Morgunblaðið - 20.01.1974, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.01.1974, Qupperneq 1
16. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1974. Prentsmiðja Morgunblaðsins Stjórn Belgíu segir af sér Vegna deilu um olíuhreinsunarstöð Nú er u.þ.b. mánuður frá því að sól fór að hækka á Iofti og þó að hænufetið sé stutt, safnast þegar saman kemur og lundin léttist með aukinni dagsbirtu. Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson. Briissel, 19. jan.,NTB. FORSÆTISRÁÐHERRA Belgíu, Edmond Leburton, afhenti í dag Baudouin konungi lausnarbeidni fyrir sig og stjórn sína og er búizt viS, að kosningar fari fram í land- inu áður en langt um líður. Leburton baðst lausnar vegna þess, að stjórnarflokkarnir þrír gátu ekki komið sér saman um tilhögum bvggingar olíuhreins- unarstöðvar í landinu, í samvinnu við íran og stjórn trans hefur tilkynnt að hún hafi hætt við þátt- töku. Stjórn Leburtons mun sitja áfram sem viðskiptaráðuneytis- stjórn til bráðabirgða en hún hafði verið við völd i þrjú ár. Sósíalistaflokkurinn í ríkisstjórn- inni var mjög hlynntur byggingu oliuhreinsunarstöðvarinnar þar sem hún myndi veita ríkisstjórn- inni bein yfirráð yfir nokkrum hluta olíukaupanna til landsins. Hinir flokkarnir tveir voru and- vigir samkomulaginu eins og það lá fyrir. Siðastliðinn miðvikudag bað Erfiðir samningar við Sýrlendinga eru framundan Kairó og Tel-Aviv, 19. jan. AP — NTB. ÍSRAELAR og Egyptar hafa þegar hafið undirbún- ing að gerð áætlunar um aðskilnað herja sinna við Súezskurð í samræmi við samkomulagið, sem gert var í gær, en í samkomu- laginu er kveðið á um, að lokið skuli við að fram- kvæma aðskilnaðinn innan 45 daga. Sadat Egyptalandsforseti kom i gærkvöldi til Saudi-Arabíu, sem er fyrsti viðkomustaður hans á ferð um 6 Arabaríki til að skýra samkomulagið fyrir leiðtogum þeirra. Sadat fer næst til Kuwait, Gatar, Bahrain, Abu Dhabi og Sýrlands. Sadat mun einnig ræða við leiðtogana um möguleikana á því, að gert verði svipað sam- komulag milli ísraela og Sýrlend- inga. Er gert ráð fyrir, að Sadat komi til Damaskus á morgun. Mjög óljósar fréttir hafa borist af viðbrögðum ráðamanna í Sýr- landi, en fregnir herma, að þeir séu margir mjög bitrir og að til tals hafi komið að slita stjórn- málasambandinu við Egypta. Stjórnarandstaðan í ísrael hef- ur hafið mikla áróðursherferð gegn samkomulaginu og hershöifð inginn Ariel Sharon, sem leiddi ísraelsher yfir Súezskurðinn i október hefur sagt af sér i hern- um í mótmælaskyni við samkomu- lagið. Einn af talsmönnum stjórn- arandstöðuflokksins Likud sagði: „Við erum ekki á móti aðskilnaði herjanna, en hér er um að ræða hreina uppgjöf.'* Moshe Dayan, varnarmálaráð- herra ísraels, sagði i sjónvarps- ávarpi til þjóðarinnar í gær: „Eft- ir 25 ára stöðugar deilur og átök við Egypta tel ég, að undirritun samkomulagsins hafi verið ein mikilvægasta stund í sögu þjóðar okkar og að Egyptar og leiðtogar þeirra vilji nú frið. Ég vona, að við séum nú að losna úr styrjald- arástandinu." Samkomulagið við Egypta verð- ur tekið til umræðu i ísraelska þinginu eftir helgina og er búist við hörðum deilum þar, en enginn vafi er talinn á því, að stjórn Goldu Meir takist að fá samkomu- lagið samþykkt. Hins vegar gætu harðar deilur gert forsætisráð- herranum erfitt fyrir um stjórn- armyndum, sem hún vinnur að nú, eftir kosningarnar um ára- mótin. Flokkur hennar, Verka- mannaflokkurinn, fékk 51 þing- sæti, missti 6, en stjórnarandstað- an, Likudflokkurinn, fékk 39, bætti við sig 7. Stuðningsflokkur Verkamannaflokksins, Þjóðlegi trúarflokkurinn hefur nú 10 þing- sæti. Augu manna beinast nú að því, sem gerist í viðræðum Kissingers og Sadats við sýrlenzka ráðamenn um svipað samkomulag milli ísra- Sirica vill rannsókn á segulböndunum Washington, 19. jan. NTB JOHN Sirica dóinari hefur farið þess á leit við rannsóknardömara ríkisstjórnarinnar f Watergate- málinu, Leon Jaworski, að hann láti rannsóknarkviðdóm kanna, hvort fram hafi farið ólöglegeyði- legging sönnunargagna í málinu. Er þessi ósk fram kornin vegna þagna þeirra, sem reynzt hafa á segulböndum Hvfta hússins með samtölum Nixons forseta við ýmsa samstarfsmenn sfna. Vegna þessara tilmæla Sirica hefur verið tilkynnt frá Hvfta húsinu, þar sem segir, að engir af starfsmönnum þess hafi gert sig seka um ólöglegt athæfi í þessu sambandi. Einn af lögfræðingum forsetans, Fred Buzhardt, sagði að tilmæli Sirica dórnara væri með engu móti hægt að túlka sem sönnun fyrir misferli af hálfu starfsliðs forsetans. Dómarinn hefur hins vegar sagt, að hann hafi rökstuddan grun um, að „einn eða fleiri" menn hafi með- höndlað bönd þessi með ólögleg- um hætti. Hann bætti því þó við, að á þessu stigi málsins vildi hann ekki ákæra neinn sérstakan fyrir slíkt. belgiska stjórnin um nýja samningafundi við Iran til að fá nánari skýringar á ýmsum atrið- um, meðal annars tryggingum til langs tima á afhendingu olíu frá íran og á verðlagi. Stjórn Irans tilkynnti svo i gær, að hún hefði hætt við þátttöku í byggingu stöðvarinnar vegna þess, að Belg- ar hefðu lagt fram nýjar kröfur, sem ekki væri aðgengilegar. Fréttir frá Belgiu herma. að sósialistar vilji ekki taka þátt í myndun nýrrar samsteypustjórn- ar og þvi verði að efna til kosninga bráðlega. ela og Sýrlendinga og gætti nokk- urrar bjartsýni í gær. er fréttist að Assad forseti hefði heimilað Sadat að hefja viðræður fyrir hönd Sýrlendinga um aðskilnað herja Sýrlands og ísraels i Golan- hæðum. Hins vegar er vitað, að miklu meira ber í milli hjá þess- um aðilum, en Sýrlendingar krefjast algers brottflutnings herja ísraels frá hernumdu svæð- unum úr striðinu 1967, þannig að 120 þúsund sýrlenzkir bændur, sem þá hröktust í burtu, geti snú- ið aftur heim. Hafa Sýrlendingar fram til þessa sagt, að ekkert þýði að hefja friðarviðræður, fyrr en þessum skilyrðum hafi verið full- nægt. ísraelar segja hins vegar, að ekki komi til greina að þeir láti Golanhæðir af hendi, þar sem þær séu lífsnauðsynlegar fyrir varnir landsins. Isráelar hafa einnig neitað að ræða við Sýrlendinga þar til þeir hafi afhent lista yfir ísraelska stríðsfanga og leyft eft- irlitsmönnum Alþjóða Rauða krossins að kanna fangabúðirnar og aðbúnað fanganna, sem sagður er mjög slæmur. 5 Rússar reknir frá Peking Pekins, 19. jan. AP. FRÉTTASTOFAN Nýja Kína skýrði frá því í dag, að Pekingstjórnin hefði vísað 5 sovézkum sendi- ráðsstarfsmönnuin úr landi fvrir njósnir. Fréttir þessar voru mjög óljósar og hafði ekki komið nánari skýringar, eða viðhrögð, er Mhl. fór í prentun í gær. Noregskonungur í sjúkrahús ÓLAFUR Noregskonungur, sem stendur nú á sjötugu, hefur verið lagður á sjúkrahús í Ósló vegna lugnabólgu, að því er talsmaður hans skýrði frá í dag. Hann sagði, að líðan konungs væri eftir atvik- um góð en hann yrði i sjúkrahús- inu i nokkra daga. Skyndifundur FRANSKA stjórnin var kvödd saman til óvænts skyndifundar í dag (laugardag) til að fjalla um „efnahagsráðstafanir", en Valery Giscard d'Estaing skýrt fram, að ekki stæði til að lækka gengi franska írankans. Pompidou for- seti boðaði til fundarins eftir að hafa rætt við d'Estaing á föstu- dagskvöld, en þá kom ráðherrann af fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins í Róm. Kínverjar og S-Vietnam- ar berjast á S-Kínahafi Saigon 19. janúar AP. HERSTJORNIN í Saigon skýrði frá því í dag, að s-vietnamskur tundurspillir hefði í inorgun skot- ið kínverskan fallbvssubát nteð 60 manna áhöfn f kaf eftir sjóorrustu undan Paraceleyja- klasanum á S-Kínahafi, en deilur hafa lengi staðið milli Kína og S-Vietnam um yfirráð vfir eyjun- um og magnaðist sú deila í vik- unni, er kínverskir fiskimenn gengu á land á eyjunum og drógu kínverska fánann þar að húni. Eyjarnar eru uin 400 kin fyrir austan s-vietnömsku hafnar- borgina Danang og um 350 km undan kfnversku eyjunni Hainan. í fréttum frá herstjórninni i Saigon segir, að hugsanlegt sé, að s-vietnömskum fallbyssubáti. með 100 manna áhöfn hafi verið sökkt af fjarstýrðri kinverskri eldflaug. Sagði herstjórnin, að 11 kinversk skip væru á þessum slóðum. 600 s-vietnamskir landgönguliðar eru á Duncaneyju, sem er ein stærsta eyjan i klasanum. Engar fréttir hafá borizt af at- burði þessum frá Kína og fremur óljóst hversu alvarlegt ástandið er á þessuin slóðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.