Morgunblaðið - 05.01.1974, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.01.1974, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 Haraldur Júlíusson — Minningarorð F. 14.2. 1885. D. 27.12.1973. Frá því að byggð tók að mótast á Sauðárkróki hefur Aðalgatan verið helzta verzlunargata stað- arins. Við hana reistu kaupmenn verzlunarhús sín, og þangað áttu ótaldir Skagfirðingar erindi. Það fer að líkum, að saga þeirra, sem hafa lifað og starfað við Aðalgöt- una á Sauðárkróki, sé mislöng. Sá, sem átti öllum öðrum lengri starfsferil þar — eða full 60 ár — er nú fallinn í valinn 88 ára að aldri. Hann hóf lífsstarf hér á Sauðárkróki 27 ára gamall og gegndí því óbugaður til hinztu stundar. Það var mikil hamingja þessum starfsglaða sæmdar- manni. Haraldur Júlíusson fæddist á Akureyri 14. febrúar 1885. For- eldrar hans voru Júlíus Kristjáns- son daglaunamaður þar og kona hans, María Flóventsdóttir. Hann var einn átta systkina, er á legg komust. Meðal systkina hans má nefna Kristrúnu — Rúnu f Barði —, sem um áratugabil var ræst- ingakona við Menntaskólann á Akureyri við frábæran orðstír og raunar varð landskunn, og Olgeir bakara, föður Einars alþingis- manns. Foreldrar Haralds voru lengstum sárafátæk, bjuggu í litl- um og lélegum torfbæ á brekku- brúninni neðan við Menntaskól- ann, og hét þar Barð. Síðar reis þar timburhús það, er enn stend- ur, keypt um aldamót af dönskum vísindamönnum, er verið höfðu á Akureyri við rannsóknir, og var það sett niður á Barðslóð, en gamli bærinn gerður að fjárhúsi. Haraldur var aldrei margmáll um sjálfan sig, en auðfundið var, að Akureyri og bernskuheimilið þar áttu sterk ítök í huga hans. Hann bar og djúpa virðingu fyrir minningu foreldra sinna, þótti gott að ylja sér við minningar um fórnfýsi þeirra, iðjusemi og heiðarleik. Þegar Haraldur óx úr grasi, var hann látinn hefja bakaranám, en leiddist sá starfi svo mjög, að hann hætti og gerðist verzlunar- þjónn á Akureyri og vann upp frá því við verzlun í sjö áratugi, og mun það sjaldgæflega langur starfsferill. Þegar Kristinn P. Briem stofn- aði verzlun á Sauðárkróki 1912, varð Haraldur starfsmaður hans, en á bernskuárum þeirra bundust amtmannssonurinn og kotastrák- urinn traustum vináttuböndum, og var sá fyrrnefndi heimagangur í Barði. Hjá Kr. P. Briem starfaði Har- aldur til ársins 1919, er hann festi kaup á barnaskólahúsinu elzta (Baldri) og opnaði þar verzlun undir eigin nafni 28. júní þ.á. Verzlunina hóf Haraldur svo að segja með tvær hendur tómar. Meðan hann vann hjá Briem, hafði hann eignazt nokkrar ær, og þær seldi hann, þegar allt var í hæsta verði, fyrir 2000 krónur, sem að vísu hrukku skammt til vörukaupanna. Gamlir vildar- vinir hans á Akureyri hlupu undir bagga með honum, og keypti hann inn vörur nær ein- göngu fyrir lánsfé. Með spar- neytni, hagsýni og dugnaði tókst honum að sigrast á byrjunarerfið- leikunum. 1 því sambandi leyfi ég mér að vitna til orða Kristmundar Bjarnasonar í Sögu Sauðárkróks, þar sem fjallað er um verzlun og viðskipti. Þar segir m.a.: „Sumir spáðu því að Haraldur mundi brátt gefá þetta verzlunarbrangs upp á bátinn, svo harðsótt þótti ýmsum grónum kaup- mönnum að halda til horfs. En hér fór á aðra leið: Har- aldur Júlíusson réttir enn (1973) vörur yfir búðarborðið og hefur stundað verzlun á staðnum lengur en nokkur annar einstakl- ingur að Kristjáni Gíslasyni und- anskildum, og aðeins eitt verzl- unarfyrirtæki á þar lengri sögu, Kaupfélag Skagfirðinga. Gengi sitt á Haraldur Júlíusson trúlega mjög að þakka lipurð í viðskipt- um og greiðasemi við náungann. Svo átti að heita í upphafi, að verzlun hans væri staðgreiðslu- verzlun, en hann var óragur við að lána, er hann vissi, að við- skiptavinum var féskylft. Þess má geta, að á kreppuárunum reyndist mörgum fjölskyldum einkar erfitt að fata sig. Kvað svo rammt að því, að dæmi eru þess, að ver- menn sóttu um fatastyrk til sveit- arstjórnar, svo að þeir kæmust suður til róðra. Þótti þá mörgum fatasnauðum gott að leita til Har- alds. Hann dubbaði margan ver- manninn upp, þótt greiðslu væri vant...“ Arið 1928 kvæntist Haraldur Guðrúnu dóttur Bjarna járnsmiðs Magnússonar og Kristínar Jósefs- dóttur konu hans. Guðrún hafði starfað um árabil við verzlun í Reykjavík, og nú kom þekking hennar á því sviði að góðum not- um. Vann hún mikið við verzlun manns síns, sérstaklega fyrstu hjónabandsárin. Lengi framan af hafði Haraldur ekkert starfsfólk, varð því vinnudagurinn oft ærið langur. En verzlunin dafnaði í höndum þeirra hjóna, og upp úr 1930 réð hann til sín mann, enda hafði hann þá mörg járn í eldi. Meginþunginn hvíldi þó ætíð á herðum hans, allt fram á síðustu ár, er Bjarni sonur hans fór að vinna við verzlunina. Haraidur kappkostaði að hafa fjölbreyttar og vandaðar vörur á boðstólum, og verzlaði jöfnum höndum með matvörur, búsáhöld, vefnaðarvörur og margs konar annan varning. Með árunum varð verzlun hans eitt stærsta fyrir- tæki sinnar tegundar í Skagafirði. Haraldur Júlíusson var í ríkum mæli búinn þeim kostum, sem prýða góðan verzlunarmann. Hann var harðduglegur og sístarf- andi frá morgni til kvölds, hygg- inn í innkaupum, þó djarfur, ef því var að skipta. Hann gerði sér að meginreglu að standa í einu og öllu við allar skuldbindingar gagnvart þeim, sem hann skipti við. Hann naut því óskoraðs trausts þeirra, sem af honum höfðu einhver kynni. Orð hans jafngildu undirskrift. En það var fleira en trúverðugleiki Haralds, sem laðaði fólk að verzlun hans. Lipurð hans og greiðvikni var við- brugðið. Hann var einstakt prúð- menni i framgöngu og háttum. 1 fari hans varð eigi „fordild fund- in . . . og á slíkum verða eigi auðveldlega höggstaðir fundnir," sagði Sigurður skólameistari í ræðu um Rúnu í Barði, systur hans, og á það eins við um Harald. Hann vann „með gleði, en ekki með andvarpan", var einstaklega lipur og fumlaus við afgreiðslu, viðmótið alltaf vinhlýtt og glatt og gamanyrði á vör. Slík framkoma aflaði og verzlun hans slíkra vin- sælda, að eindæma mun hér um slóðir. Þeir eru ótaldir, sem leit- uðu ráða og aðstoðar Haralds, þegar erfiðleikar steðjuðu að. Hann rétti mörgum hjálparhönd, en gerði það svo hljóðlega, að jafnvel nánustu samstarfsmenn hans vissu ekki fyrr en e.t.v. löngu sfðar. Samúð hans með þeim, sem minna máttu sín eða áttu í stundar erfiðleikum, var honum eðlislæg og því uppgerðar- laus; allt hjal um hjálpfýsi hans var honum ógeðfellt. Þrátt fyrir umfangsmikil verzl- unarstörf hafði Haraldur marg- háttuð afskipti af atvinnu- og menningarmálum á Sauðárkróki. Arið 1921 stofnaði hann ásamt fleirum Mótorfélagið Garðar, sem gerði út um árabil samnefndan bát og annaðist einnig fiskverkun um skeið. í stríðslok var Út- gerðarfélag Sauðárkróks stofnað, og var Haraldur einn af forgöngu- mönnum þess. Rekstur Útgerðar- félagsins, sem var sameignarfélag margra aðila á staðnum, gekk vel framan af, en er frá leið tók að halla undan fæti vegna óhappa og aflatregðu. Þegar svo var komið, dvínaði áhugi margra, en það var ekki háttur Haralds að hlaupast frá erfiðleikunum. Hann vann fé- laginu, meðan stætt var, og það urðu honum mikil vonbrigði, þeg- ar bátarnir voru seldir burtu, og verkalýð á staðnum varð sala sú mikið áfall. Haraldur gaf sig mikið að fé- lagsmálum. Þegar hugað er að sögu hans á því sviði, er ljóst, að áhugamálin voru mörg og margvísleg. Hann átti meðal annars sæti í stjórn- um svo ólfkra samtaka hér i bænum sem Sjúkrasam- lags Sauðárkróks — sem stofnað var 1913 með frjálsum samskot- um og starfaði sem eins konar sjálfseignarstofnun fram á stríðs- árin síðari — Talsímafélagsins, Rauða kross deildarinnar, Heim- ilisiðnaðarfélagsins, Verzlunar- mannafélagsins, Slysavarnadeild- arinnar, Náttúrulækningafélags- ins og Lúðrasveitar Sauðárkróks. Hann var stofnandi sumra þess- ara félaga, sat i stjórnum þeirra árum — og jafnvel áratugum saman og skipaði oft formanns- sæti. Haraldur vildi jafnan koma því á góðan rekspöl, sem hann tók að sér; var í senn framsýnn og fyrirhyggjusamur. — Hann tók þátt í störfum fleiri félaga s.s. Taflfélags Sauðárkróks, og hann var öflugur liðsmaður Sjálfstæð- isfélags staðarins og heiðursfélagi þess. Hann studdi með ýmsum hætti leiklistarstarf í bænum; og enn er ótalið, að hann sat i hreppsnefnd Sauðárkrókshrepps óslitið frá 1922—1934. Umfangs- mikill þáttur í verzlunarrekstri Haralds var umboðssala fyrir Föðursystir mín, t INGUNN NIELSEN fædd Tómasdóttir, Molselgade 20, Kaupmannahöfn, andaðist 1 4 des. sl. Jarðarförin hefur farið fram. f.h. aðstandenda, Inga Einarsdóttir. Bróðir i t GUÐMUNDUR SIGURÐSSON, andaðist 2. janúar. Fyrir hönd móðir og ættingja Sigurlaug Sigurðardóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför fósturmóður okkar, tengdamóður og systur, GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR frá Kornsá. Sigrún Þormóðs. Nanna Þormóðs, Hafsteinn Þorsteinsson, Þráinn Sigurðsson, Ragnhildur Jónsdóttir. Sigriður Björnsdóttir. Innilegustu t þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför. BRYNJÓLFS VALDIMARSSONAR, Skólavöllum 2, Selfossi. Lilja Eiríksdóttir, börn og tengdabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát, og jarðarför systur minnar, BJARNFRÍÐAR EINARSDÓTTUR, fyrrverandi Ijósmóður frá Norður-Gröf. Fyrir hönd vandamanna Einar Björnsson. t Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GÍSLA GÍSLASONAR, verzlunarmanns. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Gísladóttir, Gunnar Gíslason, Kristín B. Waage, Aðalsteinn Th. Gíslason, Margrét Konráðsdóttir, Petra Ósk Gísladóttir, Jón Stefánsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM BIBLlAN segir, að kristinn maður eigi að vera „kænn eins og höggormur og falslaus eins og dúfa“. Hvernig er þetta ger- legt? Það var Drottinn Jesús Kristur, sem mælti þessi orð, þegar hann sendi lærisveina sína til að predika. Orðin eiga vissulega erindi til okkar nú á dögum. Við kristnir menn lifum í óskapfelldu og óvinveittu andrúmslofti. Biblían kennir, að heimurinn sé í beinni andstöðu við Guð. En Guð setur okkur hér, svo að við séum eins og ljós í andlegu myrkri, eins og salt í rotnandi samfélagi. Ef vitnisburður okkar á að bera ávöxt, verður hann alltaf að vera grund- vallaður á kærleika, háttvfsi og dómgreind. Guð væntir þess, að við höfum skynsemi til að átta okkur á umhverfi okkar og grípa tækifærin, sem okkur gefast til aðvegsama hann. Hann væntir þess, aðvið séum nærgætin í umgengni við aðra. Hann væntir þess, að við hugsum okkur vel um, þegar við ákveðum, hvort og hvenær við eigum að bera fram vitnisburð. Til er kapp án forsjár. Þá tölum við á stöðum og tímum, er við skyldum þegja. Á hinn bóginn er til andleg athyglisgáfa, sem er okkur hjálp til að nota tækifærin, þegar þau gefast. Krist- inn maður, sem hefur þessa eiginleika f daglegu samneyti við aöra, verður notaður af Guði honum til dýrðar, ekki aðeina með því, sem hann segir og gerir, heldur og með því, sem hann lætur vera að segja eða gera. Það er heilagur andi í hjörtum okkar, sem gefur okkur hina andlegu eiginleika, kærleika, háttvísi, þolinmæði og dómgreind.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.