Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 32

Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 32
1 smnRGFniDHR I mRRRRfl VÐRR DRGLEGR LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 Saltfiskframleiðslan 1973: Útflutningsverðmæt- ið 3,1 milljarður kr. SALTFISKFRAMLEIÐSLAN á sl. ári var samtals 37 þúsund tonn, og nam saltfiskútflutningur á árinu um 35.600 tonnum. HeildarverSmæti útflutts salt- fisks nam um 3.100 milljónum króna, sem er 900 milljónum hærra en árið áður. Verðþróun á árinu var hagstæð þrátt fyrir mjög ört hækkandi tilkostnað á öllum sviðum, og söluhorfur á þessu ári eru taldar góðar, eftir því sem bezt verður séð. Þessar upplýsingar komu fram HREYFING KOMIN Á ÞJÓNADEILUNA NOKKUR hre.vfing er nú komin á samningamál þjóna og veitinga- manna eftir að hækkunin á áfengi kom til. Helzta bitbeinið — þjónustugjaldið — hefur nú verið lagt til hliðar í bili og aðilar hafa tekið til við að ræða sérkröf- urnar. Öskar Magnússon formaður Fé- lags framreiðslumanna sagði, að óneitanlega hefði áfengishækk- Guðni Kjartansson kjör- inn íþróttamaður ársins I GÆR birtu Samtök íþrótta- fréttamanna úrslit í hinni árlegu kosningu sinni um „íþróttamann ársins“. Að þessu sinni hlaut Guðni Kjartansson knattspyrnu- maður úr Keflavík flest stig í atkvæðagreiðslunni og þar með titilinn „íþróttamaður ársins 1973" og hinn veglega verðlauna grip, sem sæmdarheitinu fylgir. Er þetta í 18. Sinn, sem verðlauna- grip þessum er úthlutað, en í fyrsta sinn, sem knattspyrnumað- ur hlýtur hann. I boði, sem Sam- tök íþróttafréttamanna efndu til í Sparisjóðs- skírteinin seldust upp SPARISJÓÐSSKlRTEINI ríkissjóðs, 2. flokkur 1973, sem hafin var sala á í október, seldust upp fyrir áramót. Alls voru 210 milljónir gefnar út í 2. flokki. Sighvatur Jónasson hjá Seðlabanka íslands sagði í samtali við blaðið í gær, að þessi skírteini væru gefin út til 1-4 ára, og ekki væri hægt að leysa þau út fyrstu 5 árin. Grunnvísitala væri á þeim frá 1. nóvember sl. en síðan fylgdu skírteinin hækkun bygginga- visitölu. 5% meðaltalsvextir eru á skírteinunum, en fyrstu 5 árin eru vextirnir ekki nema 3%. gær. tók Guðni við bikarnum og einnig boði Veltis h.f. og Volvo- verksmiðjanna, til hátíöar þeirr- ar í Svfþjóð, sem haldin er árlega, er íþröttamáður Norðurlandanna er krýndur, en Volvo-verksmiðj urnar í Svíþjóð hafa gefið vegleg- an verðlaunagrip, sem fvlgir því sæmdarheiti. I ræðu, sem Jón Asgeirsson for- maður Samtaka íþróttafrétta- manna flutti, er Guðna var af- hentur bikarinn i gær, sagði hann m.a.: „Guðni Kjartansson er iþrótta kennari að mennt, rösklega 27 ára að aldri. Hann á glæsilegan íþróttaferil að baki, sem óþarfi er að kynna hér nema í fáum orðum. Guðni hefur verið fyrirliði ís- lenzka landslíðsins í knattspyrnu undanfarin ár, og hann er fyrir- liði 1. deildarliðs íþróttabanda- lags Keflavíkur, en sigurganga þess var nær óslitin í fyrra, eins og allir muna. Guðni hefur hvað eftir annað'sýnt ágæti sitt sem knattspyrnumaður, bæði í leikj- um deildarinnar hér heima, í landsleikjum og leikjum í Evrópumótum. En hann hefur lika sýnt á sér aðra hlið. Hann er góður félagi, hann hefur stjórn- unarhæfileika, hann er áreiðan- legur, hann virðir íþrótt sína, og hann er reglusamur. Ef til vill er Guðni líka mjög gott dæmi um hinn eiginlega áhugamann í íþróttum. Hann hefur stundað æfingar af mikilli kostgæfni, og hann hefur ekki látið sig vanta, þegar til hans hefur verið leitað til keppni. Þannig hefur Guðni til að bera það, sem góðum íþrótta- manni ber, og geta aðrir tekið sér hann til fyrirmyndar, og ungir knattspyrnumenn og aðrir Framhald á bls. 31 unin haft áhrif í þá átt að liðka til í deilunni. Hann benti á, að nú væri svo komið, að þjónar sætu uppi með illseljanlega vöru og þá væri eðlilega spurningin, hvort ekki ætti að reyna að hafa hana eins ódýra og kostur væri. Þess vegna hefðu menn nú tekið til við að ræða sérkröfurnar. Erling Aspelund hótelstjóri sagði, að sú breyting hefði orðið á samningafundi deiluaðila í fyrri- nótt, að menn tóku að ræða sér- kröfurnar óg lögðu prósentuna til hliðar — í bili að minnsta kosti. Við það hefði hreyfing komizt á málin. Báðir voru þeir Óskar og Erling hæfilega bjartsýnir um lausn á næstu grösum. Torfi Hjartarson sáttasemjari sagði í gær, að hann hygðist halda nýjan samníngafund með fram- reiðslumönnum og veitingamönn- um um kvöldið — eftir sáttafund- inn með sjómönnum og útvegs- mönnum. í samtali, sem Morgunblaðið átti við Tómas Þorvaldsson stjórnar- formann Sölusambands isl. fisk- framleiðenda um saltfiskfram- leiðsluna á síðasta ári. Þar kom fram, að saltfiskframleiðslan 1973 var um 700 tonnum minni en árið áður, eða alls 37 þúsund tonn, eins og áður segir. Af þeim fiski voru 6 þúsund tonn tekin til þurrkunar, sem verða að um 4 þúsund tonnum af þurrkuðum fiski. Er það 2500 tonnum minna en árið áður. Saltfiskútflutningurinn á árinu skiptist þannig: Blautfiskur nam um 28.500 tonnum (25.800 árið 1972), þurrfiskur um 5.600 tonn- um (6.100 árið 1972) og ufsaflök Framhald á bls. 18 Rússneskar vélar enn á Keflavíkurvelli NU UM helgina eru væntanlegar til Keflavíkurflugvallar þrjár rússneskar flugvélar af gerðinni AN-22, og eru þær allar á leið til Kúbu. Þessar vélar áttu upprunalega að koma til Íslands siðast í desem- ber, en einhverra hluta vegna seinkaði þeim. Pétur Guðmundsson flugvallar- stjóri á Keflavikurflugvelli sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að gengið hefði sæmilega að af- greiða rússnesku vélarnar fram til þessa. Þá sagði hann, að í gær- kvöldi hefði verið væntanleg til Keflavíkurflugvallar rússnesk skrúfuþota af gerðinni Illusyin 18, og var hún á Ieið til Kúbu. 30 brotnuðu og tognuðu GÍFURLEG hálka var í Reykja- vík í gærdag og voru þeir marg- ir, sem fengu slæma byltu. Meira en 30 manns voru flutt á slysadeild Borgarspítalans, og var þetta fólk annaðhvort brotið eða hafði tognað illa. Tryggvi Þorsteinsson læknir á slysadeildinni sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að læknar og starfsfólk slysa- deildarinnar hefði ekki haft undan að taka á móti fólki í gær, sem hefði dottið og slasazt í hálkunni. Komið var með mann, sem hafði öklabrotnað, og var það eina fótbrotið, en aftur á móti voru handleggs- brotin öllu algengari, því að komið var með 10 manns, sem höfðu handleggsbrotnað. Þá var komið með fjöldann allan af fólki, sem hafði tognað illa á fæti. Sagði Tryggvi að rík ástæða væri til að hvetja fólk til að fara varlega í hálkunni. Á loðnan að greiða niður olíuhækkunina? FYRIRSJAANLEGIR eru miklir erfiðleikar í öllum framleiðslu- greinum sjávarútvegsins vegna hinna gífurlegu hækkana á olíu. Eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað hefur Framkvæmda- stofnunin látið gera yfirlit yfir þessar hækkanir á olíu og áhrif þeirra á rekstur sjávarútvegsins. Samkvæmt þessu yfirliti nemur olíuha'kkunin, miðað við desem- berverð, kr. 322,7 milljónum f öll- um framleiðslugreinum sjávarút- vegsins og er það um 32,78% meðaltalshækkun. Reiknað er ineð verulegum hækkunum til viðbótar, þegar kemur fram á vetrarvertíð. Sú hækkun er að vísu ennþá óþekkt stærð, en talið er að hún geti jafnvel numið allt að einum milljarði króna á árs- grundvelli. Er þarna um að ræða 100% hækkun miðað viö það verð á olfu, er gilti sl. vor. Hefur nú heyrzt, að sjávarút- vegsráðherra hafi í hyggju að láta loönuna greiða þennan mun og komast þannig hjá því að íþyngja skuttogaraútgerðinni frekar, en hún er sem kunnugt er sögð í miklum krögguin um þessar mundir. Hins vegar munu þessar fyrirhuguðu ráðstafanir sjávarút- vegsráðherra ekki mælast jafn vel fyrir í öllum herbúðum sjávarútvegsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.