Morgunblaðið - 05.01.1974, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.01.1974, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANtJAR 1974 Cargolux haslar sér völl í Austur- lönduni . .. Hefur náð fjórðungi vöruflutn- inga í lofti milli Ilong Kong og Evrópu Um þessar mundir fará fram ýmsar skipulagsbreytingar hjá CARGOLUX, flugfélaginu, sem er sameinginleg eign sænska stór- fyrirtækisins Salén, Loftleiða og Luxair, og annarra aðila í Luxem- borg. Eins og kunnugt er, á fé- lagið aðsetur í Luxemborg, og hefur á nokkrum árum haslað sér völl á alþjóðlegum markaði í vöruflutningum, einkum milli Evrópu og fjarlægari Austur- landa. Af hálfu Loftleiða hefur Jó- hannes Einarsson verkfræðingur annazt málefni Cargolux frá upp- hafi. Átti hann drjUgan þátt í stofnun félagsins og hefur setið í stjórn þess frá upphafi. Endtjr- skipulagningin er m.a. fólgin í því, að fjölgað hefur verið í stjórninni og sitja þar nú af hálfu Loftleiða auk Jóhannesar þeir Al- freð Elfasson, Einar Aakrann og Halldór Guðmundsson. Fyrir skemmstu var hér á ferð Sten Grotenfelt, einn af deildar- stjórum Salénútgerðarfyrirtækis- ins, en fyrir þess hönd hefur hann annazt málefni Cargolux og er nýorðinn stjórnarmaður þar. Fréttamaður blaðsins hítti þá Jó- hannes að máli smástund og innti eftir þessu sérstæða samstarfi, sem orðið er f jögurra ára gamalt. — Salén er eitt af stærstu skipafélögum í heimi og hefur m.a. til umráða 30% af kæliskipa- flota heimsíns, en auk þess mörg oliuflutningaskip og mikinn fjölda venjulegra flutningaskipa. Starfsemi félagsins er þvf ekki bundin við Svíþjóð fyrst og fremst, verkefnin eru að mestu alþjóðleg, sagði Sten Grotnfelt. — Auk þess á Salén skipasmíða- stöðvar, hefur umboð fyrir Rolls Royce og Toyota í Svíþjóð, ásamt margs konar annarri starfsemi. En flutningarnir eru aðal- verkefnið, félagið á skip, sem eru samtals 2,5 milljónir tonna — og aðrar 2,5 milljónir tonna eru í pöntun hjá skipasmíðastöðvum, mest megnis olíuflutningaskip, það stærsta 430 þUsund tonn. — Undir lok síðasta áratugar gerðum við athugun á framtíðar- möguleíkum og liklegri þróun vöruflutninga í lofti, því að horf- ur í þessum málum skipta okkur að sjálfsögðu miklu máli. Við komumst að raun um, að ráðlegt væri að byrja strax að afla okkur reynslu í loftflutningum, því að niðurstöður okkar urðu þær, að þeir flutningar myndu fara hrað- vaxandi og yrðu æ hagkvæmari innan ákveðins ramma. — Það var þá að Salén og Loft- leiðir náðu saman og við keyptum helminginn af fyrstu CL-44 (Rolls Royce 400) vélinni, sem Loftleiðir Með fjórð- ung vöru- flutn- Jóhannes Einarsson og Sten Grotenfelt stjórnarmenn í Cargolux. inga milli Hong Kong og Evrópu tóku Ur farþegaflutningum — og í samstarfi við Luxemborgarmenn var samastaður fenginn þar fyrir þessa nýju starfsemi. — Á stuttum tíma hefur félagið vaxið ört, veltan varð um 13 milljónir dollara á síðasta ári, og Utlitið yrði ekki slæmt. Það, sem fyrst og fremst gæti hamlað vext- inum, yrði skortur á hagkvæmum flugvélakosti — virðist mér, bætti hann við. Þir voru sammála um, að sam- starfið hefði verið mjög gott, sagði Jóhannes, að íslendingar ættu ekki víðtækara og umsvifa- meira samstarf við nokkra Norð- urlandaþjóð og reyndar enga aðra, á þessu sviði. Þess vegna væri stofnunin Cargolux eins- dæmi í sögu íslenzkra samgöngu- og flutningamála. — Cargolux hefur ekki fengið leyfi til reglubundins áætlunar- flugs, sagði hann, en við höldum samt uppi „Reglulegum" ferðum milli Luxemborgar og Hong Kong, sem er meginþáttur starf- seminnar, og flytjum nU orðið 25% af öllu vörumagni, sem fer milli Hong Kong og Evrópu með flugvélum, en það er jafnframt helmingurinn af öllum vöruflutn- ingum leigu-fraktfélaga. í haust fengum við á leigu DC-8-61 þotu, sem var í flugi fyrir Loftleiðir í sumar, og fer hUn þrjár ferðir í viku milli Luxemborgar og Hong Kong, en auk þess eru farnar tvær ferðir með CL-44 með við- komu í Singapore. Við höfum fimm skrUfuþotur af CL-44 gerð, ein er leigð til TMA í Beirut, hinar notum við sjálfir. Sótt hefur verið um leyfi til áætlunarflugs milli Luxemborgar og Hong Kong, svo og til Bangkok, en þeir félagar eru nýkomnir Ur mikilli könnunarferð um Austur- lönd, þar sem þeir athuguðu framtíðarmöguleika Cargolux á helztu markaðssvæðunum þar. Vörurnar frá Hong Kong koma víðar að, frá Suður-Kóreu, For- mósu og Japan. Nýlega var sölu- skrifstofa sett á stofn í Tokyo, og líklegt er, að reynt verði áfram að færa Ut kvíarnar í þessum heims- hluta. í því sambandi er helzt að nefna Indonesiu, Malaysiu og Fil- ippseyjar, en þar leynast miklir möguleikar — og svo í Suður- Ameríku, ekki sízt í Brasilíu. Jóhannes gat þess ennfremur, að freistandi væri að hugleiða far- þegaflug á leiðinni til Hong Kong, sem hæglega gæti tengzt flugi Loftleiða og International Air Ba- hama til Luxemborgar. En þau mál bíða betri tíma. — Það er ljóst, að erfitt hefði verið að byrja þessa starfsemi á þeim grundvelli, sem við höfum, ef CL-44 hefði ekki verið fyrir hendi, sagði Grotenfelt — og vél- in verður enn í fullu gildi í mörg ár. Þessar vélar eru hagkvæmar í rekstri, þótt þær fari ekki með þotuhraða. Þær geta annazt flutn- inga smærri farma með meirahag- kvæmni en stóru þoturnar og lenda á flugvöllum, sem þoturnar gætu ekki lent á. Verkefni CL-44 eru ótæmandi — Zambia, Nigeria, Marokko, Astralía, Kanaríeyjar — og CL-44 frá Cargolux var fyrsta leiguvöruflutningavélin frá Vesturlöndum, sem lenti í Peking eftir að fór að þiðna, sagði hann. — Eins og allir vita, sagði Jó- hannes, er geysileg iðnaðarfram- leiðsla í Austurlöndum fyrir Evrópumarkaði — og það er ein- mitt þessi varningur, sem við flytjum. Þar á meðal er mikið af fatnaði og alls konar smátækjum, sem lítið fer fyrir og hagkvæmt er að senda í flugi. Okkur varð Ijóst strax í upphafi, að erfiðara yrði að fylla vélarnar frá Evrópu og þess vegna gerðum við stórátak til þess að safna til Luxemborgar varningi Ur ýmsum Vestur- Evrópulöndum, með þeim árangri, að á köflum höfðum við meiri flutninga austur en að aust- an. Sem dæmi má nefna, að sviss- nesku Urin vinsælu eru ekki að öllu leyti framleidd í Sviss, ein- stakir hlutar eru jU framleiddir þar, en ósamsett fara Ur með Cargolux til Hong Kong, og full- bUin koma þau til baka með Cargolux til Luxemborgar. Þann- ig mætti lengi telja. Varðandi framtíðarhorfur sögðu þeir félagar, að æskilegt yrði að líkindum að bæta annarri þotu í reksturinn haustið 1975. NU væru ekki í framleiðslu neinar vélar, sem sérstaklega væru ætlaðar til vöruflutninga, ef undan er skilin vöru-Utgáfan af risaþotunni Boeing 747. Af CL-44 voru aldrei fram- leiddar nema 39 vélar og tiltölu- lega fáar DC-8-63 (lengdar) eru í notkun, og þá ekki falar. Cargolux mun árið 1977 eignast allar gömlu Loftleiðavélarnar, sem félagið hefur í notkun, en eru í eigu Loftleiða og Salén. Með áfram- haldandi vexti mætti ætla, að Cargolux yrði reiðubUið að taka í notkun risaþotuna Boeing 747 á flugleiðum til Austurlanda áður en mörg ár líða. Félagið hyggst reisa eigið flugskýli í Luxemborg, taka sjálft að sér viðhald flugflot- ans, sem verið hefur í höndum Loftleiða, og kemst þá starfs- mannafjöldinn upp í 200 manns. Hingað til hafa flugáhafnir að mestu verið íslenzkar. Um framtíðarþróunina sögðu Jóhannes Einarsson og Sten Crot- enfelt frekar, að samkeppnin á þessum markaði væri mjög hörð, en flutningamagnið stöðugt vax- andi. Salén telur, að næst-næsta ,,kynslóð“ kæliskipa geta að stór- um hluta orðið „flugskip“ — og í Ameríku er unnið að undirbUn- ingi að smiði risavöruflutninga- véla. Umskiptin koma ekki i einu vetfangi, því að þróunarþrepin eru mörg — og þann stiga er Cargolux einmitt að klífa nU. Cargolux Árni Benediktsson: Loðnusölumál MIKIÐ vatn er runnið til sjáv ar síðan sjávarafurðadeild S.l.S. hóf undirbUning að frystingu loðnu fyrir Japansmarkað, og margir hafa nU gleymt þeirri vantrU, sem þeir höfðu á þeim fyrirætlunum, en svo vill jafnan verða, þegar eitthvað heppnast betur e.n vonir standa til, eins og orðið hefur raunin á um Japans- markaðinn. Einhverra hluta vegna hefur það komizt í hámæli, að sjávar- afurðadeild S.Í.S. hafi af íslend- inga hálfu haft forgöngu um þessi viðskípti, en því vill forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihUs- anna ekki una, sem vonlegt er, og kemur það fram í grein hans í Morgunblaðinu þann 18. þ.m. Hann dregur fram upplýsingar Ur fyllum Sölumiðstövarinnar og trUir greinilega, að þar hafi hann upphafið, því að ekkert geti gerzt utan veggja Sölumiðstöðvarinnar, rétt eins og sagt er um ungann í egginu, að hann trUi þvf, að skurnið sé himinninn. En þó að fyllur séu til í fleiri fyrirtækjum en Sölumistöðinni er ekki ætlun mín að dreifa upplýs- ingum Ur þeim yfir landslýð, enda væri það fánýtt verkefni og skipt- ir engu máli, hver hefur átt upp- haf að hverju og einu. Hitt skiptir meginmáli, að bæði Sölumiðstöð- in og Sambandið vinni eftir beztu getu að framgangi sölumála sjávarUtvegsins hér eftir seni hingað til og vinni saman, þegar það eru hagsmunir sjávarút- vegsins, en keppi, þar sem það er vænlegra til árangurs. Þannig hefur verið unnið og þannig verð- ur væntanlega unnið áfram. En þá er komið að efni þessarar greinar. Haustið 1966 stóð sjávar- afurðadeild S.Í.Sframmifyrirþví að geta gert samning um sölu á frystri loðnu til Japans og gerði reyndar samning. Þá vissi enginn, hvernig mundi til takast, hvort fyrstihUsin hefðu áhuga fyrir þessari framleiðslu, hvernig þau ættu að undirbUa sig undir fram- leiðsluna og hvort tíminn væri nægilegur til undirbUnings fyrir vertíðina 1967. Þá vissi heldur enginn, hvort áhugi yrði hjá sjó- mönnum og Utgerðarmönnum að landa loðnu til frystingar, eða hvort löndunarUtbUnaður skip- anna væri' fullnægjandi. Alla vertíðina 1967 var hér fulltrUi frá Japan að vinna að þvf að koma þessari framleiðslu af stað og gekk það miður en skyldi, var löndunarUtbUnaður skipanna stærstf þröskuldurinn og einnig var verðið of lágt til þess, að menn vildu nokkuð á sig leggja fyrir þennan markað. Samt sem áður fékkst su reynsla á vertíðinni 1967, að unnt var að hefja framleiðslu viðstöðulaust á veríðinni 1967, að unnt var að hefja fram- leiðslu viðstöðulaust á vertíðinni 1968, og hefur þessi markaður verið i sífelldri þróun síðan. En ég sé enga ástæðu til þess að Þegja yfir því að langstærasta þáttinn í þróun þessa markaðar á japanska fyrirtækið Tokyo Maruichi Shoji, og ef til vill á það fyrirtæki allan heiður af því, að þessi markaður er til. NU, sjö árum síðar, stendur sjávarafurðadeild S.Í.S. frammi fyrir nákvæmlega sams konar vandamáli. Japanski markaður- inn hefur ekki tekið við annarri loðnu en hrygnu með þroskuðum hrognum. Þetta hefur þýtt það, að ekki hefur verið unnt að frysta loðnu fyrstu vikur loðnuvertíðar- innar og ekki heldur síðustu vik- urnar. Sjávarafurðadeild S.Í.S. hefur leitað fyrir sér um markað fyrir hæng, sem hægt væri að frysta fyrir og eftir Japansfryst- ingu og gæti lengt vinnslutimann um 2—4 vikur árlega. Sýnishorn hafa verið send m.a. til Nígeríu og má nU telja fullvíst, að þar geti orðið markaður fyrir mjög veru- legt magn af frystum hæng ár- lega, og væntanlega vaxandi markaður. Það eru flestir þeir sömu óvissuþættir um þennan markað nU og voru um Japans- markaðinn fyrir sjö árum. Verðið er ekki aðlaðandi á frumstigi. Það þarf að þreifa sig áfram með framleiðsluaðferðir. Þó að unnið verði að málinu af kappi eru litlar líkur á, að hægt verði að fram- leiða umtalsvert magn i vetur, en aftur á móti gætu staðið vonir til að næsta vetur gæti framleiðsla komizt í fullan gang. Og ef vel er að málum staðiö og markvisst að unnið er engan veginn fráleitt, að þessi markaður gæti orðið okkur jafn mikilvægur og Japansmark- aðurinn er okkur nU. En allt get- ur það að sjálfsögðu brugðizt, við rennum nákvæmlega jafn blint í sjóinn og með Japansmarkaðinn 1966. Það er sannfæring okkar, að þennan markað beri að skoða af alvöru og að honum beri að vinna saman og því bjóðum við hér með Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna að vinna þennan markað með okk- ur. Við vonum aðeins, að ef heppn- ast að vinna þennan markað og annar hvor aðila telur heppilegra að slíta samvinnu þar, þá gerist það af fullum drengskap.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.