Morgunblaðið - 05.01.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.01.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1974 13 Elín Pálmadóttir, borgarfulltrúi: Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í desember ályktunartil- lögu frá Sjálfstæðismönnum um náttúruvernd og umhverfismál. Samkvæmt þeirri tillögu er ákveðiS að hraða svo sem unnt er frágangi á frárennsliskerfi borg- arinnar með það fyrir augum að tryggja mengunarlausa strönd í borgarlandinu og nágrenni hennar. Einnig var samþykkt að auka nýtingarmöguleika útivist- arsvæðanna í Heiðmörk, við Ell- iðaár og í Rauðhólum og Bláfjöll- um með tengingu þessara svæða með greiðfærum gönguleiðum. Þá var og ákveðið að auka kynn- ingu og merkingu á merkilegum náttúrufyrirbrigðum í borginni og ákveðið að reyna að auka nýt- ingu grasgarðsins í Laugardal til kennslu. 1 lok tillögunnar var lagt til að kannað yrði með skipuleg- um hætti hvað og hvernig væri æskilegt að vernda, sérstaklega strandlengju borgarinnar og eyjar í nágrenni hennar. Og sam- þykkt að stefna að því, að strönd- in frá Geldinganesi að Blikastaða- kró verði friðuð með hliðsjón af niðurstöðum líffræðirannsóknar, sem nú fer þar fram í samvinnu við náttúruverndarnefnd. Elín Pálmadóttir mælti fyrir þessari tillögu og verður hér á eftir getið nokkurra atriða úr ræðu hennar. Greiðfærar gönguleiðir um útivistarsvæði FRA BORGAR- STJÓRN fólkið. Má minna á, að Rauðhól- arnir hafa nú verið gerðir að fólk- vangi fyrir almenning ogfólkvang ur er kominn í gagnið í Bláfjöll- um í samvinnu við nærliggjandi sveitarfélög. Og unnið er að þvi að ná samvinnu um áframhaldandi fólkvang þvert yfir Reykjanesið. En áformað er að tengja alla þessa fólkvanga með leiðum fyrir útivistarfólk í beinu framhaldi af útivistarsvæðinu við Elliðaárnar, þar sem nú er unnið að skipulagn- ingu, sem er langt komin. Unnið er að því að tryggja á útivistarsvæðum sem mesta fjöl- breytni í landslagi og gróðurlendi tii fróðleiks fyrir fullorðna og skólabörn. Má þar nefna óspilltu fjöruna neðan Korpúlfsstaða og mýrlendi og vatnsvík innan hins nýja fólkvangs i Rauðhólum, auk bergmyndana í stálinu í hólunum sjálfum. Byrjað er að merkja slíka staði eins og t.d. Háubakka við Elliða- árvog með jarðlögunum undir Reykjavík og Fossvogslögin og gera þá aðgengilegri til skoðunar. Þá vil ég vikja aðeins að hinum ágæta grasgarði borgarinnar i Laugardal en í honum er að finna 200 af 550 ísl. jurtum. Hann er aðgengilegur mjög og náttúru- fræðikennurum vel kunnur. Einkum hentar vel að fara þangað með skólanemendur vor og haust. Garðyrkjustjóri hefur boðist til þess að úthluta hverjum náttúru- fræðikennara bás i gróðurhúsum garðsins ef þeir vildu láta nem- endur sína stunda tilraunastarf- semi á þessum sviðum — en ekki fengið undirtektir. En auðvitað gæti þessi garður verið stærri og fullkomnari. En er virkilega ástæða til að byggja risagarð með margs konar landslags- og gróður- gerðum þegar ekki þarf einu sinni að fara út úr borgarlandinu til þess að fi'nna allar gerðir af landslagi og gróðurlendi? Að lokum vil ég gera að um- ræðuefni hættuna, sem okkur stafar af olíugeymum í borgar- iandinu. Öllum er i fersku minni það slæma atvik, er olía fór í sjóinn við Skúlagötuna. Náttúru- verndarnefnd fylgdist með því máli og hreinsunaraðgerðum. Á fundum nefndarinnar voru upp- lýsingar kannaðar og rætt um til- lögur til úrbóta og hefur borgar- ráð nú falið borgarverkfræðingí að gera nákvæma könnun á bún- aði oliugeyma í borgarlandinu. Að siðustu vil ég svo þakka borgarfulltrúum skilníng á störf- um náttúruverndarnefndar og vænti þess, að tillögur þær, er ég rakti í upphafi máls míns, verði samþykktar og stuðli að bættu ástandi í náttúruverndar- og um- hverfismálum. Elín Pálmadóttir (S): Að und- anförnu hefur Reykjavíkurborg unnið mikið að náttúruverndar- og umhverfismálum i samræmi við sivaxandi áhuga á þeim mál- um. í mengunarmálum hefur verið unnið mikið undirbúningsstarf til hreinsunar á allri strönd borgar- landsins. Hefur þar verið beitt rannsóknum erlendra sérfræð- inga, og hafa starfsmenn borg- arinnar unnið úr tillögum þeirra, þannig að fyrir borgarstjórn ligg- ur nú að ákveða með hvað'a hætti skuli staðið að framkvæmdum og hvernig þær skuli fjármagnaðar. Grænum blettum og gróðurbelt- um hefur fjölgað og þau stækkað mjög, t.d. um 54.6 ha á sl. ári, og eru grænu blettirnir í borginni nú um 230 ha að stærð. Unnið hefur verið ötullega að því að tryggja útivistarsvæði með óspilltri náttúru fyrir þéttbýlis- ! Þá fer á vegum náttúruverndar- nefndar borgarinnar fram athug- un á fleiri hugsanlegum útivistar- stöðum og stöðum, sem kynni að þurfa að vernda, og má þar nefna, að líffræðileg rannsókn á fjör- unni frá Geldinganesi að Biika- staðakró fer fram um þessar mundir í þeim tilgangi að átta sig á því, hvernig bezt skuli staðið að verndun til útivistar og á hve breiðu svæði. Nefndin hefur byrj- að könnun á slíku við Grafarvog. Fjölmarga staði innan borgar- landsins, sem áður var búið að setja á kort og skrá til verndunar, er nú verið að færa á náttúru- minjaskrá fyrir náttúruverndar- ráð, svo sem jökulnúnar klappir i Laugarásnum, við Arbæ o.fl. Þá hefur verið samþykkt skipulag að Öskjuhlíð til útivistar að tilhlutan náttúruverndarnefndar og unnið er að því að gera hana aðgengi- legri og færari fótgangendum, en þar og í Heiðmörk og víðar starfa unglingar Vinnuskólans, allt að 270 að fegra og prýða. Tillögur sjálfstæðis- manna um náttúruvernd og umhverfismál I RÆÐU Elínar Pálmadóttur á fundi Borgarstjórn- ar Reykjavíkur, sem hér segir frá er gerð grein fyrir ályktunartillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um náttúruvernd og umhverfismál. Helztu atriði tillögunnar eru þessi: □ Hraðað verði frágangi frárennsliskerfis borgar- innar og með því tryggð mengunarlaus strönd í borgarlandinu og nágrenni. □ Greiðfærar gönguleiðir verði gerðar í Heið- mörk, við Elliðaár, f Rauðhólum og Bláfjöllum og svæðin tengd saman. □ Aukin verði kynning og merking náttúrufyrir- brigða í borginni. □ Nýting grasagarðsins í Laugardal til kennslu verði aukin. □ Kannað verði sérstaklega hvernig bezt er að vernda strandlengjuna í borgarlandinu og eyjar í nágrenni hennar. □ Ströndin frá Geldinganesi að Blikastaðakró verði friðuð. Bárður Jóhannesson slær nýjan minnispening leiða minnispening á íslandi i stóru upplagi og því brautryðj- andi á því sviði. í öðru lagi varð- veitti hann á sinn hátt sögulegan atburð, og loks fékk Skáksam- band Islands í sinn hlut um 20 milljónir króna, sem þýddi það, að Skáksambandið gat staðið fjár- hagslega á eigin fótum og kom með rúman tveggja milljón króna hagnað út úr einvígishaldinu. Að öðrum kosti hefði bær og þó held- ur ríkið orðið að tína þessar krón- ur upp úr kössum sínum til lítillar ánægju fyrir skattgreiðendur. Þessi nýi peningur er listrænn í myndauðgi sinni, þar sem fletir hans túlka gamla og nýja tímann. A annarri hliðinni eru merki sýslna landsins og tákn nútímans: flugvél, skip, kirkjuturn, háhýsi og ártalið 1974. A hinri hiiðinni er ártalið 874, á skildi umkringd- um landvættum innsigli bókfells, sem á eru letruð orð Ingólfs; að þar skyldi hann byggja, ersúlurn- ar kæmi á land. A þessari hlið peningsins gefur einnig að líta súlur við fjörusteina og skip með þöndum seglum við hafsbrún. Fallegur peningur, sem eigu- legur verður. Þá er hugmyndin, sem að baki býr, stórmannleg. Hugsjón lista- mannsins er að styrkja þá sem höllum fæti standa með því að láta ágóða peningaútgáfunnar — um tvær milljónir króna renna tíl líknarmála. Þetta ætti að verða öðrum til eftirbreytni. Allír landsmenn ættu, hver eftír sínni getu, að leggja eitthvað af mörk- um þjóðhátíðarárið til þess að fegra og bæta mannlífið. Landinu okkar Islandi þarf lika að sýna skilning og nákvæmni og græða þau sár, sem það hefur hlotið i mynd gróðureyðingar í gegnum aldirnar. Mætti ekki út frá þessu t.d. reisa öldu huga og handa, sem krefur ekki launa að kveldi, en spyr: „Hvað get ég gert fyrir landið mitt?“ Guðlaugur Guðmundsson. Þráinn Guðmundsson. „ENN er Bárður kominn af stað“ hugsuðum við, er við lásum í blöð- um þ. 29. f.m. fréttatilkynningu þess efnis, að Bárður ætlaði að gera og framleiða minnispening i gulli, silfri og bronsi í tilefni þjóð- hátíðarársins. Bárður Jóhannesson er þjóð- kunnur fyrir skákeinvígispening- ana. Þar greypti hann listilega í málm sögulegan viðburð, er á svipstundu gerði Island að mið- punkti frétta um alla heimsbyggð. Með kunnáttu og framtakssemi, en það eru góðir eiginleikar hvers manns, gerði Bárður þrennt i senn: Varð fyrstur til að fram-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.