Morgunblaðið - 16.10.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.10.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1973 15 Skrúfa Arabar fyrir olíu til USA? Kuwait, 15. október. NTB. AP. Olíuráðherrar Arabalandanna koma saman til fundar I Kuwait á miðvikudag til þess að ræða leiðir til að beita olfunni sem vopni I átökunum í Miðausturlöndum, að sögn aðalframkvæmdastjóra Samtaka olíuframleiðsluríkja OPAEC í dag. Olíuráðherra Kuwaits sagði, að öll Arabaríki, sem framleiða olíu, mundu senda fulltrúa á fundinn. Upphaflega átti fundurinn að fara fram á morgun. Óháða blaðið Al-Asyasseh í Kuwait sagði í dag, að ráðherr- arnir mundu ræða ráðstafanir, sem miðuðu að því að stöðva olíu- flutninga til Bandaríkjanna og fleiri landa, sem sannað væri að styddu Israel. Ráðherrarnir munu einnig hvetja til þess, að sögn blaðsins, að dregið verði úr framleiðslu svo að Japan og Vestur-Evrópa fái aðins .olfu til eigin þarfa-og geti þvf ekki selt hana aftur til Banda- ríkjanna. Bandaríiin flytja aðeins inn sem svarar 18% af olíunot- kuninni. Kuwait hefur auk þess í hyggju að taka í sínar hendur meirihluta verðbréfa í erlendum olíufélög- um, þegar viðræður um endur- skoðun samninga hefjast. Líbýa ætlar að þjóðnýta félögin alger- lega, en nýlega tók stjórn landsins í sínar hendur 51% hlutabréf- anna. Samband olíuverkamanna í Kuwait hefur skorað á stjórnina á minnka framleiðsluna um 50% og verja því sem eftir er til stríðs- reksturs Araba. Palestínumenn i Kuwait krefjast þess, að banda- rísk vara verði sett í bann, og að Kuwait taki út innstæður sínar í bandarískum bönkum. Ferðamenn á heimleið Kairó, 15. október — AP. BROTTFLUTNINGAR ferða- manna, sem innlyksa hafa orðið í Egyptalandi vegna stríðsins milli Araba og Israela, halda stöðugt áfram, en hins vegar sögðu tals- menn margra sendiráða í dag, að engar áætlanir væru á döfinni um að flytja burt starfsmenn þeirra eða útlendinga, sem fasta búsetu hefðu í Egyptalandi. Um 1500 er- lendir ferðamenn áttu að fara frá Alexandriu á tveimur skipum, en þar eð flugvöllurinn f Kairó hefur verið lokaður, frá því stríðið brauzt út fyrir 10 dögum, hafa menn svo til eingöngu getað farið heim á leið með skipum. Bobby byrjar bráðum aftur Belgrad, 15. október. AP. Bobby Fischer sagði í útvarps- viðtali í Belgrad í gær, að hann ætlaði að hefja þátttöku f skák- mótum nijög bráðlega. Fischer bar til baka fréttir urn, að hann hefði misst áhuga á að sigra í skákmótum eftir að hann vann heimsmeistaratitilinn. STRIÐIÐ FRA YMSUM HLIÐUM trúarlegu ávarpi. Ákveðið hef- ur verið, að allar tilkynningar Kairó-útvarpsins byrji á orðun- um: „í nafni almáttugs Allah, hins miskunnsama og samúðar- ríka“. Svo til allar daglegar gerðir heittrúaðra Múhameðs- trúarmanna hefjast á slíkri til- einkunn. Og þá ekki sízt stríð. Edward Heath forsætisráðherra Breta heilsar Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra tslands í Down- ing Street 10 I gærmorgun. Ráð- herrarnir áttu fyrst 1/2 klst. einkafund, síðan tvo fundi með embættismönnum og að því búnu snæddu þeir saman kvöldverð. Einum bjargað úr pramma á hafsbotni Calais, 15. október. NTB.AP. Leit var haldið áfram I dag I franska dýpkunarprammanum Cap de la Ilague, þótt lftil von væri talin til þess að fleiri menn fyndust á llfi. Einum manni var bjargað um helgina úr prammanum, sem hvolfdi og sökk úti fyrir Calais. Tvö lík fundust. Þangað til í gærkvöldi höfðu menn nokkra von um að fleiri mönnum yrði bjargað úr pramm- anum, en síðan 24 ára gömlum manni, Lionel Girard, var bjargað lifandi og ómeiddum á sunnu- dagsmorgun eftir þriggja daga björgunaraðgerðir hafa björg- unarmenn ekkert lifsmark heyrt. Samt sagði yfirmaður björg- unarstarfsins í dag, að haldið yrði áfram að grannskoða pramm- ann til þess að fá fulla vissu fyrir þvi, að enginn væri lokaður inni í honum. Tugir froskmanna, kafara, sprengisérfræðinga og sjóliða frá Frakklandi, Belgíu, Hollandi, Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi hafa tekið þátt i björgunar- starfinu. Tveimur mönnum var bjargað úr prammanum skömmu eftir að hann sökk á fimmtudag. Upphaf- lega voru tiu menn á honum. ÞRÍRÆÐSTU VALDAMENN THAILANDS FLÝJA LAND Bangkok, 15. október. AP. Tilkynnt var I dag, að þrfr valdamestu herforingjar Thailands væru farnir úr landi, en hundruð ungmenna trúðu ekki fréttinni, þustu um göturnar og kröfðust þess, að þeir yrðu teknir af Iífi. Þó virðist tilkynningin og yfir- lýsing hins nýja forsætisráðherra, Sanya Thammasak, þess efnis, að hann hafi komizt að samkomulagi við stúdenta, hafa bundið enda á stjórnleysi, sem hefur ríkt í höfuðborg Thailands. Að minnsta kosti 169 hafa beðið bana og hundrað særzt í tveggja daga átökum. Vopnaður múgur réðst í dag á aðallögreglustöðina í Bangkok og kveikti í henni, og árásir voru gerðar á fieiri lög- reglustöðvar í borginni. í kvöld varð rólegra, og stúdentar óku um göturnar í bifreiðum og strætis- vögnum, sem þeir tóku trausta- taki, og skoruðu á mótmælafólk að fara heim til sín. Utvarpið sagði, að her- foringjarnir, þeir Thanom Kittikachorn markskálkur, sem sagði af sér embætti forsætisráð- herra í gær, Praphas Charusathien, sem mestu ráða að tjaldabaki, og Narong Kitti- kachorn ofursti, annar æðsti maður öryggislögreglunnar, hefðu farið með flugvél til óþekkts ákvörðunarstaðar til þess að stuðla að því, að friður kæmist á. Thanom sagði af sér eftir friðsamlegar mótmælaaðgerðir, sem stóðu i eina viku, og blóðuga götubardaga, sem stóðu einn dag. Eftirmaður hans, Sanya, rektor Thammasatháskóla, hefur heitið nýrri stjórnarskrá og almennum kosningum eftir sex mánuði. Sanya sagði í sjónvarpsávarpi, að stúdentafélög hefðu heitið samvinnu við stjórn sína. Hann hélt þvi fram, að ofbeldisverkin í Bangkok hefðu verið verk svo- kallaðrar „Þriðju handar“ sam- Hamborg, 15. okt-AP. Joseph Luns. framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins segir í viðtali við þýzkt blað í dag, að beiti Arabalöndin verzlunarbanni á oliu gegn Vesturlöndunum, hlytu það að teljast „fjandsamlegar að- gerðir", án þess þó, að það yrði NATO ástæða til þess að hefja hernaðaraðgerðir gegn Aröbum. Luns segir einig í við- talinu, að skyndiárás“ Araba á ísrael, hafi vakið NATO til um- hugsunar um „hversu langur tími yrði til viðbragðs, ef svipað ástand skapaðist í Evrópu. Þá segir Luns, að Ijóst sé að Arabar fái verulegan stuðning frá Sovétríkjunum i baráttunni. í stríði fyrir Allah Beirut, 15. okt-AP Allar yfirlýsingar Egypta varðandi stríðið hefjast nú á Ford: Hernaðarleg lausn nauðsynleg Washington, 15. okt.-AP Gerald Ford, nýtilnefndur sem varaforsetaefni Nixons, sagði í dag, að áður en stjórn- málaleg lausn væri hugsanleg á ástandinu í Miðausturlöndum, þyrfti að finna hernaðarlega lausn. Hann kvað Bandarikin ;,standa við allar skuldbinding- ar“ sínar gagnvart Israel, og það færi eftir „kringumstæð- um,“ hvort aðstoðin yrði aukin. Páll páfi: Hörmu- leg heimska Páfagarði, 15. okt.-AP „Þetta er fáránleg sóun mannslífa og verðmæta, sem virðast vera aðeins formáli annarra, óútreiknanlegra hörmunga," sagði Páll páfi VI um strxðið í Miðausturlöndum, er hann ávarpaði mannfjöldann í gær. „Við fordæmum heimsku þessa stx'ðs, sérstaklega blindnx öfganna. „Hann kvað venjulegt fólk ekki getað staðið biá og horft á slíka neyð. taka, sem hafa stundað undir- róðursstarfsemi. Stúdentar eru enn í vafa um, hvort herforingjarnir hafi raun- verulega gefizt upp og óttast aðgerðir af hálfu hersins. Ný stjórnarskrá hefur verið ein helzta krafa þeirra, en stjórnar- skrá var numin úr gildi, þegar herforingjar tóku völdin fyrir tæpum tveimur árum. Jörgensen í Moskvu Moskvu, 15. október. AP. Anker Jörgensen forsætis- ráðherra konx I dag til Sovét- rfkjanna I 10 daga opinbera heimsókn. Danski forsætisráð- herrann endurgeldur Dan- merkurheimsókn Alexei Kosygin forsætisráðherra i desember 1971. Allir vilja í stríðið Jóhannesarborg, 15. okt.-AP „Hundruð. . . nei þúsundir ungs fólks hafi hringt til okkar undanfarna daga til þess að bjóða sig fram til ferða á víg- völlinn í Israel," segir Jules Weinstein, formaður Gyðinga- samtaka í Suður-Afríku. „Og daglega hringi ég til Tel Aviv til að spyrja, hvort þeir vilji fá sjálfboðaliðana okkar. Daglega er svarið nei. I hreinskilni sagt þá vilja Israelar þá einfaldlega ekki. Luns: NATO til umhugsunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.