Morgunblaðið - 13.04.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.04.1975, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 KRISTNILÍF austan iárntialds MENN greinir mjög á um hver sé staða kristins fólks í löndum austan járntjalds. I haust birt- um við hér á Krossgötum grein um ofsóknir í A-Evrópu, þar sem því var haldið fram að þær væru miklar í mörgum löndum þar. Þá var bent á að i sumum löndum A-Evrópu væri kristni alls ekki kveðin niður, til væru meira að segja verzlanir sem seldu Biblíur og kristilegar bækur. En hvaða ríkisstjórn og hvaða gestgjafi sýnir á sér slæmu hliðarnar? Eflaust eru ofsóknir mjög mismunandi eft- ir löndum og jafnvel landshlut- um. Sumarið ’72 hitti ég nokkra námsmenn, sem bjuggu í Rúmeniu, Júgóslavíu og Rúss- landi. Hvergi var amast við hinni kristnu trú þeirra. En hvergi var þeim heldur gert kleift að sækja kristið sam- félag. Andrúmsloftið var þann- ig i kringum þá, að þeir gátu komizt í vandræði ef þeir lásu sinar Biblíur þar sem menn sáu til. I Júgóslavíu bar þó minnst á þessu og á öðrum vetri námsins komst pilturinn í kynni við samfélag kristinna í kirkju einni. Georgi Vins er prestur í Rúss- landi og leiðtogi baptista þar. Vel þekkt er á Vesturlöndum mál sovéskra gyðinga, en sam- tökin sem Vins þessi stjórnar hafa átt i enn frekari baráttu vegna gagnrýni sinnar á stjórn- völd. Að minnsta kosti 700 hafa verið settir í fangelsi og Vins var dæmdur í 3 ára vinnubúða- vist fyrir nokkrum árum. Síðan gerðist hann prestur í Kiev, en var enn handtekinn s.l. vor og bíður nú réttarhaida. The World Council of Churches, (H.K.), hefur reynt að fá sendan fulltrúa til að fylgjast með réttarhöldunum en ekki tekist, einnig hefur norskum alþingismönnum ver- ið synjað um landvistarleyfi. Heilsu Vins fer síhrakandi meðan hann bíður réttarhald- anna. Þessi heimild er úr Time 27.1. ’75. Tveggja ára fangelsi fyrir biblíudreifingu. Ropet frá Öst er blað gefið út í Noregi og flytur fréttir frá neðanjarðarstarfsemi ýmissa kirkjufélaga i A-Evrópu- löndum. Maður var hand- tekinn með nokkurt magn af Biblium og öðru kristilegu lesefni. Við yfirheyrslur sagði hann hver hefði fengið honum það, ungur prestur hvitasunnu- manna, og var hann handtek- inn. Hann heitir Vasile Rascol. Rascol hafði það sama kvöld Kristilegar bækur eiga ekki upp á pailborðið f Sovétrfkjunum. Hér eru bækur sem voru prentaðar þar á laun. haft erlendan gest hjá sér sem hafði gefið honum fjórar töskur fullar af Biblium og bókum, m.a. För pilagrimsins eftir Bunyan og eitthvað eftir Billy Graham. Tveim mánuðum seinna var Rascol ákærður fyrir að hafa tekið við erlendum bókmennt- um og dreift þeim til landa sinna. I apríl ’74 voru sett lög sem bönnuðu að taka við og dreifa bókmenntum, sem höfðu ekki komið inn í landið eftir opinberum leiðum. Mikil mót- mæli bárust fyrir þessi réttar- höld og voru yfirvöld beðin um að falla frá ákæru. Svo varð þó ekki og Rascol var dæmdur í 2 ára fangelsi í júli eftir réttar- höld, sem vitni sögðu að hefðu verið í meira lagi í ósamræmi við lög og reglur. Prentsmiðja gerð upp- tæk. Seint á árinu ’74 uppgötvuðu KGB menn að í gangi væri prentsmiðja ein í Ligatne i Latvíu, sem framleiddi Biblíur, söngbækur og fleira, sem ekki þótti gott að kæmist til almenn- ings. Prentsmiðjan var í kjall- ara húss eins og hafði hún starfað um nokkuð langt skeið þegar hún fannst. Erfitt var þó um alla efnisútvegun, þvi í Rússlandi hafa yfirvöld t.d. fullt eftirlit með því hvernig pappír i landinu er notaður. Samt höfðu þarna verið prent- aðar þúsundir af Biblium og Nýjatestamenntum og er frá- gangur þeirra alveg óaðfinnan- legur, bæði prentun og bók- band. Þeir sem störfuðu við prentverkið voru eiginiega grafnir lifandi því þeir máttu helzt aldrei yfirgefa staðinn og vera sem minnst á ferðinni til að vekja ekki athygli. Ekki er enn vitað hvernig mál prentar- anna fer en samtals átta voru handteknir. Með tilliti til máls Georgi Vins má sennilega búast við erfiðum timum fyrir þá. Þessi frásögn er einnig tekin úr Ropet frá Öst. Af þessu má sjá að ekki er sældarlif að vera kristinn í sumum löndum austur þar en tekið skal skýrt fram að þetta á alls ekki við um öll svæði þess- ara landa eins og nefnt var í upphafi. Einn áðurnefndra námsmanna, stúlka frá Rúmeníu, hafði ekki einu sinni heyrt um Richard Wurm- brandt, landa sinn, sem var i átta ár fangi kommúnista og var nær dauða en lífi í fanga- vistinni þar. Yfir tíu ár eru liðin siðan hann var látinn laus og má búast við að eitthvað hafi lagast á þeim tíma, ekki aðeins þar heldur og í fleiri löndum. Vasile Rascol, prestur I Rúmenfu, var árið 1974 dæmdur f tveggja ára fangelsi fyrir að dreifa kristilegum bókum. Guðfinna Guðni Hvers virði er Danfel Biblían mér? Guðfinna Helgadóttir: „Biblían er mér mikils virði, því ég trúi þvi, sem i henni stendur. Biblían er upp- byggjandi og þroskandi Guðs orð, sem styrkir, gleður og huggar. I Biblíunni er aó finna kærleika Guðs, vilja hans og tilgang lífsins. Biblian er mér sem sagt dýrmæt og ég vil iifa eftir því sem hún boðar því það er vilji Guðs.“ Guðni Einarsson: „Biblían er mér og öðrum kristnum mönnum dýrmætust bóka. Hún fjallar um fortíð, nútíð og framtíó. Biblían er merk sagnfræðileg heimild. Hún er spádómsrit og lýsir þvi sem er að gerast í heims- málunum og mun gerast. Biblían er stórkostlegasta ástar- saga bókmenntanna þvi hún fjallar um kærleika og ást Guðs á mönnunum. Biblian er opin- berun, skrifuó fyrir innblástur Heilags anda. Hún er bók bókanna." Danfel Óskarsson: „Spurgeon hefur sagt: „Ryk á Bibliu þinni táknar ryð á sálu þinni. Þetta hef ég fengið aó reyna af eigin reynslu og Biblían er orðin mér dýrmætur fjársjóður, sem ég get ekki án verið. Daglega fæ ég að lesa hana og ihuga þetta bréf Drottins til mín í tilbeiðslu og bæn, og ég finn hvernig Guð talar til min gegnum sitt heilaga orð. „Þitt orð er lampi fóta minna og ijós á vegi mínum.“ Sálm. 119,105. „Því ég fyrirverð mig ekki fyrir fagn- aðarerindið; þvi þaó er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, er trúir.“ Róm. 1,16. Biblian er mitt daglega vega- nesti. Hún er einnig með þýðingarmikinn boðskap til þin!“ Steinunn Einarsdóttir: „Biblian er það dýrmætasta sem ég á, það er ekkert í þess- um heimi sem getur komið í staðinn fyrir hana. Hún er orð Guðs til mín og kemur mér þannig i samfélag við hann á hverjum degi. I henni fæ ég að vita Guðs vilja með líf mitt og í hinum ýmsu málum hins dag- lega lífs og er það öruggur grundvöllur að byggja á. í þreytu, erfiðleikum, og sorg gefur hún óendanlega huggun og von. „Þetta er huggun min í eymd minni að orð þitt lætur mig lífi halda" Sálm. 119,50. Þar eru öll loforð Guðs sem gott er að mega halda í, því þau geta ekki brugðist, Jes. 55,11, Sálm. 50,15; 55,23. En það sem er mikilvægast er það að hún veitir mér „speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú, “ II. Tím. 3,14—17. Þar fæ ég sanna mynd af sjálfri mér, þ.e. að ég er syndari sem get ekki verið án náðar Guðs. Þar fæ ég að þekkja þann sem er gefinn öllum mönnum til sáluhjálpar sem tók á sig syndir mínar og þínar, Jesúm Krist, Guðs son." — Grafík Framhald af bls. 12 unni og ber þar hæst mynd nr. 44 er ber hið yfirlætislausa nafn „2005“. Verður gaman að fylgjast með áframhaldinu hjá hinni dugmiklu atorkumanneskju og vonandi staðnar hún ekki í hinum hálfsúr- realistíska myndheimi sínum. Málmæting á sér margar hliðar og er mjög frjó listgrein, og eftir að hafa skoðað hina háþróuðu æt- ingu/akvatintu hinna fyrrnefndu listamanna hrifst ég af línumynd- um Valgerðar Bergsdóttur, sem skera sig úr hvað meðferð nálar- innar snertir og lofa miklu. Þá er framlag Richards Valtingojers mjög athyglisvert því stutt er síð- an hann festi sér grafíkpressu og hóf að vinna í þessari tækni, mál- verk hans á sýningu I Bogasal fyrir nokkrum árum sýndu ótví- ræða grafíska kennd. Þeir standa báðir vel að sínu í dúkristu Jens Kristleifsson og Jón Reykdal og má raunar segja að framlag Jóns sé stórsigur fyrir hann, honum hefur á skemmtilegan hátt tekist að þróa þá sérstöku tilfinningu fyrir skurðarhnífnum, sem kom fljótlega fram á námsárum hans i M- og handíðaskólanum. Þorbjörgu Höskuldsdóttur er merkilega mislagðar hendur sem teiknara en hún á þarna athyglis- vert framlag, sem sker sig úr fyrir sérstæð vinnubrögð. Anna S. Björnsdóttir ætti að hafa einfald- leikann að leiðarljósi, þar nýtur hún sín best, hún yfirhleður myndir sínar meó alls konar flóknum myndtáknum, sem ég kann ekki að meta. Jóhönnu Bogadóttur virðist ganga erfið- lega að þróa mikið skap og sér- staka hæfileika og hlutur hennar á sýningunni er henni naumast samboðinn, sama má raunar segja um framlag Elúsar B. Halldórsson- ar. Þá er komið að sáldþrykkinu, en þar á Þórður Hall stærsta og áhrifamesta framlagið, myndir hans eru tæknilega mjög vel út- færðar, en ég á bágt með að skilja, að maður sem er svo vel gerður í höndunum þurfi að láta ljós- myndatækni vera jafn stórt atriði i útfærslu mynda sinna, mér væri kærara að sjá myndir frjáls og skapandi hugmyndaflugs frá hendi þessa bráðefnilega mynd- listarmanns, það er von mín að hann verði ekki úti í kuldanum og skírskota ég þá til þess að ennþá hefur ekki skapast aðstaða fyrir þessa listgrein hérlendis. Örn Þorsteinsson staófestir ágæta hæfileika í myndum sínum og mynd hans nr. 62 „I sjónum” er ákaflega skemmtilegt sáldþrykk og vel útfært í myndbyggingu og lit, hér er lifandi hugmyndaflug og handverk á ferð. Erlendur gestur félagsins er Rune Grönjord (f. 1934), og eins og nafnið bendir til sænskur að þjóð- erni, hann sýnir hér 5 steinþrykk sem eru hvert öðru betra og fágaðara í tækni og útfærslu. Steinþrykkið er mjög áhugaverð og margslungin listgrein og einna erfiðust innan hinnar grafisku tækni og e.t.v. mannlegust þeirra allra. Aðrir gestir félagsins eru þeir Helgi Þorgils Friðjóns- son og Ólafur Gunnarsson, sem enn eru nemar í M- og handíða- skólanum, hér eru efni á ferð sem vafalaust eiga eftir að láta meira að sér kveða. Ég hef geymt mér að nefna framlag Barböru Árnason, en það er alveg sérstakt á þessari sýn- ingu, konan hefur sannarlega ekki drukknað i tæknilegum vangaveltum, yfirburðir hennar eru hinar mannlegu æðar, sem streyma frá myndum hennar, hlýtt og gróið hjarta og það er einmitt þaó sem gefur allri mikilli list gildi. Myndir hennar eru bornar uppi af mjög sérstæðri og áhugaverðri tækni, sem mætti verða hinum yngri og framsæknu félögum hennar nokkur lærdóm- ur. Edvard Munch sá stórsnjalli grafíker gerði sínar bestu myndir á mjög frumstæðan hátt, sagaði í sundur viðarplötur og skeytti saman líkt og myndkotru og hver eining bar uppi vissan lit, siðan þrykkti hann aðalplötuna þat; of- an á. Tæknin er þannig góð, en hin skynræna tilfinning og stóra hjarta öllu ofar. Þannig vil ég ljúka grein minni um sýningu þessa og óska félagsskapnum vel- ferðar og áframhaldandi átökum á heillandi sviði. Bragi Asgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.