Morgunblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 14
14 Aætlun um 5 ára beitarrannsóknir: Komið upp 11 beitarhólfum á 1000 hektara landsvæðum Nfu tvflembur verða á hverju til- raunasvæði Tilraunirnar verða á ýmiss konar landi á háiendi og láglendi. Fimm ára áætlun um rannsókn- ir á beitarþofi vfðs vegar á land- inu og á margs konar landi er hafin með styrk frá FAO og þró- unarstofnun Sameinuðu þjóð- anna, UNDR, en það er mikilvæg- nr liður f landgræðsluáætluninni 1974—’78, afmælisgjöf þjóðarinn- ar á 1100 ára landnámshátfð. Er þegar búið að velja tilraunasvæði, 11 talsins, á f jöllum og f byggð og farið að girða. En þarna er um að ræða yfir þúsund hektara lands og um 100 km af girðingum Er ætlunin, að eftir fimm ár verði fyrir hendi undirstöðuþekking á beitarþoli, sem hægt er að byggja á tilhögun beitar og nýtingu á hálendi jafnt sem láglendi. Fréttamaður Mbl. leitaði fregna af þessu mikla verkefni í Rann- sóknastofnun landbúnaðarins og fékk upplýsingar hjá Birni Sigur- björnssyni forstjóra, Stefáni Aðalsteinssyni, deildarstjóra bú- fjárræktardeildar og Ingva Þor- steinssyni, gróðursérfræðingi, en þeir starfa í stórum hópi manna, sem vinnur að þessu verkefni undir yfirstjórn þar til skipaðrar nefndar, sem í eru forstjóri Rala, sem er formaður, landgræðslu- stjóri og búnaðarmálastjóri. Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lagt til þessa verkefnis 150 þúsund dala tækni- aðstoð. sem hefur þegar hækkað vegna aukins kostnaðar, en hún er veitt í formi tækja, efnis- og sérfræðiaðstoðar. Kom bandarísk- ur sérfræðingur um beitarrann- sóknir, dr. Bement, hingað fyrst fyrir einu ári, ferðaðist um landið ásamt sérfræðingum frá Rala, B.t og Landgræðslunni og gerði frumtillögur að tilraunasvæðum víðs vegar um landið. Hefur í suiuar verið unnið að undirbún- ingi tílraunanna á 10 stöðum. Is- lendingar veita til verkefnisins af afmælisgjöfinni 40 millj. kr. á 5 árum, auk framlags vegna fram- kvæmda á þessu ári. 1 rannsóknunum er lögð áherzla á þrennt: 1) Beítarþol afrétta á hálend- ínu, þ.e. að kanna áhrif búfjár á landið og landsins á búfé. Til- raunir eru gerðar með ákveðinn hóp fjár, venjulega 9 tvílembur eða samsvarandi af nautgripum, og beítarhölfin höfð misstór til að finna áhrif mismunandi álags. 2) Könnun á beitilandi í heima- höfum, sem bætt hefur verið m.a. með áburðargjöf, og nýtingu á því grasi, sem upp kemur. Það er gert í þeim tilgangi m.a. að geta tekið við fé í heimahögum, þar sem kann að þurfa að fækka á afrétti vegna hagþrengsla. Auk þess í þeim tilgangi að kanna möguleika á að taka við aukningu á bústofni landsmanna. 3) Könnun á því, hvernig hægt sé að nota fullræktað land tU beitar. Allmiklar tilraun- ir hafa verið gerðar með nautgripi, en mjög skort á tilraun- ir með sauðfé. Féð þrífst ekki nægilega vel á fullræktuðu landi til að borgi sig að leggja í kostnaðinn. Öll áætlunin byggir að sjálf- sögðu á margra ára gróðurrann- sóknum og gróðurkortagerð, sem unniðhefur verið að hér á landi. En nú hafa búfjártilraunir verið teknar inn í myndina. Mikil undirbúningsvinna hafði verið af hendi leyst til að samræma allar viðkomandi stofnanir um þetta átak og annaðist Jónas Jónsson, aðstoðarráðherra, það á vegum ráðuneytisins. En tilgangurinn með þessari rannsóknaáætlun er ekki aðeins að fá vísindalegar niðurstöður, heldur niðurstöður sem fljótlega megi taka til hag- nýtrar notkunar. Sérfræðingar Sameinuðu þjóð- anna hafa komið hingað tvívegis í sumar til að ákveða tilraunasvæð- in og mæla fyrir þeim. Þau eru á eftirtölum stöðum: 1) Sölvaholti í Flóa, þar sem er 60 ha. tilraun á þurrkaðri mýri. Mun Rannsóknastofnunin hafa þar sauðfé og nautgripi I sam- starfi við Laugadælabúið. 2) Kálfholti í Ásahreppi, Rang., þar er 60 ha. tilraun á sams konar landi með sauðfé og nautgripi. 3) í Álftaveri verður sauðfé í Í00 ha. tilraunagirðingu á rýru vallendi. Þess má geta, að girðing- in er þar 14 km löng. 4) Á Breiðamerkusandi, þar sem hefur farið fram áburðar- dreifing í tilraunaskyni undanfar- in 2 ár, er nú áætlað að hafa sauðfé í girðingarhólfum. 5) A Eyvindardal, upp af Jökuldal, er í 600 m hæð 115 ha. tilraunagirðing fyrir sauðfé í landi Tilraunastöðvarinnar á Skriðuklaustri. 6) Sunnan við Ásbyrgi 1 Keldu- hverfi er um 70 ha. land fyrir tilraunir á lyngheiði. 7) Á afrétti Svínvetninga á Auðkúluheiði er önnur hálendis- tilraunin á nærri 300 ha. landi. 8) Á tilraunastöð Rala á Hesti 1 Borgarfirði verður 40 ha. til- raunasvæði á ræktuðu landi og uppþurrkuðu. 9) Á Hvanneyri verða tilraunir á ræktuðu landi með sauðfé og nautgripi á um 15 ha. landi. En fleiri þættir í beitarþolstilraunun- um eru unnir 1 samvinnu við Bændaskólann á Hvanneyri. 10) Við Sandá, ofan GuIIfoss, verður 20 ha. tilraunasvæði á upp- græddu landi 11) Loks er líklegt, að byrjað verði á áburðartilraun 1 Þverholt- um á Mýrum. Og liklega verða þar beitartilraunir seinna. Þegar „hornahælanefndin" svo- kölluð, sem í eru Ingvi Þorsteins- son, sérfræðingur 1 gróðurrann- sóknum, Gunnar Ölafsson, fóður- fræðingur, Stefán Scheving Thor- steinsson, búfjárfræðingur, Óttar Geirsson, jarðræktarráðunautur og Árni Pétursson, sauðfjár- ræktarráðunautur, hafði valið til- raunasvæðin og mælt úr reitina, var farið að koma upp girðingum á vegum Landgræðslunnar, sem einnig sér um alla áburðardreif- ingu. Var 1 sumar byrjað að girða 1 Sölvaholti, Kálfaholti, Keldu- hverfi, Eyvindardal, Auðkúlu- heiði og víðar, en síðan verður haldið áfram að vori, þegar girð- ingarefni kemur frá Sameinuðu þjóðunum. Það þykir tiðindum sæta, að FAO og Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki getað fundið neinar birgðir af gaddavíri í veröldinni, líklega allur kominn í víggiðingar í ísrael eða á Kýpur. Hinsvegar tókst Landgræðslunni að fá svolít- inn vír hjá Mjólkurfélagi Reykja- víkur. í vetur og fram á vor verður valið sauðfé og nautgripir fyrir tilraunirnar og búféð sett í hólfin næsta sumar, ef girðingarefnið verður komið. Á hverju sumri næstu 5 ár fara sérfræðingar Rannsóknastofnun- ar landbúnaðarins og Búnaðar- félags íslands þrisvar sinnum á hvern stað, ásamt ráðuneytum búnaðarsambanda, tilraunastjór- um og bændum. Þá verður búféð viktað og gróður mældur. Verður það fyrst gert um leið og fénu er hleypt i girðingarnar, síðan um mitt sumar og loks þegar það er tekið úr girðingunum. Verða þess- ar mælingar undirstaða til að ákvarða beitarþol tilraunasvæð- anna. Og hvað svo? Eftir fimm ára rannsóknir vonumst við til að hafa undirstöðuþekkingu til að geta ráðlagt bændum um tilhögun beitar jafnt á hálendi sem á lág- lendi og við ýmiss konar gróður- farslegar aðstæður, var svarið. Er vonazt til, að þannig verði hægt að stuðla að bættum gróðri, samfara bættri nýtingu gróður- lendis, því að með þessu er stefnt að betri gróðri, betri nýtingu hans og betri afurðum af búfénu. Þannig er stefnt að því, að þjóðar- gjöfin verði notuð til að sameina búskapar- og landverndarsjónar- mið. — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.