Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 44
Finnskur kristall frá
nssaia:
hus<;ai;navkrzi,ii\
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
l.iiinjiivcfii l.'t Kiiykjiivik ximi 25870
SÍMAR: 26060 OG 26066
<VÆTLUNARSTAÐIR
XKRANES,
■LATEYRI. HÓLMAVlK, GJOGUR. STYKKISHÓUVIUR,
IIF. SIGLUFJOROUR. BLONDUÓS. HVAMMSTANGI
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
• •
r r
STJORNUBIO
• •
GJOREYÐI-
LAGÐIST AF
ELDI í NÓTT
Að lokinni undirritun samninga í gær: Frá vinstri eru flugfreyjurnar Hrefna Harðardóttir, Erla
Hatlemark formaður flugfreyjufélagsins og Bára Björg Teitsdóttir, en í baksýn sjást Örn O. Johnson hjá
Flugfélaginu ög AlfreífÉlíasson hjá Loftleiðum. Ljósmynd Mbl. Öl. K. M.
Stjörnubíó eyðilagðist af eldi
f nótt, en slökkviliðið var kallað
þangað laust f.vrir kl. 24. Eldur
var þá víða laus í veggjum og þaki
hússins og sýningartjaldið var
brunnið. Allt lið slökkviliðs
Reykjavíkur var kallað út ásamt
varaliði, eða liðlega 70 slökkvi-
liðsmenn.
Eftir tæplega klukkustundar-
viðureign slökkviliðsins við
Flugfreyjur fengu 16
18% hækkun
Áætlunarflug ætti að vera
komið í eðlilegt horf í dag
„ÉG vil óska flugfreyjum til
hamingju með þennan mikla sig-
ur í kjarabaráttu þeira og vona,
að þær megi njóta þess vel, jafn-
framt því sem ég vona, að flug-
félögin muni fá staðið undir þess-
um kjarabótum." Svo fórust Birnf
Jónssyni samgönguráðherra orð,
eftir að fulltrúar flugfreyja og
f lugfélaganna höfðu undirritað
nýjan kjarasamning um þrjú
leytið í gær. Samninganefndir
fulltrúa höfðu þá setið á sátta-
fundi í nær 50 klukkustundir
samfleytt. Strax og Ijóst var, að
samkomulag var á næsta leiti
frestuðu flugfreyjur verkfalli
sínu um einn sólarhring eða þar
til samningurinn hafði hlotið
samþykki félagsfundar, er hald-
inn var í gærkvöldi. Aætlunar-
flug íslenzku flugfélaganna hófst
því strax í gærdag.
Fundur ’i’orfa Hjartarsonar
sáttasemjara ríkisins meðfulltrú-
um deiluaðila hófst kl. 2 á sunriu-
dag. Deiluaðilar nálguðust fljöt-
leea hvor annan nokkuð. en mörg
'atriði voru til umræðu og teigðist
því æði mikið úr fundinum.
Snemma í gærmorgun varð þó
ljöst að grundvöllur fyrir sam-
komufagi var fenginn, en nokkrar
klukkustundir tók að ganga
endanlega frá samningi. Klukkan
3 i gærdag var svo nýr kjara-
samningur milli félags flugfreyja
og flugfélaganna undirritaður á
skrifstofu sáttasemjara.
Morgunblaðið náði tali af
samninganefnd flugfreyja strax
og samkomulagið hafði verið und-
irritað. Þær voru að vonum kátar
yfir því, að langt og strangt
samníngaþóf var loks á enda.
„Við erum hæstánægðar með þá
kjarabót sem viðfáum samkvæmt
þessu samkomulagi," sagði Erla
Hatlemark formaður félagsins, en
vék síðan að einstökum atriðum
kjarasamningsins:
Samkvæmt honum fá Flugfreyj
ur 12% hækkun á neðsta launa-
flokk og 10% hækkun á aðra
flokka — síðan aftur3% hinn 1/3
1974 og önnur 3% hinn 1/7 1974.
Þá er bætt við tveimur flokkum
fyrir 1. freyjur, sem starfað hafa
lengst. Eins fá flugfre.vjur al-
menna hækkun á flugstunda-
gjaldi, sem svarar til um 14%
hækkunar.
Miðað við ofangreinda grunn-
kaupshækkun þýðir þetta eftir-
farandi föst laun fyrir flugfreyj-
ur: A Fokker Friendship — 2.
freyja fær þar 36.407 kr. f
byrjunarlaun; eftir 4 ár 45.659 kr.
Á Boeing 727 fær 2. freyja
38.883 í byjunarlaun; eftir fjögur
ár 48.773kr. Fyrsta freyja fær aft-
Framhald á bls. 24.
eldinn virtist útlit fyrir að
slökkviliðsmenn gætu haldið f við
eldinn, en um kl. 1 eftir miðnætti
varð mikil sprenging i Iofti kvik-
myndahússins og hrundi allt fals-
loftið i húsinu niður. Mildi var að
engin slasaðist, en einn slökkvi-
liðsmaður í stiga hrundi niður
ineð loftinu. Einnig voru nokkrir
menn í salnum, en enginn
meiddist. Skömmu áður en loftið
hrundi' var hópur slökkvi-
liðsmanna að vinna við slökkvi-
störf þar sem loftið hrundi niður.
Eftir sprenginguna var eldur laus
i öllu þakinu og var erfitt
um slökkviliðsstörf vegna norðan-
áttarinnar, sem var allhvöss.
Þakið í Stjörnubíói var múrhúðuð
timburklæðning á járnbitum.
Sýningarvélar Stjörnubfós eru í
eldtraustu herbergi, en um kl. 1
var hurðin þar orðin rauðglóandi.
Vélar hússins eru 5—8 millj. kr.
virði.
Um kl. 2 í nótt var slökkviliðið
ennþá að berjast við eldinn og
verja nærliggjandi hús, skart-
gripaverzlun Vals Fannars og hús
það sem Hljóðfærahús Re.vkja-
víkur og fleiri verzlanir eru í.
Mestur eldur var í upphafi laus
vestan megin í húsinu á miðjum
efri svölum við vegginn )>ar, en
ekki er kunnugt um eldsupptök,
sem gætu allt eins hafa verið i
ljósum í lofti.
Rafmagnsskömmtun
yfirvofandi í borginni?
ORKUFRAMLEIÐSLA Búrfells-
virkjunar var minnkuð úr 180
MW í 100 MW í gær vegna klaka-
stíflu í lóninu og við innrennslis-
op virkjunarinnar. Ef frost
standa lengi enn, getur ástandið
við Búrfellsvirkjun orðið það al-
varlegt, að grípa þurfi til raf-
magnsskömmtunar á orkuveitu-
svæði Landsvirkjunar. t iiðrum
landshlutum er ástandið í raf-
magnsmálum einnig mjög alvar-
legt, og hefur orðið að skammta
rafmagn á Norður- og Austur-
landi.
Gísli Gislason stöðvarstjóri við
Búrfellsvirkjun sagði i viðtali við
Morgunblaðið í gær, að miðlunar-
lónið við Þórisvatn hefði algjör-
lega bjargað Búrfellsvirkjun að
undanförnu. Vatnsborð þess
hefði nú lækkað um 2.5 metra, en
hæst væri það 12 metrar.
Hann sagði, að mikil jakahlaup
hefðu komið í Þjórsá í fyrramorg-
un og í gærmorgun. Rennsli væri
því hálftregt í ánni og hefðu þeir
BSRB-samningurinn:
Hefur áhrif, en ekki stefnumarkandi
- segja fulltrúar launþegasamtakanna
VEGNA hins nýja kjara-
samnings BSRB og fjármála-
ráðherra leitaði Morgunblaðið í
gær til nokkurra forsvars-
manna launþegasamtaka, er
eiga í samningum um þessar
mundir, og spurði þá, hvorl
þeir teldu BSRB-samninginn
að einhverju le.vti stefnumark-
andi fyrir hinn almenna vinnu-
markað.
Snorri Jónsson forseti
Alþýðusambandsins sagði í við-
tali við Morgunblaðið, að sam-
bandið hefði haft samráð og
samband við fulltrúa BSRB
vegna samningagerðar beggja
aðila og kvað hann BSRB-menn
hafa látíð þá vita, þegar dró að
samkomulagi.
Um samkomulagið sjálft
sagði Snorri, að hann teldi
stefnuna í því samkomulagi þó
vera í fullu samræmi við yfir-
lýsta stefnu ASÍ, þ.e. að
hækkunin yrði hlutfallslega
mest hjá hinum lægstlaunuðu.
Hins vegar kvaðst hann ekki
líta svo á, að BSRB-samningur
inn byndi hendur ASÍ á neinn
hátt í yfirstandandi samninga-
viðræðum þess, en hitt væri
vitað mál, að menn yrðu að ein-
hverju leyti að taka tillit til
þess, sem gerðist í kringum þá.
Guðmundur Garðarsson for-
maður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur sagði: ,,Eg tel
samninga BSRB ekki geta verið
stefnumarkandí fyrir launþega
almennt og allra sízt fyrir þá,
sem vinna úti í atvinnulífinu.
Kröfur ASÍ voru byggðar á
tveim meginsjónarmiðum — í
fyrsta lagi var um að ræða
kröfu um verulega hækkun á
launum til hinna lægstlaunuðu
og í öðru lagi var lögð áherzla á
skattalækkun fyrir lág- og mið-
lungstekjufólk, en ekki óskað
Framhald á bls. 24.
orðið að grípa til þess ráðs að
minnka framleiðslu virkjunarinn-
ar úr 180 megawöttum í 100 mega-
wött. Stífla væri nú í sjálfu lóninu
fyrir ofan virkjuni1' a og sömuleið-
is við innrennslisopið.
Sagði Gísli, að ef sömu frost-
hörkur yrðu áfram og jakahlaup-
in héldu áfram í Þjórsá, þá væri
ekki hægt aðneita því, að ástand-
ið við Búrfellsvirkjun gæti orðið
það alvarlegt, að skammt þyrfti
rafmagn á orkuveitusvæði Lands-
virkjunar.
Erling Garðar Jóhannsson raf-
veítustjóri Austurlands sagði í
samtali við blaðið i gærkvöldi, þar
sem hann var staddur á Höfn í
Hornafirði, að gastúrbínan, sem
flutt var til Hornafjarðar frá
Seyðisfirði, væri nú komin í notk-
un og ástandið í rafmagnsmálum
Hornfirðinga að verða sæmilegt.
Sagði Erling Garðar, að raf-
magnsskömmtun væri hafin á
Austurlandí, en hún væri mjög
rúm. Veðurharka væri gífurleg
þessa dagana fyrir austan og
frostið allt að 20 stig.
Sagði hann, að Lagarfoss væri
nú lagður af stað frá Noregi með
nýja gastúrbínu, sem að líkindum
Framhald á bls. 24.