Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974
31
Guðni Kjartansson:
„Leikmenn
IBK íþrótta-
menn ársins’
EINS og fram kemur annars stað-
ar á síðunni sigraði Guðni Kjart-
ansson í kjöri íþróttafréttaritara
um íþróttamann ársins 1973.
Guðni var fyrirliði Islands-
meistara IBK síðastliðið sumar,
en þá unnu Keflvíkingar það
frækilega afrek að sigra í þremur
af þeim fjóru knattspyrnumótum,
sem þeir tóku þátt í. Margt og
mikið hefur verið skrifað um
frammistöðu IBK og þau skrif öll I
verið á einn veg. Þá hafa Kefl-
víkingar einnig orðið margs kon-
ar heiðurs aðnjótandi. Guðni
Kjartansson og Einar Gunnarsson
hlutu sæmdarheitið „leikmenn ís-
landsmótsins 1973“ í einkunna-
gjöf Morgunblaðsins og í
kosningu lesenda dagblaðsins
Tímans um „knattspyrnumann
•ársins" sigraði Guðni
Guðni Kjartansson er 27 ára
gamall, íþróttakennari að at-
vinnu, og er hann fyrsti knatt-
spyrnumaðurinn, sem kosinn er
íþróttamaður ársins. Auk þess
að hafa verið fyrirliði ÍBK frá
1968, hefur hann einnig stýrt
landsliðinu í leikjum þess síðustu
ár.
Við spurðum Guðna, í gær,
hvaða leikir væru honum eftir-
minnilegastir frá síðasta keppnis
timabili, — Leikir okkar við Val
voru mjög skemmtilegir, sagði
Guðni, við mættum kvíðnir til
leiks og gerðum okkur ekki nein-
ar gyllivonir, þó að við værum
ákveðnir í að gera okkar bezta.
Þegar svo á hólminn var komið
gekk okkur mjög vel og við unn-
um sæta sigra gegn okkar helztu
andstæðingum. Leikir ÍBK og
skozka liðsins Hibernian voru
mjög ánægjulegir og þá einkum
sá síðari, sem fram fór hér á
Laugardalsvellinum. Við ætluð-
um okkar að sigra, það tókst að
vtsu ekki, en við vorum meira en
ánægðir með jafnteflið gegn þess-
um sterku andstæðingum. Lands-
leikir sumarsins eru eftirminni-
legir, okkur gekk vel á móti
tveimur af sterkustu knatt-
spyrnuþjóðum i heimi, A-Þjóð-
verjum og Svíum; þó að við næð-
um ekki að sigra var munurinn
sáralítí 11. Gegn Hollendingum var
við algjört ofurefli að etja, en
leikirnir gegn hollenzku snilling-
unum voru mjög skemmtilegir,
þótt úrslitin væru ekki til að státa
af.
Ekki segist Guðni hafa gert sér
vonir um að verða kosinn íþrótta-
maður ársins, hann hafi álitið
aðra líklegri til að hreppa það
hnoss. Guðni er sannur íþrótta-
Síðasti ”
leikur
Luther
A MÁNUDAGSKVÖLD leikur
bandaríska háskólaliðið frá
Luther College síðast leik sinn
hér á landi. Liðið mætir þá Ur-
valsliði Körfuknattleikssamband-
isins. Siðast þegar þessi lið, mætt-
ust sigraði Luther með 13 stiga
mun. Leikurinn á mánudag fer
fram í Laugardalshöll, og hefst kl.
20.15.
Á undan þessum leik fer fram
verðlaunaafhending allra flokka í
Reykjavíkurmótinu, og eru við-
komandi beðnir að mæta stund-
víslega, og hafa búninga meðferð-
maður í allri framkomu og gott
fordæmi annarra íþróttamanna,
hógværð hans kemur vel fram í
eftirfarandi orðum hans, er hann
gerir litið úr eigin hæfileikum, en
eignar félögum sínum titilinn,
sem hann hlaut: — Það getur
enginn einstaklingur staðið fram-
arlega í hópíþróttum án þess að
hafa góða félaga á bak við sig. Eg
tek viðurkenninguna ekki til mín,
heldur Iít svo á, að leikmenn ÍBK
hafi verið kosnir „íþróttamenn
ársins."
Ekki segist Guðni ætla að hætta
á toppnum, heldur ætli hann sér
að sjá, hvernig umhorfs sé á leið-
inni niður hinum megin. Á
frammistöðu ÍBK næsta sumar er
Guðni bjartsýnn og segist vona,
að ÍBK bæti enn hinn ágæta
árangur sinn næsta sumar.
Iþróttamaður ársins, Guðni Kjartansson, með farandstyttu íþróttafréttamanna. Til
vinstri er Hafsteinn Guðmundsson formaður íþróttabandalags Keflavíkur og til
hægri Ellert Schram formaður KSÍ.
Úrslit kosningarinnar — Guðni Kjartansson
ALLS HLUTU 28 iþróttamenn og íþróttakonur atkvæði í kosningu
Samtaka íþróttafréttamanna um íþróttamann ársins 1973, og eru það
öllu fleiri en verið hefur. AUs höfðu 7 íþróttafréttamenn kjörgengi í
kosningum þessum, og var sú regla viðhöfð, að þeir rituðu niður nöfn
10 íþróttamanna og kvenna, og hlaut efsti maður á lista 10 stig, næsti 9
stig o.s.frv. Hæsta hugsanleg stigagjöf var þvi 70 stig.
Stigin féllu þannig: stig
1. Guðni Kjartansson, tBK (knattspyrna) 45
2. -3. Erlendur Valdimarsson, IR (frjálsar iþr.) 42
2.—3. Geir Hallsteinsson, FH (handknattleikur) 42
4. Gústaf Agnarsson, A (lyftingar) 38
5. Svavar Carlsen, JR (júdó) 23
6. Gunnsteinn Skúlason, Val (handknattleikur) 22
7. Stefán Hallgrímsson, KR, (frjálsar íþr.) 21
8. Vilborg Júlíusdóttir, Æ (sund) 17
9. —10. Axel Axelsson, Fram (handknattl.) 16
9.—10. Ólafur H. Jónsson, Val (handknattl.) 16
Ásgeir Sigurvinsson, IBV (knattspyrna) 11
Björgvin Þorsteinsson, GA (golf) 10
Hjálmar Aðalsteinsson, KR (borðtennis) 9
Friðrik Guðmundsson, KR (sund) 9
Janus Guðlaugsson, F’H (knattspyrna) 7
Einar Gunnarsson, ÍBK (knattspyrna) 6
Haraldur Kornelíusson, TBR (badminton) 6
Marteinn Geirsson, Fram (knattspyrna) 6
Guðmundur Sigurðsson, Á (lyftingar) 5
Kristinn Björnsson, Val (knattspyrna) 5
Haukur Jóhannsson, IBA (skíðaiþr.) 4
Kristinn Jörundsson, IR (körfuknattl.) 4
Ölafur Benediktsson, Val (handknattl.) 4
Sigurður Ölafsson, Æ (sund) 4
Guðjón Guðmundsson, IA (sund) 3
Ingunn Einarsdóttir, IR (frjálsar iþr.) 3
Björgvin Björgvinsson, Fram (handknatt.) 1
Stórleikir 1 körfunni
FJÓRIR leikir verða leiknir í 1.
deild Islandsmótsins í körfuknatt-
leik um helgina. Kl. 16 í dag leika
á Seltjarnarnesi IR og UMFS, og
að þeim leik loknum leik svo KR
og Valur. Á morgun fara fram
tveir leikir í Njarðvík, og byrja kl.
14. Þá leika UMFS gegn HSK og
siðan UMFN gegn tS.
Sá leikur sem mun vekja mesta
athygli verður tvímælalaust leik-
ur KR og Vals. Valsmenn hafa
forustu í mótinu, hafa fjögur stig
Franihald á bls. 18
HM-liðið valið í gær
LANDSLIÐSNEFND Hand-
knattleikssambands íslands til-
kynnti í gær val sitt á leik-
mönnum til þátttöku í loka-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar í Austur-Þýzkalandi.
Verður liðið þannig skipað:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val,
Gunnar Einarsson, Haukum,
Aðrir leikmenn:
Gunnsteinn Skúlason, Val,
Gísli Blöndal, Val
Viðar Simonarson, FH
Einar Magnússon, Víkingi
Björgvin Björgvinsson, Fram
Sigurbergur Sigsteinss. Fram
Ólafur H. Jónsson, Val
Auðunn Óskarsson, FH
Geir Hallsteinsson, FH
Axel Axelsson, Fram
Guðjón Magnússon, Vikingi
Hörður Kristinsson, Á
Gunnar Einarsson, FH
Eftir er að velja á milli
þriggja markvarða: Sigurgeirs
Sigurðssonar, Vikingi, Ragnars
Gunnarssonar, Á, og Hjalta
Einarssonar, FH, og mun
nefndin velja á milli þeirra
bráðlega.
Franihald af bls. 32
íþróttaáhugamenn geta af honum
lært.“
Mjög mjótt var á mununum í
kosningunni, þar sem aðeins 7
stig skildu fyrsta og fjórða mann.
I öðru til þriðja sæti urðu þeir
Erlendur Valdimarsson og Geir
Hallsteinsson, en úrslit kosning-
arinnar eru rakin á öðrum stað.
I ræðu sinni þakkaði Jón As-
geirsson, forsvarsmönnum Veltis
h.f. fyrir stuðning fyrirtækisins
við íþróttafréttamenn og þann
áhuga, sem það sýndi. Gat hann
þess, að fyrirtækið og Voivoverk-
smiðjurnar hefðu boðið fþrótta-
manni ársins 1972, Guðjóni Guð-
mundssyni, til Svíþjóðar, þar sem
hann var viðstaddur, er Lasse Vir-
en frá Finnlandi var krýndur
„íþróttamaður Norðurlanda 72".
Þá sagði Jón m.a.:
„Á síðustu árum hefur orðið
sama þróun hér á landi og víðast
annars staðar í hinum svonefnda
siðmenntaða heimi. að íþrótta-
hreyfingin lætur meira og meira
að sér kveða, — virkum þátttak-
endum fjölgar, og fleiri og fleiri
taka þátt á einhvern hátt annan,
— sem áhorfendur á íþróttaleik-
vöngum, sem lesendur blaða,
hlustendur og áhorfendur sjón-
varps og útvarps, og óhætt er að’
fullyrða, að þeim fer fækkandi,
sem láta sig íþróttir engu skipta.
Því er það, að þeir íþróttamenn,
sem fram úr skara, verða þekktir
í heimalöndum sínum, og sumir
hverjir um allan heim. Unga fólk-
ið tekur sér þá til fyrirmyndar, og
þeir verka sem hvati á viðkom-
andi íþróttagrein. Það er því
mikil áhyrgð, sem fylgir því að
vera þekktur iþróttamaður, —
það er ábyrgð, sem íslenzkir
íþröttamenn hafa ef til vill ekki
haft svo ýkja niiklar áhyggjur af
hingað til, en það er vissulega
þörf á þvf, að við höfum í huga, að
hér í okkar fámenni, þar sem allir
þekkja alla, eins og stundum er
sagt, eru tæplega fimmtíu þúsund
manns innan vébanda íþrótta-
hreyfingarinnar, eða um fjórð-
ungur þjóðarinnar, og það er því
býsna stór hópur, sem vitað er
með vissu að fylgist mjög náið
með þvi, sem gerist á sviði iþrótt-
anna.
Að lokinni ræðu Jóns og úthlut-
un verðlauna til þeirra 10, sem
efst urðu í kosningunni, tók
Gunnar Ásgeirsson til máls. Sagði
hann Volvo-verksmiðjurnar eiga
45 ára afmæli á þessu ári og 25 ár
væru liðin frá því, að fyrirtæki
hans tók við umboðinu. Hefðu
forsvarsmenn fyrirtækisins þvf
talið gott tækifæri til þess að
minnast þessara afmæla með
stuðningi við kjör „íþróttamanns
ársins“. Gunnar Asgeirsson af-
henti síðan Guðjóni Guðmunds-
syni, er kjörinn var „íþróttamað-
ur ársins 1972“ fallegan verð-
launagrip til eignar, til minningar
um sigur hans i kosningunni þá.
Hermann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri ÍSI tók síðan til
máls og beindi orðum sinum eink-
um til íþróttafréttamanna. Sagði
hann, að kosning þeirra á
„íþróttamanni ársins ', hefði verið
nokkuð umdeild, er hún var fyrst
tekin upp, en reynslan hefði sýnt,
að þetta framtak íþróttafrétta-
mannanna hefði verið ómetanlegt
fyrir íþróttahreyfinguna. Þrátt
fyrir þá staðreynd, að starf
íþróttahreyfingarinnar byggðist
upp á fjöldanum, þá virkaði
afrekstiþróttafólkið sem hvati —
það væri lýsandi tákn þess, hvað
unnt væri að ná langt með ástund-
un og reglusemi. Hermann kvaðst
vilja nota þetta tækifæri til þess
að færa fþróttafréttamönnum
þakkir. — íþróttafréttamenn eiga
mikinn þátt í því, að íþróttir skipa
nú æ meiri hlutdeild í þjóðlífi
okkar. sagði Hermann, og ef
íþróttahreyfingin hefði ekki notið
d.vggilegs stuðnings þeirra, gæti
hún ekki gumað af því, að fjórð-
ungur þjóðarinnar tæki virkan
þátt í starfi hennar.
Ellert B. Schram formaður KSI
tók einnig til máls i hófinu.
Kvaðst hann bæði hafa orðið
undrandi og glaður, er kjöri
„íþróttamanns ársins" var lýst.
Sagðist Ellert skoða úrslit þessar-
ar atkvæðagreiðslu s.em heiður
fyrir knattspvrnuiþróttina í heild,
jafnframt því sem hún væri per-
sónuleg viðurkenning fvrir
Guðna Kjartansson og lið hans.
ÍBK. Ellert sagðist hafa leikið
knattspyrnu með Guðna og gæti
hann borið um það, að betri fé-
laga væ.ri tæpast að fá. — Guðni
er sannur og góður fþróttamaður,
sagði Ellert.
Þá vék Ellert einnig að íþrótta-
fréttamönnum, færði þeirn þakkir
og sagði þá gegna mjög þýðingar-
miklu hlutverki við uppbyggingu
íþróttastarfsins hérlendis.