Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974 Höf. Ármann Leyndardómurinn á loftinu Kr. Einarsson Ekki þori ég að fara strax niður með pappakass- ann. Ég heyri, að fólkið er að drakka kaffið i eldhúsinu. Ég fel kassann undir rúminu, ég hlýt að geta seinna laumazt með hann út, svo enginn sjái. Þegar ég kem niður, veiti ég þvi athygli, að Jón bóndi er óvenjulega áhyggjufullur á svipinn, hann sem annars er vanur að vera svo gáskafullur og léttur í máli. Hvað er nú á seyði? hugsa ég. Brátt fæ ég að heyra, hvað það er, sem veldur hugarangri húsbóndans, og reyndar alls heimilisfólksins. Það hefur hitnað svo í heyinu í hlöðunni, að hætta er á, að kviknað geti í þvi. Ég var alltaf hrædd við, hvað þið drifuð mikið inn af illa þurru heyi fyrri partinn í sumar, segir Elín húsfreyja. Það var ekki um annað að gera í óþurrkatíðinni, svarar Jón bóndi. En ég held, að það megi bjarga heyinu, með því að grafa í það djúpar holur á víð og dreif og láta hitann rjúka burt, bætir hann við íhugandi eftir nokkra þögn. Eftir kaffið er svo byrjað að róta til í hlöðunni. Ég HOGNI HREKKVISI Ég bað þig Högni um að fara gætilega með gúmmimúsina. reyni meira að segja að hjálpa til. Holur eru grafnar niður í heyið með vissu millibili, og reynt að hafa þær sem dýpstar. En það er ákaflega erfitt að grafa djúpt sökum hitans. í fyrstu þykir mér gaman að róta I heyinu. Ég þeyti heyflyksunum í allar áttii, jafnvel upp í hlöðu- mæni. Or heyinu gýs hitalykt, einna líkust ilmi af nýseyddu brauði. En ekki er ég búin að grafa langt niður, þegar heyið er orðið svo heitt, að ég þoldi ekki að koma við það með berum höndunum. Og lyktin minnir ekki lengur á ilmandi brauð, hún er svo römm, að ég fæ ákafa hóstahviðu. Brátt gefst ég upp við þetta hræðilega verk. Fullorðna fólkið lætur ekki hitasvækju og erfiði á sig fá. Það hamast að grafa í heyið svo svitinn bogar af andlitunum. Og þegar ekki er lengur líft niðri í holunum fyrir hita, koma heykvíslarnar í góðar þarfir. Fljótlega gefst ég alveg upp og forða mér út úr hlöðunni. Æ, ósköp var gott að anda að sér fersku lofti. Sigga frænka stendur líka hjá og horfir á. Hún áræðir ekki inn í hitasvækjuna. Allt í einu man ég eftir kassanum hennar mýslu. Ég hafði alveg gleymt honum fyrir ákafanum. Nú er tækifærið að sækja hann, á meðan enginn er inni. Ég þýt óðara inn í bæ og upp í herbergið mitt. Með snöggum handtökum þríf ég kassann og hleyp með hann út. Hérna hef ég kassann alveg tilbúinn, hvísla ég hróðug, þegar ég hitti Rósu. Ágætt, ágætt hvíslar Rósa á móti. Ég ætla að hlaupa inn og reyna að krækja mér í ostbita. Að vörmu spoti kemur Rósa aftur broshýr í bragði. Ég náði í beituna, segir hún í hálfum hljóðum. Ég kinka kolli og svo hröðum við okkur út í skemmu. Okkar fysta verk er að leggja ostbitann við holuna. Síðan bíðum við átekta. Það líður góð stund, en ekkert bólar á mýslu. Skyldi Brandur hafa orðið á undan okkur? Rósa brýtur litla mola af ostinum og kastar þeim inn í holuna. En ekkert heyrist samt til mýslu, þótt ostagnimar liggi í girnilegri röð langt inn í holuna. Við Rósa mælum ekki orð af vörum en lítum áhyggjufullar hvor á aðra. Líklega er ekkert annað að gera en gefast upp við svo búið. Við ákveðum samt að bíða enn nokkra stund. Rósa finnur hreina strigapoka og breiðir á moldargólfið. ANNA FRÁ STÓRUBORG - saga frá sextándu öld eftir Jón Trausta Lögmaður hlustaði með dæmalausri þolinmæði á langan vaðal af þessu tagi, í von um, að eitthvað kynni að synda þar innan um, sem gefið gæti upplýsingar um það, sem hann var að grafast eftir. Hann spurði og spurði fram í það, sem fólkið sagði frá, en eftir allar spumingamar var hann jafn- nær um það, hvenær Hjalti hefði horfið af heimilinu. Sinn miðaði það við hvem atburðinn, sem hann mundi þá bezt í svipinn, en helzt mátti ráða af svörunum, að hann hefði horf- ið einhvem tíma fyrir mitt sumar. En hafði þá aldrei orðið vart við hann á Stómborg eftir að hann hvarf? — Nei, aldrei, aldrei nokkurn tíma. Þó að jorðin hefði gleypt hann, gat hann ekki verið ósýnilegri. Þar var meira að segja varla nokkur skapaður hlutur, sem á hann minnti, fremur en hann hefði aldrei verið til. Smíða- húsið hans stóð alltaf lokað. Smíðahúsið hans? Hvar var það? Utan undir bænum, næsta hús við bænahúsið. Lögmað- ur sendi undireins menn til að brjóta það upp og leita í því. Þeir komu aftur svo búnir. — Spurningunum hélt áfram. Hvað héldu menn, að orðið hefði af Hjalta? Nú, það var nú vandi á það að gizka. Flestir héldu, að hann væri dauður. Hann hafði svo oft leikið sér að alls konar hættum; ekkert var sennilegra en að hann hefði einhvern tíma farið sér að voða. Guð vissi einn, hvar legstaður hans væri. Og húsmóðir in væri oft ósköp dauf, eins og hún bæri harm í hljóði. Sumir héldu, að hann hefði komizt í enska duggu; þær vom þar iðulega fram undan söndunum, og stundum fóm dugg- ararnir í land og stálu fé; það var annars gott, að lögmaður- inn vissi það, svo að hann gæti kært þá fyrir kónginum eða látið bara hengja þá. Það vom bölvaðir fantar á þessum duggum. Höfðu þeir ekki einhvem tíma drepið mann vestur í Rifi? Lögmann meira að segja, eða hirðstjóra, eða eitthvað því um líkt? Víst voru það bölvaðir fantar. — Nú, það gat vel verið, að þeir hefðu tekið Hjalta vel og farið með hann heim til sín; það gat líka meira en verið, að þeir hefðu bara haft hann í beitu. Sumir héldu, að Hjalti hefði lagzt út; hann hefði verið svo hræddur við lögmanninn. Ekki þyrfti þá að spyrja að heimtunum í haust, ef hann lægi í heiðinni og legðist á féð. Illur var dýrbíturinn, en verri vom þessir ólukku útilegumenn. — Nei, Hjalti var vafalaust dauður, annars hefði ekki húsmóðirin blessuð selt eftirlætishestinn hans. Eftirlætis- hestinn? Hafði hann átt reiðhest? Já, þó það væri nú, — hann Brún, undan Brúnku ráðsmannsins. Var hann brúnn? Nei, ekki alveg. Hann var dálítið sokkóttur á framfótunum, — nei, hvaða vitleysa, hann var albrúnn, aðeins með ofur- lítinn hvítan lokk í taglinu. Nei, í faxinu, og stjömu í enn- inu. Og hver hafði keypt hann? Einhver maður undir Ut- ffic&imofgunkaffinu Konan mín keypti hjá ykkur kanarí-unga á síð- asta ári. Æ, vertu ekki að þrasa þetta kona — ég kaupi koju til viðbótar næsta sumar. nefjulýsinu, sem ég tók I morgun, fröken? Hafðu ekki áhyggjur vina — þetta var bara konan mín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.