Morgunblaðið - 05.01.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.01.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 5. JANUAR 1974 3 Sigurjón Rist tekur vatnssýni úr Skaftá. Gervihlaup í Skaflá Þcgar fréttist um hlaup aust- an Mýrdalsjökuls föstudags- morguninn 28. desember s.l., þá héldu flestir að Kötlugos væri í aðsigi, enda voru þær fréttir, sem fyrst bárust til Reykjavíkur, þannig, að flestir héldu að Katla væri að vakna eftir meira en hálfrar aldar svefn. Þvf var það, að menn töku kipp hér á ritstjórninni, en þegar betur var að gáð, reyndist Skaftá vera í vexti, en hvorki Jökulsá á Sólheima- sandi né Múlakvísl. En þó svo að ljóst væri, að gos væri ekki yfirvofandi í Kötlu, þá var ekki að vita, upp á hverju Skaftá tæki, en f hana hafa komið mörg hlaup allt frá árinu 1955, síðast f fyrra og komst rennslið í ánni þá í 2500 sekúnduiitra. Það mátti þvf búast við álíka stóru hlaupi núna, og áin gat orðið verri viðureignar, þar sem hún var öll fsi lögð þ.e. ef hún ryddi sig fram af miklum krafti. Það varð því úr, að blaðamaður Morgunblaðsins fékk að fljóta með Sigurjóni Rist vatnamælingamanni og fé- laga hans, Eberg Elefsen, þegar þeir fóru austur um hádegisbil- ið á föstudaginn til að huga að Skaftá. Ferðin austur gekk frekar hægt, vegna hríðarkófs á leið- inni og við náðum ekki til Vík- ur i Mýrdal fyrr en um kl. 19 um kvöldið. Þar var matast, en síðan héldum við ferðinni áfram ótrauðir. Allt gekk vel, allt þangað til við komum að Mýrdalssandi, en þá fór færð að þyngjast. Snjór var þarna ekki tiltakanlega mikill, en vegur- inn er allur niðurgrafinn, þann- ig að erfitt er að losna við snjó af honum. Það virðist því ekki nóg að fá hringveg, ef ekki á að lagfæra veginn á Mýrdalssandi. Sagt er að Vegagerðin vilji ekki gera nýjan veg á sandinum, fyrr en Katla hefur lokið sér af, en þess getur onðið langt að bíða, endaenginnákveðinn ára- fjöldi á milli gosa Kötlu. Það var því engin furða, að við blót- uðum Vegagerðinni hressilega, á meðan við vorum að krönglast yfir sandinn. Færðin var oft á tíðum það þung,'" að við lá að jeppinn stöðvaðist, eða við rynnum út af veginum. Sigur- jón, sem sjálfur er með afbrigð- um kröftugur, átti oft á tíðum fullt í fangi með að stjórna öku- tækinu. Strax og við komum að Skaftá, þar sem hún rennur hjá Eystri-Asum, þá léttist færðin og þarna sáum við Skaftá fyrst í hlaupinu. Sigurjón velti því fyrir sér, hvaðan þetta hlaup gæti verið, þar sem vatnið í ánni virtist ekki bera með sér mjög mikinn aur. Hann taldi möguleika á, að það gæti komið úr Langasjó, — en síðar kom fram að svo var ekki, það kom úr Vatnajökli. Skaftá þar sem hún rennur við Asa. Ljósm. Mbl. Þórleifur Ólafsson. Mælingar í Tungulæk 1 bítið næsta morgun var rennslið í Skaftá við Klaustur mælt, og kom þá í ljós, að áin hafði ekki hækkað nema um 20 sm, sem þýddi að áin hafði lítið sem ekkert vaxið um nóttina. Það var því ljóst, að þetta hlaup var frábrugðið fyrri Skaftár- hlaupum svo um munaði. Við fengum þær fréttir frá Skaftár- dal, að rennslið í ánni væri vart meira en 250 sekúndulítrar, en í hlaupunum hefur áin oft farið í 2000—2500 sekúndulítra. Nú héldum við í átt að Tungulæk, en þar eru þeir vatnamælingamenn með sírita, og eru þarna oft gerðar mæling- ar með tilliti til virkjunar Skaftár í framtíðinni. Því mið- ur eru samt miklar likur á því, að áin verði ekki virkjuð á næstu árum vega mikilla sveiflna í henni. Vöxtur í Skaftá kemur alltaf fram í Tungulæk, en yfirleitt ekki fyrr en farið er að minnka í ánni. Það fyrsta sem við gerð- um við Tungulæk, var að skipta um pappir á síritanum og kom í ljós, að miklar issveiflur höfðu verið í læknum undanfarið. Þessu næst var straumhraðinn mældur og að lokum tók Sigur- jón mál af þversniði lækjarins. Þá voru aftur tekin sýni úr Skaftá, þar sem hún rennur framhjá Ási, og um nóttina ætl- uðum við að gista aftur á Klaustri. Við urðum þó að hætta við það, því fréttir bárust um, að færð væri farin að þyngjast á Mýrdalssandi og okkur fannst þvi bezt að koma okkur af stað til að ná gamlárs- kvöldi heima. Skaftá var hvort eð er búin að plata okkur, — hér var aðeins um gervihlaup að ræða, — ef miðað er við fyrri hlaup. Og ófærðarfréttirnar reyndust réttar, því við vorum lengi að koma okkur yfir Mýr- dalssand, heim komum við ekki fyrr en eftir hádegi á sunnudag eftir 15 tima ferð. Þ.Ó. Erfitt að taka sýni Ákveðið var að taka sýni af vatninu strax um kvöldið, og ekki var um annað að gera en fara niður og undir brúna til að ná sýnum. Þarna var sett örygg- islina á Sigurjón og við Eberg gáfum eftir og loks náði Sigur- jón niður að vatnsborðinu og tók þar sýni í þrjú glös. Þegar hann kom með þau upp og við gátum litið á þau, kom í ljós, að litið grugg var á botninum. Að þessu loknu var haldið í átt að Kirkjubæjarklaustri. Sýni voru einnig tekin úr Skaftá, þar sem áin rennur meðfram Klaustri, og i glösunum reyndist vera því sem næst hreint vatn. Varð því ljóst, að ekki hafði jökulhlaupið náð þangað. Þessu næst völdum við okkur náttstað í gistihúsinu á Klaustri. Hér er Sigurjðn að mæla stramhlaðann f Tungulæk. Til þess er notaður sérstakur skrúf uhraðamælir. Sinfónían: John Williams á gítarinn — Vladimir Ashkenazy stjómar GÍTARLEIKARINN heimsfrægi John Williams verður einleikari með Sinfóníuhljómsveit islands undir stjórn Vladimirs Ashkenazys á sjöundu reglulegu tónleikum hljómsveitarinnar næstkomandi fimmtudag. Leikur hann einleik í fantasíu fyrir gítar og hljómsveit eftir spænska tón- skáldið Rodrigo, sem samdi verk- ið sérstaklega fyrir Segovia á sín- um tíma. Auk þess leikur hljóm- sveitin Sinfónfu nr. 1 eftir Prokofieff og Manfred-sinfón- íuna eftir Tsjaikovsky. John Williams er íslenzkum tónlistarunnendum að góðu kunn- ur frá þvi að hann kom fram á einleikstónleikum í Háskólabíói á Listahátíð 1972. Hann er annars fæddur í Ástralíu árið 1941. Sjö ára að aldri hóf hann nám i gítar- leik hjá föður sínum, og þegar fjölskyldan fluttist til London, ár- ið 1952, var farið með.hann á fund Segovia, sem fannst svo mikið til um hæfileika þessa ellefu ára drengs, að hann gerði hann þegar að nemenda sinum og hvatti hann til framhaldsnáms á tónlistar- brautinni. Williams stundaði siðan nám hjá Accademia Musicale Chigiana í Siena á ítalíu, og þar hlaut hann æðstu verðlaun skólans fyrir frammi- stöðuna. Samtímis gítarnáminu stundaði Williams einnig nám í píanóleik og tónfræði i Royal College of Music i London. Hróð- ur Williams hefur vaxið með hverju árinu og er hann nú talinn einn af þremur fremstu gitarleik- urum veraldar. John Williams. Ashkenazy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.