Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974 30 + * * iÞRonAFREnm Miwns Eitt bezta lands- lið heimsins á Laugardalsvellinum Eins og frá hefur verið skýrt f blaðinu leika Islendingar lands- leik f knattspyrnu við Belgfu- menn á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Leikur þessi er lið- ur f Evrópubikarkeppni Iandsliða f knattspyrnu, fyrsti leikur ts- lendinga f keppninni að þessu sinni, en auk tslendinga og Belg- fumanna leika A-Þjóðverjar og Frakkar f þessum riðli og verður leikið við Þjóðverjana f Þýzka- landi f október n.k. — Við gerum okkur grein fyrir því að í mikið er ráðist að taka þátt f þessari keppni, sagði Ellert B. Schram formaður KSl á fundi með fréttamönnum í fyrradag, — sérstaklega verður um töluverða fjárhagslega áhættu að ræða vegna þess að við leggjum metnað okkar f að leika heimaleiki okkar hérlendis. Eg vona að fólk styðji þessa ákvörðun okkar með því að mæta á völlinn þegar leikið verð- ur hér og hvetja landann, sagði Ellert. Ekki fer á milli mála að Belgíu- menn eiga á að skipa einu bezta knattspyrnulandsliði heims, jafn- vel þó svo að það kæmist ekki f sextán-liða úrslitin í heimsmeist- arakeppninni. 1 undankeppni HM voru Belgíumenn í riðli með ís- lendingum, Norðmönnum og Hol- lendingum, og fór svo að Hollend- ingar og Belgfumenn gerðu jafn- tefli í báðum leikjum sfnum 0-0, en Hollendingarnir komust áfram á hagstæðara markahlutfalli í leikjum sínum gegn íslandi og Noregi. Var Belgía slegin út úr keppninni án þess að fá á sig eitt einasta mark f undankeppninni, og verður slíkt sennilega að telj- ast einsdæmi! Hingað koma á vegum Belg- anna 16 leikmenn, þjálfari, lækn- ir, nuddari og eigi færri en sex fararstjórar. Þá er vitað um að a.m.k. þrettán belgískir blaða- menn munu fylgja liðinu hingað og útvarpað verður beinni lýsingu af leiknum til Belgíu. Frægasti leikmaður belgfska landsliðsins er án vafa Paul van Himst, frá Anderlecht — sérstak- lega tekniskur og fljótur leikmað- Lið Belgíu LIÐ Belgfumanna gegn tslandi á Laugardalsvellinum á sunnu- daginn verður þannig skipað: Landsleikjafjöldi fsviga. Hugo Broos, Anderl. (1) Julien Cools, Brúgge (1) Jan Docex, Anderl. (32) Roger Henrotay, Standard (3) Raoui Lambert, Brúgge (24) Marie Jean Pfaff, Beveren (0) Christian Piot, Standard (28) Gilbert van Binst, Anderl. (6) Erwin Vanden Daele, Anderl. (23) Francois van der Elst, Anderl. (2) Ivo van Herp, Mechelen (3) Paul van Himst, Anderl. (78) Wiffried van Moer, Standard (33) Jam Verheyen, Anderl. (27) Austuwer Opið á laugardögum kl. 9—12 en aðrar S.S. búðir verða lokaðar á laugardögum fyrst um sinn. S.S. búðirnar Panl van Himst — frægasti leik- maður belgfska landsliðsins. ur, og frægur markaskorari bæði með liði sínu og landsliðinu. Má geta þess að eftir heimsmeistara- keppnina f Þýzkalandi var valið heimslið í knattspyrnu af blaða- mönnum og vildu allmargir þeirra hafa van Himst í liðinu, jafnvel þótt hann væri ekki með í keppninni, og sögðu að án hans væri ekki hægt að setja upp heimslið. Van Himst er einnig leikreyndasti maður belgíska landsliðsins og leikur sinn 79. landsleik gegn íslendingum. í belgíska liðinu verður aðeins einn nýliði: Jean Marie Pfaff frá Bev- eren-Waas og er hann jafnframt næst yngsti maður liðsins, rúm- lega tvítugur. Sjö af leikmönnum liðsins leika með Anderlecht, en í því eru einnig þrír félagar Ásgeirs Sigur- vinssonar í Standard Liege, þeir Wilfried van Moer, Roger Henrot- ay og Christian Piot. Heimsmet- hafinn tapaði HEIMSMETHAFINN f fimmtar- þraut kvenna, Burglinde Pollak frá Austur-Þýzkalandi varð að lúta f lægra haldi f grein sinni á Evrópumeistaramótinu f Róm f fyrradag. Sigurvegarinn varð Nadesjka Tkatsjenko frá Sovét- rfkjunum sem hlaut 4.776 stig og er það hennar bezti árangur. Pollak var hins vegar langt frá sfnu bezta: Hlaut nú 4.676 stig, en heimsmet hennar er 4.932 stig, sett í fyrra. Arangur Nadesjka Tkatsjenko f einstökum greinum var þessi: 100 metra grindahlaup: 13,9 sek., kúluvarp 16,07 metrar, hástökk 1,74 metr., langstökk 6,36 metrar og 200 metra hlaup: 24,20 sek. Arangur átta beztu stúlknanna varð annars sem hér segir: N. Tkatsjenko, Sovétr. 4,776 B. Pollak, A-Þýzkal. 4.676 Z. Spasovsjovska, Sovétr. 4.550 L. Popovskaja, Sovétr. 4.548 S. Thin, A-Þýakal. 4.445 I. Bruzsenyak, llngverjal. 4.399 M. Olfert, A Þv/kal. 4.391 C. Voss, V-Þýzkal. 3.749 Badminton VETRARSTARF Badminton- deildar Vals hefst um miðjan september. Æfingatímar verða leigðir út þriðjudags- og miðviku- dagskvöld, 10. og 11. september n.k. kl. 20.30 — 22.00 á skrifstofu Vals. Þeir, sem höfðu velli á leigu í fyrra og vilja halda þeim áfram, þurfa að gera skil á ofangreindum tímum, annars verða vellirnir leigðir öðrum. Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. Slippfélagið í Reyk/avík h. f., Mýrargötu 2, sími 10123. Enn ein sending Verðið f dag: 260 I kr. 56.900 Hvítir frystiskápar, 300 lítra, kr. 69.000 af 11 I frystikistum 360 I kr. 64.900 Gulir frystiskápar, 300 lítra, kr. 72.200 komin til landsins 460 I kr. 72.600 Verslunin K PFAFF M Sími26788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.