Morgunblaðið - 13.04.1975, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1975
Oscarsverðlaunahaf-
inn Ellen Burstyn
Þau Ellen Burstyn og Kris Kristoferson i aðalhlutverkum myndar-
innar ALICE DOESN’t LIVE HERE ANYMORE.
Bréfa-
dálkar
Geir Gunnlaugsson skrifar:
Ég vil byrja á því að þakka
mörg góð skrif um kvikmyndir
á siðunni. Ég veit að við erum
sammála um þá miklu lágkúru,
sem rikir í kvikmyndavali kvik-
myndahúsa okkar, sem er lik-
legast aðeins bein afleiðing
þess, sem almenningur vill sjá.
Svo virðist sem aðsókn ætli
aldrei að linna á flestar þeirra
mynda, sem kalla á eltingarleik
lögreglubila, átök og skothrið
og sem sýnilega virðast ekki
hafa annan tilgang en að fá
peninga inn.
Hvernig væri nú að reyna að
grafast fyrir um orsakir þess-
ara mála? Að mínu áliti væri
mjög gagnlegt og fróðlegt að
byrjað væri á því að gera úttekt
á barnasýningum kvikmynda-
húsanna, sem langoftast eru
langt fyrir neðan velsæmi. A
þessum áýningum fáum við
okkar fyrstu raunverulegu
kynni af kvikmyndum og því
bráð nauðsyn, að til vais þeirra
sé vandað.
Ér ég hef litið yfir auglýsing-
ar kvikmyndahúsanna hefur
mér sýnst, að þar bæri mest á
villtum vestrum, sprenghlægi-
legum gamanmyndum og ýmiss
konar teiknimyndum, sem
sýndar eru sí og æ.
Ég verð að benda hér á lofs-
vert framtak Háskólabíós, sem
sýndi á barnasýningu fyrir
rúmri viku teiknimynd um
Mareo Polo og hafði verið sett
islenskt tal við þá mynd. Þar tel
ég að gott framtak sé á ferðinni
og vona, að það lofi góðu um
áframhald.
Tilgangur þessa hnoðs er
aðeins að benda á þarft um-
ræðuefni, sem etv. gæti ýtt okk-
ur út fyrir þau sker, sem við
erum nú i sjálfheldu í. Ég ætl-
ast ekki til þess, að þetta bréf
sé birt, en vona að það ýti undir
skrif um barnasýningar al-
mennt. Éinnig mætti gera að
stærra og meira máli kvik-
myndaval sjónvarpsins, en það
mál læt ég kyrrt liggja.
Geir Gunnlaugsson.
Við þökkum brél' Geirs og
birtum það vegna þess, að þetta
bréf er einmitt í þeim anda,
sem þessi bréfadálkur var
hugsaður, þ.e. til að láta í Ijós
skoðanir lesenda á hinum ýmsu
málum. Ég er hjartanlega sam-
mála bréfritara um uppeldis-
legt gildi barnamynda og það
væri sannarlega fróðlegt að
taka sér fyrir hendur að fara
nokkrum sinnum á þrjú-bíó á
sunnudögum og skoða þessar
myndir.
— 0 —
Og svo er hér annað bréf frá
O.Þ.:
„Éyrir allnokkru siðan var
sýnd mynd í sjónvarpinu, sem
nefndist „My Ériend
Jonathan“. Hún var gerð af
ungum Islendingi, Agústi að
mig minnir. Geturðu gefið mér
einhverjar upplýsingar um
þennan skóla, sem hann er í?
Svo eru það fleiri spurning-
ar:
1) Verða myndirnar
„Brewster McCloud" og „Um-
hverfis jörðina á 80 dögum“
endursýndar?
2) Geturðu bent mér á ein-
hverjar góóar kvikmyndabibli-
ur og hvar ég fæ þær?
3) Þegar talað hefur verið
um James Bond myndirnar,
hefur aldrei verið minnst á
„Casino Royale, þar sem David
Niven lék James Bond. Hvers
vegna?
4) 1 hvaða myndum hefur
Peter O’Toole leikið?
5) En Malcolm Dowell?
Ö.Þ.“
Það er rétt munað, hann heit-
ir Ágúst og er Guðmundsson.
Skólinn er i Bretlandi og nefn-
ist The National Éilm School.
Skólinn er rekinn fyrir styrki
frá rikinu, breska kvikmynda-
iðnaðinum og skólagjöid nem-
enda. Námið er þrjú ár og frek-
ari upplýsingar er hægt að fá
meö því að skrifa til skólans:
National Éilm School,
Beaconsfield Éilm Studios,
Station Road, Beaconsfield,
Bucks, Éngland.
1) Brewster McCloud verður
trúlega ekki sýnd aftur, þar eð
hún var mjög treglega sótt.
„Umhverfis jörðina" verður
hins vegar sýnd en óvist
hvenær.
2) Árbókin The Internatíonal
Éilm Guide er mjög greinargóð
bók um helstu viðburði hvers
árs i kvikmyndaheiminum, auk
þess sem þar eru skrár um
ýmsa hluti t.d. allar kvik-
myndahátíðir og Hblstu tímarit,
sem gefin eru út i þessari grein.
Svo er einnig The World
Éneyclopedia of Éilm, gefin út
af Studio Vista og The Éilm-
goers Companion eftir Lesiie
Halliwell. Kvikmyndabækur
yfirleitt virðast pantaðar í
fremur litlum upplögum hjá
bókaverslunum, enda takmörk-
uð sala, en helst er að reyna í
Bókaverslun Snæbjarnar,
Bókabúð Máls og menningar,
Bókabúð Braga eða hjá Sigfúsi
Eymundssyni. Einnig er hægt
að fá bækurnar pantaðar í
gegnum einhverja af þessum
verslunum.
3) James Bond er ekki bara
nafn, — nafninu fylgir ákveðin
imynd, ákveðin persóna og hug-
takið „James Bond-mynd“ er
bundið við ákveðinn flokk
mynda. Casino Royale er skop-
mynd af Bond, gerð af fimm
leikstjórum (m.a. Huston), sem
fellur ekki að hugtakinu
„Bond-mynd" og þess vegna
ekki talin með sem slik.
4) M.a.: The Day They
Robbed The Bank of England
(60), Lawrence of Arabia (62)
Becket (64), Lord Jim (65),
What’s New Pussycat? (65),
How to Steal a Million (66),
The Night of the Generals (66),
The Bible (66), Great Cath-
erine (67), The Lion in Wint-
er (68), Goodbye Mr. Chips
(69), Country Dance (70),
Murphy’s War, The Ruling
Class, Man of La Mancha og nú
siðast í Rosebud.
5) Ef ég man rétt, þá eru það
þessar: If, Raging Moon,
Éigures in a Landscape, Clock-
work Orange, O, Lucky Man.
SSP
Þá er einn af fáum, árlegum
merkisviðburðum kvikmynda-
heimsins um garð genginn —
Oscarsverðlaunaafhendingin.
Nú beinast augu kvikmynda-
unnenda gjarnan fyrst og
fremst að fjórum sigurvegar-
anna, þ.e. leikstjóranum, mynd-
inni og hinum heppnu aðalleik-
urum i karl- og kvenhlut-
verkum. Og þar sem að marg-
umrætt kvennaár er yfirstand-
andi, þá ætla ég að fara nokkr-
um orðum um leikkonuna
ágætu sem vann þessi eftirsóttu
verðlaun í ár, Ellen Burstyn, og
um leið myndina og hlutverkið
sem færði henni hnossið, —
Alice i ALICE DOESN’T LIVE
HERE ANYMORE. Þetta er
lika sannkölluð kvennamynd og
það sem meira er, vel heppnuð i
þokkabót.
Alice saumar öll sín föt sjálf.
Sama máli gegnir um soninn
Tommy, giuggatjöldin, pentu-
dúkana og pottaleppana. Það
fyrsta sem sést líka af henni i
myndinni er þar sem hún bogr-
ar yfir saumavélinni, brosandi
með rósóttan klæðisbút milli
handanna. Alice heldur húsi
sinu hreinu, skrúbbar, ryksug-
ar, þurrkar af og þvær upp.
Aliee steikir lambakjöt í kvöld-
mat — það er uppáhald hús-
bóndans, í eftirrétt er ferskju-
kaka, sem er einsog klippt útúr
myndabók. Gaffall hennar titr-
ar meðan hún fylgist með svip-
brigðum bóndans. Skyldi
honum nú lika maturinn? Ætli
hann sé ánægður?
Nú höfum vió kynnst henni
örlítið.
Sama kvöldið eftir að þau eru
háttuð, fylgist eiginmaðurinn
með sjónvarpinu, ljósglampar
og skuggar flögra um
herbergið. Við hlið hans hvílir
Alice, með augun galopin, og
mjakar sér örhægt og hlýlega
uppað honum. Þegar hann
fælir hana frá sér, þá grefur
Alice höfuðið ofan i koddann og
grætur tómlátlega.
Nú höfum við kynnst henni
betur.
Eftir að húsbóndinn ferst í
bílslysi, fylla mæðginin
heimilisbílinn og flytja á brott.
Þá má segja að kvikmyndin
ALICE DOESN’T LIVE HERE
ANYMORE hefjist í rauninni.
Ellen Burstyn, í aðalhlut-
verkinu, leikur konu sem
þrálátlega reynir að halda jafn-
vægi í glompóttri tilveru sinni.
Stundum skelkuð, framhleypin
eða fyndin, en ber ætíð höfuðið
hátt er hún mætir raunveru-
leika komandi dags.
Læknir ákærður
if Læknir ákærður (The Carey
Treatment), Gamla bíó.
Leikstjóri: Blake Edwards.
Ef þossi mynd er grannt skoduð, getur
hún eflaust orðið kveikja að málefna-
legum umræðum um ýmis mál, eins og
fóstureyðingar, ráðvendni lækna, dagfars-
grfmuna og floira, en því miður hverfur
þráður myndarinnar frá þessum hugleið-
ingum jafnóðum og þær eru að ná sér á
strik. Heildarsvipurinn er þvf einskonar
ódýr sakamálamynd (brjálaður glæpa-
maður er iausnin) með spekingslega yfir-
borðskenndu fvafi.
SSP.
Hún gerir margar misheppn-
aðar tilraunir til að vinna fyrir
sér með söng á lélegum öldur-
húsum og klæðnaður hennar er
álika misheppnaður. „Þegar við
komum til Monterey gengur
okkur allt í haginn,” lofar hún
syninum. En Tommy hefur sin-
ar grunsemdir; „hvernig veistu
það?" spyr hann.
Spurningin nistir hjartað,
áhorfandann lika, því Ellen
Burstyn leikur Alice Hyatt af
þvílikri snilli og innlifun að
hún hlaut Oscarsverðlaunin.
Burstyn hefur verið við leik-
nám mikinn hluta ævinnar,
m.a. áratug undir handleiðslu
Lee Strasberg, (Actors
Studio).
Að vissu leyti hefur Burstyn
samt aðeins þurft að lifa sig dag
frá degi í gegnum hlutverkið,
því líkt og Alice, þá er hún
viðkvæm og auðsærð og reynir
að komast af án karlmanns,
(aidrei verið ekkja, en þrífrá-
skilin). Burstyn á son á svipuðu
reki og Tommy, hann ferðast
yfirleitt með henni.
Nú skiljum við sjálfsagt allt.
„Þetta er engin áróðurs-
mynd," segir Ellen Burstyn,
„heldur skemmtun." Réttara
sagt skemmtun séð með augum
STJÖRNUGJÖF SSP
PAPER MOON ir ir *
AIRPORT 1975 ir ir
POSEIDON ADVENTURE ir ir
THE MACKINTOSH MAN ir ir
THE CAREY TREATMENT ir
kvenmanns. Burstyn hefur
farið með aðalhlutverk áður, en
hér er hún óumdeilanlega
„stjarnan". Ekki aðeins meðan
hún er þessa tvo tima á tjald-
inu, heldur hafði hún einnig
yfirumsjón með flestu sem á
gekk þar fyrir utan. Hún bað
Martin Scorsece um aó leik-
stýra myndinni, þvi MEAN
STREETS sannfærði hana um
að þau gætu unnið saman.
„Hafa handritið til grundvallar,
en gefa leikurunum aðeins
frjálsar hendur." Hún réð
miklu um leikaravalið (sjö af
ellefu aðalleikurunum eru út-
skrifaðir frá Actors Studio) og
margir í lykilstöðum við kvik-
myndagerðina eru kvenmenn,
þ. á m. klipparinn, með-fram-
leiðandinn og leikmuna-
hönnuðurinn. „Við höfum
skapað kvikmynd saman," segir
Ellen, „hún setti aðsóknarmet í
kvikmyndahúsinu í New York,
og þeir karlmenn sem lýstu því
yfir að A.D.L.H.A myndi aldrei
spjara sig, éta það sem úti
frýs."
Ellen Burstyn, sem nú er
fjörutíu og tveggja ára, er búin
að hafa mikið fyrir viðurkenn-
ingunni. Hún baslaði lengi á
Broadway, án nokkurs
árangurs, þá hélt hún til Lee
Strasberg og nam þar meðal
annars með Bruce Dern, og þá
fóru hlutverkin loks að skána.
Éyrir fimm árum lék hún i
sinni fyrstu kvikmynd, og
meðal þeirra sem hún hefur
komið fram í eru ALEX IN
WONDERLAND, THE KING
OÉ MARVIN GARDENS, THE
LAST PICTURE SHOW,
HARRY AND TONTO og siðast
en ekki síst, THE EXCORCIST.
Þessa stundina fer hún með
aðalhlutverk í leikriti á Broad-
way, nefnist það SAME TIME,
NEXT YEAR. Þaó er tveggja
karaktera gamanleikur um ást-
ir og framhjáhald. Með aðal-
hlutverk á móti henni, fer
Charles Grodin, (THE HEART-
BREAK KID). Leikritið hefur
hlotið frábærar viðtökur, svo
það má segja að nú séu Ellen
Burstyn allir vegir færir.
Sæbjörn Valdimarsson.
STJÖRNUGJÖF: S.V.
HASKÓLABlÖ: ir ir ★
NÝJABIÓ: ★★★
AUSTURBÆJAR BÍÓ ★ *
TÓNABlÓ ★ ★
SÆBJÖRN VALDIMARSSON - C-
SIGURDUR SVERRIR PALSSON r7
ó Ijoldinu