Morgunblaðið - 01.09.1974, Side 1

Morgunblaðið - 01.09.1974, Side 1
36 SIÐUR OG LESBOK 163. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1974 Prentsmiðja Morgunbiaðsins. ¥ Ottazt áð á annað hundrað hafi farízt Zagreb, Júgóslavíu 31. ágúst — AP HRAÐLEST fór útaf spor- inu og valt, þegar hún nálg- aðist Zagreb járnbrautar- stöðina á föstudagskvöld. Að minnsta kosti 120 létu lífið, aðallega júgóslav- neskir verkamenn á leið til vinnu i Vestur-Þýzkalandi eftir sumarfrí heima. 400 dýr í hættu MEIR en 400 dýrategundir vfða um heim eiga á hættu að vera útdauð vegna mengunar og of- veiði, segir f niðurstöðum könn- unar, sem bandarfska innanrfkis- ráðuneytið lét gera fyrir skömmu. Á meðal þeirra dýra, sem teljast f hættu, eru górillan f Afrfku, jagúarinn f Suður-Amerfku og bláhvelið, stærsta dýr veraldar. Meir en 100 dýrategundanna búa f Bandarfkjunum, en villtum dýrum er búin hætta f öllum heimsálfum nema á Suðurheim- skautinu. Guy Degos, landbúnaðarráð- herra Korsfku, handjáfnaður og buxnalaus framan við skrif- stofur sfnar f Ajaccio. Reiðir bændur ruddust inn á skrif- stofu hans, f-sfðustu viku, rifu hann úr buxunum og settu strigapoka yfir höfuðið á hon- um og leiddu hann sfðan út á götu. Þar dreifðu þeir um hann skjölum hans og skildu hann eftir til áréttingar óánægju sinni. .SrS Talsmaður hjálparsveita á slysstaðnum sagði, að um hádegi á laugardag hefðu fundizt 120 lfk, en líklegt væri, að á milli 30 og 50 lík gætu fundizt til viðbótar. Ekki var vitað nákvæm- lega um tölu særðra á laug- ardag, en hún mun vera að minnsta kosti hátt á annað hundrað. Þetta var aukalest, sem átti að fara frá Belgrad til Dortmund aðallega með júgóslavneska verkamenn. EBE safnar kjöti UM ÞAÐ bil 4000 lestum af írsku nautakjöti, sem er hluti af kjöt- fjalli Efnahagsbandalagsins, hef- ur verið komið fyrir í lestum dansks frystiskips úti fyrir vest- urströnd trlands, vegna þess að allar frystigeymslur i landi voru orðnar fullar. Kjötið, sem nægir í 3 milljónir máltfða, hefur verið keypt af frska ríkinu, samkvæmt reglum EBE , sem kveða á um, að ef kjötverð sé lágt, skuli minnka framboð vörunnar. Nú þegar hefur ríkið keypt meir en 38. lestir. Irskar hjálpar- stofnanir, sem starfa á hungur- svæðum í Bangladesh og Afrfku, hafa krafizt þess, að kjötið verði notað til að fæða hungraða ibúa þriðja heimsins. En danska skip- ið, Samoan Reefer, mun liggja við akker með farminn, þar til verðið hækkar eða EBE heimilar sölu á kjötinu. Annað danskt skip er væntanlegt f næsta mánuði til að taka meira kjöt til geymslu. ' ' Hátt, lágt — upp og niður. Ljósm. Mbl. Brynj. Helgas. Svkurskortur hollur heilsunni MIKILL sykurskortur er nú f í heiminum og hafa lönd, sem ekki framleiða sykur átt f nokkrum erfiðleikum með að útvega sér vöruna. Þetta hefur valdið stjórn- völdum þeirra landa, sem nota mikinn sykur nokkrum áhyggj- um, ekkí sfzt þar sem þau hafa séð fram á verðhækkun á sykri, sem gæti haft áhrif á almenna verðbólguþróun. Ein er bó sú stétt manna, sem fagnar þessumskortiásykri, en það eru læknar. I brezka blaðinu Observer er haft eftir læknum, að minni sykurnotkun leiði ekki aðeins til minni tannskemmda, heldur einnig til minni mittis- mála og um leið lengir hún lffið um nokkur ár. Það stafar af því, að feitt fólk er veikara fyrir hjartasjúkdómum, æðabólgu, erfiðum fæðingum, sykursýki, gallblöðrubólgu, háum blóðþrýstingi, lifrasjúkdómum og fleira. t Bretlandi og Bandaríkjunum neytir hvert mannsbarn um það bil 53 kg af sykri á ári, en fyrir einni öld var notkunin aðeins 12 kg. á mann. Til samanburðar þá neyttu tslendingar rétt um 50 kg af sykri síðastliðið ár, og má gera ráð fyrir, að þróun sykurnotkunar hér sé svipuð og á Vesturlöndum. Talið er, að tveir þriðju hlutar Framhald á bls. 35 Versnandi sambúð Frakka og USA vegna flugvélasölu Hörð barátta um sölu á nýrri orustuþotu til Vestur-Evrópu rfkja er nú á lokastigi og er sögð hafa gert sambúð Frakk- lands og Bandaríkjanna nokkuð stirða. Löndin eru aðalkeppinautar um samning um nýja þotu, sem leyst getur af hólmi F-104 Star- fighter orustuþotur belgíska, hollenska, norska og danska flughersins, en þær eru nú orðnar úreltar. Af hagkvæmnis- ástæðum hafa löndin fjögur komið sér saman um að kaupa sömu flugvélina. Fyrsta pöntun verður á 400 vélum, að verð- gildi um 1500 milljónir sterlingspunda. En þetta er lág- markstala, því að af þessum kaupum mun leiða kaup ann- arra landa á flugvél sömu teg- undar. Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.