Morgunblaðið - 19.12.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
Jólafagnaour
Verndar á
aðfangadag
FréttamaðurMorgunblaðsins hitti
i gær að máli tvær konur úr jóla-
nefnd Verndar, þær Hönnu Jo-
hannessen og Rannveigu Ingi-
mundardóttur, þar sem þær voru
önnum kafnar við undirbúning
undir jólafagnað samtakanna, og
innti þær eftir störfum jölanefnd-
arinnar. Þær sögðu að jólanefnd-
in hefði nú í nær hálfan annan
áratug haldið jólafagnað á að-
fangadag fyrir einstæðinga og þá
sem ekki eiga í önnur hús að
venda. Jólafagnaðurinn hefur
oftast verið fjölsóttur og farið vel
fram. Undanfarin ár hefur hann
verið í húsakynnum Slysavarna-
félagsins á Grandagarði og svo
verður einnig nú. Þær sögðust
vera Slysavarnafélaginu mjög
þakklátar fyrir þessa aðstoð, því
að húsnæðið væri bæði gott og
hentugt. Jólafagnaðurinn hefst að
venju kl. 3 á aðfangadag, en þá er
húsið opnað fyrir þá, sem koma
vilja og fá sér kaffisopa. Síðar um
kvöldið er svo framreiddurhátiða-
matur og útbýtt jólagjöfum.
Undanfarin ár hefur sr. Jón
67 KR. MEÐAL-
VERÐ í BELGIU
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu í
Þýzkalandi í eær og eitt seldi í
Belgíu. I Þýzkalandi seldi Víðir
AK 79.2 lestir fyrir 115.751 mark
eða 3.6 millj., og er nieðalverðið
kr. 46.10. Gunnar Jónsson VE
seldi einnig í Þýzkalandi 64.1 lest
fyrir 89.216 mörk eða 2.8 millj.,
og er meðalverðið kr. 43.96.
Örvar frá Skagaströnd seldi 49
lestir í Ostende fyrir 1.5 millj.
franka eða 3.2 millj. Meðalverðið
hjá Örvari var kr. 67.00, sem er
eitt hæsta verð, sem þar hefur
fengizt.
Bjarman flutt hugvekju og sungn-
i r hafa verið jólasálmar.
Starfsemi jólanefndar Verndar
er einnig fólgin í þvi að senda
öllum föngum i fangelsum jóla-
glaðning. Sögðu þær Hanna og
Rannveig að fjöldi fyrirtækja og
einstaklinga styrktu jólanefndina
og án þessarar aðstoðar gæti jóla-
nefndin ekki sinnt þeim störfum
sem henni væri ætluð. Hafa sömu
fyrirtækin og einstaklingarnir
styrkt starfsemina ár eftir ár og
báðu þær Morgunblaðið fyrir
kveðjur og þakklæti til þessara
aðilja. Þær bættu því við. að erfið-
leikum væri bundið sem von-
legt væri að fá fólk til að vinna á
aðfangadag, einkum um kvöldið.
Þó hefði alltaf rætzt vel úr því á
undanförnum árum, og vonuðust
þær til, að svo yrði einnig i þetta
sinn. Ef einhverjir hefðu áhuga á
þvi að veita aðstoð, geta þeir haft
samband við nefndarkonur í jóla-
nefnd Verndar. Þær eru: Hanna
Johannessen, Rannveig Ingi-
mundardóttir, Unnur Sigurðar-
dóttir og Sigurrós Sigurðardóttir.
Skrifstofa Verndar er flutt i
Garðastræti 8 (hús Sálarrann-
sóknarfélagsins) og þar verður
jólanefndin aAstörfum i dag, mið-
vikudag, eftir hádegi. Símar
Verndar eru 2-43-99 og 2-14-58.
Að lokum óskuðu Verndarkon
ur, að þess væri getið að lögreglan
hefði ávallt veitt þeim mikla og
góða aðstoð i sambandi við jóla-
fagnaðinn og kváðust þær þakk-
látar henni fyrir það, svo og ung-
templurum og tenglum, sem
ávallt bjóða fram aðstoð sina.
Þess má að lokum geta að for-
maður Verndar er Þóra Einars-
dóttir og hefur hún gegnt því
starfi frá upphafi, en formaður
jólanefndar er Hanna Johannes-
sen. Sigriður J. Magnússon
gegndi þvi starfi um langt árabil.
Bankastarfsmenn, stjórn og ábvrgðarmenn Sparisjóðs Hofshrepps f Skagafirði við opnun afgreiðslu
bankans á Hofsósi.
Búnaðarbankinn tekur við
Sparisjóði Hofshrepps
FÖSTUDAGINN 30. nóvember
var Sparisjóður Hofshrepps á
Ilofsósi lagður undir Búnaðar-
banka tslands á Sauðárkróki, en
bankinn mun framvegis taka upp
daglega afgreiðslu þar með yfir-
stjórn frá útibúinu á Sauðár-
króki.
Sparisjóður Hofshrepps var
stofnaður 11. maí 1914 af 20
mönnum, sem gerðust ábyrgðar-
menn sjóðsins. Voru þeir úr þá-
verandi Hofshreppi og Fells-
hreppi. Fyrsti hvatamaður að
stofnun sjóðsins og einnig fyrsti
gjaldkeri var Erlendur Pálsson,
verslunarstjóri á Grafarósi. Var
hann afi núverandi útibússtjóra
bankans á Sauðárkróki Ragnars
Pálssonar.
Fyrstu stjórn sjóðsins skipuðu
Erlendur Pálsson, sr. Pálmi Þór-
oddsson og Ólafur H. Jensson,
kaupmaður. Á þessum 59 árum,
sem sjóðurinn hefir starfað, hefir
hann veitt fólki á þessu svæði
ómetanlega aðstoð og fyrir-
greiðslu, en við nána athugun
stjórnar og ábyrgðarmanna var
talið rétt að leita samninga við
Búnaðarbankann, sem hefir nú
veitt ákjósanlega fyrirgreiðslu
hér austan Skagafjarðar með því
að hefja daglega afgreiðslu á
Hofsósi.
30. nóvember voru mættir til
fundar á Hofsósi stjórn sjóðsins,
Leiðrétting
í dálknum Spurt og svarað í
blaðinu í gær er sagt, að Guðjón
Hansen tryggingafræðingur sé
tryggingafræðingur hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Það er ekki
rétt, hann hætti störfum hjá
Tryggingastofnuninni 1970.
þeir Pétur Jóhannsson frá Glæ.si-
bæ, Björn Jónsson i Bæ, Óli Þor-
steinsson Hofsósi, ásamt
ábyrgðarmönnum sjóðsins og frá
Búnaðarbankanum Haukur Þor-
leifsson, yfirbókari bankans,
Ragnar Pálsson, útibússtjórl á
Sauðárkróki, Gestur Þor-
steinsson, gjaldkeri útibúsins á
Sauðárkróki og Pálmi
Rögvaldsson, ráðinn afgreiðslu-
maður bankans á Hofsósi.
Afgreiðsla bankans verður
fyrst um sinn í hinu nýja félags-
heimili Höfðaborg á Hofsósi.
Bankinn hélt stjórn og ábyrgðar-
mönnum sjóðsins kaffiboð, er
afhending hans fór fram. Full-
yrða má, að allir eru ánægðir með
þessa skipan mála og vænta þess,
að hvers konar viðskipti eigi eftir
að aukast, fólkinu og stofnuninni
til hagsældar.
DOMUFLAUELSJAKKAR
HERRALEÐURJAKKAR
BLUSSUR, BOLIR,
PEYSUR OG
ÓTRÚLEGT ÚRVAL AF BUXUM
Jt&a$taltnn
þid ad
a^falinn
Bergstaóastræti 4a Sími 14350
í