Morgunblaðið - 05.01.1974, Síða 1
32 SIÐUR
3. tbl. 61. árg.
LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
■ &&
Mynd þessi var tekin í Washington í gær, þegar Moshe Dayan
landvarnarráðherra tsraels kom til viðræðna við Henry Kissinger
utanríkisráðherra.
N-Irland:
Væntanlegt tilboð ísraela?:
Mótmælendur fordæma
r
myndun Irlandsráðsins
Belfast 4. jan.,
AP NTB.
LANDSFUNDUR Sambands-
flokksins á Norður-írlandi,
stærsta stjórnmálaf lokks mót-
mælenda þar, hefur hafnað sam-
komulaginu milli stjórna Bret-
lands, írlands og Norður-Irlands
um myndun írlandsráðsins svo-
nefnda, sem gengið var frá fyrir
jólin.
Vai' í dag haldinn aukafundur
flokksins til að fjalla um mál
þetta og mættu þar 900 fulltrúar
hvaðanæva að af landinu. Við at-
kvæðagreiðslu var samþykkt með
454 atkvæðum gegn 374 aðfor-
dæma samkomulagið um myndun
ráðsins, og er þetta aivarlegt áfall
fyrir Brian Faulkner forsætisráð-
herra. Vafalaust á þetta einnig
eftir að valda samsteypustjórn
mótmælenda og kaþólskra erfið-
leikum, þó svo hún sitji áfram,
því að myndun þessa ráðs var eitt
af skilyrðum kaþólskra fyrirþátt
töku í stjórninni. Ráðið hefði orð-
ið fyrsti samvinnuvettvangur Ira
og N-lra frá því írlandi var skipt
árið 1922.
Faulkner hefur lýst vonbrigð-
um sínum yfir þessum úrslitum
landfundarins.
HOTA ad myrða pym
Ljóst er, að öfgaöfl bæði mót-
mælenda og kaþólskra ætla að
standa við heitstrengingar sínar
um að gera samsteypustjórnni
allt það til miska, sem þau mega.
Nú hefur írski lýðveldisherinn
lýst því yfir, að hann stefni að þvi
að myrða brezka ráðherrann, sem
fjallar um málefni Norður-ír-
lands, Francis Pym, sem tók við
af William Whitelaw, þegar sam-
steypustjórnin hafi verið mynd-
uð. Ástæðuna sega IRA-menn þá,
að Pym hafi á jóladag undirritað
skipun um, að maður nokkur, sem
handtekinn var í Londonderry
skyldi fangelsaður i ótilgreindan
tima án málsóknar. Kaþólskir
menn á Irlandi hafa mjög barizt
gegn slikum fangelsunum og
hafði Whitelaw sleppt fjölda-
mörgun, sem þannig voru fangn-
ir, og beitt sér fyrir réttarhöldum
í málum annarra.
Bandarískir kaf-
bátar lengi í sov-
ézkri landhelgi?
Washington, 4. jan. AP.
DAGBLAÐIÐ „Washington
Post“ skrifar í dag, að bandarísk-
Liðsflutningar frá Súez gegn
tryggingu frjálsra siglinga
ir kafbátar, útbúnir nákvæmum
tækjum tii rafeindanjósna, hafi
stundað njósnir innan þriggja
mílna landhelgi Sovétríkjanna
frá því f lok síðasta áratugar — og
Sovétstjórninni hafi verið fuíl-
kunnugt um það. Blaðið kveðst
hafa þessar upplýsingar frá
bandarísku leyniþjónustunni en
engir embættismenn varnamála-
ráðuneytisins hafa fengizt til að
staðfesta þær eða segja nokkuð
um þær, nema hvað þvi er haldið
fram af ráðuneytisins hálfu, að
Bandaríkjamenn virði jafnan
landhelgi og lofthelgi annarra
þjóða við hvers kyns könnunar-
eða njósnaaðgerðir.
Washington, 4. jan., AP-NTB.
Landvarnaráðherra Israels,
Moshe Dayan, og Henry Kissinger
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
hittust að máli í Washington í
Scheels
vel gætt
vegna
ránshótana
Bonn, 4. jan., AP.
ÖFLUGUR lífvörður gadir nú
v-þýzka utanríkisráðherrans
Walters Scheels, þar sem utan-
ríkisráðuneytinu hafa borizt
ítrekaðar yfirlýsingar um, að
honum verði rænt innan tíðar
nema því aðeins, að stjórnin
greiði f járupphæð, sem nemur
einni milljón sterlingspunda
inn á sérstakan póstgiróreikn-
ing í Köln. Walter Schell hef-
ur verið rúmfastur á heimili
sínu síðustu daga eftir skurð-
aðgerð, sem hann gekkst undir
fyrir skömmu.
Fyrsta hótunin um rán
Sceels barst í bréfi sl. miðviku-
dag og var það undirritað „Ira
Rhöndorf '. Sfðan barst ráðu-
neytinu seguíbandskasetta,
þar sem hótunin og fjárkrafan
voru endurteknar.
Mál þetta hefur vakið mikla
athygli og áhyggjur, ekki sízt
vegna þess, hve skammt er um
Framhald á bls. 18
dag, en Dayan er til Bandaríkj-
anna kominn að ræða við stjórn-
völd þar um aukna aðstoð við
ísraela.
ic Getur eru að því leiddar í
Washington, að Dayan muni bjóð-
ast til þess, að Israelar flytji her-
lið sitt burt frá Suez-skurði, að
þvf tilskildu, að þeim verði
trvggðar frjálsar siglingar um
skurðinn.
if Að loknum fundinum ineð
Kissinger ræddi Dayan við yfir-
menn landvarnaráðunevtisins og
er gert ráð fyrir, að hann hafi lagt
fyrir þá lista yfir vopn, sem Isra-
elar aéskja að fá frá Bandaríkjun-
Nýjar olíu-
lindir finnast
í Norðursjó
London, 4. jan., NTB.
BRITISH Petroleum Company —
BP — skýrði frá því i dag, að
fundizt hefðu nýjar olíulindir í
Norðursjó, noröaustur af Hjalt-
landseyjum, og lofuðu fyrstu
rannsóknir þar býsna góðu.
BP hefur unnið að olíuleit á
þessu svæði i samvinnu við kanad
iska olíufélagið Ranger OAP.
Ekki er vitað, hversu mikil olía er
á þessu svæði, en talið, að hún sé
veruleg.
Hugsanlegt er talið, að Bretar
verði orðnir sjálfum sér nógir um
olíu i lok þessa áratugar, reymst
hin nýju olíusvæði svo gjöful sem
við er búizt.
um, þar á meðal orrustuþotur,
flugskeyti til að granda skrið-
drekum og fleira.
if Nixon forseti undirritaði í
gærkveldi lög, sem heimila
Bandaríkjastjórn að veita Israel
efnahags- og hernaðai-aðstoð, er
nemur na>r 2.6 milljóðrum dala.
Í Genf var í dag haldinn fundúr
fsraelskra og egypskra herfor-
ingja undir stjórn finnska hers-
höfðingjans Ensio Siilasvuos, sem
London, 4. jan., NTB.
VINNUMALARAÐHERRA Bret-
lands. William Whitelaw, bauð í
dag iniðstjórn Sambands hrezkra
kolanámaverkamanna til heinna
viðræðna, með það fvrir augum
að reyna að finna lausn á hinni
langvarandi vinnudeilu, sem hef-
ur leitt til þess, að námaverka-
menn hafa neitað að vinna yfir-
vinnu í nærfellt sex vikur með
hinnm alvarlegustu afleiðingum
fyrir raforkuframleiðslu í Bret-
landi.
Whitelaw hefur áður rætt við
þrjá helztu forystumenn náma-
manna án árangurs, en að þessu
sinni boðar hann til fundar viðsig
alla miðstjórn sambands þeirra,
27 menn.
Ekki eru menn þó sérlega bjart-
sýnir á, að þessi fundur beri
er yfirmaður friðargæzlusveita
S.Þ. við Suez. Þar var haft eftir
góðum heimildum, að viðræðun-
um um hin ýmsu tæknilegu atriði
miðaði svo vel áfram, að þeim
mætti ef til vill Ijúka á átta til tíu
dögum.
Bæði ísraelskar og arabískar
heimildir hafa áður hermt, að
ánægja ríki yfir því, hversu vel
hefur miðað á þessum fundum, en
Framhald á bls. 18
árangur. Enn er breitt bilið milli
deiluaðila og hefur nú komið til
tals, að gert verði fullkomið verk-
fall í landinu öllu til þess að
leggja aukna áherzlu á kröfurnar.
Hinir herskáustu forystumenn
námamanna eru orðnir afar óþol-
inmóðir og vinna að því öllum
árum, að boðað verði til verkfalls,
eða í það minnsta, að hert verði á
aðgerðum frá þvi sem nú er. Haft
er eftir góðum heimildum, að hafi
ekki þokazt neitt í samkomulags-
átt fyrir fyrirhugaðan fund mið-
stjórnar sambandsins i næstu
viku, muni tillaga um verkfall
borin fram þar.
Af hálfu stjórnarinnar hafa
námamönnum verið boðnar
launahækkanir, sem nema að
meðaltali 16.5%, en því boði hafa
„Washington Post“, segir, að
kafbátarnir handarísku nefnist
„Neðansjávar l'-2" eftir U-2
njósnaflugvélunum, sem á sínuin
tíma stunduðu njósnaflug yfir
Sovétríkjunum, en ein slik flug-
vél var skotin niður í maí árið
1960 og leiddi sá atburður til
þess, aö aflýsa varð fyrirhuguðuin
fundi leiðtoga Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna.
þeir hafnað. — krefjast hækkun-
ar um a.m.k. 25% aö meðaltali.
Mál þetta hefur valdið stjórn
Edwards Heaths miklum erfið-
leikum. Leiðtogi stjörnarandstöð-
unnar, Harold Wilson. hefur
gagnrýnt stjórnina harðlega og
krafizt þess. að neðri málstofa
brezka þingsins komi saman til
aukafundar til þess að ræða mál
þetta og efnahagsástandið í Bret-
landi. sem nú er sagt erfiðara en
nokkru sinni frá stríðslokum.
i kvöld var tilkynnt af hálfu
stjórnar Heaths, að hún væri sam-
þykk þessari kröfu Wilsons og
skyldi þingfundur haldinn dag-
ana 9. og 10. janúar nk. Þing átti
annars ekki að koma saman eftir
jólale.vfi fyrr en 15. janúar.
Hitnar í kolunum í Bretlandi:
Herskáir námaverkamenn
vilja algert verkfall