Morgunblaðið - 01.09.1974, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1974
Tónllst
eftir ÞORKEL
SIGURBJÖRNSSON
Veitvet
kammer-
kórinn
KAMMERKÓR Vcitvct tónlistar-
skólans f Osló hefur verið á tón-
leikafcrð um landið. Hann lauk
ferðinni með söng f Háteigs-
kirkju f Reykjavík á fimmtudags-
kvöld. Stjórnandi kórsins var Tor
Skaugc, og organisti Johann
Warrcn Ugland, sem lék undir f
nokkrum verkanna, og þar að
auki einleik, Prelúdfu og fúgu f
h-moll cftir J. S. Bach og fimm-
þættar útsctningar á norsku þjóð-
lagi eftir Bjarne Slögedahl. Ug-
land sýndi sig að vcra vandvirkur
organisti, beitti hóflega fjöl-
breyttu litarcgistri og var annt
um að draga fram skýrar myndir
formsins f viðfangscfnum sfnum.
Efnisskrá kórsins var skemmti-
lega fjölbreytt. Fyrri hluta henn-
ar söng kórinn af söngloftinu,
verk eftir Britten (Festival Te
Deum — að vfsu samið fyrir
drengjaraddir í sópran og alt),
Schiitz (Sclig sind die Toten og
100. Davfðssálmur), og Bach (Der
Geist hilft unserer Schwacheit
auf). Ekki var þetta allt jafn-
hreint og áferðarfallega sungið,
og má vera, að sjálf staðsetning
kórsins hafi valdið þar einhverju,
a.m.k. virtist sfðari hlutinn koma
mun betur fram. Þá söng kórinn
niðri f kór kirkjunnar.
A þeim hluta efnisskrárinnar
voru eingöngu norsk verk, frum-
samdar mótettur eftir Slögedahl
(Cantate Domino og Antiphona
de Morte), Egil Hovland (Jeru-
salem) og Knut Nystedt (Peace I
leave with you og All the ways of
men) og útsetningar á þjóðlög-
um. Norðmenn eiga nokkra frá-
bæra höfunda kórvcrka, og sumir
þeirra, svo sem þeir Hovland og
Nystedt, hafa hlotið alþjóðlega
viðurkenningu. Styrkur þessara
verka var, hve vel þau sameinuðu
ýmsar nýjar tjárningarleiðir
hefðbundnum söngstfl. Svo sem
fyrr segir, naut söngurinn sín bet-
ur f þessum hluta efnisskrárinnar
— og 28 barkarnir náðu yfir
furðu breitt styrkleikasvið — ein-
staka sinnum hefði kórinn þó
mátt vera betur samtaka.
Söngnum lauk með þremur
þjóðlögum frá Norður-, Suður- og
Vestur-Noregi í útsetningum
þeirra Öistein Sommerfeldt,
Slögedahl og Nystedts. Hinn sfð-
asttaldi náði sérlegum áhrifum f
tign og einfaldleika f laginu „Jes-
us, din söte forening a smala“.
Vonandi skilur hingaðkoma þessa
tónlistarskólakórs eftir þá löngun
f landinu, að okkar tónlistarskól-
ar — sem skipta nú orðið tugum
— fari að sýna svipuð tilþrif f
samsöngvum. Þá yrði þessi tón-
leikaferð meira en skemmtileg
minning fyrir þá, er á hlýddu.
I KOTTURINN feux
SMAFÚLK
I 5AID."6ET OUT
OF THE UJAYí"
I HAVE A NEUJ IMPROVEP
MOTTO..."5P£AK LOUPLY,
AMD CARKV A BEA6LE/
g-'g ~ - - - • •
Jæja, pjakkur, burt með þig!
Eg og hann voffi ætlum að taka
völdin á þessum lcikvclli!
ÉG SAGÐI „BURT MEÐ ÞIG„! —
Voff
Ég er með nýendurbætt heilræði:
„Hækkaðu róminn og hafðu hund
í bagga“.
JRovnuuIilaíiiíi
margfaldnr
markað vðar
FEROIIMAIMO