Morgunblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1974
3
Verðhrun fiskmjöls:
Um 33 þúsund tonn
óseld af fiskmjöli
SVEINN Benediktsson, formaður Félags ísl. fiskmjöls-
framleiðenda, kom að máli við Morgunblaðið í gær.
Kvað hann horfur á sölu fiskmjöls vera mjög ískyggi-
legar. Enn þá væru óseld um 20.000 tonn af loðnumjöli
af þeim 67.000 tonnum, sem framleidd voru á síðustu
loðnuvertíð. Engar sölur á loðnumjöli frá íslandi hafa
farið fram síðan í lok aprílmánaðar sl. og hverfandi
lítið af öðru mjöli. Ennfremur eru óseld um 10.000
tonn af þorskmjöli og um 1.500 tonn af öðru fiskmjöli.
Framleiðsla hvalmjöls er áætlað 2.000 tonn og er V*
hluti seldur.
Sojabaunamjöl er m.a. selt í samkeppni við fiskmjöl.
Vegna úreltra frétta, sem birtar hafa verið í blöðum og
í sjónvarpi hér á landi nýlega, bað Sveinn Morgun-
blaðið fyrir eftirfarandi grein:
I júlímánuði sl. voru miklir
þurrkar f Bandaríkjunum og
voru horfur á því, að af þeim
sökum myndi uppskera á soja-
baunum minnka verulega. Rætt
var um að setja útflutnings-
bann á sojabaunamjöl og soja-
baunaolfu (jurtafeiti) í því
skyni að tryggja notkunarþörf
innanlands og skömmtun til
þeirra landa, sem höfðu verið
fastir kaupendur að þessum
vörum, en þær eru notaðar sem
fóður fyrir búpening og soja-
baunaolfan í smjörlíki ásamt
annarri jurtafeiti.
1 júlfmánuði fór því eftir-
spurn á vörumarkaðnum í
Chicago mjög vaxandi og leiddi
það ásamt uppkaupum „speku-
lanta“ á sojabaunum og soja-
baunaafurðum til mikillar
hækkunar á þessum vörum og
ýmsum öðrum fóður- og mat-
vörum. Náði hækkunin
hámarki hinn 1. ágúst sl.
Daginn eftir, sem var föstu-
dagur, var vörumarkaðnum í
Chicago lokað, vegna til-
kynningar um, að sprengju
hefði verið komið þar fyrir.
Mánudaginn 5. ágúst, er
markaðurinn var opnaður að
nýju, hrapaði verðið á soja-
baunum stórkostlega, svo og á
annarri uppskeru, vegna þess
að hinn 1. ágúst hafði tekið að
rigna á þurrkasvæðunum á
sléttunum miklu í Banda-
rfkjunum, þar sem ræktaðar
eru sojabaunir, maís, hveiti,
hafrar og fleira fóður- og mat-
vörur í stærri stfl en annars-
staðar í veröldinni.
I fréttum sem birtust í tfma-
ritinu Oil World hinn 23. ágúst
sl. segir svo m.a.: 1 þessum
mánuði hefur veðrið á upp-
skerusvæðunum verið mjög
hagstætt, allt frá því að vera
gott upp í það að vera
ágætt....
I tilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu banda-
ríska frá 20. ágúst segir, að
uppskeruhorfur fyrir sojabaun-
ir séu góðar og að eðlilegt hita-
stig ásamt úrkomu hafi skapað
þeim eðlileg vaxtarskilyrði.
Baunirnar hafa tekið góðum
þroska, en eru enn ekki eins
þroskaðar í flestum fylkjum og
1973 (sem var óvenju hagstætt
uppskeruár). 1 Suðurrfkjunum
eru uppskeruhorfur víða betri
en í fyrra.
Landbúnaðarráðunautur frá
Ulinois telur: „Ef áfram heldur
að rigna eins og gert hefur frá
1. ágúst á meðan sojabaunirnar
eru að blómgast og fylla fræ-
belgi sína, þá mun uppskeran
verða aðlileg. Það, sem bjargar
málinu, er hinn ótrúlegi hæfi-
leiki sojabaunajurtarinnar að
ná sér aftur eftir áföll.
Þá er þess getið i frásögn Oil
World, að það kynni að hafa
mjög slæm áhrif á uppskeruna,
einkum maisinn, ef frost yrðu
fyrr á ferðinni en í venjulegu
ári, þar sem .þurrkarnir hafa
tafið vöxtinn.
Hinn 1. ágúst tilkynntu Perú-
menn, að þeir hefðu hækkað
verð á fiskmjöli úr US $
250—300 tonnið upp í US $
420—450 tonnið cost and
freight, eða US $ 6,56 til 7,03
proteineininguna f tonni á
Evrópuhafnir. Norðmenn til-
kynntu svipaða hækkun.
Hækkanir þessar voru gerðar
með tilliti til þess háa verðs,
sem þá var á sojabaunum.
Svo fór, að Perúmenn og
Norðmenn gátu ekki selt eitt
einasta tonn á þessu verði.
Hinn 27. ágúst sl. tilkynntu
Perúmenn lækkun niður í US $
320 tonnið eða í US $ 5,00
proteineininguna. Sama dag
seldu Danir lftið magn af
„Síldarmjöli" á US $ 4,38
proteineininguna.
Að undanförnu hafa sölur á
fiskmjöli að mestu stöðvast og
þær litlu sölur, sem fram hafa
farið, eru á sílækkandi verði.
Kaupendur halda að sér hönd-
um og vænta lægra verðs sfðar.
Ansjovetuveiðarnar við Perú
eiga að byrja aftur um mánaða-
mótin september og október.
Eru veiðihorfur taldar góðar og
ráðgera Perúmenn að veiða 3
til 4 milljónir tonna fram til
áramóta. Áætlað fiskmjöl úr
Sveinn Benediktsson
þeirri veiði er 650—860 þúsund
tonn, til viðbótar um 547 þús-
und tonnum, sem framleidd
höfðu verið fyrr á þessu ári.
Ef spár Perúmanna rætast,
getur framleiðsla þeirra á fisk-
mjöli á árinu 1974 numið allt að
1400 þúsund tonnum á móti 423
þúsund tonnum 1973.
Horfur eru þvf á miklu meiri
framleiðslu af fiskmjöli í Perú
heldur en í fyrra. Jafnframt þvf
er óvenjugóð uppskera á korn-
vörum, jarðhnetum o.fl. í Sovét-
rfkjunum og í Kfna. Einnig er
metuppskera á kakaohnetum á
Fillipseyjum og sojabaunum í
Brasilíu.
Hinn mikli skortur, sem varð
á fiskmjöli á heimsmarkaðnum
sfðari hluta ársins 1972 og á
árinu 1973, samhliða skorti á
fóður- og matvörum, er ekki
lengur fyrir hendi. Af þeim
ástæðum hefur verð á þessum
Framhald á bls. 35
Alyktun NFS um Chile
NORRÆNA Alþýðusambandið
(NFS) ræddi ástandið f Chile á
stjórnarfundi sfnum f Reykjavfk
13. ágúst 1974.
NFS mótmælir þeim fjölda-
handtökum, sem herforingjaklík-
an hefur framkvæmt nýlega og
fordæmir áframhaldandi árásar
hennar á lýðræðisleg og fagleg
réttindi fólksins.
NFS er einhuga um að hrinda f
framkvæmd aðgerðum til raun-
hæfs stuðnings hinni lýðræðis-
legu verkalýðshreyfingu Chile.
Norræna Alþýðusambandið fer
þess á leit við rfkisstjórnir Norð-
urlanda að þær beiti sér í verki að
því að mannréttindi og lýðræðis-
reglur verði á ný hafin til vegs í
Chile. A fundi sfnum í Reykjavfk
verða utanríkisráðherrar Norður-
landa að gefa Chile-vandamálinu
sérstakan gaum með það fyrir
augum að taka það upp í heild
sinni og öllum atriðum fyrir Sam-
einuðu þjóðunum.
NFS biður norrænu ríkisstjórn-
irnar, sem allar greiddu atkvæði
með Chile-ályktuninni á þingi Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar
(ILO), að beita öllum áhrifum
sfnum til að rannsóknarnefnd
ILOs geti fljótt og óhindrað lokið
störfum sínum.
Frí fyrir
rottur
FANGl, sem dæmdur nafði verið
f 100 ára fangelsi fyrir morð, hef-
ur fengið að eyða einum degi með
fjölskyldu sinni f verðlaun fyrir
sigur f keppni f rottuveiðum f
fangelsinu. Drap fanginn 30 rott-
ur með önglum og gildrum.
r ra Norræna hatnapinginu. Ljósm. Mbl. Sv.Þorm.
Allir fara í ferð með Utsýn
Nú eru síöustu sætin í Utsýnarferöum
sumarsins á þrotum:
Þægilegt þotuflug Kvöldflug lengirsumarleyfið. Útsýnarþjónusta
tryggir ánægjulega ferð. Fyrsta flokks gæði — sama lága verðið.
FEROASKRIFSTOFAN
[ COSTADELSOL
Itryggasti sólstaður
I ÁLFUNNAR
IBEZTU GISTISTAÐIRNIR
AUSTURSTRÆTI 17
SÍMI 26611 — 20100
10 linur.
Uppselt
Uppselt
Uppselt
Uppselt
Uppselt
2 sæti laus
4 sæti laus
2 sæti laus
■ sæti laus
■ sæti laus
Einkaumboð á
íslandi
TJÆREBORG
AMERICAN
EXPRESS.
STÆRSTA
OG
VANDAÐASTA
FEROAÚRVALIO
Kaupmannahöfn
London
Rlnarlönd
Austurrlki
Gardavatn
Grikkland
Rhodos
Costa Brava
Mallorca
Verðhækk un
I samræmi við
gengisfellingu ís
lenzku krónunnar
hækka oll auglýst
verð ferða frá og
með 1. september
1974 .