Morgunblaðið - 13.04.1975, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.04.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 25 eítir ELINU PÁLMADÓTTUR Hugarástand skattborgar- anna i þessu forsjárstjórnarfari okkar er líklega orðið álíka von- laust og sjóveika mannsins, sem svaraði konu sinni, er hún spurði hvort hann vildi ekki láta þjóninn færa sér matinn i kojuna! — Nei, biddu hann bara um að skvetta matnum beint í sjóinn. Það sparar okkur báðum fyrirhöfn. Sum okkar að minnsta kosti virðumst vera farin að leggja meira upp úr því að fá að halda svolitlu meira af innunnum launum til eigin ráðstöfunar og ánægju, þó eitthvað minna verði fram borið. En þegar framkvæmda- og þjónustuhrað- inn er orðinn svo mikill, að ekki gefst tími til að biða eftir þvi að ráðstöfunarféð fari með þægi- legum meltingarhraða gegn um launþegann og skattborgarann og út í sjó ríkisútgjaldanna, þá fær sá góði borgari bara kligju og gefst upp fyrir vonlausri aðstöðu, eftir að hafa keppzt við að skila af sér með methraða um skeið. Á þessu erum við nú svolítið að átta okkur. Vinnandi fóik virðist farið að leggja nokkuð upp úr því að skattarn- ir feti ofurlítið niður stigann aftur, þó skorin sé að einhverju leyti niður skömmtuð þjónusta og framkvæmdir. Því ekki verð- ur meira úr samsjóðnum greitt en í er látið. Svo ég haldi áfram að segja sögur, þá held ég að okkur liði stundum eins andspænis stóra, útdeilandi guðföður Ríkisvaldi, eins og litlu stúlkunni i eftir- farandi dæmisögu James Thur- bers: Heimsmaðurinn og safn- arinn hann guðfaðir hennar var að koma úr heimsreisu, og hafði sankað að sér i öllum heimshornum hverju því, sem annaðhvort var hægt að skjóta eða kaupa og taka með sér. Hann kom i heimsókn til þess- arar 5 ára gömlu guðdóttur sinnar: — Ég ætla að gefa þér þrjár gjafir. Þú getur fengið hvað sem hugur þinn girnist. Ég á demanta frá Afríku, nas- hyrningshorn frá Egyptalandi, safíra frá Guatemala, filabeins- og gulltaflmenn, elgshorn, merkjatrumbur, hofbjöllur og hátíðabumbur og þrjár fágætar og fagrar brúður. Segðu mér nú, hvað þig langar mest af öllu í, sagði hann og klappaði á koll- inn á telpunni. Litla stúlkan vissi hvað hún vildi, og var ekkert að tvínóna við svarið: — Mig langar til að brjóta gleraug- un þin og spýta á skóna þína! Mórallinn í sögunni er sjálfsagt sá, þó efnahagssérfræðingar hafi mér vitanlega ekki reiknað það út, að maðurinn kæri sig ekkert um að láta troða ofan í sig lífsins gæðum, eins og gæsirnar, sem á að fita til gæsa- lifrarframleiðslu, heldur velja það ómerkilega sjálfur. Og að ekkert langi okkur oft meira til að gera en að spýta á alltfram- bjóðandi forsjármann. Líklega viljum við velja vitleysurnar sjálf, þó þær yrðu kannski eitthvað á borð við ósk- ir litlu stúlkunnar, sem sagði: — Mamma, ef ég væri álfkona, mundi ég breyta öllu í súkku- laðitertu og borða hana svo alla. En þá fær maður heldur ekkert annað en súkkulaðitertu. Þýðir ekkert að heimta líka allt annað og reyna að éta kökuna og eiga hana óétna. í samneyzlunni verður minna á boðstólum, enda ekki meira út látið en í kemur. Hvar mörkin eiga að vera eru menn svo sannarlega ekki sammála, að öðru leyti en því að flestum sýnist að við séum komin yfir markið. Þetta er svolitið flókið mál. En hér fæst ekkert svigrúm til að læra af vitleysunum, eins og hjá börnunum. Skyldum við í þessu vísa landi annars geta lært af vitleysunum? Látið okkur að kenningu verða? Ung kona, sem flutti heim til íslands eftir áramótin eftir langa dvöl í Þýzkalandi, varð alveg undr- andi á viðbrögðum fólks við erfiðu efnahagsástandi. Hún sagði að Þjóðverjar hefðu allir snarlega byrjað að draga úr út- gjöldum sínum, um leið og bólaði á erfiðu ástandi — enda kom í ljós að þeir minnkuðu olíunotkun sína án nokkurra opinberra aðgerða um 10%, þegar olíukreppan hækkaði verðlagið. Hér ruku allir i að kaupa hvað sem hægt var að ná í, þegar þeir heyrðu um effiða tíma, sagði hún. Kannski er þetta ekkert óskiljanlegt. Fyrir einhverja óleiðréttanlega villu í lifsskipulaginu (hver sem við stjórnvölinn situr) virðast dyggðirnar alltaf borga sig verr. Það vill fara eitthvað svipað og hjá löghlýðnu borg- urunum i Frakklandi, sem fóru að beiðni stjórnar sinnar i fyrra, þegar oliukreppan byrj- aði og spöruðu við sig oliu til upphitunar. Nú hefur forseti þeirra skellt á reglum um að heimilin fái ekki nema 80% af þeirri oliu til upphitunar, sem þau notuðu i fyrra. Og þarmeð verða þeir, sem i fyrra drógu úr hitanum hjá sér af þjóðarholl- ustu, nú að sitja i ískulda vegna minnkandi olíu, meðan hinum, sem héldu áfram að bruðla i fyrra, er notalega hlýtt af sin- um olíuskammti. Hjá okkur á óneitanlega við sú regla, að fresta aldrei til morguns að kaupa það sem hægt er að kaupa i dag, þvi þá getur verið kominn nýr skattur á það. Eitthvað virðast viðbrögðin þó fara eftir þjóðum, hvort sem það nú stafar af meðfæddum göllum eða kostum eða þá af uppeldinu. Japanir brugðu eðli sinu samkvæmt, skjótt við og nýleg könnun sýndi að 85% Japana hafa sjálfviljugir gert eitthvað tii að spara oliu vegna erfiðleikanna, enda hollustu þeirra við land sitt, samlanda sína, fyrirtæki sin og land sitt viðbrugðið. Bretar virðast á sama báti og við — og sýndu litil sem engin viðbrögð við erfiðu ástandi — vona bara að einhverntima komi þeirra „síldarhrota" með olíunni i Norðursjó. Og þó — ofurlitla viðleitni má marka hjá okkur. Fóru ekki ungir menn af stað og byrjuðu að stilla kynditæki til að gera þau sparneytnari og sagt að þar geti munaó 400 millj. kr. Og tóku togaramenn ekki allt í einu við sér og fóru að leggja eyrun við því sem fyrrverandi véistjóraskólastjóri hefur verið að segja um að brenna megi svartolíu á togurum og spara 500—600 millj. kr. Menn er jafnvel farið að gruna að það geti komið sér vel fyrir þann, sem ætlar að umgangast við- kvæma hluti á borð við vélar að kunna eitthvað fyrir sér. Það kunni jafnvel að vera betra að hafa lært eitthvað. Ekki hefur alltaf borgað sig að læra slikt, og ekki öllum verið ljóst að það kæmi að nokkru gagni, enda bara hægt að fá undanþágu og prófa sig áfram. i haust var t.d. ekki hægt að byrja aftur vél- skólann í útgerðarstaðnum Vestmannaeyjum vegna þess að aðeins tveir sóttu um skólavist, sagði skólastjórinn mér þegar ég mætti honum á förnum vegi í Reykjavik þar sem kennir nú. Kannski lærum við á erfiðum árum að hagkvæmir hlutir eru einhvers virði. Hingað til höf- um við lagt minni áherzlu á gagnlega hluti í menntunar- kerfi okkar en bókmenntalega og vísindalega. En maður er víst betur settur með fallhlíf líka, þó maður hafi hæðarmæli með, ef maður stekkur út úr flugvél. Ps. Gáruskrif í janúarmánuði komu Jóni isberg sýslumanni til að grípa penna. Hann tók undir það að Reykvíkingar hefóu lagt þó nokkuð til þjóðar- búsins og krónan væri ekki siður mikilvæg en ræturnar. En á einu feilaði hann. Sýslumanni dettur auðvitað ekki annað í hug en að þeir sem ferðast, geri það á kostnað almennings, og heldur því að Gáruhöfundur geri það líka. En þar skauzt honum, því hérmeð vottast að islenzkir opinberir aðilar eða almenningur hefur aðeins tvisvar greitt fargjald sem vinnulaun fyrir undirritaða: 1) sem starfsmann í sendiráðs- vinnu í París fyrir 20 árum 2) sem laun fyrir 7 mánaða vinnu við heimssýninguna i Kanada, greidd í ferðakostnaði og uppi- haldi (dagpeningum) en ekki kaup^reiðslu. Ekki einu sinni vinnuveitandi Gáruhöfundar, Morgunblaðið, hefur greitt neitt flugfargjald fyrir hann til útlanda, það gerir hann venju- lega sjálfur með vinnu eða fé, ef velviljaðir útlendir hafa ekki boðið. Aftur á móti hefur grein- arhöfundur þegið ómælt kaffi, mat og stundum gistingu hjá góðu fólki á ferðum sínum um island fyrir blaðið eða sjálfa sig, meira að segja einu sinni góðar veitingar hjá sýslumanni, og má kannski orða það svo að það sé á kostnaó almennings. Ljósmynd Sv. Þorm. 1000 manna starfsliði voru valdir tveir hópar með 6 þátttakendum hvor. Annar hópurinn samanstóð af verksmiðjufólki, hinn af skrif- stofufólki. Reynt var að sjálf- sögðu að velja hópana sem sam- stæðasta, þannig að utanaðkom- andi áhrif gætu ekki verkað mis- munandi á afköst þeirra. i báðum hópunum var komið á föstum umræðufundum, þar sem reynt var að fá allt starfsfólkið til virkrar umræðu um vandamál hópsins, félagsleg tengsl I fyrir- tækinu, rekstrarstefnu þess, regl- ur, fyrirskipanir og fleiri atriði. Eini munurinn á þessum tveim- ur hópum var sá, að annar hópur- inn hafði heimild til að ákveða sjálfur framleiðslutakmark sitt. Niðurstöður rannsóknarinnar voru, að umræðurnar virtust veita starfsfólkinu einhverja full- nægingu, en framleiðsluaukning var einungis hjá hópnum, sem hafði heimild til að ákveða sjálfur framleiðslutakmark sitt. Komust stjórnendur rannsóknarinnar að þeirri niðurstöðu, að meginatriði við þátttöku starfsfólksins sé möguleikinn fyrir starfsfólkið til að taka ákvarðanir. Slik ákvörð- unartökuheimild sé virkari tæki til framleiðsluaukningar en um- ræðuheimildin.“ Hér er drepið á eitt vandamálið í hinu iðnvædda þjóðfélagi, en það er leiðinn og tilfinning fyrir tilgangsleysi, sem gripur um sig meðal þeirra, sem finnst þeir aðeins vera litið hjól í stórri vél og i rauninni engu ráða um at- hafnir sinar. Ur þessu er nú reynt að bæta með margvislegum hætti og áreióanlega verður í framtið- inni meira um rannsóknir eins og þær, sem hér er getið um og til- raunir til að bæta um á vinnu- markaði. Valddreiffing Ofurvald kerfisins birtist fyrst og fremst í nánast ómennskum viðbrögðum hins opinbera valds. Einstaklingarnir í embættiskerf- inu eru fastir i netinu, og þótt þeir hver um sig séu velviljaðir, komast málin ekki í gegnum kerfið. Hér á landi hjálpar það að vísu enn, að allir þekkjast meira og minna og geta leiðbeint hver öðrum um einstigi, sem enn eru finnanleg í frumskóginum eða sameiginlega leitað uppi göt, sem ekki hefur verið fyllt upp i. En kerfið hefur haldió áfram að þenjast út, og aldrei hefur ofvöxt- urinn verið jafn mikill og á und- anförnum árum, þegar miðstjórn- arvald hefur verið eflt og milljarðar á milljaróa ofan verið færðir frá fólkinu til ríkismið- stjórnarinnar. Almenningur stynur undir þessu fargi og hlýtur að fagna því, ef róttækar aðgeróir til að stemma stigu við þessari þróun sjá dagsins Ijós. Þær lækkanir, sem nú eru gerðar bæði á skatt- heimtu ríkisins og útgjöldum rikissjóðs, eru góðra gjalda verðar og vísbending um það, að loks verði reynt að stinga við fót- um. En það er ekki einungis á sviði ríkisfjármála og rikisafskipta, sem umbóta er þörf í okkar þjóð- félagi. A atvinnusviðinu er vissu- lega líka þörf nýbreytni og um- bóta, og þess vegna er þetta allt nefnt i einu og sama oróinu. Kaupþing A Alþingi hefur verió flutt þingsályktunartillaga um stofnun kaupþings. Og hafa tillögumenn látið i ljós von um, að rekstur kaupþingsins muni leiða til þess, að ný sókn verði hafin i islenzkum atvinnumálum, og þátttaka al- mennings i atvinnurekstri muni aukast. Rekstur opinna hlutafé- laga með þátttöku almennings hefur átt undir högg að sækja hér á landi. En vonandi tekst nú loks að örva alþýðu til þátttöku í at- vinnurekstrinum. En það er ekki einungis i hlutafélagsrekstrinum hér á landi, sem umbóta er þörf. Forustumenn samvinnufélag- anna finna einnig til þess, að þörf er endurskipulagningar og ný- breytni. Þessu til staðfestingar skal hér tekinn traustataki kafli úr erindi, sem Erlendur Einars- son, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga, flutti fyrir nokkrum árum á ráðstefnu Stjórnunarfélagsins, og hug- myndin var að birta á vegum félagsins, þótt af þvi yrði ekki. Erlendur segir m.a.: „Ef við tökum Bretland, þar sem kaupféiögin byrjuðu, þá eru brezku kaupfélögin að formi til hlutafélög. Þau eru með hlutafé, þó þannig, að það fylgir ekki at- kvæðisréttur bréfunum. Hver félagsmaður fer með eitt atkvæði í samræmi við grundvallarreglur samvinnufélaga. Félagsfólkið getur keypt hluti i brezku samvinnufélögunum. 1 sumum félögum er það ótakmark- að, hvað einn félagsmaður má kaupa mikið. I öðrum er það tak- markað við 1000 sterlingspund. Brezku félögin hafa raunveru- lega fjármagnað sig mestmegnis á þennan hátt, þ.e.a.s. með sölu hlutafjár tii félagsmanna. Það þykir fylgja þessu nokkur ókost- ur, að hlutabréfin eru innleysan- leg við sýningu, þannig að félags- maður getur komið með hlutabréf og fengið það greitt við sýningu á skrifstofu viðkomandi kaupfé- lags. Það má þvi segja, að þetta geti verið meira í ætt við lánsfé til skamms tíma. Þó hafa þessi«-bréf verið nokkuð föst. i Vestur-Þýzkalandi, svo ég taki annað land, þá starfar á vegum samvinnufélaganna þar sérstakt fyrirtæki, svokallaður fasteigna- sjóður eða Immobilien Fund. Sjóðurinn gegnir því hlutverki að kaupa eða byggja verzlunar- og skrifstofuhúsnæði, sem hann sið- an selur á leigu til samvinnufyrir- tækja. Hver, sem er, getur keypt hlut í sjóðnum. Einu sinni til tvisvar á ári eru eignir sjóðsins metnar og breytist þá gangverð hlutanna i samræmi við matið á eignunum. Eigendur hlutanna fá því ekki aðeins arð af þvi fjár- magni, sem þeir hafa lagt í sjóð- inn, heldur fá þeir og hlutdeild i þeim verðhækkunartekjum, sem af þvi leiða, að lóðir og fasteignir hækka stöðugt i verði. Bréf í sjóónum eru innleysan- leg hjá bankastofnunum. Það hefur verið samið um það, að þau eru innleysanleg hjá bankastofn- unum viðs vegar um landið og á hverjum tíma liggja fyrir upplýs- ingar um skráð sölu- og kaup- gengi bréfanna. Starfsemi fasteignasjóðsins hefur haft ómetanlega þýðingu fyrir uppbyggingu dreifingar- og verzlunarkerfis á vegum vestur- þýzkra samvinnufélaga, og það er ljóst af fréttum, að sparifjáreig- endur hafa einnig kunnað mjög vel að meta starfsemi fasteigna- sjóðsins, þar sem hann hefur gefið þeim möguleika til hag- stæðrar ávöxtunar á sparifé. Ég ætla að láta þetta nægja um það, hvað nágrannar okkar hafast að, ég vil aðeins láta þess getið, að mál þessi eru nú mjög á dagskrá hjá samvinnufélögum i öðrum löndum, — þ.e.a.s. hvernig þau eigi að finna nýjar leiðir i upp- byggingu fjármagns, og það verður á næsta þingi Alþjóða sam- vinnusambandsins, sent verður haldið um næstu mánaðamót i Varsjá, rætt sérstaklega um nýjar leiðir í uppbyggingu fjármagns í samvinnufélögum." Nýjar leiðir í samvinnu- félögunum Og Erlendur Einarsson heldur áfram: „Það verður eitt af tveimur aðalmálum þingsins, hvernig eigi að finna nýjar leiðir til þess að byggja upp fjármagn í samvinnu- félögunum. Þannig er ekki bara Framhald á bls. 47.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.