Morgunblaðið - 19.12.1973, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
21
Ég heyrði
alltaf
skerandi
neyðaróp
Róm, 18. desember, NTB.
BLÓÐIDRIFIN slóð arabísku
hryðjuvcrkamannanna hófst á
flugvellinum í Róm. Þar skutu
þeir af vélbyssum á farþega og
fleygðu eldsprengju inn I banda-
ríska farþegaþotu frá Pan
American. Talið er, að um 20 far-
þeganna hafi farizt, þegar þotan
brann. Ung bandarísk stúlka,
Bonnie Geisler. var mcðal far-
þega í Pan American og hún gaf
eftirfarandi lýsingu á atburðin-
um:
— Við biðum öll eftir því, að
vélin færi af stað og hæfi sig til
flugs, þegar flugstjórinn til-
kynnti allt f einu, að skothrfð
væri fyrir utan vélina. Við feng-
um fyrirmæli um að leggjast á
giólfið og fyrst f stað voru allir
rólegir.
— En svo hristist öll vélin af
mikilli sprengingu, sem varð
aftarlega I henni. Ein flugfreyjan
hrópaði til okkar að fara út um
ne.vðarútgangana og útganginn að
framan. Ný sprenging hristi vél-
ina og allt fylltist af þykkum
reyk. Við sáum ekkert og það var
erfitt að draga andann.
— Ein flugfreyjan komst að
neyðarútgöngunum yfir vængja-
unum í miðjum farþegaklefanum
og opnaði þá. Eg þakkaði guði
fyrir, að ég sat þar rétt hjá og var
meðal þeirra fyrstu, sem komust
úr. Eldurinn var þá farinn að
Iæsa sig fram eftir vélinni og fólk
var gripið ofsahræðslu. Ég tók
mér stöðu á vængnum og hjálpaði
fólki, sem var aðkomast út.
— Ég heyrði allan tfmann
skerandi neyðaróp og margir
þeirra, sem við tókum á móti,
voru hræðilega brenndir og rifn-
ir, kjötið hékk f tægjum á andliti
þess og höndum. Ég er að læra
læknisfræði og gat því veitt þeim,
sem verst voru leiknir, fyrstu
hjálp. Ein kona fékk slag rétt
eftir að hún kom út úr vélinni.
Hún hneig bara niður og andlits-
liturinn breyttist.
— Aftast í vélinni voru nokkur
börn, en ég veit ekki, hvað varð
um þau. Hins vegar sá ég full-
orðna menn berjast tryllingslega
um til að komast fram eftir
vélinni. Mér fór að líða ilia sjálfri
og sjúkrabfll flutti mig hingað á
sjúkrahúsið.
Sovézk yfirvöld við Valery Panov;
Þú mátt fara
en ekki konan
Stjarnfræðingar keppast nú við að taka myndir af halastjörn-
unni Kohoutek, sem nú er aftur orðin vel sýnileg. Ágætar myndir
hafa náðst af henni af jörðu niðri, en þó andvarpa flestir
stjarnfræðingar af öfund, þegar þeir hugsa til geimfaranna f
geimstöðinni Skylab, sem sjá betur til hennar en nokkrir aðrir,
enda langt fyrir utan gufuhvolf jarðar og annað, sem truflar
sjón.
Moskvu, 18. desember, AP.
SOVÉZK yfirvöld hafa tilkynnt
balletdansaranum Valery Panov,
að hann geti fengið að flytjast til
Israel 10. janúar næstkomandi en
að kona hans fái ekki leyfi til að
far-a með honum. Panov hefur
neitað að ganga að þessum skil-
yrðum.
Panov sótti um leyfi til að
flytjast til Israel fyrir 20 mánuð-
um. Skömmu eftir að hann sendi
umsögnina var hann rekinn frá
Kirov-balletinum á þeim forsend-
um, að hann væri svikari. Hann
hafði verið aðaldansari þar fram
að þeim tfma og gagnrýnendur
EBE-ríkin
greinir á um
svæðasjóðinn
Briissel, 18. des., AP-NTB.
FUNDI utanrfkisráðherra aðild-
arríkja Efnahagsbandaiags
Evrópu lauk svo í Briissel í dag,
að þeir náðu ekki samkomulagi
um það, hve miklu fjármagni
skyldi veitt í sjóð þann, sem fyrir-
hugað er að koma á laggirnar til
aðstoðar þeim landsvæðum innan
markaðssvæðisins, sem skemmst
eru komin í iðnþróun og mest
þurfa á aðstoð að halda til að geta
aðlagað sig kröfum bandalagsins.
Fyrirhugað var, að sjóðurinn tæki
til starfa 1. janúar nk.
Ákveðið var, að ráðherrarnir
hittust aftur að máli eigi síðar en
7. janúar nk. og gerðu þá frekari
tilraun til að ná samkomulagi, en
jafnframt var gert ráð fyrir, að
stjórnarleiðtogar viðkomandi
landa reyndu þangað til að jafna
Framhald á bls. 24.
hafa líkt snilld hans við snilld
Rudolfs Nureyevs.
Panov sagði í simtali við frétta-
mann AP, að KGB (rússneska
öryggislögreglan) hafi lagt að
þeim hjónum að skilja. Hann
sagði einnig, að stöðugt væri
fylgzt með ferðum sínum. Frá því
hann var rekinn frá Kirov hefur
honum verið neitað um leyfi til að
dansa og nú er einnig búið að taka
fyrir að hann geti æft sig.
í síðasta mánuði fór Panov i 20
daga hungurverkfall og neytti
aðeins vatns og ávaxtasafa. Hann
léttist um 13 kíló og var farinn að
sjá ofsjónir þegar hann loks gafst
upp. Hann kveðst reiðubúinn að
fara aftur í hungurverkfall ef
kona hans fái ekki fararleyfi.
Snemma
uppréttur
Addis Abeba, 18. des., AP.
FUNDIZT hafa í norðurhluta
Eþfópíu steinrunnin mannabein,
sem talin eru benda til þess, að
maðurinn hafi staðið uppréttur
fyrir þremur milljónum ára.
Vísin dafréttam aður Tim es:
Stefnuleysi í
fiskveiðimálum
VÍSINDAFRÉTTARITARI
brezka blaðsins Times fjallar um
framtíð fiskveiða Breta 10. des-
ember sfðastliðinn og nefnir þar
meðal annars, að þrátt fyrir
reynsluna af fiskveiðideilunni
við íslendinga og erfiðleika
vegna fiskveiðilögsögu, þegar ver-
ið var að semja um inngöngu f
Efnahagsbandalag Evrópu, virð-
ist ríkisstjórnin treg til að hafa
forystumenn fiskiðnaðarins sér
til fulltingis við samningu til-
lagna, sem leggja á fram á vænt-
anlegri hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna.
Fréttamaður Times segir, að
mikilvægi fisks sem próteingjafa
hafi vaxið mjög á undanförnum
árum eftir því sem erfiðleikar
hafi aukizt á að fá prótein eftir
öðrum leiðum. Samt sé ekki að sjá
nein merki þess, að þeir, sem beri
ábyrgð á þróun fiskiðnaðarins,
hafi gert sér grein fyrir hvaða
stefnu sé bezt að taka til að
tryggja nýtingu og verndun þess-
ara auðlinda.
Fréttamaðurinn vitnar i C.I.
Meek, formann ferskfiskveiði-
nefndarinnar, sem hann segir
hafa boðið stjórninni til viðræðna
um þetta mál til undirbúnings
fyrir hafréttarráðstefnuna. Meek
hafi talið, að hægt væri að ræða
þetta mál án þess að skaða samn-
ingaviðræðurnar við ísland. Tak-
markanir á aflamagni hafi ver-
ið óhjákvæmilegar enda haft
stuðning fiskveiðiþjóða.
Að hans dómi voru hinir íhalds-
sömu leiðandi menn fiskiðnaðar-
ins reiðubúnir til að laga sig að
breytingum vegna samninganna
við ísland, ef stjórnin tæki ineð í
reikninginn þær flóknu sam-
þykktir, sem þyrfti til að tryggja
skynsamlega nýtingu fiskimiða
nær ströndumBretlands.
Poul Hartling kom
lands þegar hann var
ráðherra, 1968 til
utanrfkisráðherrafund
sem haldinn var f
(Ljósm. Mbl. ÓI. K.M.)
hingað til
utanrfkis-
að sitja
NATO,
Reykjavfk.
Poul Hartling
Hinn nýi forsætisráðherra Danmerkur
POUL HARTLING hefur verið
formaður Vinstri flokksins
danska síðan 1965. A kjörtíma-
bilinu 1968 — 1971 var hann
utanrfkisráðherra og þá jafn-
framt pólitfskur leiðtogi flokks
sfns. Á tfmabilinu 1971 til 1973,
þegar flokkurinn var f stjórnar-
andstöðu, var Hartling formaður
þingflokksins. Leið hans upp á
toppinn hefur verið stutt. Hann
hefur verið kallaður „hástökkvar-
inn í Vinstri."
Poul Hartling var fyrst kjörinn
á þing árið 1957. í kosningunum
1960 vantaði hann 137 atkvæði til
að ná kjöri en hann kom fram
hefndum 1964 og i kosningunum
1968 fékk hann flest atkvæði allra
þingmanna flokksins. Þann tíma,
sem hann var ekki á þingi, notaði
hann til aðtaka mjög virkan þátt í
skipulagsstarfi flokksins og
hjálpaði til við að skrifa nýja
stefnuskrá fyrir hann.
Stjórnarmyndunin, sem átti sér
stað 1968, var óskatakmark
Hartlings. Það hafði verið mjög
náið samstarf milli Vinstri og
íhaldsflokksins (Konservative
folkeparti) um margra ára skeið.
Flokkarnir voru saman í stjórn
1950 — 1953 og þegar þeir lentu i
stjórnarandstöðu • unnu þeir
saman að því, að komast til valda
á nýjan leik.
í ræðu, sem Hartling hélt i
Svanninge 1965, nokkrum mánuð-
um eftir að hann hafði leyst Erik
Eriksen fyrrverandi forsætisráð-
herra af hólmi sem formaður
þingflokks Vinstri, hóf hann máls
á því, að fá „radikale Venstre"
með í samstarfið Tæplega þrem-
ur árum síðar var búið að mynda
stjórn þessara þriggja flokka.
Það var ekki beint embætti '
utanríkisráðherra, sem Hartling
stefndi að, þegar hann hugaði að
pólitískum frama sínum. Sem
þingmaður skipti hann sér mest
af skóla- og menningarmálum en
sem formaður þingflokksins |
dróst hann mjög inn í almenna
pólitíska starfsemi. Eins og allir,
sem uxu úr grasi á eftirstríðs-
árunum, fylgdist hann náið með
þróun heimsmála og komst í
beina snertingu við þau, m.a. í
gegnum UNESCO. Hann var einn-
ig formaður fulltrúa vinstri i
Norðurlandaráði og var um skeið
formaður þess. Hann varð og full-
trúi hjá Sameinuðu þjóðunum.
En það urðu ekki neinar stór-
breytingar á lifi Hartlings þegar
hann varð utanríkisráðherra og
hann féll fyrirhafnarlitið inn i
embættið. Mælska hans, menntun
og framkoma léttu honum
byrðarnar, þegar hann þurfti að
glíma við erfið vandamál. Sem
utanríkisráðherra fjölmörgum al-
þjóðaráðstefnum og aflaði sér
persónulegra sambanda. Hann
var fyrsti danski utanríkisráð-
herrann, sem heimsótti nýju ríkin
í Vestur-Afríku. Flokkur hans
studdi mjög eindregið inngöngu
Danmerkur i Efnahagsbandalag
Evrópu.
Hartling var
prestur í 9 ár
Pout Hartling, sem er 59 ára
gamall, óx upp á mjög pólitísku
heimili i Kaupmannahöfn. Faðir
hans var skólamaður og var um
skeið kennslumálaráðherra.
Sjálfur er hann cand. teol., var
prestur i níu ár og varð 35 ára
gamall rektor N. Zahles skólans í
Kaupmannahöfn en meðal hátt
skrifaðra nemenda úr barnadeild
þeirrar menntastofnunar eru nú-
verandi drottning Danmerkur og
systur hennar. Hartling gegndi
embætti rektors þar til hann varð
utanrikisráðherra.
Getur sett upp járnhanzka
Hartling hafði ekki verið lengi i
pólitík, þegar farið var að kalla
hann aðalmann Krónprins-sam
tökum Vinstri flokksins. Hann
var einróma kjörinn formaður
flokksins og hefur sem slíkur
stjórnað bæði flokknum og þing-
flokknum af þolinmæði og frjáls-
lyndi í gegnum ýmis áföll og deil-
ur.
Hann hefur þó sýnt, að hann á
það til að setja upp járnhanzka ef
vikið er of langt frá linunni um
tryggðviðflokkinn. Það var hann,
serh stjórnaði uppgjörinu við tvo
af þingmönnum flokksins, sem
árið 1965 sömdu við jafnaðar-
manninn, sem þá var forsætisráð-
herra og fóru með því á bak við
flokkinn. Hartling er miklu eigin-
legra að koma fram af vinsemd og
hjálpsemi en ef honum rennur í
skap á hann það til að kalla að-
gerðir andstæðings sins „órétt-
látar" og „óheiðarlegar".
Paul Hartling er þekktur fyrir
að vera afkastamikill og að geta
áorkað miklu án þess að þreytast.
Ef hann ætlar að slappa af gerist
það helzt í faðmi fjölskyldunnar,
gjarnan með tónlist og söng. Tvær
bækur og fjölmargar blaða-
greinar hafa orðið til í frístund-
um hans og hann er góður tækni-
maður. Hann getur tekið bil í
sundur og sett hann rétt saman
aftur. Carl Kauffeldt.