Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 4

Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 4
4 ® 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 \_______________/ CAR RENTAL ZT 21190 21188 LOFTLEIÐIR Alúðarþakkir færi ég öllum þeim, sem sýndu mér hlýhug á sjötugsafmæli minu. Guð blessi ykkur öll. Kristinn Árnason, Gerðum. Bifreiðasala Notaóirbilartilsölu Jeep CJ-5 með biæju árg. '74 Willys jeep 6 cyl. árg '67. Jeppster 6 cyl. árg. '71 Hunter De luxe 1 725 árg. '72 Hunter sjálfskiptur árg. '70 Sunbeam Arrow sjálfskiptur árg. '70 Matador Brougham 2ja dyra, 8 cyl. sjálfskíptur, powerstýri og bremsur, ekinn 4 þús. km. árg. '74 Hornet 4ra dyra árg. '71. Datsun 1 4 J '74 Volkswagen Fastback árg '68 Volkswagen 1 200 árg. '63 Allt á sama stað EGILL VILHJALMSSON HF Laugavegi 118-Sími 15700 nucivsmcnR «gi*-»224B0 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 Sr. BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási: egar i dymbilviku hófust ferm- ingar í stærri kaupstöðum og flesta helga daga fram að sumarsólhvörfum munu ung- menni ganga hvítklædd upp að vígðum ölturum viðsvegar um Island og játa, að þau vilji hafa frelsarann, Jesúm Krist, að leiðtoga í lífi sinu. Þau hyggjast treysta á vernd hins góða hirð- is, sem segir: „Vertu ekki hrædd, litla hjörð, þvi að föður yðar hefur þóknazt að gefa yður rikið". Þessi hvatningarorð mælti Jesú við lærisveina sína, og þau segir hann við fermingarbörnin nú, já, og við okkur öll, sem á hann hlýðum. Höfum við þá ekkert að óttast hér í þessum heimi? Njótum við þess örygg- is, sem ekki getur brugðizt? Heimsfréttirnar benda ekki til þess um þessar mundir, fremur en fyrri daginn, og íslenzkir stjórnmálamenn og forystu- menn launþega og atvinnurek- enda virðast sjá ýmsar varhuga- veróar blikur á iofti, illviðráð- anleg vandræði, sem að okkur muni steðja um ófyrirsjáanlega framtíð. Umferðin virðist heldur ekki hættulaus, hvort heldur er i lofti, á láði og legi. Jafnvel gleðimótin sýnast ekki ævinlega háskalaus. Og verð- mæti okkar bæði andleg og ver- aldleg eru ósjaldan sögð í hættu; þjóðleg menning, ást- kæra ilhýra málið. Hvert sem skyggnzt er af sjónarhæðum okkar virðist jarðlífið varðað voða og torfærum. Ef við erum svartsýn, munu einhverjir segja. Það er hægt að þræða forsæludalina og einstigi skuggabjarga. „Vertu ekki hrædd, litla hjörð.“ Þessi orð Jesú fela ekki í sér þá hvöt, að við skulum láta okkur á sama standa, hvernig allt veltur, að réttast sé og þægilegast að loka augunum fyrir þvi, sem miður fer. Nei, Kristur segir við okkur: Verið ekki hrædd að takast á við lifið, hættur þess og torfærur. Og nú langar mig til að nota tækifærið og helga þessa hugvekju fermingarbörn- unum, sem klædd hvitum skrúða ganga upp að borði Guðs, aitarinu í kirkjunni, á þessu vori, til þess að játast Kristi. Það er mikilvæg stund i lífi þeirra og um það verða þau að hugsa áfram að henni lok- inni og ekki siður foreldrar þeirra og aðrir ástvinir, sem hafa mótandi áhrif á líf þeirra. I kirkjunni er þeim afhent stærsta gjöfin, sem okkur mönnum er gefin, „þvi Guði hefur þóknazt að gefa yður ríkið". Þeirri gjöf fylgir mikil ábyrgð. Þegar ungmennin taka við fermingargjöfunum sínum, þá gerum við ráð fyrir, að þeim sé ofarlega i huga að gæta þeirra vel. Ég minnist þess, þegar ég var fermingardreng- ur, að þá fékk ég hjólhest frá foreldrum minum. Næstu vik- urnar á eftir þreyttist ég ekki á því að fægja hann og snyrta. En sá áhugi dvínaði með tímanum, hjólhesturinn bilaði og varð ryðinu að bráð. Þau örlög bíða þeirra áþreifanlegu, jarðnesku gjafa, sem okkur eru gefnar, að þær láta fyrr eða siðar undan tímans tönn. Með því á ég ekki við, að fermingarbörnin skuli vanmeta þá hluti, sem ætt- ingjar þeirra og vinir færa þeim að gjöf i tilefni hátíðar- innar. Þau ættu að vera minnug þess, að að baki þeirra býr kær- leikshugur, sem vill þeim vel. hálsinn. — En „Guði hefur þóknazt að gefa yður rikið“. Gerum við okkur grein fyrir gjöf Guðs. Við höfum lært það, að ekki er hægt að benda á ytri takmörk guðsrikisins. „Guðsríki er hið innra meó yður,“ sagði Kristur. Heill okkar byggist á þvi, hvort við veitum þeirri eilífu gjöf við- töku. Það sýnist ekkert vanda- mál, að taka við gjöfum. í ævin- týrum lásum við um snarráða konungssyni, sem þágu heil konungsríki að gjöf fyrir unnar hetjudáóir. En hér er ekki um ævintýri að ræða, heldur stað- reynd. Guósríki, sem stendur okkur til boða. Það er ekki auð- velt að taka við þvi hér i heimi og ekki sizt á meðan allt leikur i lyndi. Það er ekki auðvelt að vera kristinn maður, vegna þess að það krefst sjálfsafneit- unar. Tilboð og tækifæri skort- ir ekki í lífinu. Vald auglýsinga og tizku er mikið. Mér kemur til hugar sakleysislegt dæmi. Hóp- ur skólafólks stanzaði i Laufási til þess að skoða gamla bæinn og kirkjuna. Flestir ungl- inganna voru með ungbarna- hringlur bundnar um hálsinn og tottuðu pela og dúsur. Þetta tiltæki setti hjákátlegan svip á hópinn. Þá veitti ég því athygli, að þau fáu, sem ekki höfðu til- einkað sér þennan barnaskap, virtust sett hjá, hafa sennilega ungbarnahringlur bundnar um goldið þeirrar sérvizku sinnar, aó vilja ekki vera með. Ekki kemur mér til hugar að halda því fram, aó þarna hafi verið um hættulega tízku að ræða, enda þótt ég kynni því ill.a að sjá hóp af ungu fólki i kirkj- unni tottandi snuð og pela, og margir hefðu brosað og sagt: Lítið er ungs manns gaman. En þetta atvik leiddi í ljós þann dæmalausa veikleika, sem við mennirnir erum oft haldnir af gagnvart hverskyns múgsefjun. — Hver verður svo viðnáms- þróttur þessara ungmenna gegn áfengistízku, lauslæti, óráðvendni í viðskiptum og fleiri meinsemdum, sem hrjá þjóðfélag okkar og eru af sumum talin manngildismerki? Við skulum vona, að þau skipi sér þá fremur í raðir sérvitring- anna, þeirra, sem gátu sagt nei við þeirri barnalegu heimsku, sem óprýddi þennan lffsglaða og mannvænlega hóp. „Guði hefur þóknazt að gefa yður ríkið." Rödd hans hljómar hið innra með okkur. Hlustum eftir henni í hvert sinn, er ákvörðun skal tekin, hvort heldur hún telst mikilvæg eða lítilfjörleg, og biðjum hirðinn góða að leiða okkur upp úr forsæludölum undanlátsemi og eigingirni. Minnumst þess, að hann leggur líf sitt i sölurnar fyrir okkur. Frá bridgedeild Breiðfirðingafélagsins Nú er fjórum kvöldum af sjö lokið i barometir-tvímennings- keppninni hjá okkur og er staða efstu para þessi: Böðvar Guðmundsson — Kristján Andrésson 409 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthíasson 318 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 257 Hannes Jónsson — Oliver Kristófersson 253 Halldór Jónsson — Ólafur Jónsson 221 Gissur Guðmundsson — Jón Þorleifsson 200 Ólafur Ingimundarson — Ólafur Guttormsson 1 58 Bergsveinn Breiðfjörð — Tómas Sigurðsson 140 Jón Magnússon — Hilmar Jónsson 138 Magnús Oddsson — Magnús Halldórsson 136 Næsta umferð verður spiluð á fimmtudaginn kemur. Spilað er i Domus Medica kl. 20. XXX Að fimm umferðum loknum i Butler-tvimenningskeppni Bridge- félags Reykjavikur hafa Guð- mundur Pótursson og Karl Sigur- hjartarson mjakað sér i efsta sæt- ið, sem þeir deildu með Jakobi Ármannssyni og Páli Hjaltasyni. Co*Sigginn í Grámoskvu og Har Old Villsson f Ufsflondon Ifta Segulbandarfkin og Can-eanada yfir höfuö Haffsrael og Hárkambódfa fundu Mjólkurkúvælu í skolfulindum Saltsýrlands Kamerúna var aó ángóla og þeytti Alsýru Röð og stig efstu para er nú þessi: Guðmundur Pétursson — Karl Sigurhjartarson 335 Jakob Ármannsson — Páll Hjaltason 330 Guðlaugur R. Jóhannsson — Örn Arnþórsson 304 Sigu'rður Sverrisson — Valur Sigurðsson 290 um gervalla Hjónarúmeníu meðan Hjólbörma flutti Jólapakkistan frá Túrbangladess A Pelíkanaríeyjum og í Gúmmitékkóslóvakfu liggur Tæfan og bfður Hrægam bíu I Nóatúnis togar Yfirfrakkland ítalfu Magnús Aspelund — Steingrímur Jónasson 285 Ólafur Lárusson — Lárus Hermannsson 285 Hörður Arnþórsson — Þórarinn Sigþórsson 284 Ólafur Valgeirsson — Þórir Sigursteinsson 283 Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Pálsson 281 Bragi Erlendsson — Ríkarður Steinbergsson 278 Næsta umferð verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld kl. 20 í Domus Medica. A.G.R. Kis-kisínger leggur enn kennarabaiönd undir Lófót. s\TþT\ J rivn A Bersi vandkvæðaskáld: OKIJ 1 LlKA Landafrœði fyrir byrj-endur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.