Morgunblaðið - 07.06.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1974, Blaðsíða 1
36 SIÐUR Ólafur V Noregskonungur heimsótti Akureyri í gær- dag og var þá þessi mynd tekin. í fylgd með konungi eru frá vinstri: herra Kristján Eldjárn, Frydenlund, utanríkisráðherra, frú Halldóra Eldjárn, Bjarni Einarsson, bæjarstjóri og Jón G. Sólnes, forseti bæjar- stjórnar Akureyrar. Aftast gengur Einar Ágústsson, utanríkisráðherra. — Sjá fréttir á bls. 2. Stríðsfangaskiptiim lokið Gleðigrátur og dans í Damaskus og Tel-Aviv Arafat vill fara til Genfar Damaskus og Tel-Aviv, 6. júní, AP — NTB. ÍSRAELAR og Sýrlend- ingar dönsuðu og grétu af 30 ár frá innrásinni Normandie Ste.Mere Eglise, Frakklandi, 6. júní, AP — NTB. BANDAMENN úr heims- styrjöldinni sfðari minntust f dag 30 ára afmælis innrásar- innar f Normandie, D-dags, en þann dag hófst hin mikla og mannskæða innrás, sem leiddi ioks til þess, að Evrópa var frelsuð undan oki nasismans. Dagsins var minnzt með guðsþjónustum í kirkjum í þorpum og bæjum á Normandie, þar sem hermenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Belgíu, Kanada, Hollandi, Noregi og Frakklandi börðust upp á lif og dauða við að ná fótfestu á meginlandinu. Fjöldi fyrrverandi her- manna heimsótti Normandie i dag til að minnast afmælisins. Margir hermenn úr 82. og 101. fallhlífarsveit Bandaríkjahers, sem fyrstir lentu i grennd við Ste. Mere Eglise innrásarnótt- ina, sátu veizlu þar i dag, þar sem þeir rifjuðu upp hina örlagaríku nótt. gleði í dag, er síðustu stríðsfangarnir úr október- stríðinu komu til heima- lands síns með flugvélum frá Tel-Aviv og Damaskus. Alls slepptu ísraelar 367 sýrlenzkum föngum, 10 írakbúum, 5 Marokkó- mönnum og þremur Palestínu-Aröbum. Sýr- lendingar slepptu 56 Israelum. Hundruðir Israela þyrptust út að Rauða kross flugvélinni, sem lenti með striðsfangana á Lod- flugveili, og lyftu mönnunum upp á axlir sér meðan viðstaddir dönsuðu af gleði. Einn stríðsfang- anna ruddi sér braut að Goldu Meir fyrrverandi forsætisráð- herra ísraels og kyssti hönd henn- ar. Yitzhak Rabin forsætisráð- herra og aðrir ráðherrar hurfu hreinlega í mannfjöldann án þess að öryggisverðir fengju að gert. Striðsfangarnir vissu ekki, að Meir hefði látið af embætti for- sætisráðherra. Engar ræður voru haldnar, því að Rabin hafði lýst því yfir, að engin orð næðu yfir þessa merku stund. Ástandið á flugvellinum í Damaskus var ennþá verra. Þar ruddust þúsundir æstra Sýrlend- inga gegnum gaddavírshindranir og sveit fallhlífahermanna, er risaþotan, sem flutti fangana frá lsrael, lenti. Varð flugmaðurinn að snarhemla á miðri flugbraut- inni vegna mannfjöldans, sem hljóp yfir flugbrautina á móti vél- inni. Slökkvibifreiðar reyndu að hafa hemil á mannfjöldanum með því að dæla á hann úr háþrýsti- slöngum, en allt kom fyrir ekki, fólkið, sem hafði beðið i 4 hlukku- stundir í steikjandi hita eftir flug- vélinni, var bara þakklátt fyrir kalt vatnið. Hálfa klukkustund tók að koma landganginum að þotunni. Eftir langa mæðu tókst að koma föng- unum uin borð i bifreiðar, sem fluttu þá á sjúkrahús i læknis- rannsókn. Einn striðsfanganna sakaði Israela um misþyrmingar, en talsmaður Israela neitaði ásök- unum og benti á, að fulltrúar Rauöa krossins hefðu heimsótt fangana reglulega án þess að bera fram kvartanir. Friðargæzlusveitir S.Þ. hófu í dag störf við vopnahléslinuna i Golanhæðum og eru þegar komn- ir þangað 1000 hermenn af þeim 1250, sem gert er ráð fyrir að Framhald á bls. 20. Yfirlýsingin i dag var iesin upp af Kaunda forseta Zambíu í stjórnarráðinu i Lusaka. að við- stöddum fulltrúum beggja aðila, en strax á eftir hélt portúgalska sendinefndin undir forsæti dr. Marios Soares utanrikisráðherra áleiðis heim til Lissabon. I vfir- lýsingunni sagði. að viðræðurnar hefðu verið opinskáar og vinsam- legar. Antonio Spinola forseti Portúgals sagði í ræðu i borginni Evora í dag, að hann hefði fengið mörg hótunarbréf frá öfgahre.vf- ingum í landinu um. að hann vrði tekinn af lífi. Spinola sagðist ekki óttast þessi bréf, því að ..getur nokkur Portúgali farið fram á meiri heiður en fá að láta lifið fyrir. frelsi fólksins?" Var Spinola ákaft fagnað. er hann sagöi þetta. Rannsóknarkviðdómur: Nixon þátttakandi í W atergatesamsærinu Washington, 6. júní, AP — NTB. JAMES St. Clair lögfræðingur Nixons Bandarfkjaforseta stað- festi í dag fregnir bandarfsku stórblaðanna Washington Post og Los Angeles Times, um, að rann- sóknarkviðdómurinn, sem rann- sakaði Watergate-innbrotið hefði nefnt Nixon forseta sem þátttak- anda í samsæri um að hvlma yfir innhrotið, án þess að ákæra hann. Blöðin sögðu, að kviðdóinendur hefðu í f.vrstu viljað ákæra forset- ann, en fallið frá því, er Leon Jaworski ákærandi í Watergate- málinu skýrði þeim frá því, að lagaleg vandamál gætu komið upp ef forseti yrði ákærður í sakamáli. Þetta gerðist i febrúar sl., en ekki hefur verið frá því skýrt fyrr en nú. St. Clair sagði, að Jaworski hefði skýrt sér frá niðurstöðu kviðdómsins fyrir þremur vikum. Aðspurður um viðbrögð forsetans sagði St. Clair, að forsetinn hefði sagt, að kviðdómendur vissu auð- sýnilega ekki allan sannleikann. Forsetinn væri einnig viss um, að hann yrði algerlega hreinsaður af öllum grun, er allar staðreyndir lægju fyrir. Hinn kunni bandariski dálka- höfundur Jaek Anderson sagði í dag í Washington Post, að tilgang- urinn með Watergate-innbrotinu hefði verið að komast að fyrirætl unum Edwards Kennedys i sam- bandi við forsetakosningarnar 1972. Segir Anderson, að Nixon hafi ætíð talið Kennedy helzta keppinaut sinn og hann hafi ótt- azt, að George McGovern myndi á síðustu stundu draga sig i hlé til þess að opna leiðina fyrir útnefn- ingu Kennedys. Stjórnmálafréttaritarar velta nú mjög fyrir sér, hvaða áhrif ferðir Nixons forseta til Miðausturlanda og Moskvu í þessum mánuði kunni að hafa á Watergatemálið og rannsókn dómsmálanefndar þingsins á hugsanlegri málshöfð- un á hendur forsetanum. Benda fréttaritararnir á, að gagnrýnend- ur Nixons hafi alltaf farið mildari höndum um hann i sambandi við utanrfkismál en innanríkismál. Eru flestir sammála um, að ferðir Nixons muni bæta hag hans heima fyrir, en á engan hátt hafa áhrif á væntanlegar niðurstöður fyrrnefndra rannsókna. Portúgal: Friðarvið- ræðunum frestað Lusaka, Zambíu, 6. júni, AP—NTB. VIÐRÆÐUM fulltrúa stjórnar Portúgals og fulltrúa frelsis- hrevfingarinnar í Mosambique lauk í Lusaka, höfuðborg Zambíu, í dag án þess að samkoinulag um vopnahlé næðist, en ákveðið var að halda viðræðuin áfram í næsta mánuði. I sameiginlegri yfirlýsingu, sem gefin var út að íundinum loknum, sagði, að samning um vopnahlé yrði að byggja á stjórnmálalegum grundvallarreglum. Ennfremur sagði, að portúgalska sendinefnd- in teldi nauðsynlegt að svo komnu máli að fara heim til að ráðgast við stjórnina um þau mál. sem rædd hefðu verið á fundum sendi- nefndanna. Þá kemur fram í yfir- lýsingunni, að framhald viðræðn- anna muni fara mjög eftir niður- stöðum viðræðna fulltrúa Portúgalsstjórnar við sendinefnd þjóðernissinna frá Portúgölsku Gineu, en þær viðræður hefjast i London innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.