Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 26
26
MÓRGÚNBLÁbYÐ.'FÍMÍvífÚDAGU'á 23. MÁÍ 1974
Guðniundur Auúbjörnsson
Gísli Einarsson
Georg Halldórsson
HjörvarO. Jensson
Herdís Hermóðsdóttir
FRAMBOÐSLISTINN Á ESKIFIRÐI
Framboðslisti sjálfstæðis-
manna við sveitarstjórnarkosn-
ingar í Eskif jarðarhreppi er
þannig skipaður:
1. Guðmundur Á. Auðbjörnsson,
málameistari, Hólsvegi 2.
2. Gísli Einarsson, fulitrúi,
Strandgötu 35
3. Georg Halldórsson, tollvörður
Steinholtsvegi 11
4. Hjörvar Olsen Jensson, banka-
maður, Bleiksárhlíð 34.
5. Herdís Hermóðsdóttir, húsmóð-
ir, Strandgötu 41.
6. Ingvar Þ. Gunnarsson, útgerð-
armaður, Hlíðarendavegi 4a
7. Sigurður Magnússon, skip-
stjóri, Svínaskálahlfð 9.
8. Ragnar Björnsson, trésmiður,
Strandgötu 81.
9. Guðmundur tsleifur Gíslason,
skipstjóri, Lambeyrarbraut 3.
10. Ragnhildur Kristjánsdóttir,
húsmóðir, Steinholtsvegi 7.
11. Kjartan Sigurgeirsson, raf-
virki, Túngötu 6.
12. Jón Gíslason, sjómaður, Hóls-
vegi 4b
13. Hrefna Björgvinsdóttir, hús-
móðir, Sandbrekku.
14. Sigurþór Jónsson, kaupmaður,
Túngötu 3.
Framboð til sýslunefndar:
Ingólfur Fr. Hallgrimsson, for-
stjóri, Strandgötu 45.
Til vara: Sigurlaug Magnús-
dóttir, kennari, Strandgötu 35.
Grundar-
fjörður
Vetrarvertíð er nú að ljúka hér áþekkur og hann var sl. ár og
og eru flestir bátar búnir að taka sókn svipuð. Aflinn í vetur hefur
upp net sín. Ef miðað er við 30. nýtzt mjög vel, oftast verið jafn
■’orfi si.t þá mun afli báta við og yfirleitt ekki meiri en svo, að
eiðafjarðarhafnir vera mjög verkun hans hefur gengið ágæt-
lega. — Hæsti bátur hér í Grund-
arfirði varð m/b Grundfirðingur
II, skipstjóri Elís Gíslason. Hér á
staðnum eru þrjú fiskiðjufyrir-
tæki og hafa þau öll verið í mikilli
uppbyggingu síðustu misserin.
Rækjuveiði hefur mjög farið í
vöxt og hefur það skapað mjög
mikla atvinnu í landi, svo að oft-
ast verður að vinna mjög langan
vinnudag, þrátt fyrir að allir
vinni sem vettlingi geta valdið.
Þessa dagana þreyta börn vor-
próf sín hér í skólanum og verður
senn lokið. Alls munu 183 börn
hafa verið hér í skóla í vetur, en
það er mikill fjöldi í byggðarlagi,
sem telur um 700 íbúa. Sam-
kvæmt upplýsingum skólastjór-
ans, Arnar Forberg, jókst nem-
endafjöldi hér á áratugnum 1960
til 1970 úr 62 nemendum í 162
nemendur. Aukning skólaskyldra
barna er að miklum mun meiri
hér en annars staðar á Snæfells-
nesi, enda skólahúsnæði löngu
orðið alltof lítið. — Þetta stendur
þó til bóta, því að í byggingu er
veglegt skólahús ásamt sundlaug
og standa vonir til þess að hvoru
tveggja komist í gagnið á þessu
ári. Sjálfur þykist fréttaritari
blaðsins sjá daglega mikinn
fjölda barna undir skólaskyldu-
aldri, svo að ekkert lát virðist á
viðkomunni og sannar það, sem
áður var vitað, að Grundfirðiflgar
gefa sér tíma til þess að sinna
ýmsu öðru en þorsk og rækju ein-
göngu.
Á síðastliðnu ári var verulegt
átak gert í byggingu íbúðarhús-
næðis -hér á staðnum, bæði á
vegum einstakra manna svo og
annarra. Byggingarfélagið Sæból
s.f., sem stofnað var á miðju sl.
ári, byggði sex raðhús, sem það
seldi öll á föstu verði og er þegar
flutt í sum þeirra, en önnur vei á
veg komin. Kaupendur húsanna
fengu þau afhent með ísettu tvö-
földu gleri, útihurðum og múr-
húðuð að utan. Mér þykir rétt að
vekja á þvi athygli, að alveg eins
hús, byggð eftir sömu teikn-
ingum, voru boðin kaupendum á
Suðurnesjum sl. haust fyrir ná-
kvæmlega einnar milljón króna
hærra verð, en við seldum Sæ-
bólshúsin. Þó munu Suðurnesja-
húsin ekki hafa verið jafn mikið
frágengin og húsin hér, en auk
fyrr talins frágangs á húsunum
hér, fylgir bílskúr hverju þeirra.
— Hvort framhald verður á frek-
ari byggingum á vegum Sæbóls
s.f., hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um, og er þar fyrst og fremst
hinn gífurlega hækkaði bygg-
ingarkostnaður og skortur á fram-
kvæmdafé, sem þvi veldur. Ekki
er þó þvi að neita, að enn er hér
mikil þörf á íbúðarhúsnæði og fer
vaxandi, m.a. vegna þess, að vænt-
anlegur er síðar á árinu nýr skut-
togari, sem nú er í smíðum hjá
Stálvík h.f.
Fyrir skömmu síðan varð sú
breyting á hér, að mjólkursam-
lagið sem starfað hefur hér und-
anfarin ár, hefur verið lagt niður
og öll starfsemi þess flutt inn í
Búðardal og er mjólkinni ekið
þaðan til kauptúnanna á Snæ-
fellsnesi. Ekki er vitað, hvað um
stöðvarhús mjólkursamlagsins
hér verður, en það er eign Mjólk-
ursamsölunnar i Reykjavik og
hefur verið auglýst til sölu, svo og
íbúðarhús, sem áður var heim-
kynni framkvæmdastjóra stöðv-
arinnar hér.
Á nýliðnum vetri var keypt
hingað ný hafnarvog og við hana
byggt nýtt hús, en með tilkomu
þess hverfa bárujárnsskúrar á
brott af hafnarsvæðinu, en þeir
hafa verið harla lítið augnayndi.
Um næstu helgi ganga Grund-
firðingar til kosninga eins og aðr-
ir þéttbýlisstaðir á landinu. Þrír
listar komu fram, það er sjálf
stæðismenn, Alþýðubandalagið
og Framsóknarflokkur. Ekki
verður fréttaritarinn var við mik-
inn glímuskjálfta í mönnum, og
virðist allt fara fram með mikilli
ró og spekt.
Sá maður, sem gegnt hefur
sýslunefndarstarfi fyrir þetta
sveitarfélag um margra áratuga
skeið, Bjarni hreppstjóri Sigurðs-
son á Berserkseyri, gefur nú ekki
lengur kost á sér til sýslunefndar
enda maður fullorðinn. — Það
mun hins vegar vera allra manna
mál, hvar í flokki sem þeir eru, að
þeir þakka Bjarna frábær störf á
þessum vettvangi sem öðrum, en
hann hefur víða lagt góðum mál-
um lið.
E.M.