Morgunblaðið - 06.09.1974, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
Þing Sambands íslenzkra sveitarfélaga:
Verðbólgan er orsök
rekstrarerfiðleikanna
Óska eftir hækkun útsvarsálagningar úr 10 í 11%
LANDSÞING Sambands fs
lenzkra sveitarfélaga lauk f gær.
Samþykkt var áskorun til félags-
málaráðherra að veita þeim
sveitarfélögum, sem þess ðska,
heimild til að innheimta útsvör
með 10% álagi, ef fjárhagserfið-
leikar þeirra gerðu það nauðsyn-
legt. Páll Lfndal, borgarlög-
maður, var cndurkjörinn for-
maður samhandsins. Aðrir f
stjórn voru kjörnir: Ólafur G.
Einarsson, Alexander Stefánsson,
Jón Ben. Asmundsson, Bjarni
Einarsson, Logi Kristjánsson og
Ölver Karlsson. Þá samþykkti
þingið ályktun um landshluta-
samtök sveitarfélaga, þar sem
lögð er áherzla á, að þau eflist og
réttarstaða þeirra verði viður-
kennd.
3 hæstu vinning-
arnir í SÍBS
I gær var dregið i 9. flokki
happdrættis SÍBS og kom hæsti
vinningurinn 500 þús. kr. á miða
nr. 63157 og er sá miði seldur í
Neskaupstað. 200 þús. kr. komu á
miða nr. 18134 á Patreksfirði og
100 þús. kr. komu á miða nr.
27376 og sá miði var seldur í um-
boðinu á Suðurgötu 10.
Ályktun landsþingsins vegna
fjárhagserfiðleika sveitar-
félaganna ' er svohljóðandi:
„Landsþingið vekur athygli
stjórnvalda á fjárhagserfiðleikum
sveitarfélaganna einkum í þétt-
býli, en orsakir þessara erfiðleika
eru, að útgjöld sveitarfélaganna
hafa vaxið í hlutfalli við verðbólg-
una, en tekjur þeirra hafa ekki
aukist að sama skapi, enda ekki
fengist heimild stjórnvalda til
hækkunar helstu tekjustofna, s.s.
útsvara og fasteignaskatta.
Landsþingið skorar á félags-
málaráðherra að veita þeim
sveitarfélögum, sem þess óska,
heimild til að innheimta útsvör
með 10% álagi nú í ár og fram-
vegis, þar sem fjárhagserfiðleikar
sveitarfélaganna gera það
nauðsynlegt.
Ennfremur skorar landsþingið
á fjármálaráðherra, að hann hlut-
ist til um, að fasteignamat verði.
hækkað til samræmis við verð-
lagsbreytingar frá því matið tók
gildi og að þannig breytt fast-
eignamat verði grundvöllur allra
tekna sveitarsjóða, sem miðaðar
eru við fasteignamat." Tillaga
þessi var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum gegn tveim-
ur atkvæðum núverandi og fyrr-
verandi bæjarstjóra á Neskaup-
stað.
Samþykkt var að skora á rfkis-
stjórn og Alþingi að kanna mögu-
leika á að taka upp staðgreiðslu-
kerfi opinberra gjalda f áföngum,
þannig að byrjað yrði að taka upp
staðgreiðslu útsvara. Þá var sam-
þykkt að skora á ríkisstjórn og
Alþingi að hlutast til um, að
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fái
sömu hlutdeild í söluskattsauka
Framhald á bls. 18
Haustþing Fél. ísl myndlistarmanna:
ðánægjavegna
sýningarreglna
Slökkviliðsmenn flytja 5 ára dreng af slysstað f Bankastræti. Hann
fótbrotnaði. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
17 árekstrar og slys
frá kl. 6 til kl. 19
NOKKURRAR óánægju mun
gæta hjá sumum myndlistar-
mönnum sem verk sendu til sýn-
ingarnefndar Félags fslenzkra
myndlistarmanna fyrir haustsýn-
inguna f ár, er hefst á morgun á
Kjarvalsstöðum. Er ástæðan sú,
að f fyrsta sinn hefur nú verið
tekið upp sérstakt móttökugjald
fyrir þau verk, sem sýningar-
nefnd tekur til mats, og var það
1000 krónur fyrir félagsmenn
FtM, en 200 krónur fyrir utan-
félagsmenn. Er þetta gjald
óendurkræft, hvort sem verkin
eru tekin til sýningar eða ekki.
Munu sumir listamannanna jafn-
vel hyggja á málshöfðun vegna
þessa.
□ „Jú það er rétt, að við höfum
orðið varir við nokkra óánægju
örfárra manna,“ sagði Einar Þor-
láksson, formaður sýningarnefnd-
arinnar, er Morgunblaðið bar
þetta undir hann f gær. „Þannig
er þetta alltaf þegar einhverjar
nýjar reglur eru settar. Þetta eru
sýningarreglur, sem samþykktar
voru á framhaldsaðalfundi FtM í
aprfl s.I., og þetta stendur skýrum
stöfum f reglunum, sem menn
gangast undir þegar þeir koma
með verk til nefndarinnar. Þessir
menn virðast ekki hafa lesið nógu
vel það, sem þeir skrifuðu undir.“
Einar sagði, að ástæðan fyrir
þessu móttökugjaldi væri hinn
mikli kostnaður, sem samfara
væri slíku sýningarhaldi vegna
húsnæðis og annars. Félag ís-
lenzkra myndlistarmanna væri
fjárvana félag, hefði t.d. staðið
mjög illa eftir síðustu haustsýn-
ingu, og hefði því ekki verið talið
annað fært en að reyna að dreifa
þessum kostnaði með slíku gjaldi.
Sagði Einar, að þó að þetta væri í
fyrsta sinn, sem þetta móttöku-
gjald væri tekið upp hér, væri
þetta tíðkað alls staðar erlendis.
„Það er fyrst og fremst þeir, sem
ekki fengu þátttökurétt núna,
sem óánægðir eru, og það er að
vissu leyti mjög skiljanlegt. En
þetta eru reglur, sem allir
gengust undir“, sagði Einar Þor-
láksson.
Bárust sýningarnefndinni 366
verk, en rúmur helmingur þeirra
var tekinn til sýningar, eða 197.
FRÁ KLUKKAN 6 f gærmorgun
til klukkan 19 urðu 17 slys og
árekstrar f Reykjavfk, svo enn er
ekkert lát á slysaöldunni, sem nú
gengur yfir. Eru lögreglumenn og
sjúkraliðar á þönum um borgina
allan daginn, og hjá rannsóknar-
lögreglunni hlaðast upp bunkar
af skjölum. Dag hvern verður
milljónatjón f umferðinni og
margir hljóta meiðsli.
Tvö alvarlegustu atvikin í gær
áttu sér stað í Bankastræti og á
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. 1 Bankastræti varð
5 ára drengur fyrir bíl, og hlaut
hann af fótbrot. Mun bfllinn hafa
ekið yfir fót drengsins. Hitt slysið
vildi þannig til, að bílar biðu eftir
grænu ljósi á Miklubrautinni.
Volkswagenbfll kom á töluverðri
ferð að bílaröðinni, en þegar öku-
maðurinn ætlaði að hemla,
virkuðu hemlarnir ekki og lenti
bfllinn harkalega aftan á Range
Rover jeppa. Kona ók bílnum og
var sonur hennar með henni.
Hann hlaut höfuðhögg og var
fluttur á slysadeildina. Jeppinn
skemmdist lítið, en Volkawagen-
bfllinn er talinn ónýtur. Bæði
þessi óhöpp gerðust sfðdegis.
Umræður á Alþingi í gær:
Söluskattur forsenda niður-
greiðslu landbúnaðarafurða
Matthfas Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, gerði eftirfarandi
grein fyrir þeirri tekjuþörf rfkis-
sjóðs, sem lægi til grundvallar
ráðgerðri söluskattshækkun um
2 stig. Beinn f járhagsvandi rfkis-
sjóðs væri tvfþættur. Miðað við
áframhaldandi niðurgreiðslur á
verði landbúnaðarafurða, sem
fyrri rfkisstjórn hefði tekið upp,
næmi vandinn 800 m. kr. Sjúkra-
tryggingar eða halli rfkisspftala,
umfram það, sem áður var ráð
fyrir gert, næmi 130 m. kr. eða
vandi rfkissjóðs samtals 930 m.
kr. Auk þess þyrfti ríkisstjórnin
að ráða fram úr vanda tveggja
rfkisstofnana: Vegagerðar, að
fjárhæð 1000 m. kr., og Raf-
magnsveitna rfkisins, að fjárhæð
400 m.kr. Enn bættust við ýmis
lánsfjáröflunarvandamál, sam-
tals að f járhæð 355 m.kr. Heildar-
fjárhagsvandinn væri þvf hátt f
þrjá milljarða eða nánar til tekið
2.685 m. kr.
Söluskattshækkunin væri ein af
mörgum leiðum, sem fara þyrfti
til fjáröflunar og héldist í hendur
við hækkun bensíns og verðjöfn-
unargjald af raforku. Söluskatts-
hækkunin gæfi naumast nema
um 300 m. kr. á þessu ári en hins
Matthfas Á. Mathiesen, fjármála-
ráðherra.
vegar 1800 m. kr. á ársgrundvelli.
Þórarinn Þórarinsson tók tví-
vegis til máls í umræðunni. Sagði
hann þingmenn Alþýðubandalags
og Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna hafa verið sam-
þykka söluskattshækkun, hækk-
un bensíns og hækkun verðjöfn-
unargjalds af rafmagni, er þessi
mál vóru á umræðustigi í vinstri
stjórninni. Þeir hefðu hinsvegar
snúið við blaði, er í stjórnarand-
stöðu var komið. Nú kæmu þeir
fram í gervi raunverulegra
íhaldsmanna, sem að vísu segðust
ekki vera á móti framkvæmdum,
heldur skattheimtu, sem væri þó
forsenda þess, að hægt væri að
fjármagna framkvæmdirnar.
Hann gerði og grein fyrir fjár-
magnsþörf rfkisins með sömu
tölulegu rökum og fjármálaráð-
herra.
Þórarinn gat þess í ræðu sinni,
að fjármagn væri til á ýmsum
stöðum, sem nýta mætti f fjár-
hagsvanda ríkisins. Nefndi hann í
því sambandi fjármagn lffeyris-
sjóða, bundið sparifé hjá Seðla-
banka íslands og sjóð refsivaxta í
sömu stofnun, sem nú næmi um
1200 m. kr.
Karvel Pálmason sagði Þórarin
Þórarinsson annan mann nú en í
vinstri stjórn. Hann væri nú tals-
maður í hverju skattamáli, sem
skyti upp kolli á þingi. Hann
krafðist skýrra upplýsinga um
fyrirhugaðar láglaunabætur,
hækkun bótagreiðslna trygginga-
kerfisins, hækkun fiskverðs,
raunverulega fjárþörf vegasióðs
Framhald á bls. 18
Grenivík:
Býlin tankvædd
Grenivík 5. sept.
HÉR hafa að undanförnu
staðið yfir gatnagerðarfram-
kvæmdir að þvf marki að
endurnýja jarðveg f aðal-
götunni hér og leggja skolp-
leiðslur. Nú er unnið á um það
bil 400 m kafla, en gatan er um
800 metrar að lengd. Jarð-
vegurinn er tekinn á melum
hér vfðs vegar um nágrennið.
Kartöfluuppskeran er á
næstu grösum. Það er ögn
farið að taka upp f einn og einn
poka og uppskeran er mjög
góð.
Fiskiríið hefur verið sæmi-
legt hér sfðan þeir fóru að róa
með línu, en snurvoðin í sumar
gaf lítinn afla. 4 dekkbátar eru
með línu hér, þrír þeirra um
30 tonn, en svo eru nokkrir
trillubátar með línustúfa.
Vinna er nóg í frystihúsinu.
Farið er að keyra mjólkina
héðan úr sveitinni í tankbflum
og þvf loks búið að tankvæða
býlin. Fer tankbíllinn þrjá
daga f viku með mjólk í stað
daglegra ferða þegar brúsarnir
voru f notkun.
Um þessar mundir er verið
að leggja símann í jörð hér, en
loftlínurnar fóru veg allrar
veraldar á sínum tfma í vetur.
Er línan lögð f jörð frá
Fnjóská og út í Grenivík.
— Björn.
Stúlka lenti með
handlegg í vél
ÉAUST eftir hádegi f gær varð
alvarlegt vinnuslys f hrað-
frystihúsi Isfélags Vestmanna-
eyja við Kirkjusand f Reykja-
vfk. 16 ára stúlka lenti með
handlegg f karfaflökunarvél
og hlaut af brot og mikla
áverka. Þótt meiðslin væru al-
varleg, er talið víst, að hún
muni halda handleggnum.
Stúlkan var að vinna við
karfaflökunarvélina á 2. hæð
frystihússins. Við vélina er
járnpallur, og á hann var sett
trégrind svo að stúlkan gæti
betur athafnað sig við vinn-
una. Missti stúlkan jafnvægið
og lenti peysa hennar f öxli
karfaflökunarvélarinnar og
vafðist vinstri handleggurinn
nokkuð upp á öxulinn áður en
tókst að stöðva vélina. Sjúkra-
lið kom strax á staðinn og var
stúlkan flutt á slysadeild Borg-
arsjúkrahússins, þar sem gert
var að meiðslum hennar.
Stokkseyri:
Aflinn mest ýsa
SLARKFÆRT fiskirí hefur
verið hér upp á síðkastið, 4—
10 tonn f trollið í róðri og má
það heita sæmilegt. 9 bátar róa
nú héðan og er aflinn mest ýsa,
en samt einnig nokkuð af sól-
kola. Vinna er mikil og allir
eru f vinnu hér. Róið er dag-
lega og örlar ekki við stein.
— Steingrfmur.
Grundarfjörður:
Gloppur í
fiskvinnslunni
HÉR ER lítið við að vera um
þessar mundir. Enginn afli
venju fremur á haustin og dag-
ar falla úr í fiskvinnslunni.
Tfðin hefur verið rysjótt hér,
norðangarri upp á síðkastið!
Talsvert er þó við að vera í
byggingum húsa og hjá bænd-
um nýttist heyskapur vel.
— Emil.