Morgunblaðið - 23.05.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1974
3
Varizt vinstri slysin!
o o '
Framsókn-
arflokkur
Undir forystu
Ólafs Jóhannes-
sonar hefur Fram-
sóknarflokkurinn
endanlega klofnað.
Vinstri armurinn
hefur sagt skilið við
flokkinn, en Ólafur
og Einar eru fangar
kommúnista í
vinstri stjórn, sem
þeir hafa lýst yfir,
að þeir vilji endur-
nýja eftir kosning-
ar.
Einar.
N jörður
Samtök jafn-
aðarmanna
Samtök jafnaðarmanna eru tíunda
flokksbrotið, sem skýtur upp kollinum á
vinstri væng íslenzkra stjórnmála. Njörð-
ur var sjálfstæðismaður í háskóla,
gerðist handgenginn Gylfa meðan hann
var ráðherra, yfirgaf hann, þegar hann
hafði ekki lengur yfir bitlingum að ráða,
hallaði sér að Magnúsi Torfa, fer nú úr
Alþýðuflokknum og hyggst verða þriðja
hjólið undir vagni Magnúsar Torfa og
Ólafs Ragnars. Magnús Torfi — Ólafur
Ragnar — Njörður, hvað getum við
fengið betra?
Frjálslyndi
flokkur
Fyrst gekk Bjarni
Guðna til samstarfs
við Hannibal í SFV,
gafst upp á því og
stofnaði ..Frjáls-
lynda“-flokkinn.
Mao.
Kommúnista-
í Á samtökin
Marxistar-Leninistar
Bjóða fram í þingkosningum.
Vföðruvalla-
hreyfing
(Samband ungra framsóknarmanna,
Samtök vinstri framsóknarmanna)
Möðruvellingar hafa barizt heiftarlega
gegn forystu Ólafs Jóhannessonar í
Framsóknarflokknum og ríkisstjórn
hans. Nú hafa þeir sagt skilið við Fram-
sóknarflokkinn og hyggjast bjóða fram
með Magnúsi Torfa — sem sat eftir i
ríkisstjórninni, sem þeir eru á móti —
með því yfirlýsta markmiði að ganga til
samstarfs við Ólaf Jóhannesson í nýrri
ríkisstjórn!
Hannibals-
armur SFV
Fyrst var Hanni-
bal formaður
Alþýðuflokks, svo
gerðist hann hand-
genginn kommúnist-
um og varð formað-
ur Alþýðubanda-
lags, síðan yfirgaf
hann Alþýðubanda-
lag og varð formað-
ur SFV, þá missti
hann Bjarna og loks
hefur Magnús Torfi
ýtt honum til hliðar
í SFV. Kemst hann
til sinnar heima-
byggðar á ný — í
Alþýðuflokkinn?
Björn.
Fyrst hét það Kommúnistaflokkur Is-
lands, síðan nefndist það Sameiningar-
flokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Nú heitir það Alþýðubandalag, hvað heit-
ir það næst?
Gylfi.
Alþýðu-
flokkur
Alþýðuflokkurinn hefur stefnt að sam-
runa við SFV. I samræmi við það er um
kosningabandalag að ræða milli flokk-
anna í fjölmörgum stærstu kaupstöðum
landsins. Nú stendur Alþýðuflokkurinn
frammi fyrir því, að einungis hluti SFV
vill sameinast honum, en um leið
kvarnast utan úr vinstri armi hans með
stofnun Samtaka jafnaðarmanna..
Magnús Torfi.
Magnúsar
Torfa-arm-
ur SFV
Magnús Torfi var ritstjóri Þjóðviljans,
síðan formaður Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur, gekk i SFV, þegar honum
bauðst þingsæti, neitaði að yfirgefa ráð-
herrastólinn, þegar Björn hætti. Gengur
nú til kosninga með hörðustu and-
stæðingum ríkisstjórnarinnar, sem hann
situr í!
Jarðskjálfta*
fræðingurinn.
Fylkingi
in
ÓVÍST UM FRAMBOÐ.