Morgunblaðið - 07.06.1974, Side 18

Morgunblaðið - 07.06.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7, JUNI 1974 ' ''cefandi Frarr*'v~'>n»f» Ritstjórar R itstjórna rf u II trúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sími 10 100. Aðalstræti 6. simi 22 4 80. Áskriftargjald 600.00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 35,00 kr. eintakið. Samkvæmt tölvuút- reikningi hlaut Sjálf- stæðisflokkurinn rúmlega 50% allra greiddra at- kvæða í sveitarstjórna- kosningum 26. maí s.l. Sú fylgisaukning, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hlaut í þeim kosningum var að sjálfsögðu mikil trausts- yfirlýsing kjósenda, en jafnframt fólst í þessu mikla atkvæðamagni óum- deilanlegt vantraust kjós- enda á vinstri stjórn. Þrátt fyrir það er augljóst, að vinstri flokkarnir stefna markvisst að því að endur- nýja stjórnarsamstarf sitt að kosningum loknum. Morgunblaðið hefur að undanförnu vakið athygli á, að eina örugga leiðin til þess að koma í veg fyrir, að vinstri stjórn haldi áfram í landinu aö kosningum loknum er sú, að kjósendur efli Sjálfstæðisflokkinn með sama hætti og þeir gerðu í sveitarstjórnakosn- ingunum um daginn. En eðiilegt er að kjósendur spyrji hver verði höfuðmál Sjálfstæðisflokksins að kosningum loknum, sýni kjósendur honum það traust að fela honum stjórnarforystu á ný. Ætla má, að Sjálfstæðis- flokkurinn muni í þessari koaningabaráttu leggja höfuðáherzlu á þrjú mál- efni, auk þess að koma vinstri stjórninni frá völd- um. í fyrsta lagi mun Sjálf- stæðisflokkurinn leita eftir trausti kjósenda til þess að fylgja fram þeirri stefnu í rikisstjórn og á Alþingi, að varnir landsins verði tryggðar með áframhald- andi dvöl varnarliðsins enn um sinn. Við varnarmálin hefur vinstri stjórnin skilið á þann veg, að þeir flokkar, sem að stjórninni stóðu i upphafi, komust að samkomulagi um svonefnd- an umræðugrundvöll, sem nú hefur verið lagður fyrir Bandaríkjastjórn og er það til meðferðar. Samkvæmt þessum sameiginlegu til- lögum vinstri flokkanna á bandaríska varnarliðið að vera horfið af landi brott að mestu fyrir árslok 1976 og Atlantshafsbandalagið aðeins að hafa minniháttar og ófullnægjandi aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Fyrir- sjáanlegt er, að komist vinstri flokkarnir til valda á ný, munu þeir fylgja fram þeirri stefnu að vísa varnarliðinu úr landi. Sjálfstæðisflokkurinn er algjörlega andvígur þess- ari stefnu í öryggismálum þjóðarinnar. Sjálfstæðis- flokkurinn er fylgjandi þeirri stefnu, sem fram kom í áskorun tæplega 56.000 íslenzkra kjósenda til þings og ríkisstjórnar um að varnir landsins verði áfram tryggðar með dvöl bandaríska varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. Sjálfstæðisflokkurinn mun í þessum kosningum leita eftir trausti kjósenda til þess að fylgja fram þeirri stefnu. En menn verða að gera sér grein fyrir því, að úrslitaorrustan um varnir Islands stendur í þessum þingkosningum. Takist vinstri flokkunum að merja 32ja þingsæta meiri- hluta munu þeir reka varn- arliðið úr landi. Þess vegna þarf Sjálfstæðisflokkurinn að vinna nægilega stóran sigur í þingkosningunum til þess að koma í veg fyrir, að slíkur vinstri meirihluti verði til staðar á Alþingi. Og til þess að svo megi verða þurfa fjölmargir kjósendur, sem ekki hafa áður komið til liðs við flokkinn að veita honum stuðning í þessum kosn- ingum. 1 öðru lagi mun Sjálf- stæðisflokkurinn leggja áherzlu á það í þessari kosningabaráttu og í ríkis- stjórn, fái hann til þess traust, að ráða fram úr því öngþveiti í efnahags- og at- vinnumálum þjóðarinnar, sem vinstri stjórnin hefur kallað yfir okkur með stjórnleysi. Það er athygl- isverð staðreynd, að þrátt fyrir gott bú, sem vinstri stjórnin settist í og gífur- lega hækkun afurðaverðs á erlendum mörkuðum og metafla ár eftir ár, er nú svo komið, að vinstri stjórnin hefur rýrt kjör launþega stórlega með því að taka af þeim þúsund Baráttumál Sjálfstæðisflokksins milljónir, sem þeir áttu að fá í hækkuðum launum um síðustu mánaðamót og at- vinnuvegir þjóðarinnar eru á heljarþröm, gífurleg- ur taprekstur hvert sem litið er. Það verður ekki öfundsvert hlutskipti að ráða fram úr því öngþveiti í efnahagsmálum, sem við blasir. En sjálfstæðismenn hafa nokkra reynslu af því. Þegar vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum í desember 1958 kom það í hlut Sjálfstæðisflokksins að moka þann flór, sem hún skildi eftir sig — og allt viðreisnartímabilið hélzt mjög viðunandi jafn- vægi í efnahagsmálum. Ljóst er að það þarf sterka stjórn til þess að ráða við vandann nú og einungis Sjálfstæðisflokkurinn get- ur veitt þá sterku forystu sem þarf. I þriðja lagi mun Sjálf- stæðisflokkurinn í þessum kosningum leita eftir fylgi kjósenda til þess að fylgja fram þeirri stefnu í land- helgismálinu sem þing- flokkur sjálfstæðismanna markaði s.l. haust, er flutt var tillaga um útfærslu ís- lenzku fiskveiðilögsög- unnar í 200 sjómílur fyrir næstkomandi áramót. Þró- unin á alþjóðavettvangi síðan hefur sýnt, að þessi stefna Sjálfstæðisflokksins er rétt. Um þessi höfuðmál verður barizt í kosning- unum nú og um þau verður kosið. Fórna Rússar o Nixon í Ford GETUR verirt að Rússar hug- leiði að kasta Nixon fyrir róða og koma sér í mjúkinn hjá Ger- ald Ford varaforseta? í athyglisverðu viðtali við John Oshorne. í New Republic sem Ford segist ekki hafa ætl- azt til að birtist á prenti. hefur varaforsetinn lýst þeirri ríkis- stjórn, sem vera má að hann m.vndi, ef Nixon hverfur af sjónarsviðinu. Ef Ford verður forseti getur verið að hann losi sig við James Schlesinger land- varnaráðherra — þann mann sem Rússar álíta illan anda Nixon-stjórnarinnar, þann mann sem standi í vegi fyrir því að friðsamleg samhúð kom- ist á betri rekspöl. Rússar eru greinilega að endurskoða afstöðu sína til Nixonst jórnarinnar. Topp- fundur er ennþá ráðgerður í Moskvu I júní, en afstaða Gromykos utanrfkisráðherra í Washington á dögunum leiddi I Ijós að ekkert raunverulegt samkomulag um takmörkun kjarnorkuvfghúnaðar er á næstu grösum. Athugun sem væri gerð í Kreml á þeim möguleikum, sem eru f.vrir hendi, mundi sennilega b.vrja á þvf að spurt væri hvort Rússum væri akkur í þvf að Nixon héldi áfram störfum. Jafnvel þótt hann héldi velli mundi staða hans veikjast til mikilla muna. Hann gæti ekki lengur gert meiri- háttar samninga um takmörk- un vopnabúnaðar, viðskipti og því um líkt, sem hefur gert stjórn hans svo vinsæla f Moskvu. En ef Ford yrði forseti gæti hann byrjað upp á nýtt — og Ford hefur sagt að hann mundi halda Kissinger. Það yrði Rússum mikils virði. Nixon hefur orðið að fresta greiðslum á pólitískum skuld- um, en Ford gæti greitt Rúss- um nokkrar þeirra. I.angmestu máli skiptir að Ford yrði eðli- legur forsetaframbjóðandi 1976 og þess vegna ginnke.vpt- ari fyrir ísmeygilegum þrýst- ingi og hrossakaupsboðum Rússa, sem nú orðið kunna þá list að nota sér kosningaslaginn f Bandarfkjunum. Sá sem kenndi Rússum list- ina var Nixon sem gerði topp- fundaleiksýningar að innleggi f baráttuna fyrir sfðustu forseta- kosningar. Rússum er nú Ijóst hve mikils virði toppfundir eru forseta, sem er einnig f fram- boði: sjónvarpsfréttirnar, lof- orðið um friðarmannsaldur, samkomulag um takmörkun vopnabúnaðar. Hið nýja friðar- skipulag kom auðvitað einnig við sögu. En Nixon fékk nokkur atkvæði og Rússar fengu bandarfska kornið. sem af- stýrði hugsanlegum matvæla- óeirðum og getur hafa bjargað Brezhnev. Þetta eitt veldur því að Rúss- um væri greinilega hagur í þvf að maðurinn f Hvfta húsinu 1976 gæfi kost á sér til endur- kjörs. En þeim mun meir yrði þeim hagur í því að Henry Jackson öldungadeildarmaður yrði ekki tilnefndur forseta- frambjóðandi demókrata. eftir Victor Zorza Sovézk blöð eru að gefa í skyn að Jackson og Schlesinger hafi nú þegar nógu mikil völd til þess f sameiningu að endur- vekja kalda strfðið, jafnvel þótt Nixon verði um k.vrrt f Hvfta húsinu. Skrif Moskvublaðanna um Jackson gefa til kynna að Rússar telji hann líklegasta — og hættulegasta — forsetafram- bjóðanda demókrata f næstu kosningum. Þau láta að þvf liggja að — ef Jackson verði forseti muni hann ekki aðeins endurvekja kalda stríðið heldur heita strfðið einnig. Kremlverjar telja hann svo mikla ógnun að þeir geta ekki haldið að sér höndum í þeirri von að kannski muni Edward Kennedy öldungadeildarmaður — sem þeir buðu nýlega til Moskvu og léku þar með annan leik í skák sinni gegn Jackson — hljóta tilnefninguna. Ein leiðin til þess að útiloka Jackson væri að stuðla að þvf að Ford kæmist til valda nú og efla hann f.vrir kosningabarátt- una með þegjandi kosninga- hrossakaupum, sams konar þeim sem Rússar og Nixon gerðu 1972. Þvf lengur sem Nixon verður við völd þeim mun Ifklegra er að Jackson komist til valda síðar. Jafnvel þótt annar demókrati hljóti tilnefninguna má vera að Rússar vilji helzt að repú- blikani sé f Hvfta húsinu. Eins og sovézk blöð útskýrðu í síð- ustu kosningum á repúblikani f Hvíta húsinu auðveldara með að slaka til gagnvart Sovét- rfkjunum en demókrati. Þann- ig mundu Rússar halda með Ford á sama hátt og þeir héldu með Nixon en ekki McGovern öldungadeildarmanni. En getur verið að Rússar trúi þvf í alvöru að þeir geti haft áhrif á gang kosninga í Banda- rfkjunum, eins duttlungafullar og þær eru? Við vitum það eitt að þeir hafa revnt að gera það áður. Þeir þurfa ekki að fara f smiðju hjá öðrum til þess að fá hugmyndir. Nixon hefur sjálfur látið svo um mælt að vinsældir Johnsons forseta hafi stóraukizt sam- kvæmt skoðanakönnunum eftir fundinn f Glassboro með Kos.vgin þótt ekkert markvert gerðist á fundinum — og Kremlverjar tóku áreiðanlega eftir ummælum Nixons. Á sfðari árum hafa Kremlverjar tekið þátt í kosningum á Vesturlöndum með þvf að bjóða til sín vestrænum stjórnmálamönnum — eða neita að bjóða þeim á réttum tfma. Löngu áður en Nixon fór til Moskvu til þess að berjast fyrir endurkjöri fór Harold Macmill- an, forsætisráðherra Breta, þangað f sama skyni — og Pompidou forseti fór að dæmi þeirra f.vrir kosningarnar f Frakklandi í fyrra. Nú er Har- old Wilson, forsætisráðherra Breta, að búa sig undir hugsan- legar kosningar og Rússar hafa gefið varlega í skyn að þeir muni ef til vill bjóða honum f heimsókn — ef hann hegðar sér vel og lofar einhverju í staðinn. Krúsjeff hreykti sér af því á sínum tfma að hann hefði stutt John F. Kennedy f forsetastól- inn í afar tvfsýnum kosningum með þvf að ákveða að sleppa bandarískum flugmönnum sem þá voru f haldi í Sovétríkjun- um, þegar hann taldi sig velja til þess þann tfma sem bezt gæti stuðlað að sigri Kennedys. Brezhnev hjálpaði Nixon. Hann mun gera allt sem í hans valdi stendur tii þess að bægja Jack- son burtu. Meðan Rússar héldu að Nixon gæti greitt skuldir sfnar miðaðist framkoma þeirra við það að styðja hann gegn and- stæðingum hans. Breytt fram- koma krefðist ekki breyttrar grundvallarafstöðu, að eins breytingar á mati þeirra á þvf hvort Nixon geti greitt skuldir sfnar — og nú er Ijóst að það getur hann ekki. Rússar vita að með þvf að neita samstarfi við Nixon f Mið- austurlöndum og um takmörk- un kjarnorkuvfghúnaðar, svipta þeir hann sfðustu varnarlfnunni — þeirri rök- semd að hann eigi að fá að halda áfram f embætti til þess að ljúka við friðargerð sfna. Rússar geta ekki einir kastað Nixon fyrir róða, en þeir geta aukið á þrýstinginn á varnar- vegg sem veikist stöðugt. Ýmsar ástæður geta ráðið þvf að Rússar neita samvinnu við Nixon, en ef þeir halda upp- teknum hætti og verða ósam- vinnuþýðir verður ljóst að Rússar hafa ákveðið að kasta Nixon fyrir róða og stuðla að því að Ford verði settur í emb- ætti f þeirri von að þeir græði mest á þvf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.