Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1974 _____Köttur úti í múri: Börnunum boðiðl œrlegt œvinti/ri Fyrsta leiksviðsverk Andrés- ar Indriðasonar barnaleikritið KÖTTUR ÚTI I MYRI, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í' dag, en framvegis verðurverkið sýnt á laugardögum og sunnu- dögum. Andrés vinnur i lista- og skemmtideild Sjónvarpsins, en áður var hann blaðamaður á Morgunblaðinu. Við röbbuðum við Andrés uin leikritið þegar hann var rétt nýkominn af einni lokaæfingunni. „Hvernig gekk æfingin"? „Hún gekk vel, við fengum 100 börn sem gesti á æfinguna til þess að prófa undirtektir, og þær voru slíkar, að ég hefði aldrei trúað því að óreyndu. Það er skemmtilegt að hafa upplifað það." „Hvernig byggir þú leikritið upp?" „Sögumaðurinn, sem Ævar Kvaran leikur, byrjar á því að bjóða börnin velkomin i leik- húsið og síðan fer hann að | benda þeim á eitt og annað, sem þarf til þess að ein leiksýning geti orðið að veruleika. Þannig er leikritið öðrum þræði kynnig á leikhúsinu sjálfu, ljósunum, leikmyndunum, leikurunum og því, sem þarf í þráðinn. Þannig er stefnt aðþvf að gera leiksýn- inguna að veruleika. Leikhúsið er töfraspegill, sem getur speglað lifið eins og það er og það getur einnig speglaðævintýrið i öliu hugsan- legu hugmyndaflugi og KÖTT- UR UTI I MÝRI er ævintýri. Svo kemur að því að velja persónurnar í leikritið og með hjálp barnanna í salnum kallar sögumaðurinn fram Ijón i leik- ritið. Sögumaður gefur sig á tal við einn dreng í salnum og býð- ur honum upp á sviðið og að vera þar og hjálpa sér og börn- unum í salnum að búa til leik- ritið, búa til ævintýrið. Strák- urinn fær að velja sér persónu og hann velur sér kóng og þar með fer ævintýrið af stað og það eru sögumaðurinn og strák- urinn, sem heitir Einar Sveinn, sem búa til leikritið með hjálp barnanna i salnum. En margt fer öðruvísi en ætl- að er og persónur, sem ekkí eiga að vera með í leikritinu, stelast inn í ævintýrið og óvænt atvik gerast. Sögumaðurinn og Einar Sveinn vita ekki sitt rjúk- andi ráð, en börnin i salnum vita betur.“ „Hvert er nafnið sótt?“ „Nafnið KÖTTUR ÚTI 1 MÝRI helgast af því, að þegar sýningin hefst er ekki vitað um endinn að öðru leyti en því, að hér á aðgerast ævintýri." „Á hvað leggur þú mesta áherzlu í leikritinu?" „í ieikritinu gerast iðulega óvænt atvik og börnunum fínnst gaman að láta koma sér á Andrés Indriðason. óvart. Einmitt þetta ásamt kímni vildi ég láta, vera ríkj- andi í leikritinu.” „En hvað um hræðsluna, sem er svo sterkur þáttur í barna- leikritunum?" „Oft og iðulega hefur grimmdin og ofbeldið verið ríkjandi í ævintýrum fyrir börn og til dæmis má nefna Gríms- ævintýri, þar sem telft er sam- an sakleysinu og skepnuskapn- um á kostnað þess, að börnin, sem eiga að njóta, eru dauð- hrædd. En allt er þetta undir yfirskini fagurra ævintýra.“ „Mér finnst tími til kominn að víkja frá þessari stefnu og bjóða börnunum í staðinn upp á ærlega skemmtun, sem þau geta lifað sig inn í og hlegið að um leið og þau verða þátttak- endur í rás óvæntra atvika, sem byggjast á skemmtilegum til- þrifum, en ekki hræðslu.” „Sé um boðskap að ræða í þessu leikriti þá er hann sá, að það er gott að eiga vini og hamingjan er ekki fólgin í því að eiga allt af öllu og fá allt, sem hugurinn girnist. Prinsessan f ævintýrinu er sannarlega i góðra vina hópi, en það hefur líka verið ánægjulegt fyrir mig að hugmyndir mínar hafa alveg komið heim og sam- an við leikstjórn Gísla Alfreðs- sonar og leikmyndir Jóns Bene- diktssonar, sem eru einfaldar og yfirlætislausar, finnast mér falla sérstaklega vel að efninu." „Hvenær ritaðir þú KÖTT ÚTI 1 MÝRI?- „Fyrstu drögin setti ég á blað fyrir tveimur árum og síðan hef ég ritað verkið nokkrum sinn- um upp, en síðastá gerðin varð til sumarið 1973 og þá naut ég góðrar samvinnu Gísla Alfreðs- sonar.“ „Hvernig finnst þér að semja fyrir börn?“ „Börnin segja manni strax hvað þeim býr í brjósti og þau segja það af heilum hug. Þau eru glöð ef þeim líkar vel, en þau byrja líka fljótt að geyspa ef þeim leiðist. Ef vel tekst til, eru þau eflaust þakklátustu áhorfendur, sem hægt er að hugsa sér.“ Um 20 leikarar leika i KETTI ÚTI í MYRI, en auk þess er hljómsveit í verkinu og Magnús Ingimarsson hefur samið og út- sett tónlistina, en hljómsveítin er að sjálfsögðu með á sviðinu í leikbúningum og öllu eins og vera ber í ærlegu ævintýri. Leikritið gerist í 15 atriðum og það má geta þess að það er fyrsta íslenzka leikhúsverkið á Þjóðhátiðarárinu. Fer vel á því að það sé fyrir börn. — á.j. Hvað skyldi vera á seyði þarna? ii m Prinsessan og Ijónið. Yfir20 leikarar leika í Ketti úti f mýrr. Rabbað við Andrés Indriðason um nýtt íslenzkt barnaleikrit Tveir óvæntir gosar I ævintýrinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.