Morgunblaðið - 06.09.1974, Síða 17

Morgunblaðið - 06.09.1974, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974 17 14,5 milljónir sK^ta í heiminum Evrópusamband skáta er þessa dagana með mikla ráðstefnu á Hótel Loftleiðum. Ráðstefn- una, sem hófst á sunnudag og lýkur á laugardag, sækja 209 skátar frá flestum Evrópulöndunum. Hafa skátarnir lagt undir sig fiesta fundarsali Loftleiðahðtelsins og þar starfa þeir af fullum krafti. Morgunblaðsmenn áttu leið á ráðstefnuna í gær og hittu nokkra þátttakendurna að máli: Skátar vilja, að drengja- og stúlkna- félögin verði sameinuð Lazlo Nagy frá Sviss er fram- kvæmdastjóri Alheimsskáta- hreyfingarinnar, en höfuö- aðsetur framkvæmdastjórnar- innar er í Genf og á skrifstof- unni þar vinna nú 40 manns. Þetta fólk hefur ærið að starfa því 107 lönd eru meðlimir heimsráðsins. Nagy sagði, að innan skáta- hreyfingarinnar væru nú 14 milljónir manna og færi þeim sífellt fjölgandi, flestir væru skátar í Bandaríkjunum. Þá væru „frumherjarnir“ 1 A- Evrópu fjölmennir, en þeir væru ekki meðlimir Heimsráðs- ins. Skátahreyfingin hefur verið í mikilli sókn um allan heim að undanförnu, en mesta athygli hefur vakið hvað starfið gengur vel 1 hinum nýfrjálsu rikjum 1 Afríku. Þar hefur verið komið upp svæðisskrif- stofu og er hún í Lagos, enn- fremur eru svæðisskrifstofur 1 Manilla á Filipseyjum, 1 Costa Rica og 1 Sýrlandi. Sagði Nagy, að mikill hluti starfsins færi í að skipuleggja ráðstefnur og fundi. Þá fer fram allmikil útgáfustarfsemi á vegum skrifstofunnar 1 Genf. — Ég vona, að niðurstöður fundarins hér 1 Reykjavík verði, að heppilegast sé að sameina skátastúlkur og drengi hvar sem er í heiminum, sagði hann að lokum. kvenskáta eru 6,5 millj. meðlimir og eru þeir frá 90 löndum. I Finnlandi aftur á móti eru skátar um 45 þúsund, þar af 22 þús. kvenkyns. Finnsku skátarnir starfa nú undir einni yfirstjórn, en unnið var 1 5 ár að sameiningu drengja- og kvenskáta 1 Finn- landi og sameiningin tókst 1 fyrra, — öllum til mikillar ánægju, sagði Jouhki. Um ráðstefnuna í Reykjavík sagði hún, að engin niðurstaða hefði enn fengizt. Umræður hefðu hafizt á sunnudag, en síð- an hefðu mál verið rædd í nefndum og niðurstöður nefnda yrðu vart á dagskrá fyrr en á föstudag. Þegar færi gæfist reyndu ráðstefnufulltrúar að skoða landið, því ísland væri mjög spennandi land 1 augum erlendra skáta. Þeir kæmu vafalaust hingað oftar, ef fjar- lægðin væri ekki svona mikil og ferðir dýrar. Sjálf kom Jouhki hingað fyrir 12 árum og á þeim tíma finnast henni hér hafa orðið miklar breytingar. Johan Froman er danskur að uppruna, en situr ráðstefnuna fyrir Evrópusamband drengja- skáta, en hann hefur verið for- maður sambandsins sl. tvö ár. Kata Jouhki býr í höfuðborg Finnlands, Helsinki, en hún situr ráðstefnuna fyrir Alþjóða- samband kvenskáta. Hún er formaður fjáröflunarnefndar kvenskáta og er önnur tveggja kvenna, sem sitja ráðstefnuna 1 Reykjavík fyrir Alþjóðasam- bandið. — Þvf miður stóð svo á, að árlegur fundur Alþjóðasam- bandsins er nú og því gátu ekki fleiri setið ráðstefnuna 1 Reykjavík, sagði hún þegar við ræddum við hana. Innan Alþjóðasambands Með honum í förinni hingað er kona hans, Inge, en hún er íslenzk í aðra ættina, faðir hennar var Þorsteinn Þor- steinsson hæstaréttarlögmaður 1 Kaupmannahöfn. Johan, sem sjálfur er starf- andi lögfræðingur 1 Kaup- mannahöfn, segir, að hann verji mest öllum sínum fritíma til að starfa fyrir skátafélögin. I Evrópusambandinu eru nú 1.5 millj. meðlimir og skiptast kyn- in til helminga, en því miður eru enn tvö sambönd, sitt fyrir hvort kynið. — Starfandi skátar I Danmörku eru nú um 80 þús. Þar af eru drengir um 40 þús. Má segja, að starfandi skáta- félag sé í hverju þorpi og hverri borg í Danmörku og er það blómstrandi víðast hvar, sagði Froman. Hann sagði, að þessi ráð- stefna skáta á Islandi væri mjög vel skipulögð og landið væri ekki síður spennandi fyrir útlendingana, en 99% þeirra, sem sætu ráðstefnuna, hefðu aldrei komið hingað áður. Rætt væri um útbreiðslu skátahreyf- ingarinnar um allan heim, en aðalverkefnið væri að ræða um hvernig bezt væri hægt að vinna að því að sameina stúlkna- og drengjasamböndin. Á íslandi hefðu stúlkur og drengir starfað saman alla tíð og félögin væru komin undir einn hatt í Hollandi, Danmörku og Finnlandi. Sennilega yrði verst að sameina félögin í Bret- landi. Þá hafa skátarnir rætt um vandamál erlends vinnu- fólks í hinum ýmsu iðnaðar- löndum Evrópu. Víða hafa skapazt mikil vandamál meðal þessa útlenda fólks og sú spurn- ing hefur vaknað hvort ekki megi bjarga mörgum ungling- um úr þessum fjölskyldum frá því að lenda á glpastigum með því að virkja þá 1 skátahreyf- ingunni. Þá sagði Froman, að í Pól- landi og Júgóslavfu væru starf- andi skátahreyfingar, en sam- böndin þar væru ekki í Evrópu- sambandinu heldur 1 sérstöku sambandi Austur-Evrópurfkja. önnur A-Evrópuríki hafa félög, sem svipar mjög til skátahreyf- ingarinnar, en þau kallast yfir- leitt „frumherjar“. Lady Baden-Powell frá Englandi er ein þeirra, sem situr ráðstefnuna. Hún er gift sonarsyni Lady Baden-Powells, stofnanda hreyfingarinnar, og sagðist hafa gerzt skáti, er hún giftist inn í f jölskylduna. — Skátastarf í Englandi er með miklum blóma, sagði hún — þar er nokkuð á aðra milljón starfandi skátar á ýmsum aldri. Það eina, sem háir okkur, er, að við höfum ekki nógu marga foringja, ekki er vafi á að við gætum eflt félagsstarfið til muna, ef fleira fullorðið fólk kæmi til liðs við okkur. — Mín skoðun er sú, að skáta- hreyfingin sé síung og höfði til hverrar kynslóðar. Það sýnir bezt sá mikli áhugi á Englandi hjá börnum og unglingum að starfa með skátum. í hinum ýmsu löndum er auðvitað unnið eftir sama kjarnanum, en á hverjum stað verður að laga sig eftir aðstæðum og ástæðum. En við vinnum eftir meginreglum Lady Baden-Powells, sem hún lagði 1 upphafi. — Islandsferðin hefur verið skínandi góð og skemmtileg. Bæði hefur 'ráðstefnan tekizt með miklum ágætum, okkur hefur gefizt kostur á að skoða okkur um, og förum á morgun, miðvikudag, í ferð til Geysis og Gullfoss og á Þingvelli. Okkur hefur verið boðið til borgar- stjóra og menntamálaráðherra, skoðað Þjóðminjasafnið og fleira mætti telja. Sjálft starfið á ráðstefnunni hefur gengið vel, hún hefur bæði verið hald- in í fyrirlestrum og svo hafa umræðuhópar starfað og skilað sfðan áliti, sem allir hafa getað sagt slna skoðun á. — Það skemmtilegasta við skátahreyfinguna og starfið innan hennar er, að hún er al- þjóðleg. Við eigum þetta áhuga- mál sameiginlegt með mörgum öðrum af ólíkum þjóðum og er það til gagns og gamans að bera saman bækur sínar, sagði frúin að lokum. Marta Norrman er sænsk að uppruna, en situr ráðstefnuna hér sem fulltrúi 1 alþjóðastjórn kvenskáta og hefur setið í þeirri stjórn síðan árið 1966. Alþjóðastjórnin skiptir heim- inum i umráðasvæði, sem hvert er undir ákveðnum reglum. I Evrópu eru skátafélög í öllum Iöndum nema AustuÆvrópu- löndum. Marta Norrman sagðist telja það einhvern mesta ávinning við skátastarfið, að það gæfi barni og unglingi gott veganesti og gerði ungt fólk að sfnum dómi færara að takast á við ýmis vandamál og bregðast við á farsælan hátt. Reynt væri að ná til einstaklingsins og laða fram hæfileikana, sem f honum byggju og margir létu síðar meir í ljós, að þeir hefðu haft mikið gagn og ánægju af skáta- starfinu og vildu ekki án þeirr- ar reynslu vera. Frá Tyrklandi eru fimm þátt- takendur á mótinu, fjórir karl- ar og ein kona. Þrjá karlanna hitti blaðam. Mbl. að máli ör- stutta stund í fundarhléi. Þeir eru Kemal Ataman, þingmaður úr liði núverandi forsætisráð- herra, Seahttin Soysal og Ahm- et Tantanis og eru þeir allir mjög virkir f skátastarfinu f Tyrklandi. Þar eru um 47 þús- und manns innan vébanda hreyfingarinnar og töldu þeir félagar, að mikil framtíð væri fyrir eflingu skátastarfs í Tyrk- landi. — Slíkar ráðstefnur eru gagnlegar, við hittumst og skiptumst á skoðunum, sagði Soysal, — berum saman bækur okkar, sjáum lönd og álfur. Síð- asta slík ráðstefna var í Istan- bul fyrir 2 árum og verður sú næsta að líkindum á Irlandi. Ataman hefur setið á tyrk- neska þinginu rúmlega kjör- tfmabil og hefur fyrir skömmu verið endurkjörinn. Talið barst eins og eðlilegt er að ástandinu á Kýpur og sögðu þeir allir, að fráleitt væri að telja aðgerðir Tyrkja striðsaðgerðir, heldur ráðstafanir í þágu friðar. Gætu allir gengið úr skugga um þetta, sem kynntu sér málin af raunsæi. Þeir sögðu, að tyrk- neska þjóðin stæði öll einhuga að baki ráðamönnum sfnum. Þeir sögðust binda vonir við, að stjórnarskiptin í Grikklandi hefðu f för með sér, að deiluað- ilar gætu setzt niður og rætt málin og komizt að niðurstöðu. Hinar hryllilegu fjöldagrafir, sem fundizt hafa nú síðustu daga, væru þó ekki beinlínis jákvæður þáttur í væntanleg- um friðarviðræðum. Soysal sagði, að félagslegar framfarir væru miklar í Tyrk- landi, en ekki væri rétt að leggja sama mælikvarða á þær og á vestrænum löndum. En unnið væri eftir þeim hug- myndum og áætlunum, sem Kemal Atatíirk hefði mótað og Tyrklandi miðaði í rétta átt. Þeir létu sfðan í ljós hina mestu gleði yfir Islandsferð- inni. Þeir kváðust ekkert hafa vitað um tsland, en nafnið gefið þeim ákveðna og heldur kulda- lega vísbendingu um við hverju væri að búast. Þvf hefðu þeir ákveðið að lesa sér til um land- ið og fræðzt mikið en engu að síður kæmi þeim á óvart, hversu fegurð væri hér stór- brotin, veðrið hlýtt og fólkið elskulegt. Kemal Ataman, Seahttin Soysal og Ahmet Tantanis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.