Morgunblaðið - 20.01.1974, Side 39

Morgunblaðið - 20.01.1974, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1974 39 Eðlileg þróun í bættri heilbrigð- isþjónustu Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi frá Reykjavíkurdeild Hjúkr- unarfélags Islands: AÐALFUNDUR Reykjavíkur- deildar Hjúkrunarfélags íslands, 23. nóvember 1973, fagnar þeim stuðningi, sem fram hefur komið að undanförnu, á opinberum vett- vangi, við málstað hjúkrunar- stéttarinnar, s.s. frá hæstvirtum menntamálaráðherra, alþingis- mönnum og Stúdentaráði Háskóla íslands. Er hér um að ræða áform um að gera hrjúkrunarkonum og mönnum kleift að hefja nám við Háskóla íslands, jafnframt því að koma á framhaldsmenntun hér á landi í hinum ýmsu hjúkrunar- gremum. Fundurinn telur, að þar sé ekki einungis verið að hugsa um hag hjúkrunarstéttarinnar, heldur eðlilega þróun í bættri heil- brigðisþjónustu, í þágu þjóðar- heildar. Þar sem nú hefur verið stofnað til hjúkrunargrunnmenntunar við þrjár stofnanir á Reykjavíkur- svæðinu, þ.e. við Hjúkrunarskóla Islands, Nýja hjúkrunarskólann og hina nýju námsbraut í hjúkrun við Háskóla íslands, er augljóst, að enn meiri nauðsyn er á að efna til framhaldsmenntunar í landinu fyrir þá, sem annast eiga verklega og bóklega kennslu þessara nemenda. Þá telur fundurinn það rang- túlkun á hlutverki hjúkrunar- námsbrautar Háskólans, sem frafn hefur komið m.a. í fjöl- miðlum, og vanmat á íslenzku hjúkrunarstéttinni, að þær hjúkr unarkonur og menn, sem út- skrifast frá hjúkrunarnámsbraut Háskólans, eigi öðrum fremur að taka við stjórnunarstörfum, kennslu og heilsuvernd við heil- brigðisstof nanir þjóðarinnar. Fundurinn beinir þeirri ösk til hæstvirts menntamálaráðherra, að hann hlutist til um, að nefndir þær, sem nú starfa og eru að hefja störf á vegum ráðuneytisins að endurskoðun hjúkrunarmennt- unarinnar í landinu, flýti störfum svo sem auðið er, og að fullt samráð verði haft við hjúkrunar- stéttina um skipulagningu og framkvæmd þessara mála. r — Ur verinu Framhald af bls. 3 fara út til Rússlands til samninga- gerðar. Það varð því að áætla verðhækkunina. Steinbítur og ufsi hefur lækkað í Bandaríkjunum siðan samið var, hvort sem það felur í sér nokkra bendingu um markaðinn eða ekki. NORÐMENN TRtJA A VERÐ- H/EKKUN Nýfiskverðið 1 Noregi verður ákveðið 28. janúar. Islenska verð- ið hlýtur alltaf að verða 20% lægra en norska verið vegna út- flutningsgjaldanna á Islandi, sem ekki eru 1 Noregi, og 10% lægra vegna stofnfjársjóðsgjaldsins, ef miðað er við skiptaverðið. Þetta eru samtals 30%. Norðmenn segjast ,,verða“ að fá hærra fiskverð vegna stóraukins útgerðarkostnaðar, svo sem vegna verðhækkunar á oliu. Kóngur vill sigla, en byr hlýtur að ráða. Hér veltur á verðlagsþróuninni, bæði undanfarið og kannski eitthvað útlitinu. Norðmenn tala um, að þeir verði að hafa öruggan rekstrar- grundvöll eins og Islendingar. En sannleikurinn er nú líklega sá, að íslenska þorskfiskútgerðin hefur verið skilin eftir á núlli, og fisk- vinnslan fyrir neðan núllið. Eins og Islendingar vona Norð- menn, að hinn mikli fiskskortur, og þá sérstaklega á þorski, segi til sín í hækkandi verði. Þar kemur einnig til með að hafa áhrif sam- komulag Bretlands, Sovétríkj- anna og Noregs um takmörkun á veiði á þorskstofninum á norðlæg- «ri stóflmi.*... »•.. *«> Þjónustunúsnæði oskast Óskum eftir að taka á leigu, húsnæði fyrir hreinlega viðgerðarþjón- ustu um það bil 100 fm. Æskilegt er að hlut húsnæðisins megi nota. sem verzlun. Góð aðkeyrsla þarf að vera fyrir hendi. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 1. febrúar merkt: „3250" FASTEIGN TIL SÖLU í miðbæ Kópavogs við Álfhólsveg er húseign 350 fm gólfrými og góð lóð, hentugt sem verzlunar-, iðnaðar- eða skólahús til sölu. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga á kaupum eru beðnir að leggja nafn sitt og heimilisfang inn á afgr. Mbl. fyrir 1 . febr. merkt: Hús og lóð — 3093 '. Prjonakonur Hafnartlrðl Framvegis verður peysumóttakan Blómvangi 5, opin mánudag og miðvikudag frá kl. 5 — 7 e.h. Álafoss h.f. Grenningar- aðferðin sem fer sigurför um alla Evrópu. Já — nú gætir þú einnig losnað við yfirvigtina. D.l. grenningarfötin losa þig fljótt við óþarfa kílóin. Heimaval, box 39, Kópa- vogi, sendir þér nánari upp- lýsingar um hæl. Skrifaðu nafn og heimilsfang á spássíuna hér að neðan. Lady Marlene Brjóstahaldarar, stuttir og síoir. Buxnabelti og corselett, stutt og sí Frottesloppar, veloursloppar. v Selliarnarneshreppur Okkur vantar verkamenn í byggingavinnu og aðstoð- armenn við járnalagnir. Mikil vinna. Matur á staðnum. Uppl. gefur Benedikt Jónsson. tæknifræðingur, í sima 18707 og Valdimar Jóhannsson, verkstjóri, í síma 21180. Ljöstæknlfélag íslands hvetur félaga sína til þess að sækja ráðstefnuna um „Gluggann" dagana 24., 25., 26. janúar 1 974. Upplýsingar gefur B.A.Í., Grensásvegi 1 1. Sími 86510 og 86553. Stjórnin. Bygglngamelstarar Árshátíð meistarasambands byggingamanna, verður hald- in föstudaginn 25. janúar n.k. í Glæsibæ og hefst með borðhaldi kl. 1 9. Góð skemmtiatriði. Dans. Félagarfjölmennið. Skemmtinefndin. Talæflngar l pýzku Vegna mikils áhuga verða myndaðir nokkrir samtalsflokk- ar i þýzku á tímanum kl. 5 og 7 e.h Námskeiðið stendur til páska. Sérstaklega góðir kennarar og hentugt náms- efni. Málaskólinn Mímir Brautarholti 4, sími 10004 kl. 1 —7 e.h. Lán úr Llfeyrlssjöðl A.S.B. og B.S.F.Í Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita lán úr sjóðnum til sjóðfélaga. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. febrúar 1974. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu sjóðsins, Laugaveg 77, kl. 1—4. Sími 14477. ÆSKULÝOSRÁO REYKJAVÍKUR SÍMI 15937 Tómstundastörf i sknlum VETDADSTADF 1974 Flokkar I tómstundavinnu eru aÓ hefja störf I eftirtöldum framhaldsskólum: Álftamýrarskóla Austurbæjarskóla Gagnfr sk. Austurbæjar Hagaskóla H vassaleitisskóla Langholtsskóla Réttarholtsskóla Arbæjarskóla Breiðholtsskóla Fellaskóla Hlíðaskóla Kvennaskólanum Laugalækjaskóla Vogaskóla í hverjum skóla er nánar auglýst um innritun tómstundagreinar og tima. Þátt- tökugjald er kr. 200.00 Allar nánari upplýsingar eru veittar í skrif- stofu ÆskulýSsráðs Reykjavikur, kirkjuvegi 11, simi 15937 kl. 8 20 16.15 Fri- siglingar og sjóvinna 1. BATASMÍÐI í NAUTHÓLSVÍK Nýir flokkar eru að hefja starf. Aldur: Fædd 1 962 og eldri Efnisgjald: 10.000 kr. Þátttökugjald: 200 kr. 2. NAMSKEIB í MEÐFERÐ SEGLBÁTA Hefst að Fríkirkjuvegi 11 fimmtudaginn 24. janúar kl. 18.00 Aldur: Fædd 1962 og eldri. Námskeiðsgjald: 200 kr. Innritun að Fríkirkjuvegi 11.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.