Morgunblaðið - 07.06.1974, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974
19
Norskt landslag
I síðustu ljóðabók Ivars Org-
lands: Nattstill fjord (Fonna for-
lag 1973) er ljóð, sem nefnist Vi
som diktar om fjell. Upphafið er
þannig:
Kva er det med fjell :
som gjer at vi sá gjerne
vil dikta om dei,
dikta om fjell
og blá vatn,
jamvel om kritikarane sukkar
og avisene stengjer spaltene sine
Ljóðið er vörn skálds, sem
sækir yrkisefni sín til norskrar
náttúru, er bundið landinu sterk-
um böndum. Þrátt fyrir kröfur
um önnur yrkisefni, önnur við-
horf, getur þetta skáld ekki breytt
um stefnu. Framhald Ijóðsins er á
þessa leið:
Tru om det kan vera
av di Noreg
er f jell,
og at vi
som diktar
om fjell og blá vatn,
beintfram ikkje kan anna
av di vi kjenner
og vedkjenner oss
at vi höyrer landet til.
Ivar Orgland yrkir yfirleitt í
hefðbundnu formi þótt hann
bregði stundum út af því og þá
með prýðilegum árangri. En ljóð-
mál hans er ekki nýstáriegt. Hann
temur sér ekki óvænt hugmynda-
tengsl og djarflegar líkingar eins
og módernista er háttur. Yfir ljóð-
um Ivars Orglands er jafnvægi og
ró. Ljóðin í Nattstill fjord eru
mótaðs skálds.
Norsk náttúra, bernskuminn-
ingar og söguleg minning eru
mest áberandi I bókinni. Bókin
hefst á ljóði um hinn friðsæla
fjörð bernskunnar. Skáldið sakn-
ar kyrrðarinnar og hins óbrotna
lífs. I lokaljóðinu samnefndu bók-
inni eru fjörðurinn og farkost-
urinn aftur á móti táknrænnar
Bókmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
merkingar. Róið er út á fjörðinn í
hinsta sinn í átt til landsins, sem
enginn á afturkvæmt frá.
Nattstill fjord minnti mig á
Fljótið helga eftir Tómas Guð-
mundsson. Hjá Orgland gegnir
fjörðurinn sama hlutverki og
fljótið hjá Tómasi. Ljóðin eru
jafnvel skyld að hljómi og hrynj-
andi. í lokaerindinu er ort um
land dauðans og fallvaltleik lífs-
ins:
Vi berre veit det ligg ein
stad der borte
dit báten nár, nár ferdi
hans er all,
og alt ditt liv med eitt sá
stutt har verte
som ein sekund, ein blenk,
eit stjernefall .. .
Men ljos er kveikt for bát pa
svarte sjöen,
for einsam sjel, som stemmer
fram i döden.
Nútíminn með alla sína ringul-
reiö og yfirborðsmennsku er Ivar
Orgland ekki að skapi. Hann deil-
ir á hina tæknivæddu veröld, en
vegsamar unað náttúrunnar. í
ljóðunum er uggur náttúrubarns-
ins. I dag sel dei vatn — nefnist
eitt ljóðið:
Snart er det slutt
pá elvesongar.
I dag sel dei vatn
i pappkartongar.
I hagen er enno
roseduft...
I dag sel dei vatn,
i morgon luft.
I ljóðum þar sem náttúran per-
sönugerist, verður tákn mannlegs
lífs, þykir mér Ivar Orgland ná
lengst. Til dæmis í Eiki sprett,
sem fjallar um hið volduga t'ré
eikina, sem vex hægt, liggur ekk-
Ivar Orgland
ert á. En þegar hennar tími
kemur vex hún. Eiki sprett,
Teina, Morgon, Gras og fleiri ljóð
minntu mig á Ijóð Þorgeirs Svein-
bjarnarsonar, en honum var lagið
áð gæða yrkisefni úr náttúrunni
margræðu lífi. Ég er ekki að
halda því fram að Ivar Orgland
hermi ljóð islenskra skálda eins
og Tómasar og Þorgeirs til dæmis.
Hér er miklu fremur um eðlileg-
an skyldleika að ræða, frændsemi
er kannski betra orð.
Ljóð Ivars Orglands eiga erindi
til islenskra lesenda. Viðhorf
skáldsins hljóta að falla í góðan
jarðveg á Islandi. Ljóðin eru
IVAR OHGL.AND
Nattstill fjord. Kápumynd Jardar
Lunde.
einnig auðveld aflestrar fyrir Is-
lendinga. Það mál, sem Ivar Org-
land yrkir á, er náskylt íslensku
eins og tilvitnanir sýna.
Nattstill fjord er ellefta Ijóða-
bók Ivars Orglands. Sú fyrsta:
Lilje og sverd kom út 1950. Atta
bækur með þýðingum Ivars Org-
lands úr íslensku hafa komið út i
Noregi. Þessar bækur hafa stuðl-
að að kynningu íslenskra- Ijóða í
Noregi, enda vel úr garði gerðar
bæði af hálfu þýðanda og Fonna
forlags. Síðasta bókin i flokki fs-
lenskra ljóða í þýðingu Orglands
er Stilt vaker ljoset, úrval úr ljóð-
um Jóns úr Vör.
Árni Egilsson kemur haim frá Los Angeles til að leika ð
listahátlðinni.
John Dankworth og Cleo Laine eru meSal vinsælustu
jassflytjenda heimsins um þessar mundir.
André Previn mun bregSa sér yfir i jassleik meS góSum listamönnum,
þegar sinfóníuhljómsveit hans er farin. Hér er hann meS Miu Farrow konu
sinni. sem kemur nú eins og á listahátiðina 1972. Þá var þessi mynd
tekin.
KVÖLDSTUND MEÐ FRÆGUM JASSLEIKURUM
Dagskráin ( Háskólabíói fimmtu-
daginn 13. júní heitir því látlausa
nafni „Kvöldstund með Cleo Laine,
John Dankworth, André Previn,
Árna Egilssyni o.fl." Eru þarna
komnir frægir listamenn, sem ætla
að slá saman í jasshljómleika á lista-
hátið André Previn er þekktari hér á
landi fyrir hljómsveitarstjórn, en i
upphafi ferils síns var hann kunnur
jassleikari og hefur enn gaman af að
taka í píanóið með góðum jass-
leikurum Og það eru hjónin Cleo
Laine og Jonny Dankworth sannar-
lega, svo ekki sé nefndur Árni Egils-
son, sem kemur frá Los Angeles til
að leika með þeim.
André Previn kemur frá Bretlandi
með Sinfóníuhljómsveit Lundúna,
sem hann stjórnar i Laugardalshöll-
inni. Með honum kemur eins og
1972 kona hans, leikkonan fræga
Mia Farrow, og taka þau með sér
barn sitt. Eftir að sinfóníuhljómsveit-
in er farin bregður André Previn sér
i hlutverk jasspíanista, en það var
einmitt píanó, sem hann lærði á eftir
að hann kom með foreldrum sínum
frá Berlin til Bandaríkjanna árið
1939 Og sem pianóleikari byrjaði
hann að leika á skólaárunum, en var
strax 1 6 ára gamall ráðinn til Metro
Goldvin Mayer kvikmyndaversins
sem stjórnandi og tónskáld, svo
góður þótti hann. Hann tók sér iðu-
lega fri frá þeim störfum til að leika
með jasstriói sinu inn á hljómplötur
og i næturklúbbum Á þeim árum
hlaut hinn ungi Previn fjórum sinn-
um Oskarsverðlaun. 1961 yfirgaf
hann Hollywood til að helga sig
sígildri tónlist, en hann hafði numið
tónsmiðar og hljómsveitarstjórn.
Áður en langt um leið var hann
farinn að stjórna beztu sinfóniu-
hljómsveitum og er ráðinn aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Lundúna
Þó að aðalstarfið sé á sviði slgildr-
ar tónlistar hefur Previn, sem að
tækni er á borð við Oscar Petersson,
haldið sér við í jassleik. Hann hlust-
ar mikið á Tatum, Peterson Bud
Powell og Horace Silver og „leikur
með elektriskum stil, sem alltaf
svingar", eins og það er orðað.
Brezki jassleikarinn Jonny Dank-
worth leikur á altsaxofón Hann lék i
upphafi ferils síns á stóru Cunnard
skipunum, sem sigldu yfir Atlants-
hafið, og var þá tiður gestur hjá
jasshljómsveitunum í New York
Hann stofnaði sina eigin hljómsveit
1 953 og sló i gegn í Bandarlkjunum
1959. Hann þykir einn bezti jassút-
setjari í Bretlandi og þykir hljóm-
sveit hans einstök i sinni röð.
Kona Dankworths er Cleo Laine,
sem er fræg söngkona Hún er fædd
i Vestur-lndium, byrjaði söngferil
sinn ung og hefur sungið með
hljómsveit Jonny Dankworths siðan
1952. Ýmislegt fleira hefur hún gert
m.a leikið og sungið i kvikmyndum
og sjónvarpi Á Edinborgarhátíðinni
söng hún t.d. aðalhlutverk i Sjö
dauðasyndum eftir Brecht og Weill.
Hún hefur sungið á mörgum lista-
hátiðum i Vestur- og Austur-Evrópu
og hefur ferðazt um og komið fram i
sjónvarpi i Ástraliu og Ameríku, auk
Evrópu 1973 fór hún mikla sigur-
göngu á hljómleikaför um Ástraliu
og strax á eftir ferðuðust þau hjónin
um Bandaríkin í 46 daga við frábær-
ar undirtektir. Tvisvar sungu þau i
Carnegie Hall i New York og í
Kannedy Center í Washington fyrir
fullu húsi. Mun óhætt að fullyrða,
að þau eru meðal vinsælustu hljóm-
listarmanna nú
Með þeim hér leikur Árni Egilsson
á bassa sinn, en hann er íslending-
um kunnur. Hann kemur hingað frá
Los Angeles þar sem hann hefur
leikið með studio-hljómsveit og ver-
ið í nánu samstarfi við Burt
Bacharach Árni er sonur Ástu
Norman og Egils Árnasonar, en hef-
ur dvalið lengi erlendis og leikið við
góðan orðstír.
Nú býðst okkur að heyra þessa
listamenn leika saman jass i
Háskólabiói á listahátið.