Morgunblaðið - 19.12.1973, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
RAFMAGNSEFTIRLITIÐ A
HRAKHÓLUM MEÐ HÚSNÆÐI
Rafmagnseftirlit ríkisins varð
40 ára á þessu ári, og af því tilefni
sneri Morgunblaðið sðr til Jóns
Á. Bjarnasonar rafmagnseftirlits-
stjðra. Í samtalinu við Jón kom
margt í ljós, sem ekki hefur verið
flíkað fram til þessa, en fuli
ástæða er þó að vekja athygli á.
Sagði Jón m.a., að þrátt fyrir
þessi 40 ár væri skilningur núver-
andi yfirvalda á starfsemi Raf-
magnseftirlitsins ekki meiri en
svo, að stofnunin hefur verið á
hrakhólum með húsnæði undan-
farin tvö ár, og verður nú hluti
stofnunarinnar að flvtja I bráða-
birgðahúsnæði, sem er bæði
óhentugt og ófullnægjandi fyrir
þá starfsemi, er stofnunin hefur
með höndum.
Hins vegar virðist nú eitthvað
vera að rofa til, því að stjórnvöld
hafa nú ákveðið að byggja tvær
hæðir ofan á Grensásveg 9, sem er
hálfbyggt hús I ríkiseign. Raf-
magnseftirliti ríkisins hefur verið
heitið framtíðarhúsnæði við hæfi,
á annarri hæðinni, og mábenda á,
að hér gæti ef til vill verið um
hagkvæma lausn á húsnæðismál-
um fleiri stofnana að ræða.
Starfsemi Rafmagnseftirlits
ríkisins er tvíþætt. Annars vegar
eftirlit með raforkuvirkjum og
hins vegar raffangapröfun, sem
hefur með höndum viðurkenn-
ingu á öllum raftækjum, sem seld
eru almenningi og notuð eru í
heimahúsum, áður en sala á þeim
fer fram þ.e.a.s. hér er um öiygg-
isstofnun að ræða, sem á að koma
í veg fyrir hugsanleg slys eða tjón
iMI J |,;v'
—^; *
" t i p4k 7 %
HRÆRIVELAR
eru ómissandi á hverju
heimili.
Þær eru traustar og ódýrar
KRUPS
vörurfást viða i Reykjavík
og úti á landi.
Veljið KRUPS-vörur.
Umboðsmenn:
Jón Jóhannesson
& Co sl..
Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu.
Símar 26988 og 15821.
Komdu
ogkysstu
Mg
Nú er yöur óhætt. Þér getiö komiö meö hvers-
kyns litaprufur til þeirra málningarsala, sem verzla
meö Sadolin.
Sadolin, heimsþekkt málning fyrir gæöi og end-
ingu, blandar 1130 litbrigöi eftir yöar eigin óskum.
Sadolin er einasta málningin, sem býöur yöur
þessa þjónustu í lakkmálningu, olíumálningu og
vatnsmálningu.
Reyniö Sadolin og sannfærizt, - kossinn má bíöa
þangaö til þér eruö búnar aö sjá árangurinn.
Sadolin
af völdum rafmagns. Það skýtur
því óneitanlega skökku við, að
skilningur skuli ekki vera fyrir
hendi á starfsemi slíkrar öryggis-
stofnunar og henni skuli ekki
vera veitt viðunandi starfsskil-
yrði.
Ujá Rafmagnseftirliti ríkisins
vinna nú 18 manns, en rekstrarfé
er þannig fengið, að hinar ýmsu
rafveitur á landinu greiða 1% af
orkusölu sinni til stofnunarinnar,
en gjald þetta er greitt af hinum
almenna notanda og innifalið i
orkugjaldi hans. Á landinu er um
40 rafmagnseftirlitsmenn hjá
hinum ýmsu rafveitum og er hlut-
verk þeirra að taka út nýlagnir og
sjá um, að eldri lagnir séu í sam-
ræmi víð ákvæði reglugerðar.
Verði notandi var við galla á raf-
lögnum sínum, ber honum að láta
viðkomandi rafveitu vita og
sendir hún þá eftirlitsmann sinn
til að ganga úr skugga um eðli
gallanna. Sfðan sér eigandi eða
umráðamaður húsrýmisins um, að
rafvirki bæti úr þeim. Sagði Jón,
að því miður vildi oft verða mis-
brestur á því, að fólk hefði sam-
ráð við rafmagnseftirlitsmenn í
slíkum tilfellum, en slys og elds-
voðar af völdum rafmagns væru
Jón Á. Bjarnason
mun tíðari hér á landi en
mönnum væri ljóst. Væri því full
ástæða til aðbrýna fyrir mönnum
að lvafa alltaf samráð við rafveit-
una eða rafmagnseftirlitsmenn
hennar í tilfellum sem þessum og
byrgja þar meðbrunninn, áður en
barnið væri dottið ofan í. Gat Jón
þess, að mikil þörf væri á sérstök-
um manni, er hefði með höndum
kynningarstarfsemi f þessu sam-
bandi. Að lokum sagði Jón: ,,í
nútfma þjóðfélagi er rafmagnið
þarfasti þjónn mannsins, en getur
orðið harður húsbóndi, ef rang-
lega er með það farið."
Slæmt veðurfar
háir samgöngum
t KJÖLFAR flugfreyjuverkfalls-
ins hefur eftirspurn eftir far-
þegaflutningum aukizt mjög hjá
smærri flugfélögunum og er nú
svo komið að þau geta vart annað
eftirspurn. Óhagstætt verðurfar
hefur nokkuð háð innanlands-
flugi að undanförnu, en fjöldi
fólks bíður nú eftir fari til hinna
ýmsu staða á landinu.
Hjá Vængjum hf. hefur verið
mikið að gera að undanförnu
bæði við farþegaflug svo og vöru-
og póstflutninga, en þeir hafa ver-
ið með fast póstflug á Akranes,
Blönduós, Uolt í Önundarfirði,
Gjögur, Hólmavík, Hvammstanga,
Siglufjörð og Rif á Snæfellsnesi.
Að undanförnu hefur þó veðurfar
sett strik i reikninginn svo að
ekki hefur reynzt unnt að anna
reglubundnu flugi sem skyldi.
Hefur t.d. verið ófært á Siglufjörð
síðan á föstudag, en um 70 farþeg-
ar bíða nú eftir flugfari þangað
hjá Vængjum.
Iljá Flugstöðinni hf. og Helga
Jónssyni er sömu sögu að segja,
en þessir aðilar annast eingöngu
farþegaflug. Hefur verið mikil
eftirspurn eftir farþegaflutning-
um að undanförnu, sem þó hefur
ekki reynzt unnt að uppfylla til
fulls vegna veðurs.
En veðrið hefur víðar áhrif en í
loftflutningum. I samtali við
Morgunblaðið sagði ísleifur
Runólfsson framkvæmdastjóri
Vöruflutningamiðstöðvarinnar
hf., að slæm færð væri nú víða um
land, sem væri þegar farin að
segja til sín í sambandi við vöru-
flutninga á landi. Ófært er land-
veginn til Vestfjarða og illfært á
Snæfellsnes, en ísleifur gerði sér
þó vonir um að úr því rnundi
rætast áður en til vandræða
horfði.
Ný Gunnu-
bók komin út
Bókaútgáfan Stafafell hefur
gefið út nýja bök í bókaf lokknum
um Gunnu eftir Catherine
Woolley og heitir hún Gunna og
dularfulla brúðan.
Fjallar hún um sumardvöl
Gunnu og Geirlaugar að Þorsk-
höfða og leit þeirra að dýrmætri
brúðu, sem horfið hefur á dular-
fullan hátl. Að vanda lendir
Gunna I ýmsum ævintýrum, en að
lokum tekst þeim stöllum að ráða
gátuna um hina týndu brúðu.
Bláskjár
í 4. útgáfu
11 barnabækur
frá BSE
BÖKAVERZLUN Sigfúsar
Eymundssonar hefur nú fyrir jól-
in sent frá sér 11 barnabækur,
þar af eru 10 í samfelldum flokki,
sem nefnast Litlu bfblíusögurnar.
Árið 1915 kom barnasagan
BLÁSKJÁR f fyrsta sinn út á ís-
lenzku hjá Bókaverzlun Sigfúsar
E.vmundssonar. Sagan, sem síðan
hefur verið endurprentuð þrísvar
1943, 1955 og 1973, vann sér strax
mikla hylli meðal yngstu lesend-
anna og segja má, að hún hafi
fylgt hverri nýrri kynslóð þessar-
ar aldar. Höfundur Bláskjás er
Franz Hoffman, en Hólmfrfður
Knudsen islenzkaði söguna. í
fjórðu útgáfu hefur broti bókar-
innar og útliti verið breytt og
Jóna Sigríður Þorleifsdóttir, ung-
ur teiknari hefur teiknað nýjar
myndir í söguna.
Bókin er sett í Prentstofu G.
Benedíktssonar, prentuð í Offset-
myndum og bundin í Félagsbók-
bandinu.
I bókaflokknum Litlu bfblfu-
sögurnar koma út 10 bækur: Guð
skapaði heiminn. Fyrstu jólin,
Drengurinn, sem gaf, Góði hírðir-
inn, Góðu vinirnir, Jesús hjálpar
litlu stúlkunni, Góði faðirinn,
Bruðkaupsveizlan, Maður uppi f
tré, Miskunnsami Samverjinn.
Allar bækurnar eru f litlu broti
og skreyttar litmyndum. Sr. Bern-
harður Guðmundsson endursagði
sögurnar úr ensku og samdi skýr-
ingar á bókarkápu, sem ætlaðar
eru foreldrum og kennurum til að
auðvelda þeim að skýra efni
hverrar bókar fyrir börnum sín-
um og nemendum.
Bækurnar eru gefnar út í sam-
vinnu við breska útgáfufyrirtæk-
iðSaripture Union, sem sérhæfir
sig í útgáfu bóka um kristna
kenningu. Bækurnar eru settar
hér á landi af Piæntstofu G. Bene-
diktssonar en prentaðai' í
Bretlandi.