Morgunblaðið - 19.12.1973, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
31
Minning:
Margrét Pálsdóttir
fyrrv. kennslukona
Jón Asgeirsson
skrifar um tónlist:
leik. Má vera, að með þessari tón-
list ntegi vekja með. hljóóftera-
leikurunum leikgleði, er erídast
mætti eitthvað frant á næ.sta ár.
Framtíð Sinfóníuhljómsveitar-
innar er ekki hvað minnst undir
þvi komin, að hver hljdðfæraleik-
ari hennar vinni verk sit.t eins vel
I dag fer fram frá Fossvogs-
kirkju útför Margrétar Pálsdóttur
fv. kennslukonu frá Hnífsdal,
Bjarnarstíg 6, Reykjavík, en hún
andaðist á sjúkradeild Hrafnistu
12. þ.m., en þar hafði hún dvalið
rúmt ár, en annars bjó hún s.l. 35
ár f ibúð sinni að Bjarnarstíg 6
hér í borg.
Margrét var fædd í Heimabæ í
Hnffsdal 6. des. 1884, og var þvi
rúmlega 89 ára er hún lést.
Foreldrar hannar voru þau
hjónin Páll Halldórsson, útvegs-
bóndi og formaður og kona hans
Helga Jóakimsdóttir, mikil hús-
móðir og sæmdarkona. Faðir
Margrétar var einn af mestu afla-
mönnum við Djúp og búhöldur
góður.
Margrét ólst upp í foreldrahús-
um í glöðunt syskinahópi, en þau
voru 4, sem upp komust auk
Margrétar, Jóakim, Halldór og
Páll, sem allir urðu úvegsbændur
og formenn i Ilnifsdal, og Sigrið-
ur fyrri kona Aðalsteins Pálsson-
ar skipstjóra. Eitt þessara syst-
kina er enn á lffi, en það er Páll,
sem var 90 ára á s.l. sumri og
ennþá rær báti sínum til fiskjar.
Á unglingsárunum stundaði
Margrét öll algeng heimilisstörf,
eins og þau tíðkuðust þá, og einn-
ig starfaði hún við verzlun i
Hnífsdal um tíma. Eftir aldamót-
in stundaði hún nám við Flens-
borgarskólann í Hafnarfirði og
lauk þaðan prófi. Þá tók hún og
þátt í kennaranámskeiði þar og
öðlaðist með því full kennararétt-
indi. Um árabil stundaði hún síð-
an kennslu víðs vegar um landið
m.a. i Ilnífsdal, á ísafirði, í Bol-
ungarvík, á Akureyri og í
Landeyjum, og 1 vetur var hún
heimiliskennari hjá séra Páli
Stephensen á Melgraseyri.
Meðan Margrét kenndi á Isa-
firði, gerðist hún einn af stofn-
endum góðtemplarareglunnar i
Hnífsdal, einnig stofnandi kven-
félagsins Hvatar þar og fyrsti for-
maður þess. Ung nam hún orgel-
leik og hafði m.a. söngkennslu á
hendi í skólum ásamt kennslu í
öðrum námsgreinum, enda var
hún ljóðelsk og hafði næmt söng-
eyra.
Eftir að hún fluttist til Reykja-
vfkur, stundaði hún smábarna-
kerinslu á vetrum, en á sumrum
vann hún ýmiskonar störf sem þá
voru tiltæk, svo sem kaupavinnu,
síldarsöltun, matráðskonustörf á
vinnustöðvum, garðyrkjustörf og
fl.
Margrét var víðlesin, margfróð
og stálminnug og sagði vel frá.
Hún hafði mikinn áhuga á að
kynnast landi og þjóð, og það
tókst henni nteð þvf að stunda
atvinnu víðs vegar um landið, en
á yngri árum hennar voru ferða-
lög og kynnisferðir ekki eins auð-
veld og nú er þá dvaldist hún um
tfmaí Noregi og Danmörku.
Margrét giftist aldrei, en um
tvítugt var hún heitbundin ung-
um kennara, sem andaðist, áður
en þeim auðnaðist að stofna til
hjúskapar.
Þegar rætt var við Margréti
kom þar enginn að tómum kofun-
um, þvf að hún fylgdist vel með
öllum málum. Þótt hún væri f eðli
sínu alvörugefin gat hún í góðum
vinahópi verið hrókur alls fagnað-
ar og átti hún auðvelt með að lffga
upp á hlutina, þegar þaðátti við.
Mestan hluta æfi sinnar var
hún heilsuhraust og hélt fullum
sálarkröftum og frábæru minni,
þar til hún fékk aðkenningu að
heilablóðfalli vorið 1972, en eftir
það náði hún ekki heilsu aftur.
Dvaldi hún þá fyrst á sjúkrahúsi,
en síðan heima að Bjarnarstíg 6,
en í ágúst 1972 fiuttist hún á
sjúkpadeild Hrafnistu og naut þar
góðrar aðhlynningar, en þar lést
hún 12. þ.m. þrotin að líkamleg-
um og andlegum kröftum.
Hinn fjölmenni hópur ættingja
Og vina, sem í dag kveður
Margréti Pálsdóttur minnist
hennar með hlýhug og virðingu
sem grandvarrar og góðrar konu,
sem ekki mátti vamm sitt vita í
neinu. Geir Olafsson.
Þetta voru sannkallaðir leik-
hústónleikar. Tveir forleikir,
tveir söngleikja úrdrættir, þrjár
arfur og norsk þjóðlagasvíta, sem
í þessum „selskap" var eins og
boðflenna. Það má vera, að rétt sé
að halda af og'til tónleika með
svokallaðri léttri tónlist, en er sú
hætta ekki fyrir hendi. að tekin
verði til meðferðar verk, sem sí-
fellt er verið að flytja i fjölmiðl-
um, t.d. eins og forleiki Rossinis
og Strauss, þættina úr Seldu
brúðinni og West Side Story.
Tæplega er hljómleikagestum ný-
næmi f slíkri tónlist. Þaðeinasem
vakti forvitni á þessum tónleik-
unt, var söngur Guðrúnar Á.
Símonar. Söngur frúarinnar var,
þrátt fyrir smá óhapp, sem hún
leiðrétti eins og góðum tónlistar-
manni sæmir, stílfástur og fag-
mannslega yfirvegaður. Guðrún
Sinfóníu-
tónleikar
A. Sfmonar er góð söngkona og
mætti heyrast oftar á tónleikum
hljómsveitarinnar. Það væri svo
sannarlega að bera í bakkafullan
lækinn að ræða um hvert einslakt
verk þessara tónleika. Þau eru
góð í sínu rétta umhverfi og má
„skilyrðislaúst einnig- teika á
hljómleikum, eins og höfundur
efnisskrár ritar í afsökunartón og
ber fyrir þvf Ilans von Bulow. Það
mátti greinilega heyra á leik
hljómsveitarinnar, að hljóðfæra-
leikurum fellur vel að leika létta
tónlist og víða brá fyrir góðurn
og honum er frekast unnt, taki
gagnrýni, en spinni ekki um sig
varnarvef hroka og sjálfsánægju.
Frammistaða hl jömsveitarinnar á
liðnum árurn er sönnun þess, a,ð
hún er þess megnug að leysa'af
hendi erfið verkefni Sinfóníu-
hljómsveit íslánds er stolt ís-
lenzkra tónlistarmanna (>g
möndulás tónlistarlífs á Islandi.
Ilún má ekki koðna niður vegna
sirinuleysis, þvf 'ef slakað er á
listrænum kröfum í efnisvali og
meðferð, fælir hún frá sér vand-
láta og trygga gesti sína og haturs-
menn góðrar tónlistar munu sjá
sér leik á borði. Afrek á, hvaða
sviði sem ér, er ekki einkamál
þess er það fremur, það er sam-
eign ög færir okkur. öll nær þvf að
vera afreksmenn. Sé ntarkið sett
hátt, munum við stoltir hlýða á og
segja: Ileyrið, hvað hljómsveitin
okkar leikur vel.
Jön Ásgeirsson.
Allir vita, að sumir virðast yngri en þeir eru.
Æskan virðist hafa tekið ástfóstri við þá,
og þeir njóta þess í virðingu og vinsældum.
En hefurðu tekið eftir því, hvernig þeir
klæðast, þessir lukkunnar pamfílar?
Föt eftir nýjustu tízku, sem fara vel - gefa
persónu þinni ferskan blæ, svo að þú
virðist ekki ári eldri en þú ert,
jafnvel yngri.
Reyndu sjálfur. Sýndu heiminum þínar *
yngstu hliðar.
Fáðu þér ný Kóróna föt, og sjáðu hvernig
brosunum til bín fiölear.
Herrahúsið Aðalstræti 4, Herrabúðin við Lækjartorg