Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974
t
Konan mín, móðir okkar, dóttir og systir
HEDDA LOUISE GANDIL
Svalbarði 8, Hafnarfirði
lést 5, júní í Borgarspítalanum
Kristinn Sigurðsson
Hjálmar, Helgi Gunnar,
Jóhann Örn,
Helga Gandil, Örn Helgason.
t
Eiginkona mín og móðir mín
ESTHER SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Félagsheimilinu Borg
lést á Borgarsjúkrahúsinu, föstudaginn 31 mal. Jarðarförin fer fram
frá Fossvogskirkju, mánudaginn 10. júní kl. 1 3.30.'
Gunnlaugur Þorsteinsson
Aðalheiður Gunnlaugsdóttir.
t
Konan min,
SIGRÍÐUR AÐALBJÖRNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
Rjúpufell 25,
lézt I Borgarspítalanum 4 júnl
Fyrir hönd vandamanna
Egill Jón Kristjánsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir,
PÉTUR SIGVALDASON,
Urðarstíg 8, Hafnarfirði
er lést af slysförum 2 júní, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
laugardaginn 8. júni kl. 11.
Anna Ólafsdóttir,
Stefán Pétursson,
Ásdis Erla Gunnarsdöttir, Sigvaldi Búi Bessason,
systkini og vandamenn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför systur
minnarog mágkonu
KRISTÍNAR ARNGRIMSDÓTTUR,
fyrrv. kennara, Vesturgötu 31.
Guðjón Arngrímsson,
Regfna Jónsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður, mágkonu, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR ÖGMUNDSDÓTTUR
frá Njarðvfk.
Helga Egilsdóttir, Jóhannes H. Snorrason,
Ólafur H. Egilsson, Halla O. Jónsdóttir,
Steinunn Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, •
ÞÓRARINS GUNNLAUGSSONAR,
stýrimanns.
Ólaffa Sigurjónsdóttir,
Gunnlaugur Þórarinsson, Hulda Thorarensen,
Sigrún Þórarinsdóttir, Geir Þórðarson,
Sigurjón Þórarinsson, Klara Benediktsdóttir,
Þorlákur Þórarinsson, Stella Ragnheiður Sveinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum sýnda samúð vegna andláts föður okkar,
LÁRUSAR HALLDÓRSSONAR,
fyrrv. skólastjóra.
Sérstakar þakkirfærum við Mosfellshreppi fyrir virðingu honum sýnda.
Margrét, Þráinn Þórisson,
Magnús, Hallfrfður Georgsdóttir,
Halldór, Úlfhildur Hermannsdóttir,
Valborg, Sighvatur Jónasson,
Tómas, Hrafnhíldur Ágústsdóttir,
Fríða, Stefán Teitsson
Gerður, Tómas Sturlaugsson,
Ragnar, Ólöf Jónsdóttir.
Erna Ryel — Minningarorö
1 DAG kveðjum við með sárum
söknuði Ernu Ryel, sem lézt að
heimili sínu 24. maí s.l. Þessarar
góðu konu langar mig að minnast
örfáum orðum. Á slíkum stundum
sækja minningar á hugann.
Eg man vel eftir Ernu sem
ungri stúlku heima á Akureyri.
Hún var há vexti og gjörvileg,
brosið sérlega hlýtt og fallegt. Eg
kynntist henni ekki á þeim árum,
en þá var bærinn svo lítill að allir
þekktu alla í sjón. Svo man ég vel,
að fréttin flaug um bæinn: ,,Erna
Ryel ætlaði að gifta sig ungum
sjarma frá Sauðárkróki". Hefði
míg þá grunað, að ég ætti eftir að
tengjast Ernu og Stefáni svo
sterkum böndum sem raun varð
á, hefði ég ef til vill verið forvitn-
ari daginn þann og reynt að
komast í sjónmál við brúðhjónin.
Brúðkaupsdagurinn, 6. jan.
1940, var án efa hamingjudagur í
hennar lífi. Ungu hjónin settust
að í Reykjavík. Erna hvarf mér
sjónum um hríð. Árin liðu ög
fluttu bæði hamingju og sorg. Tvo
litla syni misstu þau nýfædda.
Slík reynsla skiiur eftir sár, sem
aldrei gróa. En Erna var ekki
kona, sem hafði hátt um hlutina,
hún bar sinn harm í hljóði. Svo
kom þriðji sonurinn, Stefán Örn,
sannur sólargeisli, dökkur eins og
pabbinn, en hafði fengið fallega
brosið og hlýjuna mömmu sinnar
í vöggugjöf. Þegar hann óx úr
grasi reyndist hann góður sonur
og vel gerður á allan hátt.
Þegar mér seinna auðnaðist að
kynnast Ernu var það sem tilvon-
andi svilkona hennar. Það var
erfitt að standa frammi fyrir til-
vonandi tengdafólki sínu í fyrsta
skipti. En mér er í fersku minni
hve hlýjan í brosinu hennar Ernu
og elskulegt viðmót var mér
mikils virði þá, að öllu hinu
fólkinu ólöstuðu, því allt er þetta
sérstakt heiðursfólk.
Síðan höfum við átt margar
ánægjulegar samverustundir með
tengdafóiki okkar beggja, því sá
systkinahópur er samtengdur sér-
lega sterkum böndum. Oft hefur
allur hópurinn komið saman á
heimili Ernu og Stefáns, notið
þess að vera saman og rifja upp
gamlar minningar. Var þá jafnan
glatt á hjalla. Við erum öll inni-
lega þakklát fyrir bjartar minn-
ingar frá heimili, og um hús-
móðurina, sem gekk um hljoðlát
og hlý, vakandi yfir smáu og
stóru, nærfærin og notaleg. Enga
manneskju hef ég þekkt, sem
betur kunni að taka á móti
gestum, láta þeim líða vel og
fínna, að þeir væru velkomnir.
Það var ekki orðaflaumur, heldur
hjartahlýja, sem þar kom til.
Heimilið ber ljóst vitni hinni frá-
bæru smekkvísi þeirra hjóna. Það
er sama hvað Erna gerði, hvort
hún setti blóm í vasa, lagði á
veizluborð, allt varð fallegt, sem
hún snerti á.
Orðvör var hún með afbrigðum
og samvizkusemin sýndi sig bezt í
þeirri umhyggju, sem hún bar
fyrir aldraðri móður sinni, jafnt
þótt hún sjálf væri farin að
heilsu. Aldrei heyrðist hún
kvarta.
Nú er höggvið stórt skarð í
þessa fjölskyldu. Við tengdafólkið
hennar þökkum af alhug fyrir að
hafa fengið að kynnast henni og
vera i svo nánum tengslum við
hana.
Við hjónin og dætur okkar
þökkum henni alla hlýju og um-
hyggju og ágleymanlegar sam-
verustundir.
„Væn kona, hver hlýtur hana?
Hún er miklu meira virði en
perlur.
Hjarta manns hennar treystir
henni:''
Orðkv. 31.10.
Þessi orð eiga vel við Ernu og
Stefán. Þeir verða að missa sem
eiga, hinir hafa ekkert að missa.
Stefánarnir hafa nú misst mikið.
Ég vildi geta sagt huggunarorð,
en orð eru vanmáttug á slikum
stundum. Eg bið Drottinn bera
smyrsl á sárin.
Jóhanna Jóhannsdóttir.
í DAG er til moldar borin Erna
Ryel vefnaðarkennari, sem
andaðist að heimili sínu, Auðar-
stræti 9, Reykjavík, 24. maí.
Nánustu syrgjendur eru eigin-
maður hennar, Stefán Jónsson
arkitekt, einkasonur þeirra
hjóna, Stefán Örn arkitekt, aldur-
hnigin móðir og fjögur systkini.
Með Ernu Ryel er horfin af
sjónarsviðinu kona mikilla mann-
kosta, kona hógvær og hávaða-
laus, kona, sem gott er að
minnast.
Erna Ryel fæddist á Akureyri 8.
ágúst 1914. Foreldrar hennar
voru hjónin Gunnhildur og Bald-
vin Ryel, hann athafnasamur og
vel virtur kaupsýslumaður, hún
merkilegri. kona en svo, að hér
verði í orðum lýst. Heimili þeirra
hjóna var án efa eitt mesta
'myndarheimilið í höfuðstað
Norðurlands um langan aldur.
Erna útskrifaðist úr Kvenna-
skólanum í Reykjavík 1930. Hún
stundaði síðan vefnaðarnám i tvö
ár í Danmörku hjá Mette Wester-
gárd og í vefskóla í Stokkhólmi
veturinn 1934. Vefnaður og vefn-
aðarkennsla voru síðan löngum
aðalstarf hennar hér heima utan
húsmóðurstarfsins. Hún rak eigin
vefstofu bæði á Akureyri
(1933—1935) og í Reykjavík í all-
mörg ái; kenndi vefnad á mörgum
námskeiðum og var vefnaðar-
kennari á Laugalandi 1939—'40
og við Húsmæðraskóla Reykja-
víkur 1941.
Eitt af hennar áhugamálum var
vefnaðarkennsla fyrir blinda.
Hún sótti vefnaðarnámskeið hjá
Blindes Institut í Kaupmanna-
höfn 1936 og vann þar einnig af
og til á árunum 1956—'61. Voru
það henni nokkur vonbrigði, að
aðstæður voru slíkar hér heima,
að þessi kunnátta hennar nýttist
ekki sem skyldi. Árið 1940
giftist Erna Stefáni Jónssyni
teiknara, síóar arkitekt, einum
þeirra mörgu, sem búið höfðu á
heimili foreldra hennar á náms-
árum. Um konu sína lét hann
eftirfarandi orð falla, er hann leit
til baka eftir 30 ára sambúð:
„Kona, gædd kærleika, ástúð, um-
hyggju og fórnfýsi, þrátt fyrir
þung áföll, er án efa dásamlegasta
vera, sem hægt er að hugsa sér.
Þannig konu hefi ég átt og sonur
okkar slíka móður.‘‘ Þeir mega
gerst um tala, sem bezt þekkja.
Það eru þung áföll að sjá ekki
aðeins frumburð sinn, heldur og
einnig annan son til fæðast full-
burða, en andvana og þyngra er
það áfall því foreldrinu, sem ber
þá undir belti. En því dýrmætari
var þriðji sonurinn, og mesta
gleðiefni móðurinni siðustu ára-
tugina að sjá þennan efnilega
dreng vaxa upp og feta i fótspor
föður síns, verða arkitekt og
kvænast ágætri stúlku, Ölöfu Eld-
járn.
Heilsuleysi þjakaði Ernu síðari
árin og mun það hafa átt að
nokkru rót að rekja til lömunar-
veiki, sem hún fékk, er hún var 12
ára. En þolinmæði var einn af
hennar góðu eiginleikum.
Haustið 1926 kom ég fyrst á
heimili Ryelshjónanna, fyrstur í
langrí röð námsmanna, þeim
vandalausra, sem þau tóku inn á
heimili sitt og fóru með sem
væru þeir þeirra eigin börn.
Þessari góðvild þeirra átti
ég, fátækur og föðurlaus sveita-
drengur, það að þakka, að
draumur minn um að ganga
menntaveginn varð að veru-
leika. Á þessu góða heimili
dvaldi ég þá fimm vetur, sem ég
var i skóla nyrðra. Börn þeirra
hjóna voru fimm, er ég kom
þangað fyrst, 3 synir og tvær
dætur. Eldri dóttirin var Erna, þá
á 13. ári og því á 18. ári, er ég
fór utan til háskólanáms og lang-
dvalar erlendis. Kærastar eru
mér minningarnar um Ernu frá
þessum áhyggjulitlu unglingsár-
um. Hún var mér þá sem systir, í
mínum huga nær jafnaldra mér,
þessi bjarta, lífsglaða, listhneigða
stúlka, sem cHlum vildi gott gera.
Nú er hún gengin. Mild er
birtan yfir minningu hennar.
Sigurður Þórarinsson.
t
Útför sonar okkar, bróður og frænda.
EINARS GUNNARSSONAR,
flugnema
Hlégarði, Mosfellssveit
er lést I flugslysi 2. júni verður gerð frá Fossvogskírkju laugardaginn 8
júní kl. 10.30 Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Flugbjörg
unarsveitina. Lilja Pálsdóttir, Gunnar Guðmundsson
Hafdís Gunnarsdóttir, Marla Björg Gunnarsdóttir
Arm Gunnarsson, Guðbjörg Ingólfsdóttir
Gunnar Austmann, Ingólfur Árnason
Hafdís Sæmundsdóttir.
t
Faðir okkar
FILIPPUS G. ÁRNASON
Austurveg 2, Vestmannaeyjum,
sem andaðist á Borgarsjúkrahúsinu aðfararnótt 1. júnl sl verður
jarðsunginn frá Landakirkju i Vestmannaeyjum laugardaginn 7. júní kl.
2 e.h.
Börn hins látna.
Teiknistofan er lokuð
eftir hádegi vegna jarðarfarar
Ernu Ryel
Teiknistofan Höfði, Bergstaðastræti 52.