Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNl 1974 Vilborg kjör- in formaður AÐALFUNDUR Rithöfundafé- lags Islands sem haldinn var í Norræna húsinu 23. maí sl. lýsti ánægju sinni yfir nýstofnuðu stéttarfélagi rithöfunda, Rithöf- undasambandi Islands, og sam- þykkti einróma tillögu rithöf- undaþings um Rithöfundaráð. Stjórn Rithöfundafélags is- lands skiþa nú þessir menn: Vilborg Dagbjartsdóttir formað- ur, Elías Mar varaformaður, Ing- ólfur Jónsson frá Prestsbakka rit- ari, Einar Ólafsson gjaldkeri og Ölafur Haukur Simonarson vara- ritari. —---♦ ♦ ♦•-- Mótmæla ákvörðun útvarpsráðs FRAMBJOÐENDUR Lýðræðis- flokksins í Reykjavík, Jörmundur Ingi Hansen og Einar G. Harðar- son, hafa ritað menntamálaráð- herra opið bréf, þar sem þeir lýsa yfir því, að þeir geti ekki sætt sig við meginhluta ákvarðana út- varpsráðs um tilhögun útvarps- og sjónvarpsefnis vegna alþingis- kosninganna 30. júní. Þeir félagar gagnrýna í bréfi sínu mjög, að framboöslistum við alþingiskosningarnar sé mismun- að og þeir flokkar, sem bjóða ekki fram í öilum kjördæmum, skuli fá skemmri tíma til þess að kynna stefnu sína en aðrir flokkar. Þá gagnrýna þeir og, að í þáttum. þar sem írambjóðendur sitja fyrir svörum. þar sem hringborðsum- ræður fara fram og í „eldhúsdags- umræðum" í hljóðvarpi, sé alls ekki gert ráð fyrir þátttöku þeirra flokka, sem ekki bjóða fram í öllum kjördæmum, og segjast þeir ekki skílja þá niðurstöðu út- varpsráðs, að þessir flokkar eigi ekki erindi til kjósenda eins og hinir. Þetta opna bréf barst Mbl. í gær og sér það ekki ástæðu til að birta það i heild. enda stendur það þeim fréttamiðlum nær, sem bréf- ið fjallar um. LAXARNIR LEKU LISTIR SIN- AR FYRIR NOREGSKONUNG Frá laxeldisstöðinni f Kollafirði. eru forseti Islands, herra Laxarnir stökkva til heiðurs Kristján Eldjárn, og Þór konungi. Með honum á myndinni Guðjónsson veiðimálastjóri. F jölmenni við komuna til Akureyrar peninga um 75 ára afmæli skóg- ræktar á isiandi. Voru peningarn- ir úr silfri og bronsi og sagði Hákon Bjarnason i gamni, að þeir skógræktarmenn hefðu því miður ekki haft efni á að láta steypa þá í gull. Vakti gamansemi Hákons hlátur viðstaddra og tók konung- ur við gjöfinni með þökkum. Var Ölafi konungi siðan sýnd skógræktarstöðin og fór Haukur Ragnarsson skógfræðingur með honum. Sýndi konungurinn, sem er þekktur áhugamaður um skóg- rækt og landvernd, stöðinni mik- inn áhuga og spurði margs, þegar gengið var um gróðurhús staðar- ins. Að lokinni heimsókninni að Mógilsá var haldíð í laxeldisstöð- ina í Kollafirði, sem er kippkorn frá skógræktarstöðinni. Þar tóku á mðti þjóðhöfðingjunum Þór Guðjónsson veiðimálastjóri, Svan- björn Frímannsson fyrrverandi seðlabankastjóri, Sigurður Þórð- arson stöðvarstjóri og fleiri. Var gengió um stöðina og tók Noregs- konungur sér góðan tima til að virða fyrir sér það, sem þar var að sjá, og var greinilega hrifinn. Gengu gestirnir einnig niður að útitjörnunum við stöðina, þar sem verið var að fóðra fisk á ýmsum aldri. Lék laxinn listir sínar i þakklætisskyni. Ur Kollafirði var á ný ekið til Reykjavíkur, en á hádegi sat kon- ungur ásamt islenzku forseta- hjónunum hádegisverðarboð Reykjavíkurborgar á Kjarvals- stöðum, þar sem voru meðal annarra nýkjörnir borgarfulltrú- ar og margir fleiri gestir. Vel heppnuð heimsókn á Akureyri Um miðjan dag héldu konungur og föruneyti hans i flugvél til Akureyrar. Var lent á Akureyrar- flugvelli f björtu veðri, en heldur Framhald á bls. 20. ÓLAFUR Noregskonungur hélt í gærmorgun f fylgd forséta ís- lands og landbúnaðarráðherra í skógræktarstöðina að Mógiisá f Kollafirði. Með I förinni voru einnig norskir f.vlgdarmenn kon- ungs og íslenzkir embættismenn. Við skógræktarstöðina tóku á móti gestunum Hákon Bjarnason skógræktarst jóri, Hákon Guð- mundsson formaður Skógræktar- félags tslands og aðrir stjórnar- menn í Skógræktarfélaginu. Var konungi f.vrst sýndur áletraður steinn á hlaðinu, þar sem segir, að stöðin sé b.vggð f.vrir gjafafé norsku þjóðarinnar. Eins og kunnugt er færði Óiafur Noregs- konungur islenzku þjóðinni eina milljón norskra króna frá Norð- mönnum við komu sfna hingað 1961 og skvldi fénu varið til skóg- ræktarmála. Var þremur fjórðu hlutum fjárins varið til að reisa stöðina að Mógilsá, en afgangnum til að stofna sjóð til eflingar sam- starfi þjóðanna á þessu sviði. Stöðin var formlega vfgð 1967 I ferð Haralds rfkisarfa til landsins. I skógræktarstöðinni flutti Hákon Bjarnason skógræktar- stjóri skemmtilega ræðu, sem konungur kunni vel að meta. Við lok ræðu sinnar færði skógrækt- arstjóri konungi tvo nýja minnis- 6 fundir sjálfstæðismanna á Austurlandi SJALFSTÆÐISFLOKKURINN á Austurlandi efnir til 6 funda með stuðningsmönnum flokksins f þingkosningunum 30. júnf n.k. nú um helgina og mæta á fundunum þeir Geir Hallgrfmsson formaður Sjálfstæðisflokksins, Sverrir Her- mannsson, sem skipar efsta sæti á framboðslista flokksins f kjör- dæminu, og Pétur Blöndal fram- kvæmdastjóri, sem skipar 2. sæti framboðslistans. Fyrsti fundurinn er í Neskaup- stað í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30. Á laugardagsmorgun kl. 10.00 verður fundur á Eskifirði, á laugardag kl. 14.00 verður fundur á Reyðarfirði og kl. 17.00 á Egils- stöðum og á Seyðisfirði veróur fundur á laugardagskvöld kl. 20.30. Sfðasti fundurinn verður svo á Fáskrúðsfirði kl. 10.00 á sunnudagsmorgun. Sem fyrr segir er allt stuðnings- fólk Sjálfstæðisflokksins f þing- kosningunum velkomið á þessa fundi. Ekki mistök lögregl- unnar - segir lög- reglustjóri VEGNA fréttar i Morgunblað- inu í gær þess efnis, að lög- reglumenn hafi vísað blaða- ljósmyndurum úr anddyri Hót- el Sögu, hefur lögreglustjóri haft samband við blaðið, og skýrt frá því, að lögreglumenn hafi farið nákvæmlega eftir þeim reglum, sem settar voru af hálfu utanríkisráðuneytis- ins, og voru þær f samræmi við þær reglur, sem áður hafa gilt. Hafi mistök orðið, eru þau ekki lögreglumönnum að kenna. Morgunblaðinu er ljúft að- birta þessa athugasemd lög- reglustjóra, en umsögn blaða- manns þess var einungis til þess ætluð að skýra lesendum frá því, hvers vegna engar ijós- myndir birtust úr forseta- veizlu að venju, en ekki að beina neinuin spjótum sérstak- lega að lögreglunni í Reykja- vík. D-lista skemmt- un í Kópavogi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN 1 Kópavogi efnir til skemmtunar fyrir starfsfólk og stuðningsmenn f nýafstöðnum bæjarstjórnar- kosningum í kvöld kl. 21.00 f Félagsheimili Kópavogs, efri sal. Ómar Ragnarssom skemmtir. Rómantrfó leikur fyrir dansi. Miðar verða afhentir f Sjálfstæðishúsinu, Borgarholtsbraut f dag kl. 9—6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.