Morgunblaðið - 01.09.1974, Side 10

Morgunblaðið - 01.09.1974, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER Saga konungsins „Ég veit ekki nákvæmlega, hvem- ig þetta gerðist", segir Þuriður. „Ég bara frétti, að mér gæfist kostur é að taka þétt i þessari sýningu. Hug- myndina að verkinu fékk ég sl. haust, og þegar ég fékk ákveðið svar um þétttökuna, fór ég að svipast um eftir hentugum bil. Hann fann ég svo f Vökuportinu." „Kvöldið éður en sýningin var opnuð fórum við með bílinn niður é Lækjartorg. En smétt og smétt fór hann að léta é sjé. Hann var orðinn rispaður og hruflaður. Og eftir ballið é þjóðhétiðinni var hann allur orðinn dældaður. Fólk hafði hoppað é hon- um og svo framvegis. Ég étti þvi um tvennt að velja. Annaðhvort að láta hann grotna þarna niður eða gera það, sem ég hafði alltaf ætlað mér að gera. þótt ég hefði ekki búizt við, að það yrði svona fljótt, — þ.e. að eyðileggja hann. Og um leið gefa fólki ébendingu ..." Fimmtudaginn 8. égúst er uppé- koma á Lækjartorgi. Þétttakendur eru Þuríður, nokkrir skólafélagar hennar, éhugasamir vegfarendur og „Konungur dýranna". „Þetta fór þannig fram, að fyrst gekk ég i kringum bDinn og kastaði yfir hann smémynt. Síðan kraup ég fyrir framan hann, stóð upp og öskraði: „Þú þræll, ég vil ekki þjóna þér! Þé réðist ég é hann með sleggju, og strékarnir komu é eftir með sleggju og haka." Viðbrögð vegfarenda voru ekki é einn veg. „Sumir hvöttu okkur, og nokkrir þeirra tóku jafnvel virkan þátt i érásinni. Aðrir skildu ekki, hvað um var að vera og héldu, að ég væri vitlaus. og þarfram eftir götum. Þegar svo við sáum, að við gætum ekki gert bilnum betri skil með þessum éhöldum. þé hættum við. Þetta tók um það bil kortér." Uppékomuna segir Þuriður hafa verið gerða I samræmi við trúar- hefðir. „Hún var kannski ekki nógu vel heppnuð. Það néðist ekki nógu almenn þétttaka. Það kemur ýmis- legt til kannski fyrst og fremst það, að þetta er ekki vanalegt sýningar- form hérna. Annars fengum við lög- regluvörð til vonar og vara, ef jötun- móður skyldi renna é einhvern viðstaddan. Það var auðvitað gert vegna hinna listaverkanna é götunni." Verð og gildi konungsins Og hvar er svo verkið nú? „Ég veit það ekki", svarar Þurlður, „en hreinsunardeild borgarinnar tók að sér að fjarlægja bílinn." Enginn söknuður eftir sköpunar- verkinu? „Nei, þetta var gert sér- staklega fyrir þetta tækifæri." Eitthvað hefur þetta kostað? „Jú, en af sérstökum éstæðum get ég ekki sagt, hve mikið. Auk bílsins sjálfs fór talsvert I að gera hann upp. if „Dauðadómur yfir verkinu ef einhver hefði viljað kaupa það“. ★ „óþarfi að hampa hégóma- girnd fólks“. if „Reyni að ýta á aumu blettina“. ★ „Annað hvort bilaðir eða dóu úr kaffieitrun". if Mikið ertu hrifinn af skón- um mfnum“, sagði Þurfður Fannberg við hinn ágæta ljós- myndara RAX, sem tók mynd- irnar af henni. Vfst eru skórnir góðir.... pran £ „ÉG hafði um tvennt að velja. Annaðhvort að láta hann grotna þarna niður eða gera það, sem ég hafði alltaf ætlað mér að gera, þótt ég hefði ekki búizt við, að það yrði svona fljótt, — þ.e. að eyðileggja hann. Og um leið gefa fólki ábendingu. ^ UMTALSEFNI: „Konungur dýranna", gyllti Mercedes Benzinn, sem vakti hvað mesta athygli listaverkanna á útisýningunni í Austurstræti, — þangað til listamaðurinn sjálfur eyðilagði hann. 0 VIÐMÆLANDI: Þurfður Fannberg, höfundur verksins, fyrr- um nemandi f Myndlista- og Handfðaskóla íslands, heimilis- haldari f félagi við eiginmann sinn, óvinur Iffsgæðakapp- hlaupsins með meiru. 0 AUKA-VIÐMÆLANDI: Ólafur Lárusson, fyrrum nemandi f Myndlista- og Handíðaskóla fslands, og tók þátt f samsýningu i Gallerí SÚM sl. tvær vikur, þar sem hann er félagi. # VIÐTALSSTAÐUR: Gallerí SÚM, bakherbergi. • SPYRJANDI: Slagsíðan. Eg Vil ekki Djfina Dfirl” Slag- NAFNSKÍRT ÞURIÐUR A FAH 20.02.51-237 GARÐASTR4ETI 2 Geíið út at Hags fyrir hönd ÞjóSs' OFFICIELT IDENTI' Samtal við Durlðl Fannberg um gylllan bll og aðra skapaða hiutl... — bæði hjálp ýmissa manna og svo efni." Ef einhver hefði viljað kaupa bflinn, segjum fyrir milljón? „Það hefði aldrei hvarflað að mér að selja hann. Það hefði verið dauðadómur yfirverkinu. Gelding." Það var minnzt é ábendingu bfls- ins til fólks? „Já, hann hafði ékveðna merkingu þarna. Hann var ekki settur þarna vegna formfegurð- ar. Almenningur hefur tilhneigingu til að Ifta é myndlist sem eingöngu eitthvað fallegt fyrir augað. Það er langt sfðan menn uppgötvuðu, að list er ekki endilega falleg. Hún þarf Ifka að hafa merkingu. Goya gerði t.d. ekki sérlega fallegar Wiyndir. A.m.k. er hann ekki fyrst og fremst þekktur fyrir það." Hefur þessi merking bflsins sem tékn efnishyggju og Iffsgæðakapp- hlaups komizt til skila? „Ég held, að almennt hafi fólk ekki néð þessu. En ég hef þó heyrt frá fólki é ýmsum aldri, sem hefur skilið þetta rétt." Hneykslunarraddir? „Jé, jé, og þær eru heldur héværari. Enda koma þær kannski fré fólki, sem talar yfir- leitt hátt." Fegurðarsmekkur — hégómagirnd „Ég hef engan éhuga é að fést við það, sem við getum kallað stofulist. Það eru nógu margir um það. Mér finnst óþarfi að vera að hampa hé- gómagirnd fólks. Það er of mikið um það, að fólki finnst verk einhvers listamanns falleg, bara vegna þess, að það hefur heyrt, að hann geri fallegar myndir. Hins vegar finnst mér allt f lagi, að fólk hengi upp myndir f stofunum sfnum, sem þvf einlæglega finnast fallegar. Ég ætla mérekki að fara að segja einum eða neinum fyrir verkum I þvf. Ég vil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.