Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 31

Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974 31 Skuggamynd i fjarska FRAMHALDSSAGA EFTIR MARIU LANG, PÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJONSDÓTTIR. var glæsimenni, hávær og skap- bráður. Inginar Granstadt var aft- ur á móti litlaus, feiminn, þegjandalegur. Hann sat og fitl- aói óstyrkur við þráð sem hafði losnað í snjáðri peysunni hans og úfið svart hárið lafði niður á gler- augun. En Christer þagði líka ein- hverra hluta vegna, og allt í einu leit Ingmar upp og sagði upp úr þurru: — Ég hef sem sagt ekki f hyggju að segja, hver það var sem ég sá. Ég greip andann á lofti, en rödd Christers var áhugalaus að heyra, þegar hann spurði: — Af hverju ekki? Viljið þér ekki, að sá sem myrti Evu verði tekinn fastur? — Jú . . . . auðvitað. En ég er ekki viss um þetta. Ég stóð nú þannig ... að það er ekki víst það sé að marka ... . og ég sé ekkert sérstaklega vel. Og svo var eitthvað, sem mér fannst ekki koma heim og saman. Kannski mér hafi skjátlast? — Hvar stóðuð þér? Hann svaraði að bragði: — Á tröppunum á móti húsinu, sem Bureshjónin búa í. En ég þorði ekki að vera of nálægt. — En þér sáuð sem sagt að einhver hringdi hjá Bure og Eva Claeson opnaði. Ingmar kinkaði kolli alvarlegur á svip. — Hvað var klukkan þá? — Hún var að vera átta. — Þér hafið áður sagt, að þegar þér komuð niður hafi klukkan verið hálf átta. Hvernig ber að skilja það. .. það kemur ekki alveg heim við síðustu orð yðar.... — Ég stóð fyrst dálitla stund á götunni, sagði hann afsakandi. Kannski í kortér eða svo. En svo fannst mér betra að fara þarna upp á tröppurnar, því að ég sæi betur þaðan .... — Ég býst við, sagði Christer næstum mildilega — að þér hafið njósnað um gestakomur til Evu Claeson, vegna þess að þér bjuggust við að hún ætti von á karlmanni .... Og sársaukasvipurinn sem leið yfir andlit Ingmars staðfesti þetta og hann hélt áfram. — Getum við gengið út frá því, að grunur yðar hafi reynzt réttur? En Ingmar Granstedt svaraði með því einu að kreista saman varirnar, svo að engu var líkara en að hann ætlaði aldrei framar að mæla orð af vörum. Christer andvarpaði, en hann vissi alltaf þegar ekki þýddi að reyna meira, svo að hann þagði. Snöggir piltar bætið einum sjúss á reikninginn. Það var augljóst að þessi föli maður sem sat þarna hjá okkur og hafði að öllum líkindum séð morðingjann ganga á vit fórnar- lambs síns, en það var næstum því jafn augljóst, að hann hafði i hyggju aó sitja einn að þeirri vitneskju, sem hann bjó yfir. Tfundi kafli Ingmar var eftir þetta svo orð- fár, að það hafði lítið upp á sig að spyrja hann frekar. Hann hafði hálft í hvoru hugsað sér að þau færu i bíó á sunnudeg- inum, en þegar hann hringdi til hennar, sagðist hún þurfa að vera heima um kvöldið, en hann gæti komið og borðað kvöldmat hjá sér. Hann hafði ekki aðeins séð svörtu töskuna í íbúðinni, heldur hafði hann einnig séð ýmis skjöl Pelles liggja á skrifborðinu og þau höfðu rætt uppsetninguna á skránni sem hún var að gera. Hann gat þar með staðfest áð bæði taskan og skjölin höfðu ver- ið i íbúðinni, þegar hann fór það- an klukkan hálf átta. Þegar hann hafði séð Evu opna fyrir gestin- um, sem hún átti von á rétt fyrir átta, hafði hann lagt af staó heim á leið, en hann sagðist hafa verið þungum þönkum og ekki komið heim til sin fyrr en yukkan var farin að halla í tíu. Hann neitaði að segja nokkuð um vinfengi sitt og Evu og hann vildi heldur ekki lýsa neinum eiginleikum hennar. Og það varð á honum skilið, að hann sæi i aðrar röndina eftir að hafa sagt það, sem hann sagði í upphafi. Eg held að Christer hafi létt, þegar við gátum með góðri sam- vizku þakkað honum fyrir og sá næsti kom og settist I stólinn, enda var sú manneskja ekki eins erfið í viðræðu. LILLEMOR OLIN hafði notað tímann til að snyrta á sér hárið og púðra sig i andliti. Hún settist með ósviknum þokka á stólinn og deplaði augunum glettnislega til Christers. Eg fann á mér, að helzt hefði hún viljað að þau fengju að vera þarna tvö ein. Christer, sem tók eftir þeim augnagotum, sem fóru á milli okkar, brosti ánægð- ur. — Jæja, sagði Lillemor blíðlega og hallaði undir flatt. — Og hvað viljið þér svo vita? Það var kaldhæðni í brosi Christers, en ég skynjaði einnig, að hann var hreint ekki ónæmur fyrir kvenlegum þokka Lillmors. Og ég leiddi hugann að því, að ég var alls ókunnug smekk hans á kvenfólki. Kannski vildi hann eignast konu eins og Lillemor, grútheimska en eggjandi og blíð- lega? Eg ræskti mig hressilega og Christer virtist vakna af dvalan- um. — Segið mér, ungfrú Olin, hversu vel þér þekktuð Evu Claeson? — Hvað við þekktumst vel? Já, við vorum náttúrulega vinkon- ur .. . ágætar vinkonur. — Líkaði yður vel við hana? Lillemor virtist nú hafa gleymt öllu misjöfnu, sem hún hafði gef- ið í skyn um Evu og hrósaði henni upp til skýja. '—, Ö, hún var svo afskaplega elskuleg, hjálpfús og vingjarnleg. Hún lánaði til dæmis Ingmar alltaf peninga, þegar enginn fékkst til að gera það. — Var það svo? Og voru það stórar upphæðir? — Nei, ég segi það nú ekki. Svona hundrað kall kannski fimm hundruð stöku sinnum ... Ég efast um hann hafi borgað henni aftur... .En annars var hún frek- ar sparsöm. — Haldið þér hún hafi verið hrifin af Granstedt! — Nei! Nei! Svar Lillemors var miskunnarlaust en hreinskilið. — Það gæti engin stúlka orðin skotin í HONUM! Christer, sem fann á sér, að nú gafst honum kostur á að heyra hinar ýmsu kjaftasögur, færði sér tækifærið í nyt og sagði: — En ég býst við, að það hafi nú verið EINHVER sem hún hafði áhuga á? —■ Hún hafði víst ábyggilega áhuga fyrir fleiri en einum og fleiri en tveimur, sagði Lillemor leyndardómsfull. — Þér hefðuó átt að sjá, hvernig hún næstum því gleypti Jan með augunum . .. það var næstum viðbjóðslegt . . . og upp á síðkastið var hún á hæl- unum á Pelle hvert sem hann sneri sér. En ég held nú ekki að henni hafi orðið neitt ágengt. VELVAKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 0 30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags # Tveimur hjólum stolið frá Hæðargarði Lydfa Thejll, Hæðargarði 14, skrifar á þessa leið: „Mig langar til að spyrja for- eldra barna, hvað þeir geri, þegar börn þeirra koma heim einn dag- inn með reiðhjól, sem þeir vita engin deili á. Ég spyr vegna þess, að kvöldið 22. maí (kl. 11.45 nánar til tekið) voru tekin tvö hjól frá húsinu heima hjá mér. sonur minn sá til þeirra, sem hjólin tóku, en þeir náðust ekki. Þessi stuldur er mjög bagalegur þar sem ég á sex börn og það er ekki hægt að hlaupa út I búð og kaupa ný hjól. Lydfa ThejII.“ Þetta er dæmi um eilífðar- vandamál reiðhjólaeigenda — en betri lýsing á reiðhjólum þessum hefði þurft að fylgja með, svo og lýsing á hinum óráðvöndu drengjum. • Glöggt er gests augað Klfa Björk Gunnarsdóttir, Þverholti 7, Reykjavík, skrifar, og hefur sjálf sett sér fyrirsögnina: I s.l. mánuði fluttist ég heim til Reykjavíkur eftir margra ára bú- setu í öðru landi. Brá mér heldur í brún við að sjá umgengnina á götum borgarinn- ar. Sums staðar gat að líta þau ódæmi af pappírsrusli og gler- brotum, að halda mætti, að dreift hefði verið úr ruslatunnum á gangstéttir og í göturæsi. Á ég hér við hinar þröngu götur í gamla bænum þar sem bilum er lagt þétt, og erfitt er að komast að til að hreinsa. Undrun mln var mikil kvöld eitt er ég ók inn Skúlagötu. I bílnum, sem ók á undan mér, sátu miðaldra hjón. Ct um glugga bíls- ins komu skyndilega fljúgandi stóreflis pappirsílát undan is og svo komu skeiðarnar á eftir! Verst eru þó glerbrotin. Tómum flöskum er grýtt í næsta vegg, og alltof oft eru gluggarúður brotnar. Væri ekki hægt að skora á fólk að hlífa samborgurum sínum við þessu? Hver og einn ákveður sjálfur hve mikið sælgæti, sígarettur og drykkjarföng hann kaupir, en mér finnst ekki til of mikils ætlazt, að fólk mölvi flöskurnar annars staðar, en þar sem brotin hljóta að lenda undir bíldekkjum, ef á annað borð er nauðsynlegt að brjóta glerin. Að þessu er hrein og bein skömm og ekkert tilhlökkunar- efni að sýna erlendum vinum sín- um þessar „siðvenjur“. Hvers vegna ekki að hjálpast að og koma ruslinu á sinn stað? Elfa Björk Gunnarsdóttir." Velvakandi tekur undir hvert orð Elfu Bjarkar. Sums staðar er- lendis liggja þungar fjársektir við þessum ósóma, og minnir okkur fastlega, að i New York sé sóð- um, sem fleygja frá sér rusli á almannafæri, gert að greiða eitt hundrað dali i sekt. Fólki er svo gerð grein fyrir þessum afleiðingum af druslu- ganginum á stórum skiltum, sem hanga viða á götum úti, enda fá- títt að sjá drasli fleygt á götur þar. Hins vegar skal það tekið fram sérstaklega, að sú ónáttúra að stúta flöskum á hverju, sem fyrir verður, virðist vera einhvers kon- ar þjóðarsport tslendinga. Vel- vakandi minnist þess að visu að hafa séð glerbrot annars staðar en á íslandi, en alls ekki í svo rikum mæli sem hér. Það er ekki nóg með það, að úrgangur, sem liggur eins og hrá- viði hvert sem litið er, sé til leið- inda og spilli umhverfinu, heldur stafar beinlínis hætta af glerbrot- um. Bildekkin má að visu bæta, en öllu verra er þegar einhver slasar sig á brotunum. # Lélegar merk- ingar á vegum og við bændabýli Velvakandi brá fyrir sig betri fætinum um helgina, sem reyndar er ekki i frásögur fær- andi út af fyrir sig. Var förinni heitið austur i Árnesþing. Veðrið var reyndar ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, en það sem einkum vakti fögnuð og gleði ferðalanganna var það, að fá- menni var hvar sem komið var. Kort og leiðarvísar voru i far- angrinum, en einn meiri háttar annmarki var þó á notkun þeirra, þannig að ferðalangarnir gætu áttað sig á þvi hvar þeir væru staddir. Merkingar eru nefnilega svo sparsamlega notaðar i þessu ágæta héraði, að ókunnugir villast þar auðveldlega. Til und- antekninga telst ef leiðamerk- ingar eru á vegamótum, og næsta fátítt, að búendur hafi nöfn bæja sinna við afleggjarana. Nú má vel vera, að þeim, sem stjórna kennileitamerkingum í héraðinu þyki duttlungar ótindra ferðamanna ekki skipta miklu máli, en trúlega þætti aðkomu- mönnum í Reykjavík súrt i broti ef ekki væru nema einstaka götur í borginni merktar. Nú má enginn skilja þessi orð svo, að hér sé verið að sneiða að Árnesingum sérstaklega, því að viðast hvar á landinu er sömu sögu að segja. Og af því að nú er þjóðhátíðar- ár, sem allt á að gerast á, væri þá ekki tilvalið að hefja nú i sumar eina alls herjar merkingaherferð um allt land, þannig að öll vegmót yrðu kyrfilega merkt og heiti bæja sett við hvern afleggjara? Skilti munu ekki vera úr hófi dýr, þannig að mikill stofn- kostnaður getur ekki verið það, sem kemur i veg fyrir, að merk- ingar séu i lagi. ÖIlu fremur hlýt- ur ástæðan að vera framtaksleysi, sem auðvelt ætti að vera að ráða bót á. STUDENTA- SKEIÐIN 1974 er komin. Halldór Skólavörðustíg. LJOS & ORKA CORONELL LAMPARNIR EINNIG RORÐLAMPAR ÚR MARMARA LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL Sendum í póstkröfu. LJÓS & ORKA Suðurlandsbrautl2 simi S4488 MIR ER EITTHVM FVRIR RUR ÍWor0unblaÍ>it>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.