Morgunblaðið - 07.06.1974, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.06.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974 Fa /1 Itíl. t l.í li.X V 4 LUUl' 22-0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR iHverfisgötu 18g SENDUM 0 27060 /pt BÍLALEIGAN V&IEYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIOIMŒŒR ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI FERÐABILAR HF. Bílaleiga — Sími 81 260 Fimm manna Citroen G.S. station. Fimm manna Citroen G S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m bílstjór- um). SKODA EYÐIR MINNA. Shodb LfíOAH AUÐBREKKU 44-46. SiMI 42600. Bílaleiga CAR RENTAL Sendum 41660 -42902 Að spara með smjöri Að undanförnu hefur verið einkar fróðlegt að fylgjast með stjðrnmálaskrifum ritstjóra Tímans. Þó að efnahagsmáia ringulreið vinstristjórnar- innar sé f raun réttri eitt alvar- iegasta vandamái, sem þjóðin hefur átt við að glíma á þessu sviði, er háif kátlegt að horfa upp á talsmenn stjórnarinnar syngja henni lof og dýrð fyrir svonefndar bráðabirgðaráð- stafanir til viðnáms gegn verð- bólgu. Engu er líkara en að ritstjórar Tímans haidi sjálfir, að hér sé um raunverulegar efnahagsráðstafanir að ræða. Halda mætti, að þessir tals- menn stjórnarinnar gerðu sér ekki grein fyrir þvf, að hvert mannsbarn veit, að hér er ein- ungis um að ræða auðvirði- legan sjónleik. Raunverulegum aðgerðum er frestað fram yfir kosningar; þá fyrst á fólkið að fá að kenna á afleiðingum efnahagsringulreiðar vinstri- stjórnarinnar. Þetta er gert með því að ausa fjármagni úr gaitómum ríkissjðði. Einstakl- ingar, sem gefa út innstæðu- lausar ávfsanir, sæta þungum viðurlögum. Hins vegar ná eng- in lög yfir fjármálaráðherra, sem gefur út innstæðuiausar ávfsanir á rfkissjðð. Iionum er ekki unnt að refsa nema með þvf eina mðti að koma í veg fyrir að unnt verði að mynda vinstri stjðrn að kosningum ioknum. Eftir að vinstri stjórnin missti endanlega þingmeiri- hiuta sinn, reyndi Ólafur Jðhannesson að þvinga stjórn- arandstöðuflokkanna til sam- starfs við sig, ella mundi hann rjúfa þing. Auðvitað kom ekki til máia að ganga að slfkum afarkostum, enda var forsætis- ráðherrann þá löngu rúinn öllu trausti þings og þjóðar. Við þessar aðstæður var hið mesta ábyrgðarleysi af Ólafi Jðhannessyni að segja ekki þegar f stað af sér. Afleiðingar þingrofsins eru þær, að nú dregst úr hömlu, að unnt verði að gera raunhæfar aðgerðir í efnahagsmálum. Þjððin situr uppi með rfkisstjórn, sem leyf- ir sér að gera sýndarmennsku- ráðstafanir einar, þegar mest liggur við að gera skjótt raun- hæfar aðgerðir. Ólafur Jðhannesson valdi hins vegar þann kost, sem þjónaði bezt hans eigin póli- tfsku hagsmunum, en skeytti engu um brýna hagsmuni þjóðarinnar. Afleiðingin er sú, að nú Ifða mánuðir áður en unnt er að gera þær ráðstafan- ir, er duga. Ólafur knúði hins vegar fram kosningar, áður en holskeflan sjálf ríður yfir. Þannig ætlar hann að reyna að bjarga eigin skinni. Meðan Ólafur Jóhannesson kemur þannig f veg fyrir, að ábyrg stjórnmálaöff snúi við blaðinu f efnahagsmálum, er þjóðin látin spara með þvf að kaupa fremur smjör en smjör- Hki og kartöflur á verði, sem rétt hrekkur fyrir umbúð- unum. Auðvitað er það óskammfeilni að halda þvf fram, að hér sé um að ræða ábyrgar aðgerðir. Flestum, — jafnvel framsðknarmönnum — þykir það kynlegt, þegar ríkis- stjórnin krefst þess, að fólkið spari með þvf að kaupa fremur dýrar neysluvörur en ódýrar. Nýstárleg hugmynd Hugvitsamur ritstjóri Alþýðublaðsins hefur enn fundið haldreipi fyrir Alþýðu- flokkinn tii þess að hanga f f næstu kosningum. I ritstjórnar- grein Alþýðublaðsins í gær er farið mörgum orðum um endurskoðun stjórnarskrár- innar. Þar segir að Alþingi og stjórnmálaflokkarnir hafi aigerlega brugðizt f stjórnar- skrármálinu í 30 ár og hafi mörgum áhugamanni um stjðrnskipun blöskrað þetta. En Aiþýðublaðið hefur lausn á reiðum höndum og skýrir frá þvf, að varaformaður Alþýðu- flokksins hafi gert að tillögu sinni, að sett verði á fót sér- stakt stjórnlagaþing, hvorki meira né minna. Og ritstjðrinn segir: „Hér er um að ræða snjaila og nýstárlega hugmynd, sem mikil ástæða er til að gaumgæfa ftarlega." Sannleikurinn er hins vegar sá, að hugmyndin er svo nýstárleg, að hér á iandi lögðu fram- sðknarmenn hana á hilluna fyrir áratugum. Ritstjðrinn þyrfti endilega að finna snjallari og nýstárlegri hug- myndir en þetta til að bjarga flokknum. spurt og svarad Hringlð í sima 10100 kl 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Les- endaþjónustu Morgunblaðs- 1 Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS1 ins. Rúnar Valdimarsson, Skipa- sundi 81, Reykjavík, spyr: ,,Það kom fram í Mbl. fyrir nokkru undir fyrirsögninni ,,Græn bylting", að silungur i Rauðavatni væri allverulega sýktur. Þarna er talsvert veitt, en margur hefur hætt því, vegna fyrrgreindrar greinar Mhl. Er silungurinn hættulegur til átu?“ Jón Kristjánsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun- inni, svarar: ,,Fiskurinn í Rauðavatni er talsvert sýktur af fiski- bandormi og bandormalirfum. Þessir bandormar eru mjög al- gengir í silungi hérlendis, en misjafnt er hve sýkingin er mikil. Lífsferill bandormanna er sá, að fullorðnu ormarnir lifa i þörmum fugla sem éta silunga og hornsýli, t.d. máva, him- brima, lóma og fiskianda. Egg bandormsins koma út með saur fuglanna og eru étin af örsmá- um krabbadýrum, svifi, sem eru svo aftur étin af vatnafisk- um. Lirfurnar skriða svo úr þörmum fiskanna og út í kviðarholið, þar sem þær setj- ast að utan á ýmsum liffærum og mynda um sig hvít hylki. Fuglar éta síðan fiskana, og þar þroskast lirfurnar í fullorðna bandorma. Sníkjudýrin draga talsvert úr þroska fiskanna. Óhætt er að borða fiskinn soð- inn. Erfitt er að benda á framkvæmanleg ráð til að losna vió sníkjudýrin, en sé fiskur slægður við vatnið, ber að ganga þannig frá innyflum, að fuglar eða aðrir fiskar nái ekki í þau. í ofsetnum vötnum, eins og t.d. Rauðavatni, er sýking af völdum bandorma oft mikil, vegna þess að fiskurinn neyóist til að lifa meira á svifi en hon- um er eðlilegt.“ Þórður Óskarsson, Vitastíg 2, Akranesi, spyr: „Ætlar bæjarstjórn Akranes að láta framkvæma þá sam- þykkt, sem hún hefur gert, að ferjubryggja verði gerð við aðalhafnargarðinn á Akranesi, þótt allir aðilar, tengdir sjávar- útvegi á Ákranesi, hafi eindreg- ið mótmælt þeirri fram- kvæmd?" Gylfi Isaksson, bæjarstjóri á Akranesi, svarar: „Nei, eftir ítarlega athugun bæjarstjórnar, hafnarstjórnar og Vitamálastofnunarinnar, hefur verið ákveðið aó byggja ferjulægi í innri höfninni á Akranesi." ÞORIR S. GUÐBERGSSON: Stavanger í maí ARIÐ 1969 varð meðal annars gerð könnun á því hér í Noregi hversu mikill hluti kjósenda voru meðlimir í einhverjum stjórnmálaflokkanna. I ljós kom, að 16% voru félagar í einhverjum stjórnmálaflokki, 36% tilheyrðu stéttarfélögum og 47% einhverjum öðrum félagsskap. En svo kom einnig í ljós, að aðeins um 4% tóku virkan þátt í starfseminni inn- an stjórnmálaflokksins, en 22% virkan þátt í öðrum eða annars konar félagsskap. Hvað veldur því, að þátttaka í stjórnmálaflokkunum er svo rýr? Er fólkið leiðinlegra eða þarf meiri hæfileika og þarf að uppfylla önnur skilyrði til þess að geta tekið verulega virkan þátt í stjórnmálum? STJÓRNMÁLAMENN FORNALDAR „Prófessorar fornaldar“ voru gömlu sófistarnir kallaðir, sem ferðuðust um til þess að kenna og höfðu það þá meðal annars að markmiði að „búá ti!“ stjórn- Hverjir stjórna málamenn. Hvaða skilyrði þurftu þeir að uppfylla til þess að ná langt á þeirri braut? Þeir þurftu fyrst og fremst að hafa menntun, þeir þurftu að vera vel færir í rökfræði og mælsku- list og auk þess að hafa þekk- ingu á lögum, hagfræði, at- vinnu og háttum þjóðfélagsins. Segja má, að þessu sé mjög líkt farið á okkar dögum. Fáir ná langt á þessu sviði án mennt- unar, sem ein nægir þó engan veginn til framgangs. Það þarf meira til en menntun eina. Eng- inn kemst framarlega í stjórn- málum, ef hann tilheyrir ekki neinum stjórnmálaflokki og til þess að svo megi fara, þarf hann að hafa áhuga á stjórn- málum og geta gert sér grein fyrir öllu því, sem þar gerist leynt og ljóst. 1 Apenu lögðu menn mikla áherslu á „heilbrigða sál í hraustum líkama" og þeim var oft mest hampað þar sem þetta tvennt fór saman, viturleiki og líkamlegir yfirburðir. Og þó að ekki sé vegið og metið í dag, hvort stjórnmálamennirnir geti stokkið hæð sína í öllum her- klæðum eða ekki, skiptir líkam- legt afl og hæfileikar miklu. Engum dylst, að stjórnmála- menn þurfa helst að vera góð- um hæfileikum búnir bæði and- legum og líkamlegum, ef þeir eiga að standast þá eldraun, sem því fylgir oft að standa í „stjórnmáiastríðinu". Menntun og mælska skipta miklu, fram- koma og útlit skipta oft miklu ásamt efnahag og þjóðfélags- legri aðstöðu. Flestir sem taka þátt í kosn- ingum gera það til þess að hafa áhrif bein eða óbein á kjör full- trúa og almennar ákvarðanír og stefnu. Hverjir stjórna. Flestir þeirra, sem taka virk- an þátt í stjórnmálum vilja reyna að hafa áhrif á framtíðar- áform og velferð þjóðfélagsins. Það er greinilegt af því, sem áður hefur verið sagt, að eins og málum er háttað í dag er útilokað að allir geti tekið veru- legan þátt i stjórnmálabarátt- unni, þó aö sjálfsagt sé að not- færa sér þann rétt, sem vió höf- um við kosningar og önnur tækifæri eins og vikið verður að síðar. Frá skaparans hendi eru mennirnir ólíkir, sumir litli’r, aðrir stórir, sumir hvftir, aðrir svartir, sumir heilbrigðir, aðrir veikir á einn eða annan hátt. Stjórnmálamönnum hættir þvi miður oft til þess að gleyma „hinum hljóðlátu" í Iandinu, þeim sem litil eða engin tæki- færi hafa til þess að segja álit sitt og hafa e.t.v. litla hæfileika til þess að koma skoðunum sín- um á framfæri. Það hlýtur að teljast eðlilegt í nútíma sam- félagi, að hinn þögli einstakl- ingur gleymist ekki, að hann hljóti þá menntun og upplýs- ingar, sem þarf til þess að lifa mannsæmandi lífi, svo að hann finni að hann hafi eitthvert gildi, sé einhvers virði. Ef menn eru yngri en 20 ára og eldri en 67 ára er varla hlust- aó á þá og hver þekkir ekki aðstöðu hins sjúka, fangans, drykkjumannsins, öryrkjans og aldraða fólksins. Margt gott hefur verið gert á undanförn- um árum og fyrir það her að þakka, en mörg verkefni eru enn óleyst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.