers vegna ekki að efna
til atkvæðagreiðslu, varðstjóri?
Og finna út hvað margir þeirra
eru tilbúnir að deyja á þessari
stundu. Ég skora á þig — láttu þá *
greiða atkvæði."
Hann kærði sig ekki um at-
kvæðagreiðslu af þessu tagi. Til
þess vissi hann of lítið um hug-
rekki og hetjudáðir. Þó vissi han-
n, að hver og einn einasti þessara
manna hafði oftsinnis á ferli sln-
um sínt áræði og kjark. En hug-
rekki þeirra þá hafði jafnan ráð-
izt af kröfum líðandi augnabliks.
Andspænis gapandi gini dauðans
— myndu þessir menn vera til-
búnir að leggja á ófært vaðið?
Hann vissi það ekki. En hann var
nokkuð viss um, að mættu þeir
velja „þitt líf eða Carella", myndu
þeir kjósa, að Carella dæi. Eigin-
gjarnt? Kannski. Omannúðlegt?
Kannski. En lífið er ekki eitt af
því, sem maður prangar út á
skransölu á nýjan leik, eftir að
hafa útjaskað þvl með einhverj-
um hætti. Þú berst fyrir lífinu og
IMÁMSKEIÐ
FYRIR KONUR OG KARLA
Námskeið í manneldisfraeði og sjúkrafæðu (megrunar-
fræði o.fl.) Hefst mánudaginn 15. október. Sérfræðingur
annast kennsluna.
Upplýsingar i síma 86347.
hlúir að þvl eftir megni. Og enda
þótt hann þekkti Carella svo vel
sem raun ber vitni, jafnvel (orðið
stó I manni eing og Brynes) unni
Carella, þorði hann ekki að spyrja
sjálfan sig þessar spurningar:
„Þitt líf eða Carella." Hann óttað-
ist svarið.
„Hvað ertu gömul, Virginia?"
„Hvaða máli skiptir það?“
„Mér þætti gaman að vita það.“
„Þrjátíu og tveggja."
Hann kinkaði kolli.
I þýðingu
Björns Vignis.
„Ég virka eldri?"
„Svolítið."
„Heilmikið. Þú getur þakkað
Carella það. Hefurðu nokkurn
tíma séð Castelviewfangelsið,
varðstjóri? Hefur séð staðinn, þar
sem Carella læsti Frank minn
inni? Hann er fyrir skepnur , ekki
menn. Og ég þurfti á meðan að
IÐEII
NÖTT
Stórkostleg
útsala
Meira en helmingslækkun á öllum vörum.
Allt á að að seljast. Komið og sjáið.
Nýjar vörur í hverri viku.
Þúsund og ein nótt.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma 10-
100 kl. 10.30—11.30, frá
mánudegi til föstudags.
£ „Fávfsri konu“
svarað
Vegna bréfs, sem birtist I dálk-
um þessum fyrir nokkru, skrifar
Steinar Guðmundsson á þessu
leið; en bréfið er dagsett 30. sept.:
„Heill og sæll Velvakandi.
„Ég er komin I hring I þessu
öllu“ segir „Fávís kona“ I pistli
þínum laugard. 29 sept., en þar
bregður hún upp mynd af
drykkjumanninum, sem hún er
gift.
Eg virði þessa konu fyrir hrein-
skilnina, en yf irleitt eiga drykkju-
mannskonur mjög erfitt með að
tjá sig sem slíkar, svo rótgróinn er
misskilningurinn á eðli ofdrykkj-
unnar. Þessi kona skrifar sannari
lýsingu á vandamálinu „hinn
dæmigerði drykkjumaður" en ég
áður hefi séð á prenti. Þó segist
hún ekki þekkja drykkjuskap á
svo háu stigi, sem hún telur sig
skynja af Mbl.grein minni:
„Svona á helzt ekki að láta menn
deyja“. Þó átti sú grein aðeins að
vera einfaldur örlagarammi fjög-
urra látinna íslendinga, manna,
sem einmitt hefðu passað I bux-
urnar af hennar manni hvað
drykkjuskap áhrærir. Þetta voru
fjórir þjóðfélagsborgarar, sem
leituðust við að bera byrðar þjóð-
félagsins til jafns við hina, —ólu
upp sín börn, —skiluðu sinni
vinnuviku, —borguðu sína skatta.
öndina á kojufylliríinu, —hvort
hann slasaði sig til ólífis við að
falla um húsgögnin heima hjá sér,
eða hvort hann geispaði golunni á
götu úti.
Að vísu sleppti ég mikilvægu
atriði úr dæminu, —ég minnist
ekki á þrælaplskinn, sem
drykkjumaðurinn undan-
tekningalaust er aðstandendum
sínum, ýmist vitandi eða óafvit-
andi. En „fávís kona“ kom mér til
hjálpar og fyllti það skarð.
Áður en ég anza kalli og reyni
að gefa holl ráð, vil ég enn á ný
láta I ljósi þakklæti mitt til kon-
unnar fyrir einlægni og einurð,
en skrif hennar bera það með sér,
að þau eru ekki hripuð I augna-
bliksörvæntingu heldur sér mað-
ur I þeim fullþroskaða drykkju-
mannskonu, útskrifaða úr skóla
sem ég efast ekki um, að sé öllum
öðrum skólum erfiðari. Þessi
kona giftist ekki drykkjumanni.
Fyrir 15 árum giftist hún manni,
manni sem hún elskaði og virti.
Saman tókust þau á við blessaðan
hversdagsleikann með kitlandi
tilhlökkun og forvitni um, hvað
kynni að leynast á bak við næsta
leiti. Nú hefir tímans tönn gert úr
honum trénaðan drumb, blindað-
an á eðli breytingarinnar, en um-
hyggja hennar hefir snúizt I með-
aumkun og örvæntingu, og upp-
gjöfin er á næsta leiti. Og hver
skyldi svo trúa því, að til skuli
vera nokkuð öruggar aðferðir til
að nudda lífi I drumbinn, en að
nokkrir ólánsmenn I lykilaðstöðu
varni því að svo sé gjört.
„Hvernig á að hjálpa þessum
manni?“ Það er spurningin. Alls-
gáð eiginkona drykkjumanns er
ekki fávis á eðli drykkjuskapar.
Einstaka sinnum sér hún örla á
gamla, góða stráknum sínum á
bak við frosna grímu sjálfbirg-
ingsins, —enda er það það, sem
gefur henni baráttuþrekið. Engir
tveir drykkjumenn eru eins.
Tveir menn eru yfirleitt aldrei
eins. Drykkjumenn eiga samt
ýmislegt sameiginlegt og eitt af
þvi er það, að þeir „brotna“ ein-
stöku sinnum ófullir. Allsgáðir
sjá þeir sanna mynd af sjálfum
sér um leið og þeir finna, að þá
brestur kjark og þrek til að
breyta stefnu til þeirrar áttar,
sem þeir helzt af öllu kysu. Þetta
ástand stendur yfirleitt ekki lengi
—oftast má telja það I klukku-
stundum.
Stundum stendur það að vísu
lengur, þá oft stutt heitstrenging-
um —og kallað bindindi. Bindindi
er ágætt —blessað veri það—, en
einhliða bindindi drykkjumanns
hefir þann galla að vera bundið
þreki frekar en skilningi.
Áreynsla býður þreytu heim og
þreyta uppgjöf. Þess vegna verða
mörg bindindi svo endaslepp.
Menn gefast upp á að ganga með
krepptan hnefann.
Að minu mati er ofdrykkja ekki
sjúkkómur heldur afleiðing marg-
víslegra samverkandi veilna. Þar
flækjast I einn hnút ímyndanir
og ástríður, ofsi og vesöld, derr-
ingur og dindilmennska allt um-
vafið misskilningi,—misskilningi
á misskilning ofan. Ofdrykkja er
viðráðanleg, og þá sérstaklega ef
henni er sinnt af aðila, sem er
fjölskyldu drykkjumannsins óvið-
komandi, og þar sem aðstæður
eru til að komast að drykkju-
manninum á réttri stundu er oft
stutt I árangur. Ástæðan til þess
að ofdrykkja er svo oft tahn óvið-
ráðanleg er sú, að verið er að
reyna að vinna á einstökum orsök-
um hennar I von um að þá læknist
meinið af sjálfu sér. Gegn of-’
drykkju verður að vinna framan
frá, það verður að ganga hreint til
verks, —byrja á afleiðingunni en
láta hugsanlegar orsakir liggja
milli hluta.
Þetta er þrautreynd aðferð víða
erlendis og var með góðum
árangri reynd hér fyrir fimmtán
árum síðan. en nú er hún bann-
færð —geðlæknamir íslenzku
nota aðstöðu sína sem trúnaðar-
menn rfkisvaldsins I ofdrykkju-
málum og þvergirða fyrir, að
hægt sé að sinna drykkjumanni
eða koma til hjálpar, þegar
drykkjumannskonunni loksins
fallast hendur.
£ Hvaðertil
ráða?
Ofdrykkja er ekki geðveiki I
þess orðs algengustu merkingu,
hvað sem íslenzkir geðlæknar
segja, fyrr en búið er að gera
geðsjúkling úr drykkjumannin-
um, —en það tekur að jafnaði
15—20 ár. Undantekningalítið er
geðveiki ómeðvituð, en ofdrykkja
er ætíð meðvituð. A því er regin
munur. Lausn ofdrykkju liggur I
hugarfarsbreytingu drykkju-
mannsins, en með því að lama
margþvældan vilja hans meðmeð-
alagjöfum og dekri er stuðlað að
þvf að viðhalda meininu. Drukkn-
andi ábyrgðartilfinning er kæfð I
stað þess að reyna að örva hana.
Ábyrgðartilfinningin er grunn-
tónn „mórölsku" timburmann-
anna, en „mórallinn" er síðasta
hálmstrá drykkjumannsins. Væri
ég örþreyttur drykkjumannsmaki
vildi ég samt heldur eiga Klepps
lækni að, heldur en engan. Um
hina læknana er ekki að tala—
þeim er meinuð aðstaða til jafns
við óbreyttan borgarann, ef
drukkinn sjúklingur á I hlut.
Ef ég væri spekingur þá mundi
ég segja: „J>ið fávlsu konur kom-
ið drykkjuskap barnanna ykkar
og barnanna þeirra til bjargar
með því að sameinast um þá
kröfu, að drykkjumaður eigi kost
á að njóta aðstoðar til að bjarga
sjálfum sér áður en sjálfsbjargar-
viðleitnin kulnar, bjarmi vit-
undarinnar dofnar og kraftarnir
þverra, unz stofninn veldur ekki
greinunum hvað þá heldur ávöxt-
unum, sem hann átti að bera.“
En ég er ekki spekingur og því
segi ég: „Flettið upp I síma-
skránni, mínar elskulegu, veljið
ykkur alþingismann, nálgizt hann
persónulega og lesið yfir honum
kjarnann úr grein Fávísrar. Segið
honum svo, að ekki þurfi að fara
lengra en hér út til Edinborgar til
að finna fyrirmynd að skipulagi,
sem að öllum lfkindum myndi
leysa þau vandræði, sem við er
átt. Segið honum einnig, að marg-
háttaðar tilraunir hafi verið gerð-
ar til að koma skipulagi á þessi
mál I lögsagnarumdæmi Alþingis
is, en allar hafi þær strandað á
afstöðu trúnaðarmanna Alþingis I
ofdrykkjumálum.
Þrátt fyrir marga ósigra I of-
drykkjumálunum er ég enn hlað-
inn svo mikilli bjartsýni, að ég
trúi á sigur hins góða I þessu sem
öðru, og ef nógu margar konur
tækju tilmæli mín alvarlega er ég
ekki I nokkrum vafa um það, að
innan veggja Alþingis mundi
fljótt myndast vilji til að búa
þannig í haginn, að ofdrykkjumál-
um okkar yrði sinnt ofdrykkju-
mannsins vegna og aðstandenda
hans. Ef viljinn er góður, get ég
ekkert séð því til fyrirstöðu, að
jafnvel um næstu áramót verði
kominn vlsir að starfsemi, sem
duga mundi eiginmanni hinnar
sárþreyttu „fávísu konu“ til sig-
urs I því vandamáli, sem nú yfir-
skyggir hann og konuna hans og
börnin tvö —vandamálinu, sem
hvílir eins og mara á þjóðinni, en
sem þjóðin vill ekki sinna vegna
óútskýranlegrar hræðslu við eitt-
hvað, sem enginn veit hvað er.
Steinar Guðmundsson.
Þakklátur útvarpshlustandi
hringdi til að lýsa ánægju sinni og
fleiri með erindi Hugrúnar skáld-
konu. Sagði útvarpshlustandinn
ennfremur, að mikið gleðiefni
yrði að fá að heyra fleira I sama
dúr.
Nýsmlði - Véiavidgerdlr - Köfun
Leigjum út vatnsdælur
Vélsmiðja Andra Ö. Heiðberg
Laufásveg 2a. Reykjavik P.O.Box 1381
Símar 1 3585 og 51917 (Kvöld og nætursími).
Renault 16 TL 1972
Bifreið þessi ertil sölu.
Allar nánari upplýsingar hjá Renault umboðinu.
Kristinn Guðnason h.f,
Suðurlandsbraut 20
sími 86633
meiri hluti eða öll hlutabréf í
félagi. sem á stórt verzlunar- og
iðnaðarhusnæði á góðum stað í
Kópavogi. Sennilegt söluverð alls
hlutafjárins 25 millj.
Nánari uppl. gefur Tómas
Gunnarsson, hdl., næstu daga kl.
3—5. Sími 25024.
Efnalaug
Til sölu er lítil efnalaug. Hentug fyrir hjón sem vildu
reka sjálfstæðan atvinnurekstur. Einnig hentugt til
flutnings. Uppl. í sima 42622 og 12337 eftir kl. 1 á
daginn.
Til sölu