Morgunblaðið - 06.09.1974, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.09.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974 29 4 BRUÐURIN SEIv HVARF Eftir Mariu Lang Þýðandi: Jóhanna Kristjónsdóttir 46 Hún leit ekki upp. Hún fitlaði við blðm í grasinu og dundaði við að tína af því krónublöðin. — En um kvöldið þegar þú varðst fullur á hótelinu, varð ég sjóðandi vond og mér fannst ég hefði loksins losnað undan þessum áhrifum og að mér væri nákvæmlega sama, hvað þér fyndist og hvernig þér liði. Ef ég á að vera hreinskilin, var það | sjálfsagt í tengslum við, að ég naut nú á fyrsta skipti f langan tíma athygli annars manns. Christer horfði heillaöur á ! blómin í kjöltu hennar. Elskar ... elskar ekki... — Um nóttina, þegar ég var orðin ein, gat ég ekki sofið. Ég heyrði hróp neðan frá vatninu og þá fékk ég þá hugmynd, að þú værir í klípu og þyrftir á hjálp að halda og þá afréð ég að fara hingað og gá að þér. Klukkan var þrjú og veðrið var unaðslegt, sólin komin upp og fuglasöngurinn fyllti loftið. Og svo kom ég hingað og þá heyrði ég, ,að þú varst að tala við einhvern inni f eldhúsinu. Og ég þekkti röddina — þú varst að tala við Anneli! Ég varð svo hissa, að ég veit ekki, hvort varð yfirsterkara, hryggðin eða reiðin. Þið tvö, sem ég hafði talið beztu vini mína, sátuð þarna á leyni- fundi og höfðuð af einhverjum ástæðum útilokað mig frá sam- vistum við ykkur. Mér fannst þið hafa brugðizt mér af fullkomnu tillitsleysi ... — Æ, hamingjan góða, þegiðu nú! Lars Ove sló í grasið með krepptum hnefanum. — Það var alls ekki eins og þú útmálar það. Hjá þér hljómar eins og . . . eins og við höfum gert eins konar samsæri. — Hvernig væri það nú, sagði Christer sallarólegur — ef þú hættir sjálfur öllu makkinu og segðir okkur Dinu báðum allt, sem er að segja um þennan við- burðaríka sólarhring. Sem sagt, ekki aðeins valda kafla heldur ALLT. Lars Ove andvarpaði. — Ég héf sagt frá megninu af þvf. Eg hef sagt frá öllu nema heimsókn hennar til mín þessa nótt. Og ég þorði alls ekki að anda neinu út úr mér um það, ég var alveg sannfærður um, að þá yrði ég tafarlaust handtekinn og ákærður fyrir morð. Því næst sagði þann ásakandi og beindi máli sínu til Dinu. — Er þetta kannski ekki rétt? Þú hafðir uppgötvað, að hún var hjá mér — um það bil klukku- stundu áður en hún var myrt. Og hvað svo? Varstu kannski ekki alveg viss um að ég væri morðing- inn? Þú komst hingað út um morguninn og reyndir strax að vara mig við: Gættu þín, Lars Ove: Hún fannst skammt héðan! Vertu nú gætinn! Dina þagði og var niðurlút og Lars Ove hélt áfram og virtist sem hann hefði róazt nokkuð: — Frá byrjun hef ég flækzt inn í þetta mál fyrir eintómar tilvilj- anir. Það var tilviljun, að billinn minn stóð á götunni, þegar Anneli kom hlaupandi. Það var tilviljun, að ég var á leið til Hammarby að sækja hríslur. Og það var líka tilviljun, að ég vaknaði aðfarar- nótt sunnudagsins og gekk út... og kom þá auga á Anneli. Eðg reyndar... ég vaknaði af því ég heyrði einhver hljóð, ég býst við hún hafi staðið á tali við einhvern niðri við vatnið. Þegar ég kom út, þyrstur og þunnur, stóð hún úti á stóru brúnni og veifaði til ein- hvers, sem var í báti úti á vatn- inu... — Mats Norrgárd... sagði Christer lágt. — Já, það veit ég ekki. Ég sá bara bátinn og einhverja veru í honum. Og ég hafði meiri áhuga á að tala við Anneli. Ég hrópaði til hennar. Hún hrökk í kút, svo kom hún hlaupandi hingað til mfn. — Hvað var klukkan þá? — Að verða þrjú, hygg ég. — Hvernig leit hún út? — Hún var í fallegum hvftum kjól, en hann var krumpaður og hún hafði fest liljublóm við belt- ið, það eru sjálfsagt þau blóm, sem hún hefur misst seinna. Hún var ekki í yfirhöfn og ekki með neina tösku. — Og hárið? Var það greitt upp? — Já, já. Hún var ósköp lík sjálfri sér. En þó... eins og full- orðnari... eins og eitthvað hefði gerzt. — Og hvað svo? — Ja, ég sagði náttúrlega: Hvar í andskotanum hefur þú verið og hvemig stendur á, að þú kemur þessu öllu af stað. En hún hló bara eins og ekkert væri og sagði: Getum við ekki komið inn? Ef við stöndum hér fyrir utan og rífumst hljótum við að vekja móður mina. Því næst varð hún þess áskynja, hvað ég var timbraður og þá bjó hún til kaffi og spurði mig spjör- unum úr. .. hvernig allir hefðu brugðizt við, þegar ekkert varð úr brúðkaupinu. Stöku sinnum meðan ég var að segja frá brosti hún og einu sinni eða tvisvar sagði hún „aumingja mamma“ og „aumingja Kim“ og loks missti ég þolinmæðina og krafðist þess, að hún gæfi mér einhverja skýringu. En þá starði hún á mig þessum stóru, dökkbláu augum og sagði mjög hægt... Hann lokaði augunum og reyndi augsýnilega að muna sem nákvæmast hvað hún hafði sagt: „Hefur þú einhvem tíma upp- lifað, að manneskja hafi svikið þig, Lars Ove? Ekki hvaða mann- eskja sem er, heldur manneskja, sem þér hefur þótt óskaplega vænt um? Það gerðist lfka ýmis- legt fleira, en það var, þegar ég fékk að vita ÞAÐ, að allt hrundi f rúst umhverfis mig. Mér þykir ákaflega leitt, að svona skyldi þurfa að fara, en þegar ég sá heildarmyndina gat ég ekki gert annað en það, sem ég gerði...“ — Sveik? hvfslaði Dina með öndina í hálsinum. — Og hver...? Sagði hún ekkert um það...? VELVAKANDI Velvakandi svarar I slma 10-100 kl. 10.30— 11.30, frá mánudegi til föstudags. • Fjallapríl Eyja- manna í f jarlæg- um heimsálfum Birgir Þórhallsson skrifar: Kæri Velvakandi! S. 1. laugardag var hópi ungra Vestmannaeyinga send dálitið sérstæð kveðja af nafnlausum höfundi í dálkum þínum. Það er engu líkara en höfund- inum finnist sjálfsagt, að Vest- mannaeyingar eigi að búa við önnur kjör en aðrir landsmenn, hvað viðvikur ferðalögum til út- landa. Helzt er að skilja á grein- inni, að fjallganga þeirra Eyja- manna í Austur-Afriku sé með einhverjum hætti fjármögnuð af söfnunarfé, en í greininni eru m.a. þessi orð: „Hvað skyldu þeir nú halda, sem sendu jafnvel aura, sem þeir gátu naumast af séð vegna fátæktar, en lesa nú um „Mont“-tindaferðalag þeirra alls- lausu Eyjaskeggja, sem misstu heimili sin i gosinu?“ % Eyjamennfái að fara í friði til útlanda eins og aðrir landsmenn Svo er guði fyrir að þakka, að afleiðingar gossins á Heimaey urðu ekki nærri eins alvarlegar og ástæða var til að óttast á tíma- bili. Samt eiga margir Vest- mannaeyingar við erfiðleika að etja sökum gossins, þótt verstu hörmungarnar séu nú að baki. Sem betur fer er þetta í fyrsta og eina skiptið, sem ég hefi séð ráðizt á sérstakan hóp fólks, sem er að fara til útlanda, í ábyrgum fjölmiðli hér á landi. Hvers eiga þessir Eyjamenn að gjalda? Ahugamenn um fjallgöngur eru til með öllum þjóðum og einnig hér. Málum er nú svo komið, að það er algengt að hópur fólks fari utan til þess að stunda þar íþrótt- ir sfnar bæði f keppni og leik, án þess að eiga það á hættu að verða fyrir opinberu aðkasti af þeim sökum. Væri ekki rétt að leyfa Eyjamönnum að fara sína ferð f friði eins og öðrum lands- mönnum, sem aldrei hafa farið fleiri utanlandsferðir en á því Herrans ári 1974? 0 SAS stendur ekki undir kostnaði ferðarinnar Fjármögnun þessarar ferðar er auðvitað einkamál þeirra f Eyjum eins og annarra, sem til útlanda fara, en hitt verður að leiðrétta, að SAS stendur ekki undir kostn- aði þessarar ferðar, þótt rétt sé, eins og fram hefir komið, að sér- stakir samningar hafi verið gerðir við SAS um þessa ferð, sem draga nokkuð úr útgjöldunum. Hér er ekki við hæfi og sjálfsagt ekki leyfilegt heldur að ræða neitt frekar um kostnaðarhlið þeirrar ferðar, sem gerð er að umtalsefni í dálkum þfnum s.l. laugardag. öllum er í lófa lagið að afla upp- lýsinga um verð AusturAfríku- ferða og bera það saman við verð annarra utanlandsferða, sem landsmenn hafa verið að fara undanfarin misseri. Birgir Þórhallsson." # Ósiður að gefa án þess að tíma því Þá er hér bréf um sama efni frá konu úr Eyjum: „Kæri Velvakandi. Ég var að enda við að lesa Vel- vakanda um fjallapril Eyjamanna og utanlandsferðir, og get ég ekki orða bundizt. Ég er frá Eyjum, fædd þar og uppalin, en á því miður ekki því láni að fagna að komast þangað aftur. En ég tel ekki ástæðu til að klæðast tötrum, ef ég á annað betra til, og ekki lft ég á mig sem betlara. Ég veit, að mörgum finnst lífið vera svo stutt, að þá langar til að sjá eitthvað áður en þeir hrökkva upp af, ekki sizt þeim, sem svo nærri stóðu dauðanum. Litfa trú hefi ég á því, að sá maður, sem umrædda grein skrif- aði, hafi gefið mikið, enda hefur það alltaf verið talið ósiður hér á landi að gefa en tfma þvi þó ekki. Eyjamenn hafa alltaf unnið mikið og gera það enn, — og hafa fátt haft sér til skemmtunar. Heyrt hefi ég, að þeir unglingar, sem nú hafa lagt upp í umrætt ferðalag, hafi neitað sér um flest það, sem öðrum unglingum finnst sjálfsagt til að komast í þessa ferð. Ég hefiekki farið f utanlands- ferðir og klifið fjöll í Sviss eða Afríku, enda enginn unglingur lengur. En ég gæti vel hugsað mér að taka þátt f samskotum til að þessi maður kæmist með i ferðina og gæti prflað svo lítið líka. Ein , sem er reglulega sár og undrandi." # Átthasafjötrar? Velvakandi er sammála báðum þessum bréfriturum, eins og raunar kom fram af athugasemd, sem birtist með bréfinu um dag- inn. Ástæðan til þess, að bréfið var birt, var raunar sú, að Velvakandi hafði orðið var við það sjónarmið áður, að sérstakt tiltökumál væri, að Vestmannaeyingar fremur en aðrir færu í „lystireisur" til út- landa, auk þess sem sérstakt öfundarefni virtist vera, að um ferðir þeirra væri getið í fjöl- miðlum. Fleiri bréf um þetta efni hafa borizt Velvakanda, og verður a.m.k. eitt þeirra birt næstu daga. Sá hugsunarháttur er auðvitað mjög sérstæður svo ekki sé meira sagt, að Vestmannaeyingareigi að vera undir einhverri smásjá varðandi gerðir sínar og ferðir, vegna gossins. í Vestmannaeyjum og þeirrar staðreyndar, að reynt hefur verið að bæta þeim tjónið eftir því sem hægt er. Ennfremur má benda á það, að átthagafjötrar hafa ekki verið settir á Islendinga, hvorki Vest- mannaeyinga né aðra. Nýkomið Mikiö úrval af tréklossum fyrir börn og fulloröna Póstsendum V E R Z LU N I N GZísiW

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.