Morgunblaðið - 06.09.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
23
Hannes Bjömsson fyrrv.
póstfulltrúi - Minning
F. 12. 4.1900
D. 26. 8. 1974
Kveðja frá Póstmannafélagi
Islands.
Hannes var fæddur á Beina-
keldu á Ásum í Austur-Húna-
vatnssýslu 12. 4. 1900. Foreldrar
hans voru Guðrún Magnúsdóttir
og Björn Jóhannsson á Kornsá I
Vatnsdal.
Hannes Björnsson hóf störf hjá
póstþjónustunni árið 1928. Tvö
fyrstu árin starfaði hann við póst-’
húsið á Blönduósi, en hóf svo
störf hjá Póststofunni f Reykjavfk
vorið 1930. Hannes var skipaður
póstafgreiðslumaður 1931 og var
lengstum í því starfi, en sfðustu
árin gegndi hann störfum póst-
fulltrúa við blaðadeild Póststof-
unnar í Reykjavík. Hann iét af
störfum 1958.
Það var mikið lán fyrir póst-
mannastéttina að fá mann eins og
Hannes til starfa fyrir sig á þeim
tfmum þegar ýmis vandamál
steðjuðu að. Það má og telja lfk-
legt, að fáir hafi unnið póstmönn-
‘um meira gagn en hann í störfum
sfnum fyrir stéttina. Hannes
Björnsson var einn aðal hvata-
maðurinn að stofnun byggingar-
samvinnufélags póstmanna árið
1946. Þetta var á þeim árum, þeg-
ar varla þekktist, að opinberir
starfsmenn ættu sínar eigin fbúð-
ir og var því f mikið ráðist af
hálfu Hannesar og félaga hans.
Formaður Póstmannafélags
tslands var hann 1941—45. Var á
þeim árum undir forystu Hannes-
ar mikil gróska í félagsmálum
stéttarinnar og unnust þá margir
sigrar í baráttumálum hennar. Að
þessu búa póstmenn enn þann
dag í dag. Hannes var prýðilega
greindur maður og mikill félags-
hyggjumaður. Hann var fylginn
sér og ræðumaður með ágætum.
Síðar þegar saga félagsins verður
skráð, mun nafn Hannesar bera
hátt.
Megi þáttur hans f félagsmálum
P.F.Í. verða hvatning og leiðarljós
ölium þeim, er á þeim vettvangi
vinna I nútíð og framtíð.
Við færum ekkju Hannesar, frú
Jónu B. Halldórsdóttur, börnum
þeirra og öðrum ættingjum inni-
legar samúðarkveðjur.
F.h. P.F.I.
Reynir Armannsson.
Ráðskona óskast
Stúlka óskast á heimili úti á landi.
Má hafa með sér barn. Upplýs-
ingasimi 95-4676, á kvöldin.
Ferðaféiagsferðir.
Föstudagskvöld 6/9.
Kl. 20.
1. Þórsmörk, (vikudvalir enn
mögulegar)
2. Landmannalaugar — Jökulgil.
3. Berjaferð á Snæfellsnes.
Ferðafélag Islands,
Öldugötu 3,
símar: 19533 —1 1798.
Kvennadeild Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra
Hin árlega kaffisala deildarinnar
verður nk. sunnudag 8. sept. í
Sigtúni við Suðurlandsbraut 26.
kl. 14. Þær konur sem vilja gefa
kökur eða annað meðlæti, eru vin-
samlegast beðnað að koma þvi i
Sigtún fyrir hádegi sama dag.
Stjórnin.
Fró Guðspekifélaginu
Fyrirlestur kl. 9 í kvöld: „Maður
framtiðarinnar".
Vinur minn Hannes Björnsson
lézt hinn 26. ágúst s.l. eftir erfiða
sjúkdómslegu. Ég vil, að kveðja
frá mér fylgi með öðrum þeim,
sem honum verða fluttar að leið-
arlokum.
Ég sá hann síðast 22. júlí, er ég
heimsótti hann. Næsta dag fór ég
í ferðalag og var ég fjarverandi f
þrjár vikur, en er ég kom aftur
heim, var mitt fyrsta verk að
grennslast fyrir um líðan hans, en
þá var mér tjáð, að hann væri það
langt leiddur, að hann mundi ekk-
ert hafa af heimsókn minni að
segja, og vildi ég því heldur
geyma þá mynd í huga mínum, er
ég kvaddi hann áður.
Ég, sem þessar lfnur rita, tel
mig geta dæmt af þeirri samfylgd
með Hannesi, öðrum fremur, á
vettvangi starfs og félagsmála.
Árin miili 1941 og 1946 voru ár
mikilla átaka f félagsmálum póst-
manna. Þá var stofnað byggingar-
félag, sem færði póstmönnum
mikla möguleika á að eignast sfn-
ar eigin ibúðir.
En það, sem hæst ber frá þess-
um árum, var sú breyting á vinnu-
tilhögun, þegar samþykkt var
breyting á vinnutíma. og ný reglu-
gerð samþykkt, sem meðal annars
fól f sér vaktavinnu.
Þar var allt þaulhugsað, og fast
á málum haldið, af þeim, sem
hafði forustuna. Eru það óefað
þær mestu kjarabætur, sem póst-
mannastéttin hefir nokkru sinni
hlotið.
Þetta tvennt, sem ég hefi nefnt,
var verk Hannesar, hugsað af
honum, og framfylgt af honum,
enda lagði hann á þessum árum
nótt við dag að þessi áform hans
kæmust í höfn, til hagsbóta fyrir
stéttina.
Það er ekki á neinn hallað, þó
að ég fullyrði, að hann hafi unnið
póstmannastéttinni meira en,
nokkur annar maður. Sömuleiðis
var hann f stjórn póstmannasjóðs
um margra ára skeið og stóð þar
dyggan vörð um hagsmunamál
póstmanna.
I fljótu bragði virtist Hannes
fáskiptinn og ekki allra. Rétt er,
að hann rasaði ekki um ráð fram f
neinu, í kynnum sínum við aðra,
en þeim mun hlýrri og heilli varð
hann, sem kynnin urðu meiri og
hugðarefnin nánari. Hann var
hreinn og beinn og kom ávallt
beint framanað mönnum. Hann
gat verið harður í samningum, en
hverjum manni samvinnuþýðari,
ef hann mætti einlægni og heil-
indum til bættra kjara fyrir sam-
ferðamenn sfna og félaga.
Þegar ég lít yfir farinn veg, til
þess tíma, er ég hóf störf undir
stjórn hans, er margs að minnast.
Það var mikið happ að njóta þeg-
ar f upphafi leiðsagnar hans og
stuðnings til dáða, bæði í starfi og
félagsmálum. Það var gæfa min
að njóta samfylgdar hans á ör-
lagaríku skeiði framfara i sögu
póstmannastéttarinnar.
Jóna, þér, börnum þfnum og
barnabörnum flyt ég mfnar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Gunnar Jóhannesson.
JdZZBQLL©tCSl<ÓLÍ BÚPU
b
Innritun hafin i „lokuðu vetrar-
tímana" stendur út næstu viku
í síma 83730 eða i skólanum. |\1
N
ATHUGIÐ Q
Aðeins fyrir þær sem verið hafa
i ár eða lengur að staðaldri.
Vinsamlegast hafið samband
við skólann sem fyrst.
Innritun i almenna hópa verður ýr*
Q
auglýst síðar.
Felanslif
JOZZBQLLettSKÓLÍ BÓPU
Héraðsmót
Siðustu héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins á þessu sumri verða
haldin um næstu helgi á eftir-
töldum stöðum:
Vík í Mýrdal
Föstudaginn 6. september kl.
21.00 í Vík i Mýrdal. Ávörp
flytja Ingólfur Jónsson, alþm. og
Guðmundur Sigurðsson, húsa-
smiður.
Höfn í Horna-
firði
Laugardaginn 7. september kl.
21.00 i Höfn í Hornafirði. Ávörp
flytja Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son alþm. og Árni Stefánsson
skólastj.
Fjölbreytt skemmtiatriði á héraðsmótunum annast Hljómsveit Ólafs
Gauks ásamt Svölu Nielsen, Svanhildi og Jörundi Guðmundssyni.
Hljómsveitina skipa: Ólafur Gaukur, Svanhildur, Ágúst Atlason, Bene-
dikt Pálsson og Carl Möller. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn
dansleikur þar sem hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansi.
Tilboð óskast í
eftirtaldar bifreiðar, sem skemmsta hafa í um-
ferðaróhöppum:
Volkswagen 1300 árgerð 1973
Opel Record 1 700 árgerð 1972.
Bifreiðarnar verða til sýnis á Bifreiðaverkstæði
Bjarna Gunnarssonar, Ármúla 28, Reykjavík, í
dag frá kl. 1 0—1 7.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, fyrir
hádegi á mánudag 9. sept. 1 974.
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK
AUSTURBÆR
Laufásvegur frá 58, Skipholt 1,
Ingólfsstræti, Bergstaðastræti,
Blönduhlíð, Þingholtsstræti,
Skúlagata, Hátún.
VESTURBÆR
Tómasarhagi, Sólvallagata,
SELTJARNARNES
Nesvegur frá Vegamótum að
Hæðarenda, Melabraut, Skóla-
braut.
ÚTHVERFI
Selás og Rofabær, Laugarásveg-
ur frá 1—37, Bugðulækur,
Kleppsvegur frá 66—96,
Heiðargerði, Hraunbær, raðhús,
Austurbrún.
KÓPAVOGUR
Reynigrund.
GARÐAHREPPUR
Vantar útburðarbörn í Arnarnesi
og á fleiri staði.
Upplýsingar í síma 35408■
GRÆNMETIS-
KYNNING
FRÁ 6,- 15. SEPTEMBER
AÐALBJORG
HÓLMSTEINSDÓTTIR,
húsmæðrakennari kynnir og leiðbeinir um
meðferð grænmetis, daglega kl. 5—7 í
gróðurhúsinu v/Sigtún.
— HEIMSÆKIÐ
GRÓÐURHÚSIÐ í DAG
GRÆNA-TORGIÐ
BIóiRamapkaðap
Hlfpl Ú'xív._._ --.y.v..- lyiijnipmps^