Morgunblaðið - 20.01.1974, Side 7

Morgunblaðið - 20.01.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1974 7 Kvikmsmdir! m u 7 Eftír Bjortt Vtgní Sígurpálsson ™ 6 V ■ ■ SÍÐLA í október á liðnu ári settist hinn virti brezki kvikmyndagagn- rýnandi Richard Roud niður — nýkominn heim frá Bandaríkjun- um — og reit ofurlitla grein í blað sitt — The Guardian. ,,Það er hættulegt að nota orðið endur- reisn," hóf hann grein sína. „Fyrir fáeinum árum greip ég til þessa orðs heldur fljótfærnislega í grein sem ég ritaði um Nýju þýzku kvik- myndina, og að þvi búnu — með aðeins þremur undantekningum — kollsteyptist hún og dó drottni sínum. Þetta hefur verið frjóasta ár í bandarískum kvikmyndaheimi i herrans mörg ár, með hálfa tylft nýrra kvikmynda eftir unga leik- stjóra, sem mætti — að minnsta kosti — kalla efnilega. Svo það er bezt að herða upp hugann og kalla þetta endurreisn." Hér sannaðist sem oftar, að glöggt er;gests augað, því að það var ekki fyrr en hálfum öðrum mánuði síðar, að ofangreind stað- reynd rann upp fyrir gagnrýnend- um bandariskra fjölmiðla. Að vísu má deila um það fram og aftur, hversu mikil endurreisn er á ferð- inni þar vestra, en hitt er eins vist, að árið 1973 var árið sem ungir kraftar innan bandarísks kvik- myndaiðnaðar fengu tækifæri í rikari mæli en áður. j grein sinni tiltók Roud þrjár myndir ungra leikstjóra, sem eink- um vöktu athygli hans — Mean Street, mafiumynd eftir Martm Scorsese, American Graffiti eftir George Lucas og Electra Glide in Blue eftir James William Guercio. Telur hann þær allar hafa eitthvað það til brunns að bera, er veki með mönnum vonir um, að höfundarnir eigi eftir að láta meira til sin taka á næstu árum. Af þremenningunum hefur hinn síðastnefndi orðið minnstur spá- maður i heimalandi sinu, og liggur nú nokkurn veginn fyrir að óvæg- in gagnrýni hefur kálað þessu erfiði hans i kvikmyndahúsum vestra. New York Times kallaði hana til dæmis „samsull" ársins og í nýlegri forsiðugrein News- week um þessa upprennandi kvik- myndagerðarmenn er hans ekki getið einu orði. Roud telur þessa gagnrýni alltof ómilda, þar sem gagnrýnendur einblíni aðeins á neikvæða parta myndarinnar og sjáist þar yfir það sem vel er gert. Myndin er dálitið í ætt við Easy Rider og Roud getur sérstaklega útfærslu og skynjun leikstjórans á sögusviðinu — landslaginu i Arizona, sem gæði myndina óvenjulegum eiginleikum. Má ætla að þessi aðför gagnrýnenda að Guerico stafi af heldur óheppi- legri auglýsingastarfsemi, þar eð dreifingarfélag myndarinnar aug- lýsti leikstjórann á heilsiðu í NYT án þess að gera myndinni sjálfri þar nokkur skil. Hefur þetta senni- lega þótt ótimabær persónudýrk- un. Öllum ber saman um, að American Graffiti sé öllu inntaks- meiri kvikmynd, enda hefur hún hlotið einróma lof. Lucas leikstjóri sækir efnið i eigin uppvaxtarár og segir þar frá fjórum ungum piltum, sem nýlokið hafa stúdentsprófum, áhugamálum þeirra og hvernig leiðir skilja vegna mismunandi lifsköllunar. Lucas þessi vakti þó nokkra athygli á sér fyrir þremur árum með myndinni THX 1138, þar sem hann tók fyrir vísinda- skáldsögulegt efni í Godardstíl. Þegar hann birtist svo með hand- ritið að American Graffiti, vildi ekkert kvikmyndafélag líta við þvi, unz Universal líknaði sig yfir það, eftir að hafa gefið sér góðan tfma til umhugsunar. Félagið á sennilega ekki eftir að sýta þá fjárfestingu, þar eð talið er að myndin muni sópa inn allt að 15 milljónum dala. „Bara það að við erum ungir, táknar ekki, að við séum fffl," segir Lucas, „en það tók kvikmyndafélögin langan tfma að átta sig á því." Þriðja myndin sem Roud minntist á i grein sinni — Mean Street hefur einnig fengið skin- Endur- reisn amerísku arinnar Martin Scorsese andi viðtökur heima fyrir; Vincent Canby hjá New York Times kallar hana „óviðjafnanlega fyrsta flokks kvikmynd" og Pauline Kael, sú mikla valkyrja gagn- rýnenda vestan hafs helgaði henni næstum eins mikið rúm í New Yorker og Last Tango in Paris, sem þótti þó með eindæmum. Mean Street gerist f ítalska hverfinu i Eystri-Manhattan, þar sem Scorsese ólst upp og hann segir einfaldlega: „Mean Street er ævisaga min." Scorsese er ekki algjör nýgræðingur á sviði kvik- myndagerðar, því að fyrir fáeinum árum gerði hann mynd á vegum Roger Corman sem nefndist Box Car Bertha, og ku hafa farið fram hjá öllum i Bandaríkjunum, en var hins vegar siðar sýnd við skínandi aðsókn f London. Leikstjórarnir, er Roud tiltekur ekki f grein sinni, eru væntanlega John Milius með mynd sfna 'billinger, Ralph Bakshi með Heavy Traffic og Brian De Palma með myndina Sisters. Þessir leik- stjórar eru allir um þrftugt. Hinn fyrstnefndi — John Milius hefur þegar að baki töluverða reynslu innan kvikmyndanna sem handritahöfundur og meðal fram- laga hans á þvi sviði má nefna Dirty Harry, Jeremiah Johnson og The Life and Times of Judge Roy Bean. Efnið í Dillinger sækir Milius í ævi og feril eða öllu heldur misferil samnefnds stór- glæpamanns, og þykir meðferð hans á þessum annars dálftið út- vatnaða efnivið um margt athyglisverð. Bakshi er sennilega kunnastur þessara ungu leikstjóra — eftir að hann sendi frá sér Felix the Cat, fyrstu teiknimynd sögunnar, sem bönnuð var börnum innan 1 6 ára. Engu að síður hefur hann stundum verið kallaður arftaki Disney, og mynd hans Heavy Traffic hefur yfirleitt fengið mjög lofsamlega dóma. Þar lýsir hann með heldur óhugnanlegum hætti stórborgar- lífinu og bílismanum, sem allt ætlar þar að drepa. Loks er að geta Brian De Palma og hrollvekju hans The Sisters. Palma á að baki töluverðan frægðarferil sem höfundur til- raunakvikmynda eða „under- ground"-mynda, eins og þær eru nefndar í heimalandi hans. Ein þeirra, pólitfsk satíra undir titlin um Greetings hlaut til dæmis Silfurbjörninn f Berlfn 1969. Annálaðasta myndin er samt vafa- laust Be Black Baby, en þar gefur að líta undarlegt leikhúsverk, sem einungis svartir leikarar standa að. Þeir eru allir með hvítfarðað andlit til að fá hvíts manns yfir- bragð, og lokaþátturinn í þessu merkilega leikhúsverki, sem Palma byggir mynd sfna á, er að leikendur demba sér skyndilega út í áhorfendasalinn og taka til við að berja og nauðga hinum hvíta frjálslynda áhorfendahópi. The Sisters er af dálftið öðrum toga spunnin — hrollvekja í nokkuð hefðbundnum stíl nema hvað þar koma aðallega morðóðir Síamství- burar við sögu. Rétt er að geta þess, að ekki eru allir bandarfskir gagnrfnendur sáttir við þessa ungu leikstjóra. Á dögunum birtist til að mynda grein f NYT eftir Foster nokkurn Hirch, þar sem hann leiðir að því rök, að þessir ungu menn stundi lítið annað en skipulegan stuld úr gömlum og góðum kvikmyndum og varla örli á frumsamdri hug- mynd í verkum þeirra. Þannig sé Dillinger ekkert annað en endur- tekning á Bonny and Clyde — atriði fyrir atriði, Electra Glide in Blue á að vera stæling á Easy Rider, nama hvað þemanu er snúið við, því að þar verði góða löggan fórnarlamb byssuóðra landshornaflakkara, og loks segir Hirsch, að Sisters sé ekkert annað en Hitchcock á villigötum, þar sem boðið sé upp á barrósk til- brigði við Psycho og Rear Window. TAPAST HEFUR rauður hestur 5 vetra frá Sjávar- hólum, Kjalarnesi Mark Vaglskora framan hægra. Þeir sem geta gefið upplýsingar, vinsamlegast láti vita i sima 1 7259 TIL LEIGU 3ja herb góð íbúð á 3 hæð við Háaleitisbr. leigist með hita. Tilb leggist á Mbl f 31 |an er til- greini fjölsk.st., leigugetu og fyrir- framgr. merkt: Háaleitisbraut — 3098 TRÉSMÍÐI Uppsetning á milliveggjum og viðarþiljum Smíða einnig fata- skápa og margskonar hillur í barnaherbergi, geymslur og bíl- skúra Upp í síma 53536 TILSÖLU VOLGAÁRG. '73 ekinn 30 000 km Talstöð og gjaldmælir gætu fylgt. ef um leigubifreiðastjóra væri að ræða Uppl i sima 43336 eftir kl 7 i kvöld og næstu kvöld DÖMUR stytti og þrengi kápur og draktir Tekið á móti fötum og svarað i sima 37683 frá kl 7 — 9 á kvöldin mánud og fimmtud FATABREYTINGAR fyrir herra Tekið á móti fötum og svarað i sima 37683 frá kl 7 — 9 á kvöldm, mánud og fimmtud SKATTAFRAMTÖL Tökum að okkur skattaframtöl Sigurður Helgason, hrl Þorleifur Jónsson, Þingholtsbraut 53, simi 42390 Upplýsingar kl. 3—6 alla daga HESTHÚS TIL SÖLU afbragðsgott Fjórir stallar Einnig efnileg ung hryssa og 3'/2 tonn af heyi Simi 37981 DOMUR Snið síð pils og kjóla Þræði saman og máta Sigrún Á. Sigurðardóttir, Drápuhlíð 48 2. hæð, simi 19178 HANDAVINNUNÁMSKEID Taumálun. myndvefnaður. flos (bæði fina og grófa nálin). embrodery o.fl , byrjar i næstu viku. 22 janúar Upplýsingar i sima 41955 VW 1 300 árgerð 68, mjög vel með farinn, til sýnis og sölu strax Uppl i sima 81488 VIL KAUPA IBUÐ! Óska eftir 2ja herb ibúð fyrir eldri konu íbúðin greiðist að fullu á e«nu ári. Uppl i sima 71 875 EIGNIZT VINI UM ALLAN HEIM Gangið i stærsta pennavinaklúbb i Evrópu Sendum ókeypis bækling HERMES, Box 1 7 Berlin 1 1, Germany. IBÚD ÓSKAST Ung barnlaus hjón óska eftir 2ja herb. ibúð i Reykjavík. Uppl. i sima 3841 9 FRANSKA C.D. BÓMULLAR- GARNIÐ í öllum litum. Fjölbreytt úrval af gobelinteppum frá Gunnari Peter- sen Hannyrðaverzlunin Grímsbæ við Bústaðaveg. Sími 86922. NÝKOMIÐ MIKIÐ ÚRVAL af hannyrðavörum Dúkaefni fjöl- breyttir litir og mynstur Flosnálar og teppi Höldur á klukkustrengi i öllum stærðum Hannyrðaverzlunin Grímsbæ við Bústaðaveg Simi 86922. KEFLAVÍK — SUÐURNES Til sölu einbýlishús á góðum stað i Keflavik. Til greina kemur skipti á 3ja herb. ibúð i Reykjavik. Bila- og fasteignaþj Suðurn simi 92-1535, eftir lokun 92- 2341 ÞORRAMATUR — VEIZLUMATUR Matarbúðin, Hafnarfirði sér um þorramatinn i þorrablótin, 1 6 teg- undir mmfaldar Einnig köld borð og annan veizlumat Matarbúðin Hafnarfirði. S. 51186. SKATTFRAMTÖL Veitum aðstoð við skattframtöl. Pantið tima sem fyrst Simar 41095 og 85789 Framtalsþjónustan MagnúsA. Bjarnason. Þórólfur Kristján Beck. TILSÖLU er Toyota Corona station árg 66. litið ekinn og i sérflokki hvað gæði snertir Greiðsluskilmálar. Upþl i sima 1 7888 TILSÖLU 2ja hásinga MAN '65 model með 7 metra löngum palli, yfirbyggð- um. Upplýsingar í sima 23308. SEM NÝR PLYMOUTH DUSTER, árgerð 1962 til sýnis og sölu mánudag hjá Stillingu. Skeifunni 11— Keyrður 7 500 milur TRÉSMIÐUR ÓSKAST strax á verkstæði. Upplýsingar i sima 1 5686. Vinnustofa Eyvindar Árnasonar. STOFA OG LÍTID SVEFNH. TIL LEIGU með aðg að eldh þvottah og sima. Fyrir reglusöm barnl. hjón eða einstakling. Tilboð merkt: ..Reglusöm 3143 sendist atgr. Mbl ásamt heimilsf og siman SKATTFRAMTÖL Veiti aðstoð við skattframtöl og reikningsskil einstaklinga og fyrir- tækja. Jón Ó. Hjorleifsson. viðskiptafræðingur, sími 33313 iesið DHGLEGD T résmlðavélar til sölu Kantpússivél, bandpússivél, radialsög, (bútsög), hulsubor, blokkþvingur, (Úlmía), loftpressa og sprauta fyrir lakk, rekkar fyrir timbur og spón. Húsgagnavinnustofa Helga Einarssonar, Brautarholti 26.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.