Morgunblaðið - 16.10.1973, Síða 20

Morgunblaðið - 16.10.1973, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTOBER 1973 20 Yfirlýsing frá Félagi íslenzkra rithöfunda Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi fslenzkra rithöfunda: FUNDUR haldinn í stjórn Félags íslenskra rithöfunda hinn 3. okt. siðastliðinn vill — vegna fréttatilkynningar frá stjórn Rit- höfundafélags íslands, er birtist í dagblöðum fyrir skömmu — taka fram eftirfarandi: 1. Stjórn Félags íslenskra rit- höfunda kannast við að hafa mót- tekið bréf frá Rithöfundafélagi Islands, dags. 24. sept 1971, þar sem óskað var „eftir endurskoðun á þeim samningi við Félag íslenzkra rithöfunda sem Rit- höfundasamband islands byggist á.“ Tilmæli eða hótanir um, að ella verði samningi félaganna rift og Rithöfundasamband íslands lagt niður hafa félaginu hins vagar aldrei borist. 2. 1 fréttatilkynningunni segir, að samstarfsnefnd rithöfunda- félaganna hafi þegar lokið störf- um. Hið rétta er, að nefndin hefur enn ekki verið ieyst upp. Að minnsta kosti hefur hvorki sjálf- um nefndarmönnum frá Félagi íslenskra rithöfunda né félags- stjórn borist nein tilkynning þar að lútandi. 3. Vegna skoðanakönnunar um sameiningu, sem fram fór síðast- liðið vor, segir, ,,að yfirgnæfandi meiri hluti rithöfunda telur nú- verandi skipan mála óviðunandi og æskir sameiningar.“ Þetta er rangt. I skoðana- könnuninni voru rithöfundar alls ekki spurðir, hvort þeir kysu að viðhalda framvegis „núverandi skipan mála“. Meðal annars af þeim sökum telur stjórn Félags islenskra rithöfunda könnunina hafa verið ófullnægjandi og ekki gefa rétta hugmynd um skoðanir félagsmanna. 4. Vegna ráðstefnu norræna rít- höfunda á Álandseyjum síðastiið- ið sumar, er Armann Kr. Einars- son og fleiri íslenskir rithöfundar sóttu, segir svo: „Tekið skal fram að Ármann sótti ekki ráðstefnu norrænna rithöfunda á Alands- eyjum sem fulltrúi stjórnar Rit- höfundasambandsins hvað þá sem staðgengill formanns þess, eins og hann gefur í skyn og hafði því ekkert umboð til að gefa neinar yfirlýsingar í nafni Rithöfunda- sambandsins." Hér er um tvöfaldan misskiln- ing að ræða. Armann Kr. Einars- son sótti ráðstefnuna óumdeilan- lega sem fulltrúi Rithöfundasam- bandsins, enda varaformaður þess. Yfirlýsingar gaf hann þar hins vegar engar varðandi þau mál, sem drepið er á í fréttatil- kynningunni. í bókinni Författarens villkor í Norden eftir Márten Ringbom, sem gefin var út í tilefni rit- höfundaráðstefnunnar, segir svo (bls, 2) um Rithöfundasamband Islands og félögin tvö: „Föreningarna samarbetar inom förbundet pá jámstálld fot trots olikheterna i medlemsunder- laget. Detta har orsaket missnöje inim den större föreningen med det resultatet att man sagt upp samarbetsavtalet frán och med början av ár 1974.“ Varðandi þetta segir í frétta- klausu Rithöfundafélags íslands: „Ármann notar tækifærið til að flytja á heiinamarkað misskilning erlendra aðila, að ráðgert sé að slfta núverandi samstarfi rithöf- undafélaganna um áramót, þar sem fáir ættu að hafa betri að- stöðu til að vita og skilja en vara- formaðurinn, að frestur hefur verið settur settur til næsta vors til að koma framtíðarskipan á samstarfsmál rithöfunda." Hér hlýtur stjórn Rithöfunda- félags Islands að staðhæfa gegn betri vitund, því upplýsingar þær, sem Ringbom byggir á í bók sinni, voru hvorki bornar undir Ármann Kr. Einarsson né neinn annan mann í Félagi íslenskra rithöfunda, svo kunnugt sé, og vissi hann því ekkert um þær, fyrr en hann sá um rædda klausu f bók Ringboms á þinginu, en Ringbom kvaðst hafa þær úr bréfi frá formanni Rithöfundasam- bandsins. Stjórn Félags íslenskra rithöfunda telur það hæpin vinnubrögð hjá núverandi meiri- hluta stjórnar Rithöfundasam- bandsins að vinnaað sameininBu með því að sundra þeirri sam- vinnu, sem nú er á milli félag- anna. I ljósi framangreindra upp- lýsinga um framkomu meirihluta stjórnar Rithöfundasambandsins mun ólíklegt, að sameingingarmálin þróist til réttrar áttar, fyrr en Rothöf- undafélag íslands hefur valið menn með meiri félagsþroska til að veita samtökim sínum forystu. STJORN FÍR Atvinna óskast Ung stúlka með gott stúdentspróf úr máladeild, óskar eftir fjölbreyttu starfi sem fyrst. Tilboð merkt: 1013 sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. laugardag. Atvinna Viljum ráða nokkra iðnverkamenn strax. Mikil vinna. Upplýsingar á skrifstofunni. Umbúðamiðstöðin h.f. Héðinsgötu 1. Símar 83130 —83194. Tímabundið verkefni Við viljum ráða áreiðanlegan mann til að leysa tímabundið verkefni. Hann þarf að vinna sjálfstætt á sviði fjármála við samningagerð, inn- heimtu og frágang skuldabréfa. Nokkur ferðalög fylgja starfi. Mað- ur á eftirlaunaaldri kemur til greina. Hálfsdags vinna ef óskað er. Nánari upplýsingar gefur starfs- mannastjóri. Samband íslenzkra Samvinnufélaga Atvinna óskast Áhugasamur maður með góða tungumálakunnáttu, mikla starfsþjálfun í ýmisskonar skrifstofustörfum, svo sem enskum bréfaskriftum, bókhaldi o.fl., óskar eftir starfi sem fyrst. Mætti gjarnan vera út á landi. Tilb. óskast send afgr. Mbl. fyrir 20 þm. Merkt: 3007. Afgreitislustúlka óskast Óskum eftir að ráða stúlku til af- greiðslustarfa. Ólafur Kr. Sigurðsson og Co. Suðurlandsbraut 6, sími 83215 SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS Sjallstædlskvennalelag Snæfeiis- og Hnappadalssýslu Heldur fund laugardaginn 20 október kl. 4 síðdegis t safnaðarheimil- inu Grundarfirði Umræðuefni fundarins: Núfímakonan og samfélagið. Frummælendur: Alþingiskonurnar Auður Auðuns og Ragnhildur Helgadóttir, sem mæta af hálfu Landssambands Sjálfstæðiskvenna, Sjálfstæðiskonur eru hvattar til að mæta og koma fram með sín * áhugamál Kaffiveitingar. Stjórnin. Nordurland vesfra Aðalfundur kjördæmisráðs í Norðurlandskjördæmi vestra verður haldinn i félagsheimilínu Blönduósi sunnudaginn 21. október n.k. og hefst kl. 10:30 f.h. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstorf. 2. Flokksstarfið. 3. Önnur mál. Geir Hallgrímsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins ásamt þingmönnum flokksins í kjördæminu sitja fundinn. Stjórnin. Sjálfstædlsfélðgin f Austur-Húnavatnsssýslu halda fund í félagsheimilinu á Blönduósi. föstudaginn 19. október kl. 9 e.h. Ræður flytja Auður Auðuns og Ragnhildur Helgadóttir Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi er boðað til fundar í Sjálfstæðishúsinu við Borgar- holtsbraut miðvikudaginn 1 7. okt. n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarfulltrúarnir Axel Júnsson og Sigurður Helgason ræða um bæjarmál. 2. Undirbúningur bæjarstjúrnarkosninga. Stjórnin. HVöT, félag sjálfstædlskvenna Heldur fund mánudaginn 15 október klukkan 20:30 að Hótel Borg, Gyllta salnum (inngangur um aðaldyr). Fundarefni: Barnaheimili og skóladagheimili. Frummælendur: ^ Sigurlaug Bjarnadóttir, borgarfulltrúi og Jóhanna Kristjánsdóttir, for- maður félags einstæðra foreldra. Allt sjálfstæðisfólk velkomið STJÓRNIN Sjálfstædlskvennafélagld vorDodl, Hafnarflrdl heldur aðalfund, mánudaginn 15. október 1973 í Sjálfstæðishúsinu, kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, Arni Grétar Finnsson, bæjarráðsmaður ræðir hitaveitumálið. Frjálsar umræður. Kaff idrykkja. Stjórnin. HEKLA hf. liugotgi 170—172 — SáA. 21240 BEZTAÐ AUGLÝSA í MORGUN- BLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.